Tíminn - 16.02.1969, Qupperneq 13
SUNNUDAGUR 16. febrúar 1969.
TIMINN
13
Alfril ÞarsteÍR&sm
KSÍ verður að hafa stjórnina
Eins otg kunnugit er, stofnaði
stjórn Knattspyrnusambands
ísiands til keppni á milli ís-
lands- og bikarmeistara, en
þessi keppni á að fara fram
árlega og veita viðkomandi
liðum aafingauppbót með tilliti
til þess, að bæði taka þátt í
Evrópubikarkeppni.
Gert er ráð fyrir því, að
viðkomandi félög kotni sér sam
an um leikdaga og sjái um
framkvæmd keppninnar, enda
eiga þau sjálf að njóta alls
hagnaðar.
En þetta fyrirkomulag virð-
ist ekki vera nógu hagstætt.
Núverandi fslands- og bikar-
meistarar eru KR og Vest-
mannaeyingar. Hafa þessi félög
enn ekki getað komið sér sam
an um leikdaga. Hafði einn af
forustumönnum Vestmannaey-
inga samband við TÍMANN út
af þessu og kvað almenna
gremju ríkja í Vestmannaeyj-
um út af því, hversu erfitt sé
að fá KR-inga til að leika. CTm
þessa helgi hefði t.d. verið upn
lagt að láta fyrsta leikinn fara
fram, en KR-ingar hefðu þá
heldur kosið að leika æfinga-
leik við Víking. Hver er ástæð
an? spurði hann.
Sá, sem þessar línur skvifar,
getur ekki gefið svör við því,
en sjálfsagt geta KR-ingar gef-
ið skýringu. Hitt er Ijóst, að
stjórn KSÍ verður að taka mál-
ið til endurskoðunar — og sýnt
er, að KSÍ verður að hafa
stjórnina á þessu máli og á-
kveða leikdaga.
Fjáröflunarleik fyrlr
UL-Iiðið
Öllum landsleikjum í hand-
knattleik er lokið í bili, en
eftir rúman mánuð munu ung
lingalandsliðin taka þátt í Norð
urlandamótunum. Vegna sívax-
andi dýrtíðar var talið á mörk-
unum að hægt væri að senda
unglingaliðin út til keppni að
þessu sinni, en ferðakostnaður
hefur hækkað verulega, eins
og kunnugt er. Unglingarnir
verða sjálfir að afla fjár til að
standa straum af ferðakostnaði
og gera það með ýmsum hætti,
t.d. með því að selja happ-
drættismiða.
í þessu sambandi dettur mér
í hug, hvort ekki megi létta
undir með unglingunum með
því að efna til fjáröflunarleiks.
Hvernig væri t.d. að láta lands
liðið fi’á 1959 leika við lands-
liðið 1969? Margir snjallir leik
menn voru í landsliðinu 1959
og margir þeirra eru í góðri
æfingu í dag. Má nefna Einar
Sigurðsson, FH, Gunnlaug
Hjálmarsson, Fram (þá í ÍR),
Karl Jóhannsson, KR, Guðjón
Jónsson, Fram, Ragnar Jónsson
FH og Matthías Ásgeirsson,
ÍBA (þá í ÍR). Þeir Guðjón
Ólafsson, KR, Hjalti Einarsson,
FH og Kristófer Magnússon,
FH ,voru þá aðalmarkverðir
okkar og enn í dag er Hjalti
aðalmarkvörður íslenzka lands
liðsins. Væri ekki óeðlilegt að
hann yrði látinn leika með lið-
inu frá 1959.
Auk þessara leikmanna, sem
taldir hafa verið upp, voru
þessir Ieikmenn í landsliði
1959 eða viðloðandi liðið: Hörð
ur Felixson, KR, Karl Bene-
diktsson, Fram, Pétur Sigurðs-
son, ÍR, Hermann Samúelsson,
ÍR, Pétur Antonsson, FH og
Þórir Þorsteinsson, KR.
Hér með er skorað á stjórn
HSÍ að taka þessa uppástungu
til’ athugunar, því að leikur á
milli landsliðanna 1959 og 1969
yrði áreiðanlega vel sóttur —
FÍDÓ AKRANESl
\
I -• . ' .
HEFST Á MÁNUDAG
FIDO
AKRANESI
fyrirliði.
og unglingunum yrði gert létt-
ara fyrir vegna keppnisferðar
þeirra til Svíþjóðar og Dan-
merkur.
Auglýsingaspjöld í Laugardals-
höllinni.
Innan fárra daga er danska
handknattleiksliðið MK 31
væntanlegt til íslands á vegum
Vals. Þótt MK 31 hafi ekki
gengið vel í dönsku keppninni
í ár, eru margir snjallir leik-
menn í liðinu, þ.á.m. Max Niel
sen, einn reyndasti landsliðs-
maður Dana.
Valsmenn hófu undirbúning
vegna kornu hinna dönsku hand
knattleiksmanna fyrir löngu.
Má í því sambandi geta þess,
að þeir hafa í hyggju að
skreyta Laugardalshöllina með
auglýsingaspjöldum frá ýmsum
fyi'irtækjum í borginni. Með
því er fai’ið inn á nýja fjáröfl-
unarleið hér á landi, en víða
erlendis — og raunar á öllum
stórvöllum í knattspyrnu og
handknattleik — tíðast það,
að auglýsingaspjöld frá fyrir-
tækjum séu sett upp.
íþróttaforustunni hér á landi
hefur margoft verið bent á að
fara inn á þessa braut, en
málið strandað á því, að stjórn
endur íþróttavalla hafa neitað
að gefa leyfi sitt. En þe.gar
Valsmenn fóru þess á leit við
þann apila, sem stjórnar rekstri
Laugardalshallarinnar, að fá
að setja upp auglýsingaspjöld
í sambandi við heimsóknina,
veitti hann fúslega leyfi sitt.
KOLBEINN PÁLSSON, KR
— einn bezti leikmaður KR
Rök hans voru þessi: „Þið haf-
ið húsið á leigu og ykkur er
frjálst að setja upp öll þau
tæki, sem þið teljið nauðsyn-
leg, svo framarlega, sem þau
verða tekin niður aftur að
heimsókninni lokinni.“
Þetta sjónarmið er rétt.
íþróttafélög og samtök þeirra
greiða stórar fjárfúlgur í leigu
á íþróttamannvii'kjum eins og
Laugardalshöllinni og Laugar-
dalsvellinum. Og þess vegna
er ekki nema eðlilegt, að þau
fái að gera sínar ráðstafanir,
rétt eins og fjölskyldu, sem
tekur íbúð á leigu, er sjálf-
sagt að hafa búslóð sína í íbúð
inni á meðan hún er leigð.
Sá, sem þessar línur skrifar,
getur ekki séð neitt því til
fyrirstöðu, að knattspyrnumenn
fái að setja upp auglýsinga-
spjöld á Laugardalsvellinum á
næsta keppnistímabili.
KR og ÍR mætast í kvöld.
Aðal íþróttaviðburður helg-
innar verður leikur KR og ÍR
í íslandsmótinu í körfuknatt-
leik, en þessi félög mætast í
fyrri leik sínum í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi í kvöld. KR
og ÍR eru einu félögin, sem
ekki hafa tapað leik í íslands-
mótinu til þessa. KR er núver
andi íslandsmeistari, en það er
hald margra, að ÍR muni stöðva
sigurgöngu KR-inga í ár.
Leikurinn í kvöld verður án
efa spennandi, en keppnin hefst
kl. 20,00.
— alf.
KARLMANNASKÓR
40% - 50% - 60% - afsláttur frá gamla verðinu