Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 23

Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 23
VISIR Föstudagur 9. september 1977 Hringið í sima 86611 miili klukkan 13 og y r I for- inni Árni Helgason sendi blaðinu eftirfarandi svar til Haralds Blön- dals: „Enn svamlar Haraldur Blöndal lögfr. i forinni á breiða veginum. I Visi mið- vikudaginn 20. ágúst heldur hann áfram að vegsama áfengið og eiturefnin og lof- syngja hvað þau séu landi og þjóð nauðsynleg. Meðal ann- ars verði að lækka verð þeirra svo að hver og einn geti fengið sinn skammt og meira en það. En það skiptir hins vegar engu máli þótt holl efni, sem stuðla að góðri heilsu og hreysti, verði svo dýr að þau verði ekki keypt af þeim sem á þurfa að halda. Og hann minn- ist ekkert á alla þá sem þjást og kveina undan þessum eiturefnum. Hann hefir litið fyrir þvi að telja andvörp þeirra, sem vaka yfir glötuö- um sonum og dætrum eða öðr- um ástvinum sem eru að far- ast i þessum voða. Og að hann liti á þá manndómsmenn, sem þjóöin hefir tapað i elfu Bakkusar, er fráleitt. Hins vegar eru þetta skiljanleg viðbrögð lögfræð- ings þvi að málavafstri á mörgum sviðum myndi ljúka ef hægt væri að afnema eitur- nautnir og það þýðir auövitað minni atvinnu. En það sem kom mér sér- staklega til að gripa pennann nú er ekki þessi hugsanagang- ur H. Bl., þvi að hann á sér fáa lika, heldur það sem hann seg- ir og ég leyfi mér að taka hér upp: „Ég minnist þess siðan i vetur að fjórir þingmenn vildu að menn sem keyptu áfengi yrðu skráðir opinber- lega eins og Gyðingar hjá Adolf Hitler” o.s.frv. og Siðar: „Vitanlega eiga þessir al- þingismenn ekkert skilið af þeim sem borga átta milljarða aukreitis annað en að þeir verði ekki kosnir aftur, til þings en aðrir menn valdir i þeirra stað.” Með öörum orð- um: Þessum þingmönnum verði rult úr vegi eins og Hitl- er gerði við þá sem ekki voru sama sinnis og hann. Er Hitlersandinn betur túlkaöur nokkurs staðar en i þessum orðum og hugarfari. Þaö má sem sé ekki ónáða brennivins- og eiturberserki og beina fólki inn á hollari brautir. Slikt skal varða þvi að menn veröi látnir „hverfa” af sjónarsviðinu. Nýlega ákvað Carter banda- rikjaforseti að i Hvita húsinu skyldu ekki, meðan hann réði, verða veittir sterkir drykkir i veislum. Ja, hann á aldeilis von á góðu frá Haraldi lögspekingi Blöndal.” ÞÞþ. ÞORGRÍMSSON &C0 Armula 16 • Reykjavik • simi 38640 '6$, & O ’Ú Albert hefur rétt fyrir sér Akurnesingur hringdi: „Ég var að lesa frétt hjá ykkur i Visi þess efnis, að Albert Guðmundsson hafi neitað Akurnesingum um enn einn mann i stjórn Skalla- grims, sem er útgerðarfélag Akraborgarinnar. Mig langar til að lýsa ánægju minni meö þessa ákvörðun Alberts, þvi að utan þess, sem Reykvik- ingar eiga hagsmuna að gæta i sambandi við Akraborgina, þá tel ég það einnig gott fyrir okkur Skagamenn að hafa i þessi starfi mann, sem ekki er neitt tengdur Akranesi. Ég fagna þess vegna að til starfans skuli valinn utanað komandi maður, ailsendis ótengdur Akranesi, og sem getur litið hlutlausum augum á málin. Það er ýmislegt at- hugunarvert við rekstur Akra- borgarinnar, sem núverandi stjórn hefur ekki náð aö laga, svo ég held Albert hafi rétt fyrir sér að þessu sinni”. í SJALLANN Jóhann á Akureyri hringdi: „I framhaldi af lesendabréfi i Visi fyrir skömmu þar sem rætt var um hátt miðaverð i Sjallan- um langar mig að geta þess, að um siðustu helgi var selt þar inn fyrir 1.000 krónur og einungis var boðið upp á eina hljómsveit. Þvi langar mig til að spyrjast fyrir um það hvort vinveitinga- leyfi sé ekki bundið við þaö að hafa miðaveröið i lágmarki. Manni finnst það allavega skrýtið að hægt sé að setja það verð á aðgöngumiðana sem for- ráðamönnum húsanna þóknast án þess nokkuð sé að gert.” BJORGUNARSVEITIN STAKKUR KEFLAVÍK TORFÆRUAKSTURSKEPPNI VERÐUR HALDIN VIÐ HAGAFELL, GRINDAVIK 4. SUNNUDAGINN 11. SEPT. KL. 14 ÞÁTTTÖKUTILKYNNINGAR í SÍMA 92-1102 Björgunarsveitin Stakkur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.