Vísir - 24.06.1977, Page 27
Verður Friðrik Ólafsson forseti FIDE?
m
VISIR Föstudagur 24. júnf 1977
(
Símatími lesendasíðu Vísis
frá klukkan 13-15. Sími 86611
Umsjón: Hallgrímur H. Helgason
27
)
STYÐJUM
FRIÐRIK
Það er nú ákveðið að okkar
ágæti skákmaður, Friðrik
Ólafsson, gefur kost á sér sem
forseta FIDE. En þótt hann
njóti stuðnings dr. Euwe, nú-
verandi forseta, er ekki þar með
sagt að hann fái þessa virð-
ingarstöðu. Það eru engir smá-
kallar sem bjóða sig fram á
móti honum.
Islenska ríkisstjórnin hefur
heitið stuðningi við framboð
Friðriks, en ekki er enn ljóst i
hverju sá stuðningur verður
fólginn. Þetta þyrfti að skýrast
sem allra fyrst.
Það er talsverð fjöður í hatt-
inn að eiga forseta FIDE og fá
aðalstöðvar sambandsins
hingað til lands. Rikisstjórnir
mótframbjóðendanna munu
áreiðanlega ekki liggja á liði
Þær urðu margar ásjónur Nixons í þáttum Davids Frosts sem sýndir voru nýlega i
Bandaríkjunum og verða vonandi sýndir í íslenska sjónvarpinu.
Sýnið sjónvarps-
viðtöl Nixons
Suðurnesjamaður skrifar
blaðinu og fjallar þar m.a. um
sjónvarpsviðtölin við Nixon
fyrrum bandarikjaforseta:
„Viðtöl breska sjónvarps-
mannsins David Frosts við hinn
fallna forseta Bandarikjanna,
Richard Nixon hafa vakið
mikla athygli viða um heim.
Þetta á þó sérstaklega' við um
þann hluta viðtalsins, sem fjall-
aði um Watergate-málið og af-
sögn Nixons.
Ég vil nota þetta tækifæri til
að skora á forráðamenn is-
lenska sjónvarpsins að fá a.m.k.
áhrifamestu hluta þessa viðtals
til sýningar hér. Ekki er að efa
að margir myndu horfa á það
efni með athygli hér sem annars
staðar.”
sinu, auk þess sem skáksam-
bönd landa þeirra eru miklu
stærri, sterkari og efnaðri en
Skáksamband Islands.
Það verður þvi að koma í ljós
sem alira fyrst að islenska
rikissstjórnin hyggist gera veg
FIDE góðan ef það kemur
hingað til lands. Skákáhugi og
skákfréttir fara vaxandi I
heiminum. Með því að fá aðal-
stöðvar FIDE hingað til lands
tryggjum við okkur mikla og
góða landkynningu, auk annars
góðs sem af þessu leiðir.
Það má þvi ekki hika og
humma, þar til allt er um
seinan. Islenska rikisstjórnin
þarf að vinna vel að þvi, ásamt
Skáksambandinu, að tryggja að
þessi f jöður lendi ekki einhvers-
staðar annarsstaðar. —óT.
Sóknarkonurnar á vegum heimilishjálpar borgarinnar veita öldruðum og sjúkum borgarbúum ómetan-
lega þjónustu i heimahúsum, en eru ekki taldar geta hjálpaö til á sjúkrahúsunum. Þarf þvl aö senda
sjúklinga heim vegna sumarleyfa hjúkrunarfræöinga.
Vísismynd: JA.
HJUKRUNAR-
MÁLIÐ ÞARF
AÐ LEYSA
G. Guöjónsson, Reykjavlk
hringdi:
Mér þykir þarft aö Visir skuli
hafa tekið upp vandamál aldraðs
fólks og sjúklinga i höfuðborginni
varðandi þjónustu við þá eftir að
þetta fólk er sent heim af sjúkra-
húsunum.
Ég get ekki skiliö þá þröngsýni,
sem virðist rikja meðal lækna og
stjórnenda sjúkrahúsa i sam-
bandi við afleysingar á spitulun-
um þegar hjúkrunarfræðingarnir
fara i sumarfri. Hvers vegna er
ekki hægt að láta sóknarkonurnar
leysa vandann á spitulunum i stað
þess að senda fólkið sjúkt heim og
láta þær annast sjúklingana þar á
vegum heimilishjálpar borgar-
innar. Það þarf endilega aö vinna
ötullega að þessu máli, þannig að
leyst verði úr þvi neyðarástandi,
sem nú hefur skapast.
Mér þótti þaö merkilegt sem
kom fram i Visi að starfsfólk
heimilishjálparinnar hjá borginni
er um 250 manns. Það er miklu
umfangsmeiri starfsemi en ég
hafði gert mér grein fyrir, en nú
kemur vel i ljós hversu þörf hún
er.
Vonast ég til að Visir taki fleiri
þætti þessa máls fyrir og þannig
takist að vekja nægilega mikla
athygli á þessu máli, til að eitt-
hvað róttækt verði gert i þvi.
Ég þekki til fjölskyldu sem hef-
ur verið í miklum vandræðum
vegna veikinda, sem upp komu
þar nýlega og heimilishjálpin hef-
ur ekki getað sinnt vegna þess
álags, sem nú hefur skapast eftir
aö fariö hefur verið að senda
sjúklingana heim af spitölunum.
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
í póstkröfu
Altikabuoin
Hverfisgötu 72. S. 22677
VÍSIR
Ég óska aö gerast áskrifandi
Simi 86611
Síöumúla 8
Reykjavik
"1
Nafn
Heimili
Sveitafélag
ÍMh