Tíminn - 19.12.1968, Síða 3
JE»IMMtVDA<JUR 19. desember 1968.
TIMINN
15
NYKOMNAR
BARNABÆKUR
j Indriði Úlfsson:
; Leyniskjalið
Skjaldborg, Akureyri.
Þetta mun vera fyrsta barna-
bók höfundar, sem er ungur skóla
stjóri á Akureyri. Hann kallar
þetta sögu um tápmikla drengi.
Sögusviðið er íslenzkt þorp. en
ævintýrin gerast í vegavinnu, þar
sem söguhetjan dvelst hjá afa
I, sínum, vegaverkstjóra. Þar er eng
in þurrð á ævintýrum, og dreng-
urinn er töluvert lífsreyndari eft-
ir sumarið. Hann hefur kynnzt
nýjum mönnum, sem aukið hafa
Guðjón Sveinsson:
Ógnir Eimdals
Bókaforlag Odds Björnssonar.
f fyrra kom út fyrsta drengja-
bók þessa höfundar og hét Njósn-
ir á næturþeli, stóratburðasaga,
sem hlaut vinsældir, enda spenn-
andi í bezta lagi. Nú kemur fram-
hald — eða öllu heldur nýtt ævin-
týri félaganna fjögurra, Bolla,
Skúla, Adda og hundsins Krumma.
Enn er sögusviðið austfirzkur og
afskekktur dalur, þar sem félag-
arnir eru í útilegu. Þarna finna
þeir meira að segja leyniflugvöll,
Og er nú auðséð. að ekki er allt
með felldu. Þeir gerast leyni-
lögreglumenn eins og fyrri d^g-
inn og komast að ýmsu dularfullu
og í hann krappan, verða meðal
annars fangar í helli undir fossi.
Einn atburðurinn rekur annan
í þessari haglegu viðburðarás. Frá
sagnargáfuna þrýtur ekki örendið,
og ekki vantar spennuna. Það er
þó mest um vert, að þessi
skemmtisaga er rituð á góðu máli
og myndríku. Bráðsnjallar mynd-
ir eru eftir Atla Má í bókinni,
sem er fallega úr garði gerð. Höf-
undur og útgefandi boða fram-
hald á ævintýrum þessara ungu
leynilögreglumanna.
Jenna og Hreiðar Stefánsson:
Stúlka með ljósa lokka
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Ein vinsælasta skemmtibók ung
lingsstúlkna, sem út kom í fyrra,
var „Stelpur á stuttum pilsum“,
eftir Jennu og Hreiðar. Þessi nýja
bók þeirra er framhald þeirrar
sögu. Þar er Emma, unglings-
stúlka í Reykjavík, enn á ferð
vanda vafin eins og margar stall-
systur hennar, sem lesa þessa
sögu. Sagan fjallar um hversdags-
leg efni og tímabær, en hún er
nokkuð yfirborðsleg og ristir ekki
djúpt í könnun og skilningi. Þetta
er hugþekk skemmtisaga, sem skil
ur lítið eftir og vafasamt, að ung-
lingsstúlkur geti dregið af henni
teljandi lærdóma. Jenna og Hreið
ar hafa á seinni árum snúið sér
að unglingasögum, en leikni þeirra
í gerð smábarnabóka er þó miklu
meiri. Þar hafa þau lagt fram
mjög góðan skerf, byggðan á
kennarareynslu. Stúlknabækur
þeirra hafa þó orðið mjög vinsæl-
ar og augljóst er, að þau vita,
hvernig slíkar bækur þurfa að
vera, til þess að öðlast almenn-
ar vinsældir lesenda á þessum
aldri. Bókin er snotur að allri
gerð með drátthreinum myndum
eftir Baltazar.
Ármann Kr. Einarsson:
Óli og Maggi finna gullskipið.
Bókaforlag Odds Björnssonar
Ármann Kr. Einarsson hefur
skrifað barnabækur í þrjá ára
tugi og helgað sig þvi rithöfund-
arstarfi nær einvörðungu. Munu
barnabækur hans nú vera hátt á
þriðja tugi. Nokkrar þeirra hafa
verið þýddar á norsku og dönsku
og hlotið þar góða dóma.
Ármann þarf ekki að kvarta
um, að hann hafi ekki átt þakk-
látan lesendahóp, bví að fáir eða
engir höfundar munu nú þaul-
lesnari en hann. Hann tengir
gjarnan sögur sínar saman í
Ármann Kr. Einarsson
flokka, sama sögufólk birtist aft-
ur og aftur, en þó í sjálfstæðum
sögum. Síðasti flokkurinn er um
þá Óla og Magga, sem í þessari
sögu finna gullskipið í sandinum.
Ármann velur sér ætíð \viðfangs
efni úr heimi líðandi stundar og
íslenzkra staðhátta. Sögufólk hans
er oftast að fást við nútímaleg
áhugaefni. Þannig nær hann á-
huga og athygli barna umsvifa-
laust. Sögur hans höfða ætíð til
drenglundar. siðmennsku og
manndóms, og þær eru oftast um
leið gild átthagafræði. tilsögn um
meðferð og notkun ýmíssa verk-
færa, kennsla í vinnubrögðum,
landshögum og bjóðlífi. Mál hans
er slétt og fellt og auðskilið venju
legum unglingum, en þó engan
veginn fáskrúðugt. Hann veit,
hvernig spennandi saga þarf að
vera, og honum bregzt því aldrei
bogalistin, enda spennir hann
boga sinn hæfilega.
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur lengi gefið bækur Ármanns
út með ágætum myndum Halldórs
Péturssonar og * vönduðum bún-
ingi að öðru ieyti en því, að
spjaldapappír er svo lélegur, þótt
snotur sé, að kjölurinn er farinn
af, þegar bókin hefur verið lesin
tvisvar eða þvisvar. Þær eru því
oftast heldur ótótlegar í bókaskáp
barnanna, þegar stundir líða, og
munu vafalaust fljótt lesnar upp
til agna. Úr þessu ætti að bæta.
Ragnheiður Jónsdóttir:
Katla kveður
ísafoldarprentsmið.ia
Frú Ragnheiður Jónsdóttir, sem
nú er látin. skrifaði einhverjar
beztu bækur sem völ hefur verið
á handa unglingsstúlkum. Sögurn
ar um Kötlu eru bæði þroskandi
og skemmtilegar Efni þeirra er
góð og gild leiðsögn í vanda
þeirra ára. er ævin ræðst fremur
en á öðrum axdri Mái hennar var
ætíð fagurt Þessi síðasta bók
Ragnheiðar er með sama aðals
merkinu og hinai fyrri blæ ást-
úðar og virðingar fyrir æskufólki
nærgætni og skilningi sem ratar
réttar leiðir. Með þessari bók
kveður ung stúika, sem verður
mörgum lesendum sínum fyrir-
mynd, af því að þeir hafa fundið
þar margt, sem skírskotar til
þeirra sjálfra.
Þessi síðasta bók um Kötlu er
í vönduðum og fallegum búningi
og með listrænum teikningum eft
ir dóttur hinnar látnu skáldkonu.
Ólöf Jónsdóttir:
Dularfulli njósnarinn
Ægisútgáfan
Þessi hugmyndaríka drengja-
saga segir frá furðulegum ævin-
týrum tveggja Reykjavíkur-
drengja, sem fara í útilegu upp
í Heiðmörk, finna þar helli með
undarlegum hlutum. Verður það
upphaf stórbrotinna ævintýra, og
liggur leiðin út í heim á stóru,
erlendu skipi, þar sem þeir eru
laumufarþegar.
Sagan er ekki með neinum
raunveruleikablæ, heldur er hug-
arflugi gefinn laus taumurínn
eins og þetta væri saga eftir Jules
Verne. Við því er í raun og veru
ekkert að segja, og börn kunna
því vel að sleppa sér alveg í furðu
sögum. Verður það oft betri kost-
ur en reyna að samræma æsileg
ævintýri og raunveruleika. Sagan
er lipurlega skrifuð, tungutakið
hressilegt, ekkert sniðið af orðfæri
Ólöf Jónsdóttir
manntaksmikilla drengja, og eng-
in þurrð á stórbrotnum ævintýr
um. Er ekki ólíklegt. að þetta
þyki drengjum skemmtilestur. þó
að varanlegt gildi verði varla
annað en dægradvölin og góð æf-
ing í hugarflugi, og hún er nokk-
urs virði. Satt að segja er oftast
of lítið af því * barnabókum. og
höfundar gera sér ekki grein fyr
ir því, hve barnshugurinn er fleyg
ur og fagnar því að sleppa jörð-
inni. Þessi höfundur skilur, að '
huga barns er ekkert því til fyr
irstöðu, að gæða skio og flugvél
ar nútímans vfirnáttúru töfraklæð
is og galdrastafs, og jafnvel Heið
mörkin má gjarnan eiga sín und
irdjúp og furðuuella — Ágætai
teikningar eftir Hring Jóhannes
son eru í bókinni
Indriði Ulfsson
lífsskilning hans og mannþekk-
ingu, orðið að bjarga sér sjálfur
í mörgum vanda. Hér er allt
mannlegt og eðlilegt og ævintýr-
in íslenzk í bezta lagi. Höfundur
hefur augsýnilega glögg kynni af
drengjum, og hin góða leiðsögn
kennarans leynir sér ekki, bótt
hún sé hvergi yfirborðsleg.
Sagan er léttilega sögð, og mál-
farið þróttmikið og lipurt í senn.
Má vera, að hér sé á ferð góður
barnabókahöfundur. Samtölin eru
einkum fjörleg og eðlileg, óþving
uð og oft glettin. — Teikningar
Bjarna Jónssonar eru prýðilegar.
Þetta er bók, sem óhætt er að
benda drengjum á. Hún er allt
í senn, vel skrifuð, skemmtileg,
hugmyndarík og þroskandi.
Axel Thorsteinsson:
Smalastúlkan og önnur ævintýri.
Hér eru gamlir kunningjar á
ferð. Axel hefur endursamið og
endursagt þessi ævintýri úr ensku.
Hann hefur varazt að þýða þau
orði til orðs, og fyrir bragðið eru
þau sem íslenzk væru, enda eru
nöfnin skemmtilega íslenzkuð.
Ævintýri þessi komu fyrir löngu
í bók, sem hét Ævintýri og smá-
sögur handa litlum börnum, og
var á sínum tíma fylgirit tíma-
ritsins Rökkur. Þessi ævintýri
hlutu góðar vinsældir og eru
löngu uppseld. Ævintýrunum
fylgja einfaldar og fallegar teikni
myndir.
Þessar ævmtýrasögur um dýr,
börn, kóngssyni og kóngsdætur,
blóm og jurtir, álfa og dverga,
eru flest mjög stutt og viðráðan-
leg þeim sem ekki eru nema
stautfærir í lestri. En þau eru
einnig ákjósanlegar rökkursögur,
sem fullorðnir geta sagt ungum
og ólæsum börnum sínum undir
svefn.
Þótt hugir barna dragist nú
mjög að bílum og geimförum er
ómaksins vert að vita, hvort göm-
ul og fögur ævintýri geta ekki
enn haft sitt aðdráttarafl á baras-
hugann, sé rétt á haldið. Og Axel
Thorsteinsson kann að segja börn
um ævintýri. Það dylst engum,
sem lítur í þessa bók.
FRAMLEIÐENDUR:
.TIELSA, VESTUR-ÞÝZK
GÆÐAVARA OG
JÓN PÉtURSSON
HÚSGAGNA
FRAMLEIÐANDI
[□SlálátalalálálalaÍEÍÍalalálalalálálálálá
Bl
EdI
B1
Bl
B1
Bl
B1
B1
ELDHUS-
ElIálÉilalálalálHlalalalsIalHla
% KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI
% STAÐLAÐAR
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI
OG ÖLL TÆKI FYLGJA
% HAGKVÆMIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
ODDUR HF
UMBOÐS-
OG HEILDVERZLUN
KIRKJUHVOLI
SlMI 21718 og 42137
FULLKOMIÐ SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI
1-44-44
HVERFISGOTU 103