Tíminn - 30.10.1968, Page 7
VETTVANGUR
MHÍVIKUDAGUR 30. október 1068.
TÍMINN
ÆSKUNNAR
Ályktun 12. þings Sambands ungra Framsóknarmanna um menntamál:
Skólaskylda verði smám saman lengd
Tólfta þing Sambands ungra Framsoknarmanna telur að liraða
beri endurskoðun fræðslulöggjafarinnar sem mest, enda liafi óeðli-
leg stöðnun ríkt á því sviði undanfarin ár, og því megi róttækar breyt-
ingar ekki bíða.
Þingið telur, að m.a. beri að stefna að því, að skólaskyldan verði
lengd smám saman upp á við, og um leið verði skyldunámsstigið
beinlínis tengt ýmsum sérskólum og þeir gcrðir að lokaþætti skóla
skyldunnar fyrir þá, sem ekki fara í menntaskóla-
í mennta- og félagsmálum vilja ungir Framsóknarmenn auk þessa
benda á eftirfarandi ajriði:
1. Rannsókna- og tilraunastarfsemi- á sviði skóiamála verður sífellt
að halda uppi, einkum á vegum Kennaraskólans.
Gæta verður þess, að menntun kennara sé jafnan í samræmi við
nýjustu kröfur, og jafnframt verði þeim búin viðunandi starfsaðstaða
og launakjör, en víða skortir enn mjög á í þeim efnum.
2. Sífellt þarf að fara fram endurmat á vali kennslugreina og end-
urskoðun kennsluaðferða og kennslubóka. Visst heildarsamræmi þarf
þó ætíð að haldast í þessum efnum innan skólakerfisins.
3. Vinda verður bráðan bug að því, að skólaskyldan komi til fullra
framkvæmda um allt land. Byggja þarf nýja skóla, m. a. fleiri hér-
aðsskóla. Leita þarf ráða til að lækka byggingarkostnað skólahúsa,
m. a. með stöðlun þeirra. — Stefnt skal að því að menntaskólar rísi
á Vestfjörðum og Austfjörðum. — Bæta þarf aðstöðu æskufólks.
einkum úr dreifbýlinu, til að stunda framhaldsnám.
4. Háskóli íslands verði efldur og kennslugreinum við liann fjölg-
að, og starfsskilyrði vísindamanna mjög bætt og þannig komið í veg
fyrir landflótta þeirra. Komið verði í veg fyrir að takmarka þurfi
aðgang að einstökum deildum háskólans vegna húsnæðis- og tækja-
skorts.
Reist verði á allra næstu árum Þjóðarbókhlaða.
5. Mjög verði stuðlað að aukinni líkamsrækt, m. a. með því að
láta skólaskylduna hvarvetna koma til fullra framkvæmda í þeim
efnum með því að efla íþrótta- og ungmennafélög með frckari
fjárframlögum.
6. Tekin verði upp kennsla í framsögn og framkomu í barnaskól-
um. Jafnframt verði haldið uppi markvissri fræðslu um bindindismál
og kynferðismál innan ramma skólaskyldunnar.
7. Nauðsynlegt er, að skólarnir taki í auknum mæli til meðferðar að
veita unglingum fræðslu og þjálfun í helztu atriðum félagsstarfa,
annað hvort innan veggja skólanna eða á sérstökum námskeiðum.
Verði þar veitt tilsögn í ræðumennsku o. fl. og gerð grein fyrir félags-
legri samsetningu þjóðfélagsins.
8. Endurskoða þarf reglugerð um Þjóðleikhús frá grunni og setja
upp leiklistarskóla beint á vegum ríkisins.
Byggja þarf yfir Listasafn íslands hið fyrsta og reisa listasöfn
víðar um land.
9 Sjónvarpið verður hið fyrsta að ná til allra Iandsmanna, ekki
sízt þeirra, scm afskekkt búa.
Þá telur þingið, að afnotagjald hljóðvarps eigi að innheimta í
formi nefskalts.
^O. Með stöðugri og skipulegri notkun blaða, sjónvarps og hljóð-
varps þarf að benda fólki, ekki sízt yngri kynslóðinni, á öll megin-
atriði okkar sérstæða menningararfs. Þessi kynning á að taka til
bókmennta þjóðarinnar, sögulegra minja á öllum sviðum og landsins
sjálfs með miujum þess um búsetu fyrri kynslóða, svo sem gömlum
mannvirkjum, örnefnum og fleira.
Efla þarf Þjóðminjasafnið og bæta aðstöðu til söfnunar og úr-
vinnslu sögulegra gagna.
\
Að öðru leyti þykir þinginu rétt að vísa lil hinuar ítarlcgu mennta-
málaálýktunar, sem 14. flokksþing Framsóknarflokksins sendi frá sér,
og að verulegu le.vti var unnin af ungum Framsóknarmönnum.
Endurskoðun fræðslulöggjafar hraðað
Skólaskvldan lengd smáni saman
Skyldunámsstigið tengt sérskólum
Rannsókna- og tilraunastarfsemi ,
Alls staðar full framkvæmd skólaskyldu
Háskóliun efldur
Fræðsla og þjálfun í félagsslörfum
Sjónvarp um land allt
Sífelld kynning menningararfs.
Almennur íundur um málefni uldruðru
Við breytta þjóðfélagshætti á
íslandi verður að beina sívaxandi
athygli að stöðu gamla fólksins
og hvernig hægt sé að tryggja ör-
yggi þess sem bezt í framtíðinni.
Auk þess hefur á síðustu mánuð-
um skapazt nýtt vandamál, sem
einkum hefur kiomið hart niður á
öldruðu fólki, við það að atvinna
hefur dregizt saman og þvi sagt
upp starfi.
Með þetta í huga hafa ungir
Framsóknarmenn ákveðið að efna
til almenns umræðufundar um
málefni aldraðra undir heitinu:
Hvað er hægt að gera fyrir gamla
fólkið? Fundurinn verður haldinn
í Tjarnarbúð í Reykjavík næst-
komandi sunnudag, 3. nóivember,
og hefst kl. 14, 2 s.d.
Framsögumcnn á fundinum
verða:
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaformaður Dagsbrúnar, sem
ræðir um: Þált aldraðra í atvinnu-
ldifinu. Gísli Sigurbjörnsson, for-
stjóri: Ellin og framtíðin. Páll
Sigurðsson, tryggingarlæknir: Op-
inber hjálp við aldraða. Ingvar
Gíslason, alþm.: Lífeyrissjóður fyr
ir alla landsmenn.
Við'viljum sérstaklega benda á,
að allir eru veikomnir til fundar-
ins og þá ekki hvað sízt eldra j
fólk. Ungir Frannsóknarmenn hafa
jafnframt ákveðið að aðstoða gam
alt fólk, sem þess kynni að óska.
með því að aka því til og frá fund
arstað því að kostnaðarlausu. Þeir
sem vildu færa sér það í nyt hafi
vinsamlegast samband við skrif-
stofu SUF í síma 24484 fyrir lok
vikunnar.
Ingvar
Páll
fci
Guðmundur
__________________________7
r........ b
§ Nýir rit-
nefndarmenn
j
Vegna skipulagsbreytinga á
Ilaugardagsblaöi Tímans og
af öðrum ástæðum hefur út
gáfa Vettvangs æskunnar því
miður tafizt.
Nú er áætlað, að miðviku
dagar verði eftirleiðis út-
komudagair Vettvangsins.
Jafnframt hefur verið kosin
þriggja manna ritnefnd til að
annast ritstjórn hans. í henni
eiga sæti Björn Teitsson, sem
gegnt hefur ritstjórastarfinu
engst af undanfarin tvö ár,
>g Eiríkur Tómasson og Ólaf
ur Þórðarson. Eiríkur er
í Kópavogi, en Ólafur er frá
Stað í Súgandafirði og stund
ar nám við Kennaraskólann.
Stjórn SUF býður hina nýju
ritnefndarmenn velkomna til
starfa.
Þá skal þess getið, að síð-
asti hluti ályktana 12. þings
SUF að Laugarvatni birtist f
dag, og er það menntamála
ályktunin, eins og sjá má.
Stjórn SUF.
Hlutleysi og
sannleiksást
Morgunblaðsins
Hið öfluga starf Sambands
ungra Framsóknarmánna á undan
förnum misserum hefur lagzt
fremur illa í hinn nöldursama Stak
steinahöfund Morgunblaðsins.
Öðru hverju reynir hann að halda
því fram, að einhver klofningur
sé í röðum ungra Framsóknar-
manna, og segir það hafa komið
fram á hinu glæsilega þingi SUF
á Laugarvatm í ágúst s. 1.
Því miður verður að hryggja
Staksteinahöfund með því, að
upplýsingaþjónusta hans um mál
efni SUF er í mjög slæmu lagi.
Einstök samstaða var ríkjandi á
Laugarvatnsþinginu. mun meiri
en oft áður hefur veri'ð meðal
ungra Framsóknarmanna. Þegar
stjórnarkjörið fór fram, skilaði
uppstillingarnefnd samhljóða á-
liti og þrátt fyrir vándlega eftir-
grennslan þingforseta, Páls Lýðs-
sonar, komu engar athugasemdir
fram við tillögu nefndarinnar um
hina nýju stjórn. Fáa þingfull-
trúa vantaði á fund, er þetta fór
fram, svo að hér var um hin lýð-
ræðislegustu vinnubrögð að ræða,
og undirstrikaði niðurstaðan því
aðeins samstöðuna innan SUF.
f þessu sambandi er rétt að
benda Morgunblaðinu á, að það
hefði getað sent blaðamann á
þetta umrædda þing, því að það
var öllum opið. Skömmu fyrir
þingið héldu forráðamenn SUF
blaðamannafund, þar sem þeir til-
kynntu að þingið yrði opið, og
sat þann fund m. a. blaðamaður
Mbl. Öll blö'ðin birtu siðan sér-
staka frétt urn opnun þingsins —
ncma Morgunblaðið. Kom þar með
glöggt í ljós, nið raunverulega
hlutleysi Mbl. með allt sitt síðu-
pláss.
Blaðið vill jafnan hæla sér af
góðri fréttaþjónustu, er það telur
sjálft betri os hlutlausari en hjá
öðrum ísl. blöðum. Vi'ð þetta tæki
Framhaid a Dls lö
Rítnefnd: Björn Teitsson - Elríkur Tómasson - Ólafur Þórðarson