Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 18

Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 18
Föstudagur 9. september 1977 VISIR ) LAUQARA8 BJLO Simi 32075 Stúlkan frá Petrovka Umsjón: Arni Þórarinsson og Guöjón Arngrimsson. ° ★ ★★ ★★★★ afleit slöpp la-ia ágæt framúrskarandi Ef mvnd er talin heldur betri en stjörnur segja til um fær hún + aö auki,- Stjörnubíó: Taxi Driver ★ ★ ★ ★ Tónabió: Brannigan ★ -j- Nýja bíó: Lucky Lady ★ ★ ★ Austurbæjarbió: Fanginn á 14. hæð ★ ★ ★ Gamlabíó: ELVIS ★ ★ ★ Háskólabió: Flughetjurnar ★★ + Mjög góö mynd um ævintýri bandarisks blaöamanns i Rússlandi. Aöalhlutverk: Goldie Hawn, Hal Holbrook, Anthony Hopkins. tslenskur texti Sýnd kl. 5, 7 og 9. I örlagafjötrum. Hörkuspennandi bandarisk • kvikmynd meö islenskum texta og meö Clint Eastwood i aðalhlutverki. Bönnuð börnum Endursýnd kl. 11. TAXI DRIVER TÓNABIÓ Heimsfræg verölaunakvik- mynd i litum. Leikstjóri Martin Scorsese. Aöalhlut- verk: Robert De Niro, Jodie Foster, Harvey Keitel. Sýnd kl. 6, 8.10, 10.10 Bönnuö börnum Hækkað verö Simi 31182 Lukku Láki Lucky Luke gÆJARBÍP —Sími 50184 I fremstu víglínu Raunsönn mynd um hetjudáð- ir landgöngusveita Bandarikj- anna á Kyrrahafinu i siðari heimstyrjöldinni. Aðalhlutverk: Chad Everett Mailyn Deven Gene Hackmann tsl. texti Sýnd kl. 9 Bönnuö börnum Allra siðasta sinn Islenskur texti Bráðskemmtileg, ný banda- risk ævintýra- og gaman- mynd, sem gerist á bannár- unum i Bandarikjunum og segir frá þrem léttlyndum smyglurum. Hækkaö verö. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. Sföustu sýningar. A Russian girl, an American reporter, ...and the love theyshared GOLDIE HAWN HAL HOLBROOK in TUEGIRLFROM PETROVKA Ný teiknimynd, með hinum frækna kúreka Lukku Láka i aöalhlutverkinu. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ■Öf 1-15-44 Þú l V MÍM!.. i \\ 10004 hafnorbíó 16-444 Sweeney Hörkuspennandi ný ensk lög- reglumynd i litum John Than Dennis Waterman tsl. texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11. AljSTURBtJARRÍÍI ISLENZKUR TEXTI Sandgryf juhershöfð- ingjarnir The Sandpit Generals Mjög áhrifamikil, ný banda- risk stórmynd i litum og Cin- emascope, byggð á sögu brasiliska rithöfundarins Jorges Amado. Aöalhlutverk: Kent Lane, Tisha Sterling, John Rubin- stein. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HASKÖLÁBiö S.mi 27/VO Flughetjurnar (Aces High) Hrottaspennandi. sann- söguleg og afburðavel leikin litmynd úr fyrra heimsstriði — byggð á heimsfrægri sögu ..Journey’s End” eftir R.C. Sheriff. islenskur texti Aðalhlutverk: Malcolm McDowell, Christopher Plummer, Simon Ward. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta sinn Fjolaköttur kynnir þýska meistara v__________</ 1 Fjalakattarumfjölluninni hér i kvikmyndadálkunum siöustu tvo daga kom fram aö kvikmy ndaklúbburinn hyggst i vetur gera nokkur skil nýju þýsku bylgjunni I kvikmyndagerö meö sýning- um á verkum þriggja af kunnustu leikstjórum Þjóö- verja nú. Þeir eru Werner Herzog, Hans Jurgen Syber- \ berg og Volker Schlöndorff. Þar sem hér gefst i fyrsta sinn tækifæri til aö sjá mynd- ir frá þessari nýju kynslóö þýskra kvikmyndageröar- manna I einhverju samhengi þykir viöeigandi aö kynna stuttlega þessa þrjá leik- stjóra. Hugsanlega veröa fleiri landar þeirra kynntir siöar hér á sföunni. Hans Jurgen Syberberg Hans Jurgen Sybcrberg (fædd- ur 1932) er eini leikstjórinn af þessari nýju kynslóð sem lærði sitt fag beinlinis hjá sjónvarp- ■ inu. Þegar hann var unglingur kvik- myndaði hann á 8 mm vél upp- færslu Bertold Brechts á „Ur- Faust”, og er sú mynd nú sögu- legur dýrgripur. Siöar hóf hann gerð heimildarmynda um myndlist fyrir sjónvarpiö i Bæjaralandi. Sú mynd sem Fjalakötturinn sýnir i vetur, „Lúðvik — sálumessa meyjar- konungs”, var önnur mynd Sybergs I fullri lengd. Uppruna- lega var myndin hugsuð sem sprell á borð við tilþrif Andy Warhols á hvita tjaldinu. En fyrren varði haföi myndin slys- ast til að breytast i fyrsta hluta umfangsmikils þrileiks Syber- bergs um þróun þýskrar þjóðar sálar. Annar hluti þess þrileiks var „Karl May” og lokaþáttur- inn verður siðan fjögurra klst. mynd „Hitler — Kvikmynd gerö i Þýskalandi”. I millitföinni geröi Syberberg „Játningar Winifred Wagner”, sem er þriggja klst. samtal við aldraða forvigiskonu tónlistarhátiðar- innar I Bayreuth. Syberberg er kunnur fyrir langar einræður i myndum sinum, og nýstárlega notkun teikmynda. Volker Schlöndorff Volker Schlöndorff (fæddur 1939) á eina mynd á sýningar- skrá Fjalakattarins i vetur, „Náðarskotið” eöa „Der Fang- schuss” sem hann gerði 1976 og telst ekki til meiri háttar mynda hans. Mynd Schlöndorffs „Der Junge Törless” eftir sögu Ro- bert Musil er reyndar fyrsta mikilvæga þýska kvikmyndin sem fram kom eftir aö gróska komst i kvikmyndagerð þar að nýju. Hún var gerð 1965-6. Schlöndorff svipaði i vinnu- brögöum mjög til franskra kvikmyndageröarmanna, enda hafði hann stundaö nám viö frönsku kvikmyndaakademi- una, unnið sem aöstoðarmaður Louis Malle, Alain Resnais og Jean-Pierre Melville, og einnig starfað við franska sjónvarpið. Schlöndorff hefur siðan gert á annan tug mynda, en merkastar eru taldar „Hinn óvænti auður fátæka fólksins i Kombach”, (1970) saga frá fyrri öldum með pólitiskum undirtón, „Sumar- elding” (1972) um fráskilda konu (leikin af eiginkonu og samstarfsmanni Schlöndorff, Margarethe von Trotta) i ein- manalegri baráttu við karla- veldið, og „Ærumissir Katrinar Blum” (1975) eftir pólitiskri dæmisögu Heinrich Böll sem var hörð árás á æsifrétta- mennsku gulu pressunnar i Þýskalandi. Werner WernerHerzogtfæddur 1942) er kunnastur þessara þriggja höf- unda og ásamt Fassbinder i fremstu röö hinna ungu þýsku kvikmyndageröarmanna. Hann er einna yngstur þeirra aö ár- um, en hvað elstur i faginu, þvi hann var farinn að gera tilraun- ir i kvikmyndagerð áriö 1959. Herzog hefur aö þvi er viröist minni áhuga á að fjalla um Þýskaland nútimans og vanda Herzog þess, heldur en kollegar hans. Myndir hans snúast einatt á episkan hátt um mannlega bresti.brjálun og hetjuskap. Oft fjalla myndirnar um örlagarika vendipunkta i llfi persónanna, fremur en hversdaginn. „Fólk sem liggur undir miklum þrýst- ingi gefur okkur mun betri inn- sýn I innsta eöli okkar”, segir hann. Söguhetjur hans hafa þannig verið dvergar („Jafnvel dvergar byrjuöu smátt”, 1969- 70) heyrnarlaus og blind kona sem leikur sjálfa sig („Land þagnar og myrkurs”, 1971-2), 19. aldar „villimaöurinn” Kasp- ar Hauser (i samnefndri kvik- mynd sem Háskólabió hefur sýnt), og methafa i skiðastökki (leikur sjálfan sig) sem á dular- fullan hátt finnur sig knúinn til æ furðulegri afreka („Hin mikla fullnæging Steiner trésmiðs”, 1974). Fjalakötturinn mun i vet- ur sýna fyrstu mynd Herzogs, „Lifsmark” (1968), „Dverg- ana” og „Steiner”. — AÞ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.