Tíminn - 18.10.1968, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 18. október 1968.
TIMINN
GEITHÁLSSLYSIÐ
Framhald af bls. 16
fyrir slysið er Willys-jeppi, græn
málaður með dökka blæju. Nefur
lögreglan sömuleiðis fengið lýs-
ingu á ökumanni jeppans. Á svip
uðum tíma komu tveir bilar að
austan og óku fram hjá Geithálsi
áleiðis til Reykjavíkur, en ná-
kvæm tímasetning hvenær þessir
bílar fóru fram hjá veitingahús-
inu er ekki fyrir hendi. Hefur
enginn ökumanna þessara bfla né
farþegar sem í þeim voru, gefið
sig fram við lögregluna, þrátt
fyrir margítrekaðar áskoranir til
allra sem leið áttu um vegarkafl-
ann milli Geitháls og Reykjavíkur
á þessu tímabili að gefa sig fram
við íögregluna.
Að þessum aðilum undanskild-
um hefur fólk sýnt mikla sam-
vinnulipurð við umferðardeild
rannsóknarlögreglunnar og fjöl-
margir gefið sig fram og gefið
upplýsingar sem að gagni kunna
að koma. Hafa þeir sem að mál-
inu vinna, yfirheyrt fjölda manns
sem leið áttu um veginn á svip-
uðum tíma og slysið vildi til og
eru skýrslur sem varða þetta mál
orðnar miklar að vöxtum.
í dag var yfirheyrt vitni sem
ók framhjá Gunnari rétt áður en
ekið var á hann og sneri maður
þessi við og kom að slysstaðnum
rétt á eftir lögreglu og sjúkraliði.
Maður þessi gat sig fram
við rannsóknarlögregluna strax
á mánudag, en ekki vannst
tími til að yfirheyra hann fyrr
en í dag vegna anna þeirra sem að
rannsókninni vinna, og hafa þeir
tekið skýrslur af tug'um manna,
sam gefið hafa sig fram og haft
einhverjar upplýsingar fram að
færa.
Þessi ma'ður, sem var einn f
bíl sínum, ók upp að Geithálsi um
nóttina. S'á hann Gunnar á leið
upp að Geithálsi og var hann þá
kominn nær alla leið að veitinga
stofunni, en Gunnar var gangandi
á þjóðveginum. Maðurinn veitti
honum ekki frekari athygli. En
þegar hann stuttu síðar var á
leifS frá Geithálsi, en þar stanzaði
hann um stund, sá hann hvar Gunn
ar var gangandi á veginum á leið
í átt til Reykjavíkur. Gerði Gunn-
ar enga tilraun til að stöðva bil-
inn til að fá far með honum. Ók
maðurinn því áfram. Á leiðinni til
Reykjavíkur stanzaði hann stutta
stund og hélt síöan áfram. Þegar
hann síðan var á leið niður Ár-
túnsbrekkuna sá hann hvar sjúkra
og lögreglubíll komu á móti sér.
YFIRLÝSING
rramhaio al ois. 3
1. Sú skýring þeirra á kosninga-
bandalaginu við Framsóknar-
flokkinn, að þeir hafi þurft að
tryggja sér viðuraandi setu í
nefndum, fær ekki staðizt, þar
sem fyrir lá, að þingflokkur
Alþýðuhandalagsinis var ein-
huga um að standa að óbreytt-
um kosningum í nefndir.
Þeir félagar vissu fullvel, að
þeir áttu sama kost og áður til
setu í nefndum á vegum þing-
flokks Alþ'ýðubandalagsins.
2. Það er augljóslega rangt, sem
þeir félagar segja í fréttatil-
kynningu sinn, að samkomu-
lagi þeirra við Framsóknar-
flokkinn hafi ekki verið beint
gegn þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins. Samstilling
þeirra með Framsóknarflokkn-
um miðaði að því að fella Gils
Guðmun'dsson úr utanríkismála
nefnd og kosningabandalag
þeirra um nefndakjör í neðri
deild miðaði að því að fella
þingmgnn Alþýðubandalagsins
úr nokkrum nefndum, þó að
ekkert af þessu tsekist.
3. Þeir Hannibal Valdimarsson,
Björn Jónsson og Steingrimur
Pálsson hafa alltaf verið boðað
ir á þingflokkisfundi Alþýðu-
bandalagsins með sama h'ætti
og aðrir þingmenn þess og
hefðu því haft fulla aðstöðu til
að fylgjast með ölium störfum
þingflo'kksins, ef þeir hefðu
vilj að.
Alþingi, 17. okt. 1968,
Lúð\ik Jósepsson
form. þingflokks
Alþýðubandalagsins.
ÚTGERÐ
Framhald af bls. 1
— Og í sjálfu sér er það mikið
átak og á eftir að verða mikil
lyftistöng fyrir íslenzkt atvinnu-
líf. Framtíðaráform félagsins sem
vonandi þarf ekki að vera langt
í land með, er smíði skuttogara.
Yrði smíði skipsins boðin út með-
al íslenzkra skipasmíðastöðva og
allar áætlanir um þann rekstur
verða gerðar í samræmi við nýja
tíma óg nýja tækni.“
Hann sagði stofnun félagsins
mikilvægan atburð í sögu íslenzks
atvinnulífs. „Á þeim tímum, er
þjóðin þa:-f að þola mikla erfið-
leika, vegna sífelldra áfalla, taka
| áhugamenn sig saman um að
stofna félg, leita liðsinnis hjá al-
menningi og vinna að þvi að
mynda sterkt útgerðarfélag, sem
er þess megnugt að fara út í þá
útgérð, sem gefur þjóðarbúinu ör-
uggastar tekjur, eykur atvinnu og
getur skilað hluthöfum góðum
arði, ef vel er haldið á spilun-
um.“
Almenna útgerðarfélagið hefur
aðsetur að Sjávarbraut 2 í Reykja
vík, og eru þar veittar allar nán-
ari upplýsingar um hið nýja fé-
lag.
LOPAPEYSUR
Framhald af bls. 12
lendum markaði er það að segja,
að í Bandaríkjunum er lopahesp-
an seld á 1 dollar og 90 cent og
upp í 2 dollara, en í dönskum
krónum kostar hespan frá kr.
8.50 í 9.50. Hespulopinn kostar
hér frá 30 í rúmar 33 krónur.
— Við erum að senda frá okk-
ur núna 7 ný prjónamunstur, og
eru þó komnar á markaðinn sam-
tals 20 mismunandi gerðir af
peysupakknmgum og kosta þær
frá 227 krónum í 357 krónur. Er
þetta bæði 'hlýleg, góð og ódýr
jólagjöf.
— Aðeins ein af verðlaunapeys-
unum úr fyrstu prjónakeppninni
hefur verið gefin, út í prjóna-
munstri. Er það peysa nr. 5 eftir
Guðlaugu Þorgilsdóttur frá Siglu-
firði. Aðrar verðlaunapeysur þóttu
of vandunnar til þess að okkur
þætti ástæða til að leggja í þann
mikla kostnað, sem nauösynlegt er
til þess að gefa út peýsumunstr-
in. í fyrstu prjónakeppninni tóku
þátt 160 aðilar og vonandi verða
þátttakendurnir nú enn fleiri.
Dómnefndina skipa Haukur Gunn
arsson, Rammagerðinni, formaður
Elisabet Waage, Baðstofunni, Sig-
rún Stefánsdóttir og Gerður Hjör
leifsdóttir íslenzkum Heimilisiðn
aði.
SÍMINN
Framhald af bls. 1
ásstöðinni, sem ekki komast í
■ ^amband við þessa tvo bæi.
— Viðgerð var þegar hafin,
og mun að jafnaði einir 10
menn vinna við hana, þar til
henni lýkur, en þeir bjuggust
við, að þetta færi í, samband
smám saman eftir kvöldmat í
kvöld. Þó verður haldið áfram
viðgerðinni í alla nótt og fram
á morgun, eða jafnvel lengur,
og ekki hægt að segja um það,
hvenær viðgerðinni verður lok-
ið að fullu. því almennilegt
samband kemst ekki á fyrr en
öllu er lokið.
A VlÐAVANGI
Framhald af bls. 6
gera til að rétta við atvinnulíf
ið, auk umsvif, tryggja fulla at
vinnu og baéta hag landsins gagn
vart útlöndum — Nú reynir
á það, hvort stjórnarandstaðan
vill sýna þjóðhollustu og að-
stoða við lausn vandans, eða
að mlnnsta kosti að leitast ekki
við að gcra hann torleystari en
hann er. Þjóðin öll mun fylgj
ast með viðbrögðum stjórnar
andstöðuflokkanna og dæma þá
eftir því, hver afstaða þeirra
verður nú, þegar þjóðin á mest
í húfi. En hún mun líka veita
stjómarflokkunum þann styrk
og stuðning,, sem þeir þurfa
U
Sem sagt: Okkar er að á-
kveöa og framkvæma. Ykkar er
adeins að samþykkja herrar mín
ir með bros á vör. Ef ekki, þá
verðið þið áreiðanlega dæmdir,
en við höfum stuðning þjóðar-
innar. Spurning: Hvað era
svona menn að tala við aðra yfir
leitt?
Ég er forvitin blá
(Jag er nyfiken bla)
— íslonzkur tcxti —
Sérstæð og vel leikin, ný,
sænstk stórmynd, eftir Vilgot
Sjöman. Aðalhlútverk:
Lena Nyman
Börje Ahlstedt
Þeir, sem ekki kæra sig um
að sjá berorðar ástarmyndir
er ekki ráðlagt að sjá mynd-
ina.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
-v. Stranglega bönnuð börnum
innan 16 ára.
Teflt á tvísýnu
Akaflega spennandi og vjðburð
arrík ný frönsk sakamálamynd
sýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð börnum.
LAUGARAS
Slmar J207i ob 38150
Dulmálið
Sophia Loren
Gregory Peck
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 5 og 9
Fram til orrustu
(Lost army)
Stórfengleg kvikmynd gerð af
Film Polski eftir kvikmynda-
handriti Alexanders Scibor-
Rilskys, samkvæmt skáldsögu
eftir Stefan Zeromsíki. Leik-
stjóri: Andzej Vajda.
íslenzkur texti.
Aðalhlutverik:
Daniel Olbry
Beata Tyszkiewiiz
Pola Raksa
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9
Tónaflóð
(Tht Sound of Music)
Sýnd kl. 9
FjársjóSsleitin
Afar fjörug og skemmtileg
amerisk gamanmynd í litum,
með
Hayley Mills
— íslenzkur texti —
Endursýnd kl. 5, 7 og 9
Slmi 11544
rHER-1
NAMSJ
LARINJ
SEIMI HLUTI
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð vngri en 16 ára
(Hækkað verð)
Verðlaunagetraun
Hver er maðurinn?
Verðlaun 17 daga Sunnuferð
til Mallorca fyrir tvo.
11
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
íslandsklukkan
Sýning í kvöld kl. 20
Púntila og Matti
Sýning laugardag kl. 20
Vér morðingjar
Sýning sunnudag kl. 20
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl 13.15 t.il 20, slml 1-1200.
LEYNIMELUR 13 í kvöld
MAÐUR OG KONA laugardag
Uppselt
HEDDA GABLER sunnudag
Fáar sýningar eftir.
MAÐUR OG KONA miSvikud.
Aðgöngumiðasalan I Iðnó ei
opín frá kL 14. SímJ 13191.
T ónabíó
Slm 31182
íslenzkur textl
Goldfinger
Heimsfræg ensk sakamála-
mynd 1 litum.
Endursýnd kl. 5 og 9
Bönnuð börnum innan 14 ára
MÆJÁRSí
Slmi 50184
í syndafjötrum
Ný þýzk stórmynd með ensku
tali.
Martin Held
Hildegaard Kaef
Elsa Knort
Christa Lende
Sýnd kl 9
Bönnuð lnnan 16 ára
Austan Edens
Hin hetmsfræga ameríska verð
launamynd i Utum.
— íslenzkui textl.
James Dean
Julie Harrls
Sýnd kl. 5 og 9
GAMLA BÍO
tslenzkur text)
Bönnuð tnnan 12 ára
Sýnd kJL 4 og 8,30.
Sala hefsi kL 3.
Hækkat verð.