Vísir - 16.08.1977, Síða 10
10
Þri&judagur 16. ágiist 1977
VÍSIR
C tUffainÍi: Hfykjiiprfiit hl
Kriimkvænulastjóri: Davió (iUÓiiiuikIssoii
ititstjórar: Dorstfinn l’álsson áhm.
olafur Hannarsson.
Hitstjórnarfulltrúi: Hragi Guftmundsson. Fróttastjóri frlcndra frótta: (iuftmundur G. Félursson.
I msjón meft HelgarhlaAi: Arni Dórarinsson HlaAamenn: Anders Hansen, Anna HeiAur Oddsdóttir,
Edda Andresdottir, Kinar K GuAfinnsson. EliasSnæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, GuAjón
Arngrimsson. Hallgrimur H Helgason. Kjartan L. Fálsson. Oli Tynes. Sigurveig Jónsdóttir. Sveinn
GuAjónsson. Sæmundur GuAvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjánsson ( tlitsteiknuji: Jón
Oskar Hafsteinsson. Magnús Olafsson l.jósmvndir: Einar Gunnar Einarsson. Jens Alexandersson.
Loítur Asgeirsson
Síilustjori: Fáll StefánSson Auglvsingastjóri: Dorsteinn Fr SigurAsson
Dreifing:ust jori: SigurAur K Fótursson
Aughsingar: SiAumula x. Simur X22(iO. Xlitilt. Askriftargjald kr. i:i»0 á mánuAi innanlands.
AfgreiAsla: Stakkholti 1-1 simi Xlilill VerA i Liusasiilu kr. 70 eintakiA.
Hitstjórn : SiAumúla II. Simi Xlilill. 7 línur. Frentun: KlaAaprcnt lif
Hnútukast
Kröflumanna
Upp á síðkastið hafa farið fram fremur kyndugar
umræður um ævintýrið við Kröflu. Fæstum dylst nú,
að þar hafa verið gerð meiri háttar pólitísk mistök. En
það hefur ekki verið til siðs í okkar þjóðfélagi, að
stjórnmálamenn sættu ábyrgð fyrir verk sín eða
ákvarðanir. Eigi að síður hafa menn velt því fyrir sér
við hvern sé að sakast.
Nú liggur i augum uppi, hver ber pólitíska ábyrgð á
Kröfluvirkjun. Það hefur hins vegar ruglað menn í
ríminu, að framkvæmdaaðilar verksins hafa að
undanförnu staðið í hnútukasti í því skyni að þvo
hendur sínar og skella skuldinni á aðra. Þó að má lið sé
alvarlegs eðlis hafa umræður þessar verið heldur
spaugilegar.
Mistökin við Kröf lu eru í aðalatriðum þrenns konar.
I fyrsta lagi gerði orkuráðherra þau mistök að fela
framkvæmd verksins þremur aðilum, sem hverjum
um sig var ætlað að vinna sjálfstætt að einstökum
þáttum þess. Það er þvi i aðalatriðum rétt, sem
Kröf lunefndarmenn segja, að þeir bera ekkiábyrgð á
gufuleysinu. Orkuráðherra setti þeim það verkefni að
reisa orkuverið og kaupa af Ivélarnar án tillits til þess
hvort orka væri til staðar.
Að réttu lagi hefði átt að fela verkið einum fram-
kvæmdaaðila með reynslu i virkjanagerð. I þessu
glundroðafyrirkomulagi voru fyrstu alvarlegu mis-
tökin fólgin.
I öðru lagi var ákveðiðað reisa virkjunina of stóra í
einu vetfangi. Orkuráðherra og Kröflunefndarmenn
féllu fyrir lögmálinu um hagkvæmni stærðarinnar, en
gleymdu því að það virkar ekki, þegar ekki er unnt að
selja nema hluta framleiðslunnar.
Þó að allar áætlanir um Kröf lu hefðu staðist og næg
orka fengist til þess að hefja þar framleiðslu síðari
hluta árs 1976 eins og áformað var, hefði rafmagnið
þaðan orðið margfalt dýrara en annars staðar á
landinu. i apríl 1976 upplýsti t.a.m. borgarstjórinn í
Reykjavík, Birgir Isleifur Gunnarsson, að Kröflu-
virkjun myndi leiða til verulegrar hækkunar á raf-
orkuverði Reykjavík, ef landsmenn allir ættu að
borga brúsann.
I þriðja lagi voru gerð alvarleg mistök með því að
kaupa aflvélar áður en upplýsingar lágu fyrir um
eiginleika gufunnar og hver reynsla fengist af
vinnsluborunum. Áður en endanleg kaupvoru afráðin
kom aðvörun f rá Orkustof nun, þar sem á það var bent
að þetta væri ekki eðlilegur framgangsmáti. Þrátt
fyrir þessa aðvörun tóku orkuráðherra og Kröflu-
nefnd ákvörðun um kaup á af Ivélunum og ákveðið var
að reisa orkuverið án tillits til gufuöflunarinnar.
Þvi var haldið fram, að þessi áhætta hafi varið
óhjákvæmileg vegna orkuvandræða á Norðurlandi.
Sannleikurinn er þó sá, að miklu ódýrara og skjótvirk-
ara var að leysa úr þessum vandkvæðum með byggða-
linu. Þegar orkuyfirvöldum varð fyrr á þessu ári
Ijóst, að þau höfðu vogað og tapað við Kröflu, var
ákveðið að flýta lagningu byggðalínunnar í því skyni
að leysa úr brýnustu orkuvandamálum fyrir norðan.
Hér hafa verið gerð pólitísk mistök. Margt bendir þó
til þess, að virkjunin verði nothæf þó að seint verði.
Hátt i tíu þúsund milljónir króna eru þegar komnar í
verkið. Miklu skiptir því, að skynsamlegar ákvarðanir
verði teknar um framhaldið.
Með hliðsjón af öllum aðstæðum væri því rétt og
eðlilegt að nýir aðilar, sem væru með öllu óbundnir
fyrri mistökum, tækju við yfirstjórn framkvæmd-
anna þegar í stað. Það væri miklu farsælla en láta nú-
verandi aðila málsins kasta hnútum hver i annan
vegna þess, sem gerst hefur.
'■ V
Veita verðlaun fyrir upplýsingar um
merktan lax og silung hérlendis
Á vegum Veiðimálastofnunar
hefur undanfarin ár verið
merktur töluverður fjöldi lax og
siiungs vlðsvegar um landið.
Við merkingar þessar hafa
bæði verið notuð sérstök fisk-
merki, sem fest er á fiskinn eða
klipptur er af seiðunum uggi og
á það sérstaklega við laxamerk-
ingar.
Þess er sérstaklega vænst, að
merktir laxar veiðist i sumar i
eftirtöldum vatnasvæðum
vegna merkinga á gönguseiðum
vorið 1976: Artúnsá (vinstri
kviðaruggi), Andakilsá (veiði-
uggi) vatnasvæði Hvitár i
Borgatiröi vegna merkinga á
laxaseiðum sem sleppt var i
Norðlingafljót (hægri kviöar-
uggi, Botnsá i Súgandafirði
(uggaklippingar), Hofsá á
Skagaströnd (veiðiuggi) og
Laxeldisstöð rikisins i Kolla-
firði, en þar voru gönguseiöi
merkt bæöi meö merkjum og
veiðiuggaklippingu. Auðvitaö
getur merkur fiskur fengist við-
ar en á þeim ám, sem fiskur
hefur verið merktur i.
Silungsmerkingar hafa verið
framkvæmdar á eftirtöldum
stöðum siðustu ár: Djúpavatni á
Reykjanesi, Elliðavatnssvæð-
inu, Lárósi, Eystra Friðmund-
arvatni á Auðkúluheiði, Laxá i
Þingeyjarsýslu (Efri Laxá),
Mývatni og Stóra Fossvatni á
Landmannaafrétti.
Það eru tilmæli Veiðimála-
stofnunar til veiðimanna að þeir
athugi vel hvort fiskur, sem þeir
veiða i sumar, sé merktur og ef
svo er að láta Veiðimálastofn-
unina vita um það. Slikum upp-
lýsingum þarf að fylgja vit-
neskja um tegund fisks, kyn,
lengd og þyngd og veiðidag og
veiðistað. Veitt eru verðlaun
fyrir upplýsingar um merktan
fisk.
UR
VEDURBÓK
VIKUNNAR
Reykjavikurveður vikuna 7. til 13. ágúst 1977
Dags. Úrkoma, Hiti, Sólskin,
ni m gr. C klst
S 7 0.0 9.8 17.0
M 8. 0.0 10.1 2.2
Þ 9. 0.0 10.2 1.0
M 10. 3.1 12.4 0.6
F 11. 9.5 12.3 3.1
F 12. 0.9 12.5 1.6
L 13 0.2 16.0 1.0
Meðaltal 1.8 11.9 3.8
1931-60 2.0 11.1 5.2
Páll Bergþórsson
skrifar:
1 V
Mánudagur. Nú er að nálgast
lægð alllangt suðvestur úr hafi og
sólskinið er að mestu þrotið. Samt
helst þurrt og kyrrt i höfuðborg-
inni og bændur i nærsveitum hafa
full not af þessum degi til að ná
saman heyi. 1 spánni um kvöldið
er farið að vara við rigningu dag-
inn eftir á svæðinu frá Mýrdal til
Breiðafjarðar og sumir eru þvi i
þurrheyi fram eftir kvöldi.
Þungaskattur
Þriðjudagur. Það fór að rigna i
Þessi siðasta vika var sú hlýjasta, sem hefur
komið á sumrinu, og þar munaði mest um einn dag,
laugardaginn, þegar meðalhitinn var 16 stig og há-
markið komst i 19.5 þessu olli loftstraumur frá
Evrópu. Vætan mátti teljast i meðallagi, en sólskin
heldur litið að undanskildum sunnudeginum i viku-
byrjun.
Leifar af sólskinskafla
Sunnudagur. Sólskinskaflinn frá
fyrri viku náði til þessa drottins-
dags, öllum þeim mörgu sem nú
voru i frii, til mikillar ánægju.
Lofthiti var lika sæmilegur yfir
daginn, en svalt um nætur, eins
og oft vill verða i heiðrikju. Það
hindraði þó ekki Eyjamenn að
dansa fram eftir kvöldinu og til
kl. 4 á mánudagsmorgun. Eftir
þessar svölu nætur er aðeins farið
að sjá á kartöflugrösum i
Þykkvabæ, þvi mikla kartöflu-
landi, en ekki er þó talið að þaö
rýri uppskeru. 1 sólskininu i dag
var kveikt á Surtseyjarvita, sem
státar af lægri breiddargráðu en
aðrir vitastaðir landsins.
Reykjavik um hádegið, en þá var
enn sólskin með köflum á Snæ-
fellsnesi, og á Norðurlandi var
þurrt þennan dag. Það má þvi
heita að heyskapur horfi vel um
allt land, og liklega verður mikið
sett á vetur af búfénaði i haust.
Það er þvi timabært, að verið er
að ræða um hvort landbúnaðar-
vörur séu hollar eða óheilnæmar.
Ég sé ekki betur en Stefán frá
Vaðbrekku komist næst hinni
skynsamlegu niðurstöðu. Hann
telur ráðlegt að minnka sykurát
og nota heilnæmari korntegundir,
draga til dæmis úr hvitahveitis-
áti. En aðalatriðið sé að hætta of-
átinu. Það er mesta meinið segir
hann. Ég sé fyrir mér, hvernig
farið verður að skammta matinn
á heimilum og veitingahúsum,
likt og gert var i gamla daga, ekki
vegna þess að of litið sé til af fæðu
eins og þá var, heldur af þvi að of
mikið er i búrinu. t Hávamálum
segir, að heimskir menn kunni
sér aldrei magamál. Eftir þvi að
dæma er gáfnavisitala íslendinga
ek.ki há. En meðal annarra orða,
mætti ekki leggja þungaskatt á
fólk eins og bila? Það væri ekki
vitlausasti skatturinn. Þó yrði að
leyfa frádrátt vegna þungunar.
Opinber heimsókn
Miðvikudagur. Rigningin gekk
hjá að mestu i nótt, og i dag eru
aðeins smáskúrir, en klukkan 18
er farið að hellirigna af nýrri lægð
sunnan úr hafi. Það var þennan
dag, sem Kekkonen kom i opin-
bera heimsókn. Hann gat með
nokkru stolti sagt i ræðu sinni, að
Finnland hefði fylgt virkri hlut-
leysisstefnu, en Island hefði á
hinn bóginn gengið i Atlantshafs-
bandalagið. Hver getur nú verið
skýringin á þessum mismun á af-
stöðu Finna og Islendinga til
voldugs nágranna? Mér dettur i
hug, að það megi setja fram á lik-
an hátt og i krossaprófi, sem nú
eru mjög i móð. Þrir möguleikar
eru gefnir:
1. Finnar eru undanlátssamari en
tslendingar, en meira munar
um hitt, að Kanar eru enn
ágengari en Rússar.
2. Rússar eru frekari en Kanar,
en meira munar um hitt, hvað
Islendingar eru ósjálfstæðari
en Finnar.
3. Islendingar eru meiri lyddur
en Finnar, jafnframt þvi sem
Kanar eru ágjarnari en Rúss-
ar.