Vísir - 24.06.1977, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 24. júnl 1977
3
,---1,—
4 fl "* «T»
c*
Þörungavinnslan á Reykhólum:
Tilraunarekstur
nœstu þrjá mánuði
— allt í óvissu um hvað þá tekur við
Nýir aöilar hafa tekiö við
rekstri Þörungavinnslunnar á
Reykhólum á Baröaströnd. Eru
þaö þau sveitarfélög sem þarna
eiga mestra hagsmuna aö gæta,
ásamt starfsmönnum viö verk-
smiöjuna. Veröur þetta fyrir-
komulag á um þriggja mánaöa
skeið.
Ekki er enn ljóst hvaö tekur
við að þeim tima loknum, né
heldur hvort rikissjóöur mun
leggja fram fé til rekstursins
þessa þrjá mánuði. Að sögn
Þorvarðs Alfonssonar hjá
Iðnaðarráöuneytinu verður
væntanlega gengið endanlega
frá þeim atriöum á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn verð-
ur i lok þessa mánaðar.
Væntanlega veröur það þvi
reynslan af starfi verksmiöj-
unnar næstu þrjá mánuði sem
sker úr um framtiö Þörunga-
vinnslunnar á Reykhólum, og
þar með um framtið þörunga-
vinnslu hérlendis yfirleitt.
I ráði mun vera að bæta alla
aðstöðu til þörungavinnslunn-
ar, m.a. með þvi að afla meira
magns af heitu vatni, og meo
breyttum aöferðum við þang-
skurð.
Þau sveitarfélög sem tekið
hafa að sér starfrækslu verk-
smiðjunnar I samráði við
starfsmenn og þangskurðar-
menn eru Geiradalshreppur,
Gufudalshreppur og Reykhóla-
hreppur. _ah
Tilfinnanlegur
skortur á kennslu-
tœkjum í Vélskóla
Aðsókn að Vélskólanum
vex nú svo ört, að útlit er
fyrir að neita þurfi jafnvel
fleiri nemendum um
skólavist á 1. stigi en síð-
astliðið haust, en þá var
um þrjátíu umsóknum
synjað.
Skólanum var slitiö fyrir
skömmu og við þaö tækifæri gáfu
nemendur sem útskrifuðust úr
rafmagnsdeild 1967 skólanum
kennslugögn i háþrýstivökva-
fræði að verðmæti 250 þúsund
krónum. Skortur á kennslutækj-
um er nú orðinn mjög tilfinninga-
legur i skólanum. A siöastliðnu
ári voru veittar átta milljónir
króna til kaupa á kennslutækjum
og þykir forráðamönnum skólans
það heldur naumt skorið við nögi.
Um 430 nemendur stunduðu
nám við Vélskóla íslands i vetur,
þar af 379 i Reykjavik en einnig
störfuðu vélskóladeildir á Akur-
eyri, Isafiröi i Vestmannaeyjum
og Keflavik. Alls luku 288 nem-
endur vélstjóraprófi af ýmsum
gráðum. Auk ofangreindra deilda
er I athugun að á næsta skólaári
verði starfræktar vélskóladeildir
á Akranesi, Neskaupstað og á
Sauðárkróki, sem veiti fræðslu til
1. stigs vélstjóraprófs. Fjölbraut-
arskóli Suðurnesja hefur nú vél-
stjórabraut 1. stigs og er hann
fyrsti fjölbrautarskólinn sem hef-
ur slika námsbraut. Nú i vor út-
skrifuðust þaðan fyrstu vélstjórn-
arnir. Búast má við þvi aö fleiri
fjölbrautarskólar muni taka upp
vélstjórabraut. —AHO
Tjaldstœðin opnuð
á Laugarvatni
Tjald- og hjólhýsasvæðin á Lögð verður áhersla á að
Laugarvatni voru opnuð al- koma i veg fyrir ölvun og með-
menningi i sumar frá 10. júni. ferð áfengis á sumardvalar-
Búist er við að margir leggi leið svæðunum. 1 tjaldmiöstööinni
sina þangað, enda verður er til sölu hverskyns ferða-
Laugarvatn sifellt vinsælla sem mannavarningur og þar er
ferðamannastaður. einnig snyrtiaðstaða. —GA
Húll-
umhœ
um
allt
land
Skemmtiflokkurinn Húllumhæ
leggur um næstu helgi upp i ár-
lega sumarferð sina um landið,
og byrjar að þessu sinni
skemmtanahald á Austfjörðum. i
flokknum verða i ár hljómsveit
Ólafs Gauks eftirhermumeistar-
inn Jörundur, sá sem lék hinn
kunna Palla i sjónvarpinu, Svan-
hildur, og siðan kemur liðsauki
frá Bretlandi, sem er dansmærin
Lisa Clark, en hún kemur hingað
beint frá Spáni, þar sem hún hef-
ur dansað fyrir sóldýrkendur aö
undanförnu. Eins og áður veröur
spilað stutt bingó á hverri
skemmtun, en vinningur I hvert
sinn er sólarlandaferð með
Sunnu.
I sumar tekur flokkurinn upp
þá nýbreytni, að halda barna-
A myndinni talið frá v.: ólafur Gaukur. Jörundur (I gervi Nonna
homma) færir Svanhiidi blóm, Benedikt Pálsson (bak við) og Helgi
Kristjánsson. A myndina vantar dansmeyna LIsu, sem ekki var komin
til landsins frá Spáni þegar myndin var tekin.
skemmtanir á þeim stööum þar
sem þvi verður við komið. A
barnaskemmtununum verða
margvisleg atriði, enda er hér um
að ræða listafólk, sem talsvert
hefur fengist við að skemmta
börnum, Jörundur i sjónvarpinu
með brúöuna Palla, Svanhildur á
hljómplötum og i sjónvarpi, bæði
á barnaskemmtunum viða og
sama er að segja um hljómsveit
Ólafs Gauks. Meöal efnis fyrir
börnin verða leikþættir, spurn-
ingaþættir, bingó með góðum
vinningum frá Tómstundahúsinu,
leikir. söngur og grin.
Þessa dagana
gefst tækifæri
aðhlusta
á RÍÓ
á söngferða-
lagi þeirra
um landið.
FALKINN
NÝ FRAB/ER HUOMPLATA!