Vísir - 16.08.1977, Blaðsíða 11
VISIR
Þriðjudagur 16. ágúst 1977
„Hœttum um ófar ,\ að ir 0 kenna Ki rkustofn röflunefnd iunar"
t baksiðufrétt i Visi 10. ágúst
er skýrt frá áliti dr. James
Kuwada frá San Francisco
varðandi ástand borhola á
Kröflustæðinu. Segir Kuwada
það álit sitt að jarðhræringar
hafi ekki áhrif á vinnslugetu
holanna.
Þetta er ánægjuleg ffrétt.
Ekki álit/
áhyggjur
einungis
En blaðamaður Visis bætir við
fréttina athugasend frá eigin
brjósti, sem sýnist ósköp sak-
leysisleg, en er þó villandi, ef
grannt er skoöað. Blaðamaöur-
inn segir svo:
„Þessi yfirlýsing er mjög i
andstöðu við það, sem haldiö
hefur verið fram til þessa, þar
sem bæði talsmenn Orkustofn-
unar og Kröflunefndar hafa lýst
þeirri skoöun, að jarðhrær-
ingarnar, sem hófust á árinu
1975, eigi mikla sök á þeim
erfiðieikum, sem við hefur verið
að etja við guguöflun á Kröflu-
svæðinu”.
Við þetta vil ég sem aðili að
Kröflunefnd gera þá athuga-
semd að Kröflunefnd hefur
aldrei svo ég muni til látiö uppi
opinbert álit nefndarinnar á
ástæðum fyrir erfiðleikum
þeim, sem Orkustofnun á viö að
striða i sambandi við gufuöflun
á Kröflusvæðinu, enda er gufu
borun ekki á neinn hátt i verka
hring Kröflunefndar og
nefndin ræöur ekki yfir neinum
sérfræöingum á þvi sviöi,
hvorki jarðfræðingum né tækni-
mönnum. Hitt er annað mál að
fáir munu hafa haft meiri
áhyggjur af verkum Orkustofn
un'ar en Kröflunefndarmenn.
Blaðamaðurinn, sem samdi
fréttina i Visi, er þvi miður
haldinn þeim útbreidda mis-
skilningi að Kröflunefnd sé allt i
öllu að þvi er varðar Kröflu-
virkjun. Menn geta helst ekki
borið sér nafn Kröfluvirkjunar i
munn svo að ekki sé nefnt nafn
Kröflunefndar i sömu andrá. Ée
Kröflunefnd er aðeins
framkvæmdanefnd
Ingvar Gíslason al-
þingismaður skrifar
þessa grein í tilefni
frétta um Kröfluvirkj-
un, og telur að menn
geri sér ekki nægilega
grein fyrir, hvert sé
hlutverk Körflunefnd-
ar varðandi þær fram-
kvæmdir, sem nú er
unniðaðá Kröflusvæð-
inu.
held ýmsir imyndi sér að
Kröflunefnd hafi fundið upp þá
hugmynd að virkja jarögufu,
a.m.k. munu margir trúa þvi
að Kröflunefnd hafi upp á ein-
dæmi sitt ákveðið að reisa jarð-
gufuvirkjun á Kröflusvæöinu.
Svö er auðvitað alls ekki.
Kröflunefnd er einungis fram-
kvæmdanefnd að vissum ,verk-
hluta Kröfluvirkjunar. fslenska
rikið lætur gera þessa virkjun
oghefur falið þremuraðilum aö
sjá um sinn verkhlutann
hverjum. t megindráttum er
starfaskiptingin þannig að
Orkustofnun sér um gufuöflun,
enda eru öll rök um virkjunar-
hæfni Kröflusvæðis niðurstaða
af margra ára rannsóknum
Orkustofnunar. Rafmagns-
veitur rikisins sjá um lagning
háspennulina og Kröflunefnd
um byggingu margs konar
mannvirkja á virkjunarsvæð-
inu, auk vélakaupa ig uppsetn-
ingar þeirra.
Orkustofnun hefur
mistekist
Ekki er ætlast til að einn aðili
að þessari verkaskiptingu fari
inn á annars svið. Kröflunefnd
hefur þvi ekki skipt sér af
verkum Orkustofnunar og getur
engu um þau ráðið. Hitt er ekki
óliklegt að Kröflunefndarmenn
hafi einstaklingsbundnar skoð-
anir á þeim efnum. Verður þeim
naumast bannað það. Min
skoðun er sú, að Orkustofnun
hafi mistekist ýmislegt i sam-
bandi við gufuöflum og lausn
bortæknilegra vandamála. En
það er mannlegt að gera mis-
tök: „Errare humanum est”.
Min skoðun er einnig sú, að eöli-
legt sé að stofnunin leiti ráða
hjá erlendum sérfræöingum.
Þvi miður hefur komið i ljós,
mót allri von, aö Orkustofnun
ræður ekki yfir nægilegri
reynslu á sviði gufuöflunar á
háhitasvæðum. Alit James
Kuwada er athyglisvert i þessu
sambandi.
En umfram allt: Hættum að
kenna Kröflunefnd um ófarir
Orkustofnunar.
Akureyri 11. ágúst 1977
Ingvar Gislason alþm.
Saga til næsta bæjar
Fimmtudagur. Það mældust
meira en 9 mm rigningar i
Reykjavik i morgun, en þrefalt
meira hjá Karli á Hólmi, rétt á
móts við Rauðhóla. Svona getur
landsynningurinn verið miklu ill-
skeyttari þar vegna nálægðar
fjallanna. Bæði i dag og i gær er
talsvert hlýrra en verið hefur,
loftið er suðrænna að uppruna en
að undanförnu. Þó á eftir að
skipta meira um, þegar vindar
fara að blása frá Evrópu, og ein-
hverntima verður það, þótt sjald-
an sé. Þegar lægðin er að sigla
norðvesturmeð Reykjanesi i dag,
er hún alldjúp, en einkum er hún
kröpp, þe. þrýstilinur eru þéttar
næst miðjunni og þvi hvasst. 1
einni vindhviðunni á Hveravöll-
um mælast 80 hnútar, en á sama
tima er tiu minútna meðaltalið 50
hnútar. Þessir 50 hnútar (90 km á
klst) teljast 10 vindstig. Fyrir
norðan er hann miklu hægari, og
þeir eru núna að prófa vélar
Kröflu. Þeir segja að allt gangi
eins og i sögu, og má vissulega
segja að það sé saga til næsta
bæjar.
Föstudagur. Nú er komin hæð
fyrir norðaustan land i stað lægð-
ar, sem var þar i fyrri viku. Frá
Evrópu eru nú hlýir vindar lagðir
af stað yfir hafið til Islands. 1 dag
er ég að keppast við að þýða
mynd um vinda fyrir sjónvarpið.
Hún er kanadisk og að ýmsu leyti
athyglisverð, einkum vegna vind-
gangatilrauna með turna og brýr.
Þeim hefur lika reynst, að háhýsi
veiti bókstaflega sterkum vind-
hviðum úr hærri loftlögum niður
aðjörðu i stað þess að veita skjól.
Þetta er athyglisvert hér á landi,
þar sem yfirleitt er nógu hvasst,
þóaðekkisé aukiðá vindhviðurn-
ar af manna völdum.
Önnur opinber heim-
sókn.
Laugardagur.Nú eru þeir komnir
i opinbera heimsókn hlýju
vindarnirfrá Evrópu. Þetta er al-
gert hitamet I Reykjavik á árinu
fram að þessu, 16 stig að meðal-
tali frá miðnætti til miðnættis,
enda þótt sólin nái mjög litið að
skina og hita. Hitamóða fylgir
þessum allsterka Evrópuvindi, og
landslagið fer að taka á sig þann
svip sem við könnumst við af
HEIM
SOKNIR
Að sögti Péis Bergþórssonar komv fleirí í opinbera heimsókn í síðustv
yXu Mmf^feaLyMÍiÍÉfVftáí lyJj vmmm cam *> ^
ké b/rófv, som olht tégpn héOmmoti í öteykj*v9t é érím ftmm «# þossv
málverkum þeirra meginlands-
manna, ef ekki af eigm sjón. Ég
hef héyrt menn hneykslast á þvi,
hvað Freymóður Jóhannsson
hafði skæra liti og skfrt landslag i
myndum sinum bæði I nálægð og
fjarlægð. Ekki skal ég dæma um
málverk hans að öðru leyti, en i
þessu held ég að hann hafi verið
sannari en þeir sem höfðu lært aö
tákna þrividd með þvf að láta
fjærstu hluti á málverkinu hverfa
i móðu, þó að sýnilega væri aöeins
um fárra kilómetra fjarlægð að
ræða.