Tíminn - 16.02.1969, Side 1
39. tbl. — Sunnudagur 16. febr. 1969. — 53. árg,
Arnarhóll var þakinn skólafólki um hádegisbilið í gær, en þar bar það fram kröfur sínar um úrbætur í skólamálum. Fundurinn fór vel fram, var æskufólki til mikils sóma
og sýndi að skólafólk stendur samhuga um kröfur sínar og taka verður tillit til þeirra. (Tímamynd—Gunnar)
;a;
Skólaæska landsíns stendur
sameinuð um réttlætismál sín
EKH-Reykjavík, laugardag.
•k Nemendur menntaskólanna í
Reykjavík, Kennaraskóla íslands
og Háskóla íslands, efndu til glæsi
legs útifundar á Arnarhóli í há-
deginu í fögru veðri. Fundurinn
var haldinn til þess að leggja
áherzlu á kröfur nemenda um
tafarlausar úrbætur á því ástandi
sem nú ríkir í skólamálum. Sýndu
nemendur samstöðu sína og vilja
til breytinga með því að fjöl-
menna á fundinn.
jc 85% nemenda úr Hamrahlíð
og 500—600 manna hópur úr
Kennaraskóla íslands, lögðu af
stað frá skólum sínum kl. 11,30
í morgun áleiðis á útifundinn.
Hóparnir mættist á Miklatúni, en
þaðan var gengið með íslenzka
fánann í fylkingarbrjósti vestur
Miklubraut, Hringbraut 1 og inn
Laufásveg. Á mótum Laufáss og
Skothúsvegar sameinuðust háskóla
stúdentar göngunni og voru þeir
um 200 talsins. Þá var gengið að
MR þar sem stór hópur bættist
við. Þegar fáninn hafði verið bor-
inn efst upp á Arnarhólinn náði
átt-tíföld röðin um Lækjartorg
eftir Lækjargötu allt að gamla
Menntaskólanum.
jc Þorlákur M. Helgason, inspect-
or scholae MR setti fundinn en
ræðumenn voru þeir Stefán Unn-
steinsson, MH, Bergsveinn Auð-
unnsson, KÍ, Jakob Smári, MR og
Höskuldur Þráinsson form. Stúd-
entaráðs. Kröfurnar sem allir
ræðumenn settu á oddinn og eru
sameiginlegar kröfur námsmanna
úr öllum skólunum, voru þessar:
1) Bætt verði úr brýnni húsnæðis
þörf skólanna. 2) Endurskoðun og
samræming fari fram á fræðslu-
kerfinu. 3) Lýðræði ríki innan
skólanna. — Mikil áherzla var
lögð á það á fundinum að skóla-
æska landsins ætti að standa sam-
einuð um réttindamálin, enda
væru þau svo samtvinnuð, að
leysa yi-ði vandamál allra mennt
unarstiga sameiginlega. Fundurinn
stóð f hálfan klukkutíma og sleit
Ólafur Guðmundsson, form. Stúd-
entafélags Háskólans honum með
nokkrum hvatningarorðum.
jc Kröfuganga skólanema var með
afbrigðum vel skipulögð og höfðu
lögreglumenn orð á því að sam-
starf þeirra við forystumenn göng
unnar hefði verið til fyrirmynd-
lar. Svo mikil var skipulagningin
að á Arnarhóli voru tiltækar sér-
stakar sveitir úr skólunum, sem
áttu að stilla til friðar, ef þurfa
þætti.
I Ráðherrarnir mæta
' á ráðstefnu.
Á mánudags'kvöld _ kl. 20.30
gangast nemendur K.Í., H.M. og
M.R. fyrir almennum fundi um
húsnæðis- og menntamál mennta-
skólastigsins að Hótei Sögu. Til
fundarins hafa nemiendur boðið
fjártnálaráðherra, mienntamáliaráð
herra, fjárveitingarnefnd og báð-
um mennitamálanefndum Alþingis,
skólastjórum og rektorum mennta
skólanna, H.Í.. og K.Í., auk ann-
arra framámanna í mennta- og
fjármálucn þjóðarinnar.
Menntaskólinn á Laugarvatni og
Menntaskólinn á Akureyri hafa
lýst yfir fullum stuðningi við ráð-
stefnu þessa. Ráðstefnan er öðr-
um þræði undirbúningur undir
annað landsþing meuntaskóla-
nema, sem haldið verður í marz.
Starfsnefndir landsþingsins eru
þegar teknar til starfa og vinna
að tveimur málum — húsnæðis-
málutn og fjármálum skólanna. í
þessu sambandi má geta þess að
komið hefur til tals að stofnað
verði landssamband menntaskóla-
stigsins, þ. e. þeirra stofnana
sem únskrifa stúdenta,
Meginkröfurnar þrjár.
Blaðamenn voru í miorgun boð-
aðir á fund nokkurra fuiltrúa
nemenda úr menntaskólunum,
Kennaraskólanum og Háskólanum
oig rœðumönnum dagsins.
Á fundinum var Iögð megin-
áherzla á aö samræmd stefna
þyrfti að ríkja í menntamálum
þjóðarinnar og menntunarstigin
yrðu að vinna saman að framtíð-
arverkefnum. Einnig var lögð á-
herria á að höfuðverkefni náms-
manna nú væri að vekja ráða-
Framhald á bls. 14,
OLLUM SAGT UPP NEMA
BÆJARSTJÓRA OG LÆKNI
IH-Seyðisfirði, laugardag.
Atvinnuleysi er nú orðið all-
mikið á Seyðisfirði, og eru þar
um 100 manns á atvinnuleysis-
skrá. Þá hafa verið greiddar út
atvinnuleysisbætur að upphæð
um 800 þúsund krónur frá því
um áramót. Reikna má með, að
hinum atvinnulausu eigi eftir
að fjölga nokkuð, þar sem sam-
þykkt var á bæjarráðsfundi, að
segja upp öllum starfsmönnum
bæjarins, að bæjarstjóra og
lækni undanskildum.
Bæjarráð hélt fund 10. febr.
síðastliðinm, og var þar borin
fram tillaga um að segja upp
öllu starfsliði bæjarins, og var
hún samþykkt. Mun hér vera
um að ræða milli 20 og 30
manns. í þessum hópi er t. d.
allt starfsfólk sjúkrahússins, þó
að lækni undanskildum, starfs
fólk á bæjarskrifstofunni, hafn
arvörður, skipaafgreiðslumaður,
bæjárverkstjóri svo einhverjir
séu nefndir.
Á bæjarráðsfundinum var
bæjarstjóranum falið að til-
kynna fólkinu um þessa sam-
þykkt bæjarráðsins. Þegar þess
ar uppsagnir taka gildi verða at
vinnulausir orðnir hátt á annað
hundrað, ef ekki hefur þá batn
að atvinnuástandið í heild, frá
því sem er í dag.
Flest sjómannafélögin á
Austfjörðum í verkfalli
EJ-Reykjavík, laugardag.
ÖIJ stærstu félög sjómanna á AustfjörSum eru nú komin
í verkfallj en þar er deilan milli Alþýðusambands Austfjarða
og útgerðarmanna óleyst. Hafa félögin verið að fara í verk-
fall undanfarna daga. Nær deilan fyrir austan til háseta,
matsveina og þeirra yfirmanna, sem ekki eru í sérsamtök-
um eins og t. d. Vélstjórafélagi íslands.
Fyrstu félögin fyrir austan munu
hafa farið í verkfall strax um mán
aðamótin, en önaur félög hafa verið
að fara í verkfall frá þeim tíma.
Þannig hófst t. d. verkfallið á Seyð
isfirði á mánudaginn.
Blaðið hafði í dag samband við
Örn Scheving, formann Verkalýðsfé
lags Norðfirðinga, og sagði hann
að deilan fyrir austan hefði staðið
síðan snemma í ja-núar. Þá hefði
verið haldinn einn fundur, en út
vegsmenn síðan vísað málinu fyr-
ir sína hönd til Landssambands
ísl. útvegsmanna. Hefði málið ver
ið „fryst“ af þeirra hálfu á meðan
viðræðurnar fóru fram hér í
Reykjavík í deilu sjómanna, og út
gerðarmanna annars staðar á land
inu.
Alþýðusamband Austfjarða hef-
Framhald á bls. 14.