Tíminn - 08.10.1968, Síða 2

Tíminn - 08.10.1968, Síða 2
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 1968. TÍMINN KING VATNSDÆLUR og vatnsdælusett nýkomið fyrir Chevrolet, Rambler o. fl. bifreiðar. SMYRILL, Ármúla 7, sími 12260. Tilboð óskast í smíði og uppsetningu handriða í Lögreglustöðvarbygginguna við Hverfisgötu- Útboðslýsing og teikningar afhendast á skrifstofu vorri gegn kr. l.OOO.oo skilatryggingu. Tilboð verða opnuð föstudaginn 18. október n.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTLINI 7 SÍMI 10140 KÓRSKÓLI Safnaðanna í Reykjavík Nemendur komi til viðtals að Fríkirkjuvegi 11, sem hér segir: Stúlkur miðvikudag 9. okt kl. 6.30 e.h. Piltar fimmtudag 10. okt. kl. 6.30 e.h. Námsgreinar eru: Raddlþjálfun, heyrnarþjálfun, nótnalestur og kórsöngur. Kennsla fer fram að Fríkirkjuvegi 11 nemendum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar gefur Hrefna Tynes í síma 13726 eða 15937. Kirkjukórasamband Reykjavíkurprófastsdæmis Jean Gabin og Robcrf Hossein. Svallariiin á fraimmálinu Le tonnere de dieu. Leikstjóri: Denys' de ia Patellére Handrit byggt á skáldsögu Bernard Clavel „Qui m’em- porte“ eftir D. Jardin og G. Servei Tónlist: Geroges Gervanentz Frönsk frá árinu 1965. Kvikmyndari: Walter Wottezt Sýningarstaður: Nýja bió, danskur texti. Myndin fjallar um dýralaekni (Jean Gatoin), sem hefur þá áráttu að draga með sér heim flækinga, ftökkurakka og loks mellu. Konan hans (Lili Palmer) umtoer þetta allt með þögn og þolinmæði, að- eins eitt getur hún ekki þolað, að hann ásaki hana vegna barnleysi þeirra. Mellan (Michéle Mercier) vill heldur dvelja í sveitinni hjá þeim en mæla göturnar í Nantes en melludólgnum (Robert Hossein) líkar það miður. Eftir ítrekaðar til raunir verður hann frá að hverfa og stúlkan kynnist bónda úr ná- grenninu (Georges Géret). Allt endar vel í þessari frönsku gaman mynd. Jean Gabin er feitari, eldri og skemmtilegri en nokkurn tíma fyrr og erngin furða að hann haldi enn velli sem vinsælasti leikari Frakka, kominn á gamals aldur. Palmer er fin sem keðjureykjandi eiginkona af prússneskum stofni og Mercier falleg í æsku sinni og ráðleysi. Gaman er að sjá Rotoert Hossein í hlutverki melludólgsins, góð tilbreyting frá „Angelique* myndum sem hann leikur í. Hóp- ur af hundum leikur stórt hlut- verk. Létt kýmni Frakkanna ásamt sérkennilegri tónlist Gervanentz, gera myndina mjög skemmtilega. Wottezt k\'ikmyndari hefur auga fyrir spaugilegum atriðum t. d. barnavagninn ofan á bflnum, eins og hann svífi í lausu iofti yfir full- sprottnum akrinum. Allir unnendur franskra bvik- mynda oig Gabin ættu ekki að láta myndina fram hjá sér fara, hún er bráðskemmtileg. P. L. H A L L D Ó R Skólavörðustíg 2 TRÚLOFUNARHRINGAR — afgreiddir samdægurs Sendum um allt land. Jón Grétar Sigurðsson héraðsdómslögmaður Austurstræti 6 Sími 18783. f HLJÓMLEIKASAL Tónleikar Tón- listarfélagsins Á árunum, um og eftir sið- ari styrjöld, voru gestakomur erlendra listamanna aðeins brot af því sem nú er. Okkar eigin listamenn, höfðu þvi mörgu að sinna, þar sem það kom í hlut tiltölulega fárra manna að s’já löndum sinum fyrir andlegri menninigarstarf- semi. — Þeir Árni Kristjáns- son og Björn Ólafsson voru eins konar máttarstoðir í mús- íklífi þessara ára, með fjöl- mörgum ágætum tónleikum, sem þeir héldu nokkuð reglu- lega, um áraraðlr. Kammertónlist í margri mynd, varð að mestu þeirra starf þá. Hygg ég varla ofmælt að í fljótu bragði verði varla tölu komið á þann fjölda tón- vcrka sem þeir léku saman á þeísum árum, og gerðu mörg- um áheyranda svo mikið gott. í þessari viku tóku þeir fé- lagar upp þráðinn að nýju með tónleikum á vegum Tón- listarfélagsins með góðkunnu efnisvali, þar sem annars vegar voru Schubert, Brahms og Beethoven. — Að hlýða á sam- leik þeirra Árna og Björns, líkist helst samtali sem átt er við góðan vin, en rofnað hefir skyndilega. Hvort tíminn er langur eða skammur er það hefst aftur, skiptir ekki öllu. Tengslin, andinn og skilpingur- inn, hefir aldrei rofnað.. Allt er fyrir hendi þegar þráðurinn er tekinn upp að nýju. — Sam- staða og eining í túlkun er þeirra óhagganlegi burðarás, Barn Á íslandi er söngur farfugl- anna hljóðnaður og þeir horfn ir okkur i bili, enda svalt haust ið gengið í garð. Á hryssings- legu haustkveldi tyllti samt ó- venjulegur hópur farfugla sér niður á fjalir Þjóðleikhússins, og færði ungum og gömlum áheyrendum, sérstæðan sumar- auka, með yndislegum söng. Það var barnakórinn frá Obernkirchen í Þýzkalandi, sem staldraði við hér á flugi sinu til fjarlægra landa. Hið unga fólk , sem þennan kór skipar er ekki allt hátt í lofti, en undir hínni frábæru stjórn og þar af leiðandi svo miklu af að miðla. Tónleikar þessir voru í heild svo sannir og uppbyggflegir, að slfka list má kalla mann- bætandi. Unnur Arnórsdóttir. akór Edith Möller, á þetta æskufólk yfirburði yfir sér marga eldri og ráðsettari söngvara. Túlk- unramáti þeirra, og aðdáanleg ur innlifunarhæfileiki, sem felur i sér rótgróna menningu og músik, er fágætur. Þýzkir klassískir söngvar — barok og nútímalög, ásamt þjóðlSgum frá ýmsum löndum, voru á efn isskrá. Slík listkynning verður öllum ógleymanleg er á hlýða. Hver hefir t.d. ekki bara stað ið og sungið ,,Heiðarósina“, án þess að grufla yfir texta? Þarna endurlífguðu þessir ungu Framhald á bls, 15 HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS Á morgun eru seinustu fprvöð að endurnýja. Á fimmtudag verður dregið í 10. flokki. 2.400 vinningar að fjárhæð 6.900.000 krónur. Happdrættí Háskóla íslands 10 flokkur. 2 á 500.000 kr. 2 á 100.000 — 112 á 10.000 — 320 á 5.000 — 1.960 á 1.500 — Aukavinningar: 4 á 10.000 — 2.400 1.000.000 kr. 200.000 — 1.120.000 — 1.600.000 — 2.940.000 — 40.000 kr. 6.900.00 kr.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.