Tíminn - 30.10.1968, Blaðsíða 5
MfflVIKUDAGUR 30. október 1968.
TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Brezkir sjónvarpgáSiorf-
endur hafa verið varaðir við
því að næst komandi miðviku-
dag, verði sjónvarpað stuttri
kvikmynd, sem tekin var
£ nektarnýlendu. Talsverður
fjöldi naktra kvenna og karla
mun sjást á myndinni, en film
an mun vera í litum. Einhver
háttsettur sjónvarpsmaður
sagði um þennan atburð, að
hann vonaði að þetta yrði
tímamótaviðburður í sögu
brezka sjónvarpsins; áhorf-
andinn sæi með berum augum
naikinn raunveruleikann, eins
og v-æru áhorfenduT sjálfir í
heknsókn í nektarnýlendu, en
hann kvaðst vilja vara áhorf-
endur við svo sjónvarpsmynd-
in, sem nefnist „Afklæðist og
lifið £rjáis“, valdi ekki of mik-
iHi hneykslun. Það getur verið
að einhverjar fjölskyldur vilji
ekki leyfa ungHirtgum, e'ða
gömlum fordómafullum frænk
um að horfa á. Nákið fólk,
hefur verið kvikmyndað í
fcnattleik, tennis og klifrandi í
trjám. Nakinn karlmaður mun
sjást saga með hringsög, og
nakin kóna sést standa í eld-
húsi og steikja svínaflesk.
Þess hefur verið gætt, sagði
sjónvarpsmaðurinn ennfrem-
i ur, að fólkið hafi verið mynd-
áð mjög nálægt allt mun sjást
myndavélarnar fela ekkert.
Tilgangurinn með þessari
sjónvarpsútsendingu, er svo
sem ekki annar en sá, að sýna
sjónvarpsáhorfendum hvern-
ig nektardýrkendur haga sér
enda fellur þessi dagskrárlið-
ur inn í þátt sem nefnist
„Lífið sjálft".
Franski sjarmörinn Mel Perr
er varð heldur betur fyrir von-
brig'ðum í haust, .er hann mætti
upp á færður á Kennedy-flug-
velli í New York til þess að
taka á móti syni sínum Sean,
þeim er hann á með Audrey
Hepburn. Svo var um samið að
Mel fengi að hitta soninn og
hafa hann hjá sér í nokfcra daga,
og hafði hann þvi leigt sér
stórt einbýlishús í New York,
því hann kærði sig ekki um að
fara með drenginn til Holly-
wood. En drengurinn kom sem
sagt ekki til stefnumótsins. Á-
stæðan var að sögn sú, áð orð-
rómur hafði borizt til eyrna
móðurinnar að Mel Ferrer væri
farinn að stíga í vænginn við
Mioheline Lerner, fyrrverandi
konu tónskáldsins Alan J. Lern
ers. Audrey kærði sig ekki um
að syninum yrði blandað í
kvennamál föðursins. Þau Aud
rey og Feirer voru eitt sinn
nefnd „fyrirmyndar hjónin“.
en fyrirmyndarhjónaband þeirra
fór í vaskinn eins og svo mörg
önnur leikarahjónabönd.
Þáð er sagt að fögur stúlka
sé eins og ljóð, sé það satt þyk
ir ekki ótrúlegt að stúlkan hér
á myndinni eigi einhvern frama
í vændum, en hún hefur nú ný
lokið við að leika á móti Shirley
MaeLaine í nýjustu kvikmynd
Ottos Preminger. Það er siður
Premingers að auglýsa fagrar
stúlkur og gera þær sem standa
sig vel að þefcktum nöfnum á
„stjörnuhimninum." Viðkunnan-
legur náungi Preminger, og
reyndar stúlkan líka, en hún
er tuttugu og þriggja ára göm
ul og heitir Barbara Bouchet.
Borgaryfirvöld í Berlín hafa
nú ákveðið að efna til einn-
ar heljarmikillar nýársyeizlu
um næstu áramót. Umdirbún-
ingur veizlunnar er þegar haf-
inn. Veizlustaðurinn verður
hin fræga gata Kurfursten-
damm. Milli 28. og 29. desem-
ber 1968 og 1. janúar 1969
verður allri umferð bægt frá
hátíðarsvæðinu, þvi einungis
verður leyfð umferð fótgang-
andi fólks.
Veizlan verður framkvæmd
með það fyrir augum, að mik-
ill meirihluti þátttakenda verði
táningar og ungt fólk. Stóru
tjaldi verður komið fyrir hvar
í menn geta fengið sér öl, fram
an við kaffihúsin verða bítla- '
hljómsveitir og reyndar verða
þarna hljómsveitir, sém leika
alls lags músik. Gömlum spor-
vagni ver'ður komið fyrir á
svæðinu, sömuleiðis gömlum
gufubáti af ánni Spree, farar-
tæki þessi eiga að vera veit-
ingaskálar. Á svæðinu verður
einnig komið fyrir „sbotbökk-
um“ og urmul skemmtitækja
af ýmsum gerðum, þó verður
mikið af hvers konar veitinga-
tjöldum, en ætlunin er að
reyna að skapa þama sfcemmti
legt áramótaandrúmsloft.
★
Friðrik, prins í Danmörku
veit það líklega ekki sjálfur,
að hann er orðinn húseigandi,
en sennilega verður hann orð-
inn nægilega viti-borinn næsta
ár til þess að geta haft gaman
af nýja húsinu sínu. Húsið sem
sést á meðfylgjandi mynd var
afhent móður hans, Margréti
krónprinsessu, þegar hún fyrir
skömmu opnaði húsmunasýn-
ingu í Hilleröd. Krónprinsessan
sagði í ræðu þeirri er hún
flutti við það tækifæri, að það
væri jú draumur sérhvers
manns að eignast þak yfir höf
uðið, og líklega veit prinsessan
hvað hún segir því hún hefur
nú sjálf eignazt sitt eigið hús
og sumarbústað. Forstöðumenn
sýningarinnar lofuðu því að
litla húsið hans Friðriks yrði
sent til aðseturs móður hans og
því komið fyrir í garðinum.
5
■mmx wuwwut w»wma——
A VlÐAVANG!
Fullir hafa flest ráð
Gamalt máltæki segir, að
fullir hafi flest ráð. Það sann
aðlst skilmerkilega á yfWhag-
fræðingi landsins, Gylfa Þ. Gísla
syni s. I. laugardag. Þá efndi
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
til „nýlundu" þeirrar sem það
kallar „opinn hádegisverðar-
fund“. Þegar Gylfi yfirhagfræð
ingur og nýkjörinn fonnaður Al-
þýðuflokksins hafði satt munn
og maga, reis hann úr sæti og
flutti samkomunni boðskap sinn
af þeirri reisn sem nýkjörnum
formanni sæmir. Alþýðublaðið
sagði á sunnudaginn frá stór-
tíðindum þessum og boðskap
Iráðherrans stórletrað á þessa
leið:
„Dr. Gylfi Þ. Gíslason, for-
maður Alþýðuflokksins, ræddi
þar um efnahagsmálin og hug
myndina um myndun þjóðstjórn
ar. Gagnasöfnun vegna viðræðna
átta manna nefndar stjómmála-
flokkanna lauk fyrir viku og
liggja nú aUar upplýsingar fyr-
ir um stöðu íslenzks efnahags
lífs.“
Þetta er nú afrek, sem vert
er um að tala, og mun það vart
hafa áður gerzt í sögu þjóðar-
innar, að ráðherra hafl haft í
hendi sér „allar upplýsingar um
stöðu ísle'nzks efnahagslífs“, og
þetta birtir ráðherrann að sjálf
sögðu í allri hógværð — og Al-
þýðublaðið líka.
Þetta minnir á það, er þjóð
kunnur heimspekiprófessor lét
svo ummælt fyrir nokkrum ára-
tugum, að „vísindln væm nú
Nlangt komin að grafast fyrir
rætur alls“. Þjóðkunnur læknir,
sem á lilýddi mælti þá: „Ég
held, að réttara væri að segja,
að þau væru að byrja að eygja
skráargatið".
Ætli því sé ekki líka farið
um Gylfa, að han sé ekki farinn
að sjá melra en skráargatið.
Á aS segja af sér
Sig. nokkur Jónsson, forkólfur
ungra Sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum raeðir í blaði Sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum,
Fylki, um þjóðstjórn í forsíðu-
grein. Hann segir m. a.:
„Á nýafstöðnu aukaþingi
SUS kom það skýrt fram hver
hugur manna er I þcssu máli.
Mikill meirihluti þingfulltrúa
var andvígur þjóðstjóraarhug-
myndinni. Ég býst við að eins
sé ástatt í öðrum flokkum. Það
er mjög óeðlilegt í lýðræðis-
þjóðfélagi, að þjóðstjórn sé
mynduð. Treysti stjórnin sér
ekki til að leysa vandann, á
hún að segja af sér. Allir viður-
kenna, að mlklir erfiðleikar ei-u
framundan og eitthvað þarf að
gera. Fólkið vill fá að ráða þvi
sjálft, hvaða leið vci’ður valin.
Því eiga allir flokkar að leggja
fram sínar áætlanir, síðan er
þáð kjósendanna að velja. Það
er lýðræðislegt, hitt ekki. Al-
menningur mun ekki sætta slg
við þjóðstjórnarhugmyndina,
heldur krefjast kosninga.“
Þessi ungi Sjálfstæðismaður
— og mikill meirihluti á þlngi
SUS að sögn hans — er á önd-
verðum meiði við Bjarna for-
sætisráðheiTa, sem telur það
fráleitt, að stjórnin eigi að segja
af sér, elns og stjórnarandstað-
Iaii hefur hiklaust haldið fram.
Ástúðlegt sambýli
Fylkir lýsir ást sinni á sam-
starfsflokknum í ríkisstjórninni
m. a. með þessum orðum:
„f því tilfelli nú, að kratarn
i Framhald á bls. 15.