Tíminn - 08.10.1968, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. október 1968.
TIMINN
Hóprannsóknir kvenna
eru að hefjast á veg-
um Hjartaverndar
Sieg Heil, Sieg Heil, hrópuðu mótmælendur yfir hverjum manni og konu, sem voru á leið til að fagna
þjóðhátíðardegi alþýðulýðveldisins og taka þátt í síðlegisdrykkju í boði verzlunarfulltrúans.
HERNÁMSKOKTEILL
Framhald af bls. 1
byo að ekki var hægt áð hreyfa
farartækið. í þröngum gangi sem
er framam við anddyrið var einn-
ig hópur ungmenna og héldu marg
ir á mótmælaspjöldum þar sem
innráis Varsjárbandalagsrikjanna
í Tékkóslóvakíu’ var mótmælt. Veg
farendum voru afhent dreifibréf.
Við innganginn stóðu tvær tékkn-
eskar konur, sem búsettar eru
hér á landi, undir tókkneska fán-
anum, sem dreginn var í hálfa
stöng og oifan við fánann voru
svartir borðar á stönginni. Undir
þetta tákn gengu þeir síðdegis-
drykkjugestir sem inn komust.
Hjá konunum stöð Björn Þorsteins
son, sagnfræðingur, formaður
Tékknesk-íslenzka félagsiris. Þess
ber að geta að félagið sem silíkt
stóð ekki fyrir mótmælaaðgerð-
unum. Þeir sem helzt höfðu sig í
frammi voru íslenzkir námsmenn.
sem dvalið hafa í Tókkóslóvakíu
og nemendur Menntaskólans við
Hamrahlíð. Þá mátti sjá gamail-
kunn andlit frá ýmisum mótmæla-
aðeerðum hernámsandstæðinga.
A öðru dreifibréfanna er haka-
kross undir yfirskriftinni Jedem
das seine — hverjum sitt. Undir
þessu ártölin 1938, undir því
SA—SS, og 1968 D.JýR. Hitt
dreifibréfið er svóhljóðandi:
MINNIZT TÉKKÓSLÓVAKÍU
Adolf Hitler Walter Ulbricht
1938. 1968.
Úr samþykkt Tékknesk-íslenzka
félagsins 25. ágúist S. 1.:
Við lýsum aðdáun okkar á
þeirri dirfsku, staðfestu og stilll-
ingu, sem þjóðir Tékkóslóvakíu
hafa sýnt gagnvart ofurefli inn-
rásarherja Varsjárbandalagsins.
Jafnframt skorum við á fólk að
láta óbvírætt í ljós við fuilltrúa
ininríísarríkjanna fyrirlitningu sína
á athæfi ríkisstjórna þeirra, hve-
nær sem færi gefst. —
Um það bil er veizlan skyldi
hefjast voru mótmælendur setstir
á sína staði og við dyrnar stóðu
tveir lögreglumenn og gátu þeir
ekki annað gert en biðja gesti að
hafa biðlund og unga fólkið að
hleypa þeim inn. En það sat sem
fasta.st og harðneitaði nokkrum
manni um aðgang, en söng hástöf
um Hann á afmæli í dag, hann á
afmæli í dag. Ulbricht á afmæli
í dag o. s. frv. og auðvitað var
kveðskapurinn sunginn með sínu
lagi. Þess á milli var hrópað Sieg
Heii, Sieg Heii, með tilheyrandi
handauppréttingu.
Trúlega hefur mörgum boðsgest
um ekki þótt fýsilegt að berjast
með lögregluvaldi gegnum mann
söfnuðinn. En örfáum tókst að
komast inn í innri gang og að
lyftudyrum. En lengra ekki. Lög
reglumenn báðu fólkið að standa
upp úr tröppunum og fara úr
lyf-tunni, en allt kom fyrir ekki.
Því fastara sem að var sótt þeim
mun hærra var sun.gið og hrópað
Sieg Heil. Örfáir veizlugesta
stóðu við lyftudyr og komust
hvorki út né inn, en báðu vanmátt
uga lögreglumenn um aðstoð. For
maður Menningar og friðarsam-
taka íslenzkra kvenna stóð þar
fremstur í flokki.
Upphófust nú nokkrar deilur
meðal setufól'ks um hvort hleypa
skyldi fólki í gleðina eða ekki og
hvort sýna ætti óvirka andstöðu
eða beita valdi.
Björn Þorsteinsson reyndi að
tala til mótmælenda og bað um
; að þessu fólki yrði hleypt í „her
1 námskoktei'linn“ og væri enda
skömm þess enn meiri heldur en
ef því væri meinuð innganga,
Skiptist unga fólkið í tvo flokka
og vildu sumir hleypa fólki inn en
aðrir þvertóku fyrir það.
Bar nú að fyrirferðamikinn
ferðaskrifstofuforstjóra, sem ekki
var á þeim buxunum að láta nokkr
ar unglingspútur standa í vegi fyr
ir sér, og þurfti sé enga lögreglu
vernd til að komast gegnum þvög
una og talaði hátt við þá sem
vildu meina honum inngöngu. í
stiganum mundaði ungur piltur
myndavél að forstjóranum, sem
brást hinn versti við og heimtaði
að engar myndir urðu teknar af
sér og vildi fá að sjá nafnskírteini
unga mannsins og skrifaði niður
nafn hans og vita ekki aðrir til
hivers.
Var liðið nokkuð á boðaðan síð
degisdrykkjutima þegar lögreglan
fékk liðsauka og hafizt var handa
um að „hreinsa út“. Létu mótmæl
endur sig hvergi og lögðust sumir
í tröppurnar og á gólfið og varð
að bera bæði stráka og stelpur
sem ekki voru síður harðskeittar
út. Þegar búið var að ryðja and
dyri byggingarinmar og fjölmennt
lögreglulið stóð vörð utan við
dyrnar fór fleiri gesti að bera
að. Þeir sem inn fóru voru flestir
verzlunarmenn en fjölmennastir
gesta sýndust vera starfsfólk
sovézka sendiráðsins. Þótt lögregl
an gerði sitt bezta til að vernda
þá sem„ inn þurftu að komast,
varð hver og einn veizlugesta að
ganga inn undir uppréttum hönd
um mótmælenda og undir tékkn
eska fánann, og var hrópað í
sífellu Sieg Heil.
Sá nú lögreglan sitt óvænna og
voru tveir af mótmælendum hand
teknir og stungið í lögreglubíl.
Nokkru síðar bar að enn meiri
Framhald á bls. 14
FB-Reykjavik, föstudag.
Nú er að hefjast annar hluti
kerfisbundinnar rannsóknar á veg
um Hjartaverndar hér í Reykja-
vík. í þessum hluta verða rann-
sakaðir 16 árgangar kvenna í
Reykjavík og nágrenni, en nú er
að Ijúka fyrri hluta rannsóknar-
innar, þar sem rannsakaðir vor
16 árgangar karl á aldrinum 33
til 60 ára. Rannsóknarstöð Hjarta
verndar hóf starfscmi sína með
kerfisbundinni hóprannsókn í
fyrrahaust. Rannsóknirnar eru
gerðar í samráði við Alþjóðahcil
brigðismálastofnunina, en sú
stofnun hefur stuðlað að sams
konar rannsóknum í fjölda landa
víðs vegar um heim.
Þátttakan í hóprannsókn karla
hefur verið mjög góð, eða um
85%, en til samanburðar má
nefna, að ekki er vitað um neina
'rannsókn í Bandaríkjunum, þar
sem þátttaka ''hefur verið yfir
70%. Yfirleitt er það svo í öðrum
löndum, að þátttaka kvenna í hóp
rannsóknum er minni en karla,
en forstöðumenn Hjartaverndar
vonast hins vegar til þess, að kon
urnar verði ekki eftirbátar karl-
mannanna hér á landi.
Rannsóknin er í aðalatriðum á
þann hátt, að þátttakendur fá
boðsbréf, þar sem tilgangur og
fraimkvæmd eru sikýrð. Þiggi hann
boðið, er honum úthlutaður tími
fyrir rannsóknina og sendur
spurningalisti um heilsufar til út-
fyllingar. Rannsóknin er í því fólg
in, að tekið er þvagsýni, hjarta-
línurit, mældur blóðþrýstingur,
húðfita mæld, sömuleiðis bein,
hæð þyngd og tekið blóðsýni. Þá
er tekin röntgenmynd af hjarta
og lungum, gerð öndunarpróf og
mældur augnþrýstingur. Tekur
rannsóknin eina og hálfa til tvær
stundir. Að lokum fær þátttak-
andi tíma fyrir næstu heimsókn,
en þá fer fram læknisskoðun, og
tekur hún um 10 til 15 mínútur.
Heimilislækni er send nákvæm
skýrsla um allar niðurstöður.
Allar niðurstöður rannsóknann
eru færðar jafnóðum inn á gata-
spjöld. Rafreikni er beitt við úr-
vinnslu gagna jafnóðum og þau
berast, Tekið skal fram, að farið
er með allar upplýsingar sem al-
gjört trúnaðarmál. Það er mjög
mikilvægt, að þátttakendur komi
til rannsóknar, þegar þeim er boð
ið, en ekki fyrr.
Þær kérfisbundnu hóprannsókn
ir, er hér verða framkvæmdar,
munu taka nokkur ár, þar sém
gert er ráð fyir að fylgja eftir
vissum hópum á þriggja ára frekti
Framhald á bls. 14
Vetrarstarf-
semi Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur
Á ko-mandi vetri mun Æsku-
lýðsráð Reykjavi’kur staoda
fiyrir fjölbreyttu fiélags- oig
tómstundastarfi fyrir ungt
fólk. Aðstaða til félagsstarfa,
mangvíslegra skemmtana og
dansleikja á vegum Æskulýðs-
ráðs er fullkomnari nú en
nokkru sinni áður, en Reykja-
víkurborg hefur eins og kunn-
ugt er, keypt veitingaihúsið
að Skaptahlíð 24 (óður Lídó),
en þar munu verða haldnir
dansleikiir og ýrnsar skemmtan-
ir fyrir ungt fólk.
Að Fríkirkj'uvegi 11 verður
starfsemin með líku sniði og
undanfarna vetur. Þar verður
„Opið hús“ fyrir unglinga 15
ára og eldri þrjú kvöld í viku,
og fyrir 13—15 ára á sunnu-
dögum. í samibandi við „Opið
hús“ verður efnt til ýmiss kon
ar skemimtana, sýninga og
dansleikija. Nokkur félög og
klúbbar munu einnig starfa að
Fríkirkjuvegi 11 og í Golf-
skálanum, í samvinnu við Æsku
lýðsráð. Náimskeið í radíó-
vinnu og ljósmyndaiðju verða
haldin a‘ð Fríkiirkjuvegi 11, og
í sjóvinnuibrögðuim að Lindar-
götu 50. Innritun í námskeið-
in hefjast um miðjan október.
í bátaskýli siglingaklúbbsms
Framhaid a bls 15
FRAMSÓKNARVIST Á HÓTEL SÖGU
Framsóknarfélag Reykjavík
ur gengst fyrir þriggja kvölda
spilakeppni á Hótel Sögu.
Fyrsta spilakvöldið verður
fimmtudaginn 10. okt. annað
7. nóv. og það þriðja 5. des-
ember Úrvals verðlaun verða
veitt, þeim sem hæstan slaga
fjölda hafa í lok keppninnar.
Auk þess verða veitt sérstök
verðlaun fyrir hvert kvöld.
Framsóknarvistin n. k. fimmtu
dag hefst á Hótel Sögu kl.
20.30. Verður fyrst spilað und
ir stjórn Markúsar Stefánsson
ar, síðan flytur Einar Ágústs
son alþingism. ávarp, og að
lokum verður dansað.
Verið með frá byrjun —
Tryggið ykkur miða sem fyrst
í síma 24480. Aðgöngumiða má
vitja á skrifstofu Framsóknar
3ja KVÖLDA KEPPNI
flokkssins Hringbraut 30 og af-
greiðslu Tímans Bankastræti 7.
Tveir dreng ir við radíóvinnu.