Vísir - 13.10.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 13.10.1977, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 13. október 1977. VISIR ( í Reykjavík J Saknarðu útvarps og sjónvarps i verkfallinu? Sólmundur BJörgvinsson, húsvörður: Nei, alls ekki. Þó hvorutveggja vanti hefur þaö engin áhrif á mig. Yfirleitt hef ég litið af útvarpi og sjónvarpi að segja, svo ég er ekki i nokkrum vandræðum með að eyða timan- um. Óiafur Guðmundsson, 11 ára: Sjónvarpsins já, og þaö mikiö. Ég hlusta ekkert á útvarpið, en fyrst sjónvarpið er ekki, þá leik ég mér bara á kvöldin. Guðrún Ásgeirsdóttir, afgreiðslu- maður: Nei, sérstaklega ekki sjónvarpsins. En útvarpsins sakna ég I hádeginu, i fréttatim- anum. Anna Pálsdóttir, afgreiöslumaö- ur: Nei, þaðgeri ég ekki. Ég horfi ekki mikið á sjónvarpið, enda finnst mér dagskráin fremur lé- leg. Ctvarpið er oft ágætt, en ég hef nóg annaö að gera. Marfs J. Sigurðardóttir, 12 ára: Já, ég sakna soldið sjónvarpsins. Annars er ég bara úti núna á • kvöldin, og það finnst mér eigin- lega skemmtilegra en að horfa á sjónvarpið. „VERKFALLSBROTIN FLEST VEGNA ÞESS AÐ FÓLK VEIT EKKI HVAR ÞAÐ STENDUR" Brennandi starfsgieði er frem- ur fátltt fyrirbæri hérlendis —þvi miður. Starfsgleðin er þó það fyrsta sem maður verður var við þegar litið er við á skrifstofum BSRB á annarri hæö i Hekluhús- inu i Reykjavik. Þar eru simtólin rétt I allar áttir, mikið þambað af kaffi, menn koma og fara og ræða málin af djúpri alvöru eða tómu gríni. Þegar Visismenn bar að garöi voru nokkrir verkfallsverðir að koma úr leiðangri i Háskólann og Tækniskólann, og þar haföi ein- hver kennsla farið fram um morguninn. Henni var hætt án þess að til nokkurra erfiðleika kæmi. Stéttarvitund fólksins mikil Skömmu siðar kom til tals að fólk væri við vinnu i Grænmetis- verslun rikisins, sem er sjálfs- eignastofnun. Málin voru fyrst rædd á skrifstofunum en siðan ákveðið að senda mann d staðinn og ræða við forráðamenn þar. Vísismenn skruppu á eftir og fylgdust með viðræðum Agústs Guðmundssonar frá BSRB viö verkstjóra og trúnaðarmann starfsfólks i grænmetissölunni. „Þetta er eitt af þeim fyrir- tækjum”, skýrði Agúst fyrir blm.” sem vafi leikur á hvar standi i þessu máli. Mikill hluti starfsfólksins er i Dagsbrún, og hvorki það né sá hluti sem ekki er i Dagsbrún höfðu beinan atkvæö- isrétt i atkvæðagreiöslu um samningana. En eins og þú sérð Frá samningaviðræðum I Grænmetisverslun rlkisins. HRUNADANS STJÓRNSÝSLUNNAR Ofani 130 milljaröa fjárlög kemur verkfall opinberra starfsmanna, sem á endanum á eftir að breyta niðurstöðutölu fjárlaga um umtalsverða fjár- hæð. Ofani Kröfluvirkjun upp á rúman tug milljarða kemur tenging Norðurlands við Sig- ölduvirkjun seint á þessu ári og leysir allan rafmagnsvanda ibúanna næstu árin. Ofani snarvitlausa verðbólgu hækka fjárlög um fimmtiu og fjögur prósent á milli ára. Þetta eru aðeins þrjú dæmi um stjórnunarlega erfiðleika, sem lenda að siðustu á herðum skattborgarans og neytandans. Aður hefur þess verið getið að gengi dollarans er milli sjö og átta hundruð krónur á mikils- verðum vöruflokkum. Nú er upplýst að 6200 milljónir fara i niðurgreiöslur á landbúnaðar- vörum. Spurningin er þá þessi hvort landsmenn eigi að horfa upp á það aðgeröarlausir að þróunin verði hin sama næstu tiu árin. Þá má búast við — að sex árum liðnum, — að eintak af dagblaði verði komið hátt i fimm hundruð krónur. Þeirspekingareruenn til sem hamra á þvi að verðbólgan fari voðalega með sparif járeig- endur, þótt hneykslið sé svo risavaxið að sparifjáreigendur séu fyrir löngu dottnir úr um- ræðunni. Hafi þeir ekki bjargað málum sinum með þvi að kaupa rikisskuldabréf, getur enginn mannlegur máttur bjargað fjár- munum þeirra úr þvi sem komið er, og þess vegna er alveg óþarfi fyrir Pétur og Pál aö vera að belgja sig út yfir réttindum sparifjáreigenda. Þeir eru orön- ir fólk, sem tilheyrir nitjándu öldinni. Refsivextir Seðlabankans og dráttarvextir innheimtustofn- ana nema nií þrjátiu og sex pró- sentum. Bankar hafa þó ekki heimild til að taka meira en átján eða nitján prósent vexti, og eru hvergi ofsælir af, einkum ef þeir lenda I löngum og miklum yfirdrætti hjá Seðla- bankanum. Til skamms tima voru jafnvei lán á ferðinni handa forréttindahópum með ellefu prósent vöxtum, svo til- teknir bankar gátu lent i þvi að borga tuttugu og fimm prósent vexti til Seðlabankans af þvi fé sem þeir lánuðu með ellefu pró- sentum. Nú er á það aö lfta aö átján prósent vextir, og jafnvel ellefu prósent vextir, eru langt fyrir utan venjulegar reglur í pen- ingaviðskiptum. Við ekkert er saman að jafna i þeim efnum hjá okkur. Það er heldur ekki við neitt saman að jafna hvað snertir þau atriði, sem getið er hér að framan. Við erum hrein- lega komin út af landabréfinu, og efnahagsmálin orðin I þeim ólestri að þess finnast engin for- dæmi, ekki einu sinni á ítaliu upp úr siðustu heimsstyrjöld. Meinsemdin liggur fyrst og fremst i þvi, að rikisstjórnir á tslandi og þingmenn þjóðarinn- ar vilja stjórna upp á vin- sældir. Allt skal helst gert með samþykki allra og fyrir alla. Þetta hefur m.a. leitt það af sér að i rauninni stjórna allir flokkar eins, Alþýöubandalagiö ekki undan- skilið. I vinsældakapp- hlaupinu verður þó einstaka rikisstjórnum það á, að missa gjörsamlega tökin á efnahags- málunum, eins og dæmin sýna frá tveimur vinstri stjórnum. Sú stjórn, sem tók við völdum 1974 hefur sýnilega ekkert ráðið við verðbólguarfinn. Þess vegna eru f járlög nú 54% hærri en árið áður. Þess vegna eru engar horfur á vinnufriði stundinni lcngur, þótt samið sé við einn arm launþega I dag. Hinn kem- ur með samjöfnuöarkröfur á niorgun.Og arfurinn nær lika til þess, að nú er tugmilljarða virkjun verkefnalaus, bæði af þvi vantar gufu og af þvi önnur virkjun, byggö á sama tima, fullnægir eftirspurninni. Orku- áreksturinn veröur siðan greiddur af skattborgurunum, eins og allt hitt, en vegna verð- bólgunnar vinnur þessi sami skattborgari varla fyrir mat sinum og öðrum daglegum út- gjöldum. Til viðbótar þessum hrikalegu útgjöldum er svo ver- ið að semja um Hrauneyjarfoss- virkjun, þar sem Rangvellingar virðast ætla að krefjast tvö- faldra ráðherralauna handa hverjum verkamanni. Svarthöfði

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.