Tíminn - 19.11.1968, Page 16
DAGSBRÚNSEGIR
UPP SAMNINGUM
og sömuleiðis mörg önnur félög víða um land.
16 ARA STULKA
TÝND í 6 DACA
ÖÓ-Reykjavík, mánudag.
Víðtæk leit hefur verið gerð
undanfarna daga að 16 ára gam-
alli stúlku, Sigríði Jónsdóttur, sem
á heima að Eyrarhrauni við Hafn
arfjörð. Síðast er vitað um ferðir
Sigríðar að morgni miðvikudags
S- 1. Fór hún þá heiman frá sér
og vissu foreldrar hennar ekki
betur en hún hafi farið í skóla,
en hún stundar nám við Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði. Fór
Sigríður með skólatösku sína með
sér. En hún kom ekki í skólann
á miðvikudag eða siðan. Ættingj
ar stúlkunnar, lögreglan í Hafnar
firði og Hjálparsveit skáta hafa
leitað Sigriðar og haldið uppi
spurnum um ferðir hennar en
árangurslaust-
Síðan farið var að leita Sigríð
ar hefur lögreglunni borizt fjöldi
tilkytminga frá fólki sem taldi
sig hafa séð týndu stólkuna, í
Hafnarfirði, Reykjavik og víðar,
en við nánari athugun hefur kom
ið fram að upplýsingarnar voru
ekki á rökum reistar. í gær-
kvöldi var lögreglutmi í Hafnar-
firði til dæmis tilkyrnit að Sig
ríður hafi sézt á dansleik í Kefla
vík. Lögreglumenn fóru suður í
Framhald á bls. 14
Myndin er frá fundi Dagsbrúnar.
(Tímamynd GE)
NÍU HLUTU UTANFARAR-
STYRKIMFNNINGA RSJÓDS
Sigríður Jónsdóttir
Kjósarsýsla
Framsóknarfélögin í Kjósar-
sýslu halda almennan félagsfund
miðvikudaginn 20. nóv. kl. 9, að
Fólksvangi. Kosnir verða fulltrú
ar á kjördæmisþing.
Jón Skaftason, alþingismaður og
Halldór E. Sigurðsson alþingismað
ur mæta á fundinum. Stjórnir fé-
laganna.
Halldór
VANTRAUSTIÐ
A FIMMTUDAG
TK-Reykjavík, mánudag.
Tillaga Ólafs Jóhannessonar og
Lúðvíks Jósefssonar um vantraust
á ríkisstjórnina var lögð fram á
Alþingi í dag. Ákveðið er að um
ræðunni um vantraustið verði út
varpað næstkomandi fimmtudags-
kvöld.
EKH-Reykjavík, mánudag.
Menntamálaráð hefur úthlutað
listamannafé þessa árs úr Menn-
ingarsjóði, en árlega er veitt um
ein milljón króna úr sjóðnum til
margvíslegrar menningarstarfsemi.
Menntamálaróð birti í dag
nöfn niu manna, sem það úthlutaði
30 þús. króna utanfararstyrkjum.
Frá því 1964 hefur allt að tíu
listamönnum verið veittur 30
þús. króna styrkur. árlega, úr
Félagsmála-
námskeið FUF
í Reykjavik
Áttundi og síðasti fundur fé-
lagsmálanámskeiðsins verður
þriðjudaginn 19. nóv. að Hring
braut 30 kl. 8.30.
Félagsm .ná mskeið
Framsóknarkvenna
Félag ungra Framsóknarmanna
í Reykjavík hefur ákveðið að efna
til námskeiðs þar sem kennd verð
ur undirstaða í fundarsköpum og
ropftuftutniftgi. ^
Ingvar kvöldum og
laugardögum og er ráðgert, að
því ljúki 18. desember. Á nám-
skeiðinu á laugardag mun Ingvar
Gíslason alþingismaður flytja
erindi um ræðumennsku- Öllum
er beimil bátttaka. en þátttöku til
kynningar burfa að berast sem
fyrst til skrifstofu FUF, Hring
braut 30, símar 24480 og 24484.
Stjórn FUF
Menningarsjóði í þeim tilgangi að
gera listamönnum kleift að
dveljast erlendis við undirbúning
eða gerð nýrra verkefna eða til
þess að kynna sér sitt starfssvið
á erlendri grund. Frá upphafi hafa
36 listamenn hlotið þenna styrk,
15 skáld, 10 leikarar og leikhús
menn, 6 myndlistarmenn og 5
tónlistarmenn.
Þessir hlutu utanfarastyrki í
ár: Jón Þórarinsson, tónskáld,
Svavar Guðnason, listam., Agnar
Þórðarson, rithöf., Ásmundur
Svein-sson, myndhöggvari, Guð-
mundur Ingi Kristjánsson, skáld,
Steinþór Sigurðsson, leikmynda-
teiknari, Guðrún Stephensen, leik
kona, Eiríkur Smith, listmálari,
og Guðmundur G. Hagalín, rit-
höfundur.
Menningarsjóður sendir um þess
ar mundir á markaðinn 4. jarð-
fræðikortið af 9 sem út eiga
að koma.
Kort þetta nær yfir Miðvestur
land, en áður hafa komið út kort
yfir Suðvesturland, Mið-íslands og
Miðlsuðurland. Guðmundur Kjart
ansson annast vísindalegan undir-
búning að gerð þessara korta í
samráði við Jarðfræði- og land-
fræðideild Náttúru-gripasafns ís-
lands. Miðvesturlandskortið er
prentað hjá Lithoprent og er í 12
litum.
Að sögn forsvarsmanna Menn-
ingarsjóðs hafa jarðfræðikortin
selzt töluvert, aðallega úr landi
til h'áskólastofnana og fræði-
manna.
Nánar verður sagt frá starfsemi
Menntamálaráðs og Menningar-
sjóðs í blaðinu á næstunni.
Á laugardaginn var tekið í lan(l úr Skógafossi þyngsta stykki, sem
til þessa hefur verið tehið á land úr skipi hérlendis. Það var gas-
túrbína, sein vó livorki meira né minna en um 80 lestir. Kostar túr-
bína þessi um 90 milljónir króna og er henni ætlaður staður suður
í Straumsvík. Bræðurnir Ormsson eru umboðsmenn framleiðendanna
hér á Iandi, og var túrbínan sett um borð í Skógafoss í Rotterdnm.
Þyngsta stykkið, sem hingað til hefur verið sett hér á land vó um 40
lestir, en með tilkomu hins nýja flotkrana. sem Revkjavíkurhþfn hef-
ur vfir að ráða er hægt að lyfta stykkjum allt að 100 lestum. (Mynd-
ina tók GE, þegar verið var &ð taka túrbínuna í land.
EJ-Reykjavik, mánudag.
Verkalýðsfélögin eru nú hvert
af öðru að samþykkja uppsögn
samninga við atvinnurekendur frá
og með 1. desember, sem þýðir að
samningar verða lausir um ára-
mótin. Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði gerði hið sama fyrir
helgina. Eins hafa smærri félög
samþykkt uppsögn samninga, þar
á meðal Baldur á ísafirði og Verka
lýðsfélag Borgarness á sunnudag
inn var, en ASÍ hefur sem kunn-
ugt er lagt til við félögin að þau
segi upp kjarasamningunum.
Á Dagsbrúnarfundinum í gær
var einnig samþykkt einróma á-
lyktun um kjaraskerðingrtna, og
er hún svohljóðandi:
„Fundur í Verkamannafélaginu
Dagsbrún, haldinn 17. nóvember
1968, mótmælir harðlega þeirri
miklu árás á lífskjör verkafólks,
sem felst í gengisffellingu þeirri,
sem ríkisstjómin hefur nú látið
framkvæma, og boðuðu afnámi á
verðtryggingu kaupgjaldsins. Fund
urinn fórdæmir sérstaklega, að
ríkisvaldið skulj hvað eftir ann
að ráðast á og afnema með laga
boði kaupgjaldsákvæði í frjálsum
samningum verkalýðsfélaganna, og
telur sl&ar árásir á Mfskjör og
samningsfrelsi óþolandi fyrir
verkalýðshreyfinguna.
Framhald á bls. 14
Hörpukonur Hafn-
arfirði, Garða- og
Bessastaðahreppi
Fundur verður haldinn fimmtu
daginn 21. nóv. 1968 kl. 8.30
síðdegis að Strandgötu 33 í Hafn
arfirði. Unnið verður að undir-
búningi að basar. Stjómin.
Tveir piitar
brutu rúður
I Alþingis-
húsinu
KJ-Rekjavík, mánudag.
f nótt voru 16 rúður brotnar
í Alþingishúsinu, og eftir mikl
ar yfirheyrslur í dag, viður
kenndu tveir 17 ára piltar verkn
aðinn.
I
Rúðurnar sem brotnar voru,
voru flestar í gluggum skrif-
’ stofu Forseta íslands og flokks
herbergi Sjálfstæðisfloikksins.
Notuðu piltarnir grjót úr ná-
grenninu til rúðubrotanna, og
var helzt sem skothríð hefði
verið gerð á húsið, því ekki
tók það nema um tvær mínútur
fyrir piltana að brjóta rúðurn-
ar. Ifúsvörður hússins gerði
strax aðvart um rúðubro-tin út
á lögreglustöð, og náðu lög-
regluþjónar fljótlega öðrum
piltinum, og seinna hinum. Þeir
viðurkenndu í dag að hafa brot
ið rúðurnar. en beir voru að
koma úr næiiiggiandi samkomu
húsi' Þetta er i annað sinn á
stuttum tíma sem rúður eru
brotnar í Alþingishúsinu.