Tíminn - 16.02.1969, Page 14
14
TIMINN
SUNNUDAGUR 16. febrfiar 1969.
Áskorun unga fólksins
6 alþingi og ríkisstjórn
Þ gu búa við skort
V u V ið viijum löggjöf m aðstoð ið fútœku þjóðirnar
Herferð gegn hungri Æskulýðssamband íslands
Rafgeymaþjónusta
Rafgeymasala
Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla.
Notum eingöngu og seljum kemisk hreinsað raf-
geymavatn. — Næg bílastæði. —, Fljót og örugg
þjónusta.
Tækniver, afgreiðsla
Dugguvogur 21 — sími 33 1 55
ÁRNESINGAR! ÁRNESINGAR!
AÐALFUNDUR
KLÚBBSINS
ÖRUGGUR AKSTUR
í Árnessýslu
verður haldinn að HÓTEL SELFOSS þriðjudaginn
18. febrúar n.k. kl. 21.00.
D A G S K R Á :
1. Ávarp: Formaður klúbbsins, Stefán Jasonar-
son í Vorsabæ.
2. Afhending 5 og 10 ára viðurkenningar- og verð-
launamerkja Samvinnutrygginga 1968 fyrir
öruggan akstur.
3. Kaffi í boði klúbbsins.
4. Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
klúbbsins.
5. Ástandið í umferðarmálunum. — Umræður.
Á fundinum tala m. a. Balvin Þ. Kristjánsson og
Kári Jónsson blaðamaður, formaður Klúbbsins
ÖRUGGUR AKSTUR í Reykjavík.
Allir þeir bifreiðaeigendur í Árnessýslu, sem eiga
eða telja sig eiga rétt á viðurkenningar- eða verð-
launamerkjum Samvinnutrygginga að þessu sinni,
eru hér með sérstaklega boðaðir á fundinn.
BÍLAR
Framhald af bls. 16.
bíla, sem þegar hafa verið
fluttir til landsins, en eru
óviðráðanlegir vegna verð-
hækkana. Bílar geta ekki stað
ið lengi ónotaðir án þess að
láta á sjá. Og enginn fer að
aka í mosavöxnum dollaragrín
um, eftir tvö eða þrjú ár eða
svo. Líklegt er að bílaverk-
smiðjurnar sjálfar eigi eitthvað
af þessum bílum, og þá kemur
tapið niður á þeim. Eigi um-
boðin bílana, tapa þau, en
fyrirsjáanlegt er að ríkið fær
ekki sínar átta hundrtlð milljón
ir, sem það hefur til þessa
fengið af bílaverzluninni.
Auðvitað eru þessir bílaflot
ár á geymslusvæðum skipafé-
laganna aðeins eitt af ýmsum
talandi táknum þeirra tíma,
sem nú ganga yfir landið. Fjöl
margir höfðu af litlum efnum
reynt að gera bílinn að heim-
ilistæki, eins og hann er orðinn
í Vestur-Evrópu og Bandaríkj-
unum. Sá draumur stóð ekki
lengi. Bílar eru aftur orðnir
að lúxustæki, sem enginn telur
sig hafa efni á að kaupa. í
þessari grein hefur okkur tek-
izt að hverfa nokkra áratugi
aftur í tímann.
Skorað er á klúbbfélaga að mæta
áhugafólk velkomið!
annars allt
Stjórn
Klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR
í Árnessýslu.
FLEST SJÓMANNAFÉLÖG
Framhald af bls. 1.
ur um langan tíma haft sér samn-
inga fyrir sjómenr. á Austurlandi,
að sögn Arnar Scheving í dag.
Örn sagði, að Austfirðir hefðu
þá sérstöðu í samningamálunum,
að þar væri aðeins um útilegubáta
að ræða, og nú væri helzta krafa
sjómanna, að fá sérstaka greiðslu
fyrir aðgerð um borð á útilegum.
— Verðhlutfall á milli aðgerðs
og óaðgerðs fisks er mjög rangt að
okkar dómi, þannig að við teljum
ófært fyrir sjómenn að stunda
þetta nema þeir fái sérstakt fyrir
sína aukavinnu við að gera að
fiskinum. Þess eru jafnvel dæmi,
að með því að gera að fiski'num
hafi 9jómenn lagt á sig mikla auka
vinnu og rýra jafnframt aflaverð
mætið! Þetta er ófært, enda er
það þetta atriði, sem aðallega
stendur á, sagði Örn Scheving.
SKÓLAÆSKAN
Framhald af bls. 1.
mcnn til framkvæmda í skólamál-
um.
Ólafur Guðmundsso'n, formaður
Stúdentafélags H.Í., gerði stutta
grein fyrir kröfum þeim, sem
bornar voru fram á Arnarhóli í
dag.
Sagði hann að neyðarástand
ríkti í húsnæðismálum mennta-
skólanna og Háskó'lans, en vel
væri búið að gagnfræðaskólastig-
inu að þessu leyti í borginni.
Nauðsynlegt væri að mcnntaskól-
arnir og Háskólinn ynnu saman
að hagsmunamálutn, því að 80%
menntaskólanema settast í Há-
skóla íslands. Fyrirsjáanlegt væri
að á næstu tveim til þremur ár-
um tvöfaldaðist námsmanna-
fjöldi : Háskóla íslands, þannig
að þar vrðu við nám 2400—2500
J manns, þó ekki kæmi til heim-
j flutnings námsmanna erlendis.
Yrði ekkert gert í byggingarmál-
um Háskólans væri algjört öng-
þveiti framundan, sem lyHi með
því að iol-.a þyrfti deildum skól-
ans.
Ólafur sagði það kröfu nem-
enda að endurskoðun og samræm
ing færi fram á námskerfinu. Það
væri t. d. staðreynd að stúdentar
útskrifuðust hér einu til tveimur
árum seinna en i flestum vest-
rænum ríkjum og stæðu í sumum
greinum verr að vigi að loknu
prófi en erl. stúd. t. d. i efna- og
eðlisfræði
Þá sagði tiann mikia þörf á því
að fræðslukerfið vrði mótað í
hreyfaniegt form — gert dyna-
miskt — baun5? að bað brevttist;
eftir kröfum tímans og um stöð-
uga þróun þess geti verið að ræða.
Þá væri það krafa nemenda að
skólayfirivöld tækju tillit til óska
nemenda og skólarnir yrðu sfcofn
anir þar sem nemendur og kerrn
arar ynnu saman og hefðu jöfn á-
hrif á gang mála. Komið yrði á
því, seni nemendur nefna náms
lýðræði.
— Happdrætti á ekki að standa
undir háskólamenntun. —
Höskuldur Þráinsson, form. sfcúd
entaráðs Háskólans, sagði það
vera óhæfu að happdrættissjónar
mið ættu að ráða háskólamenntuh
landsmanna og eitthivert happ-
drætti ætti að standa undir bygg
ingarþörfum Háskólans.
Nauðsynlegt væri að móta heild
arstefnu í byggingarmálum H.Í.,
en hún hefði aldrei verið til.
Þess mætti og geta að Háskólinn
væri svo illa búinn tækjum til
kennslu að hann stæði að baki
litlum barnasfcóla norður í Mý-
vatnssveit, þar sem hann þefckti
til. Einu kennslutækin sem til væru
í Háskólanum hefðu verfcfræðinem
ar keypt sjálfir fyrir fé sem
þeir öfluðu með samsfcotum með-
al útskrifaðra verkfræðinga. Það
væri krafa háskólastúdenta að
bætt yrði úr þessu, en einnig væru
uppi kröfur um aufcin áhrif á
skólastjórnina og aukin og hag-
stæðari námslán.
MH tvísetinn á næsta ári.
Stefán Unnsteinsson úr MH,
sagði, að á síðustu árum hefðu
farið fram margar merkilegar
skólatilraunir í Menntaskólanum
við Hamrahlíð, en nú væru horfur
á því að tvísetja þyrfti skólann
næsta skóalár. Það var tekið fram
í upphafi að ein forsendan fyrir
tilraunaskóla væri að hann yrði
ávallt einsetinn, en nú ætti að
svipta þessum grundvelli undan
skólanum.
Stefán kvað nauð&ynlegt að
skólarnir endurmætu hlutverk sitt
og stefndu að því að útskrifa fé-
lagsverur, og allt nám ætti að
gera að samstarfi kennara og nem
enda 'á sem mestum jafnréttis-
grundvelli. Hann sagði ennfrem-
ur að verði ekki að gert í skóla-
málum af há'lfu ráðamanna þjóð
félagsins breyttust orð skólanema
í athafnir.
Skilningsleysi ráðamanna stendur
í vegi.
Jalcob Smári úr MR sagði að
algjört neyðarástand ríkti í hús-
næðismálum skólans og höfuð-
vandinn væri sú spurning, hvað
hægt væri að gera við nemenda-
fjölgunina á næstu árum. Hann
kvað nauðsyn á því að endurmeta
gildi námsgreina, og skera úr um
hverjar væru kennsluhæfar, þann
ig að námsgreinar loddu ekki við
skóla af gömluim vana. Jakob
sagði greinilegt að skilningsleysi
ráðamanna hefði staðið í vegi fyr
ir eðlilegri stækkun menntaskól-
anna. Þannig hefði legið fjuir sam
þykkt í 20 ár frá 1942 til 1962
um að hefja framkvæmdir við
nýjan menntaskóila en efcki hefði
verið hafizt handa, að mestu
vegna andstöðu rektora MR.
Jakob kvað brýna nauðsyn bera
á að hefja þegar byggingu þriðja
— Kennt í geymslum og á
loftum —
Bergsvcinn Auðunsson úr Kenn
araskólanum sagði að húsnæðis-
skortur skólans væri algjörlega ó-
viðunandi, því að í sfcólahúsnæði,
sem upphaflega hefði átt að rúma
150 manns hírðust nú 826 nem-
endur, sem kennt væri í hverju
skoti, í geymslum og á loftum.
Skolahúsnæðið hefði einnig verið
alltof dýrt í byggingu miðað við
rými og af þrengslunum leiddi
að kennslutæki uppá hundruðir
þúsunda lægju ónotuð. Berg-
sveinn sagði það kröfu kennara-
skólanema að bætti yxði úr hús-
næðisþörfinni.
LAUS STAÐA
l '
Staða aðalvarðstjóra í allmennri deild rannsókn-
arlögreglunnar í Reykjavík er laus til umsóknar.
Umsóknir sendist sakadómi Reykjavíkur að Borg-
artúni 7 fyrir 20. febrúar næstkomandi.
Yfirsakadómari.
ÁTTHAGAFÉLAG
INGJALDSSANDS
heldur árshátíð sína í Tjarnarbúð, laugardaginn
8. marz kl. 19. Aðgöngumiðar eru seldir í skó-
vinnustofu Páls Jörundssonar, að Miklubraut 60,
sími 24610 (heimasími) dagana 3., 4., og 5. marz
kl. 4—6. Verð kr. 400.00.
Skemmtinefndin.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast um sölu á 3000—15000 m3 af sandi
í malbik til gatnagerðar, hér í borg.
Útboðslýsing er afhent í skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 28.
febrúar n.k. kl. 11.00 f. h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18 800