Tíminn - 18.10.1968, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 18. október 1968.
TÍMINN
3
\
Frá Hrossamarkaðnum á Hólum á sunnudagimi. Þarna er H.J. Hólmjárn (ímiðið með liatt), sá
landsfrægi hrossaræktunar»uaður að skoða hrossin.
(Tímamynd:—Stefán Pedersen).
HROSSAMARKAÐIR ÆSKILEGIR
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
— Ég teldi það mjög æski-
legt, að efnt yrði til hrossa-
markaða á fleiri stöðum á land
inu, því það gæti orðig bæði
hrossakaupendum og seljend
um til niikils hagræðis, sagði
Þorkell Bjarnason hrossarækt-
’arráðunautur, er Tíminn hafði
tal af honum í dag vegna ný-
afstaðins hrossamarkaðs á Hól-
um í Iljaltadal.
Eftir að hestamennska
komst í tízku, eru það stöð-
ugt fleiri og fleiri, sem bæt-
ast í hóp hestamanna, og get-
ur það verið býsna snúið oft
fyrir byrjendur, að kaupa
fyrsta hestinn. Oft er það svo,
að þeir leita langt yfir
skammt, og erfitt getur stund
ium verið að fá nákvæma vitn-
eskju um hestinn.
Er Tíminn hafði tal af Þor-
keli Bjarnasyni hrossaræktar-
ráðunaut og spurði um álit
hans á hrossamörkuðum,
kvaðst hann þeim mjög fylgj-
andi.
— Það sem stendur á, sagði
Þorkell, er að enginn kemur
sér til þess að standa fyrir
slíkum mörkuðum, nema kyn-
bótabúið á Hólum. í reglum
þess eru ákvæði þess efnis, að
halda skuli árlega hrossamark-
aði, eða opinbert uppboð á
þeim hrossum, sem ætlunin er
að selja.
— Við gætum t.d. hugsað
okkur, að í ágúst hvert ár væri
haldin hrossamarkaður hér á
Selfossi (Þorkell býr á Laugar-
vatni), og þangað gætu bænd-
ur t.d. leitað ef þá vantaði
smalahesta eða hvers konar
hesta. Gæti það orðið til ó-
metanlegs hagræðis fyrir bæði
kaupendur og seljendur hrossa
að geta komið á einn stað, og
gert hestakaup. Erlendis er
það mjög algengt að efnt sé
til markaða með búfé, og því
ekki áð gera það lfka hér. Við
gætum hugsað okkur, að á
hrossamarkaði fylgi lýsing á
hverjum hesti, sem óvilhallur
maður gerði. Væri það viss
trygging fyrir kaupendur.
— Eftir að hestar urðu
meira almenningseign, er enn
brýnni þörf á hrossamarkaði,
og þá sérstaklega fyrir þá, sem
eru að byrja hestamennsku, og
eru ekki „inn í“ hestakaup-
mennsku.
Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðunautur (t.v.) og Haukur
Jörundsson, skólastjóri, ræða við viðskiplavin á hrossamark-
aðnum.
ERFIÐUR RIÐILL
Á SKÁKMÓTINU
HSÍM-Reykjavík, fimmtudag.
Það verður erfiður róður hjá
íslenzku skáksvcitinni á Ólympíu
skákmótinu í Lugano, sem hefst
í dag, því í riðli með henni eru
tvær mjög sterkar skákþjóð-
ir, Búlgaría og Tékkóslóvakía,
sem sennilega tryggja sér sæti í
A-riðli úrslitakeppninnar. Dregið
var í riðla í dag og töluröð er
þannig í þeim riðli, sem ísland
teflir í.
1. Tyrkland 2. ísland 3. Búlga-
ría 4. Andorra 5. Túnis 6 Kúba
7 Singapore 8 Tékkóslóvakía
í fyrstu umferð mótsins teflir
ísland því við Singapore. Það er
talsvert athyglisvert við þennan
riðil, að þarna lenda saman fjór-
ar þjóðir, sem síðast — á Ólym-
píumótinu á Kúbu fyrir tveimur
árum — komust í A-riðil í úr-
slitakeppninni, það er ísiand
Búlgaría, Tékkóslóvakía og Kúba.
Eftir undankeppnina skipast þjóð
irnar í riðla efti-r árangri, tvær
efstu lenda í Ariðli, tvær þær
næstu í B-riðli og svo framvegis.
Ef að líkindum lætur ætti ísland
að lenda i B-riðli úrslitakeppninn
ar — en ef heppnin er með ætti
sæti í A-riðlinum ekki að vera
útilokað.
YFIRLÝSING
í tilefni af fréttatilkynningu,
sem þeir Hanniibal Valdimarsison,
Björn Jónsson og Steingrímur
Pálason hafa sent frá sér til skýr-
inga á því tiltæíki sínu, að gera
kosningabandalag við Framsókn-
arflokkinn um kjör í nefndir og
trúnaðarstöður á Alþingi, vil ég
gera eftirfarandi athugasem<jjr:
Framttala a dis 11
ir Bjarni Benediktsson mælti í neðri deild í gær fyrir frum-
varpi um Stjórnarráð íslands. Talsvcrðar umræður urðu um þetta
frpmvarp og verður þeirra getið í næstu Þingsjá Tímans.
ir Jóliann Hafstcin mælti í efri deild fyrir frumvarpi um
veitingu ríkisborgararéttar og Magnús Jónsson fyrir frumvarpi um
hcimild til handa Iláskólahappdrættinu að gefa úl nýjan flokk,
C-flokk, hlutamiða. Báðum þessum frumvörpum var vísað til
2. umræðu og nefnda.
ir Magnús Jónsson mælti fyrir frumvarpi um staðfestingu á
bráðabirgðalögunum um 20% innflutningsskattinn. Umræðunni var
frestað að ræðu ráðherrans lokinni.
ir Sigurður Bjarnason, Benedikt Gröndal, Þórarinn Þórarins-
son, Lúðvík Jósefsson og Jón Skaftason, hafa endurflutt frumvarp
sitt um breyting á lögum um þingsköp Alþingis. Frumvarp þetta
varð ekki útrætt á síðasta þingi.
ir Lagt var fram í gær stjórnarfrumvarp um heimild fyrir
ríkisstjórnina til að staðfcsta fyrir íslands hönd breytingar á og
viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldcyrissjóðsins.
ir Engir fundir verða á Alþingi í dag og næstu fundir í deild-
um þingsins vcrða á mánudag.
Rafgeymaverksmiöjan Pólar
hefur framleiðslu á
CHLORIDE rafgeymum
Nýlega er hafin hjá Rafgeyma-
verksmiðjunni Pólar h.f. fram-
leiðsla á hinum viðurkenndu og
heimsþekktu Chloride-rafgeym-
um.
Óþarft er að kynna þetta vöru-
merki, þar sem þetta er með
elztu og stærstu verksmiðjum á
þessu sviði í heiminum. Ha£a þeir
framleitt rafgeyma í 75 ár.
Undanfarna mánuði hafa stað
ið yfir samningar milli Pólar h.f.
Chloride-samsteypunnar og Sam-
bands ísl. Samvinnufélaga, sem
eru umboðsmenn verksmiðjanna
og hefur samvinna tekizt á milli
þessara fyrirtækja um framleiðslu
á Chloride rafgeymum.
í beinu framhaldi af þessari
samvinnu getur nú Rafgcymaverk-
smiðjan Pólar h.f. framleitt helm-;
ingi fleiri stærðir en áður og [
jafnframt hagnýtt sér allar hinarj
tæknilegu nýjungar, sem Chloride
verksmiðjurnar hafa að bjóða, og j
notfært sér í fjöldaframleiðslu:
þeirra á ýmsum hlutum, sem yrði
of dýrt að framleiða hérlendis.
Jafnframt geta nú Pólar boðið
rafgeyma til hinnar margvísleg-
ustu nota svo sem rafmagns-lyft-1
ara, rafstöðva, simstöðva, spítala
o.fl.
Pólar h.f. hafa að undanförnu
hagrætt rekstri sínum til þess að
mæta nýjum aðstæðum og geta
nú framleitt 30—40% fleiri raf
geyma og í mun fjölbreyttara úr-
vali en áður.
Með aukinni vélanotkun síð-
ustu ára hér á landi hefur raf-
geymanotkunin vaxið jafnt og
þétt. Skurðgröfur, jarðýtur og vél-
bátar, allt þarfnast þetta stórra
og kröftugra rafgeyma. Fram- '
leiðsla Póla h.f. hefur þess vegna
aukizt að meðaltali um 10—15%
árlega.
í sambandi við verksmiðjuna
rekur fyrlrtækið einnig þjónustu
fyrir rafgeyma V hleðslu- og
viðgerðarstöð, að Þverholti 15 og
eins rekur það sams konar þjón-
ustu á Akureyri að Grundargötu •
5. Flestir umboðsmenn fyrirtæk- *
isins úti um land hafa einnig að-
stöðu til að hlaða rafgeyma.
Með hinni nýju samvinnu milli 1
Póla, Chloride og SÍS eiga neyt- •
endur að fá vöru i bezta gæða- ’
flokki fyrir hagkvæmara verð og !
í fjölbreyttara úrvali fáanlegu hér
lendis.