Vísir - 13.10.1977, Side 4
4
Fimmtudagur 13. október 1977. VISIR
Umsjón: óli Tynes
EÞIOPIA:
FASTAHERINN
KVADDUR FRA
VÍGSTÖDVUNUM
lil að lœra meðferð ó nýjum hergögnum frá Sovét
Sveitir úr fastaher
Eþiópiu hafa nú verið
dregnar til baka frá vig-
stöðvunum og sveitir al-
þýðuhersins svonefnda
sendar fram i staðinn.
Þetta er gert til að þjálfa
fastaherinn i notkun
nýrra skriðdreka, fall-
byssna, sprengjuvarpa,
eldflauga og annarra
vopna sem streyma nú
hraðar en nokkru sinni
frá Sovétrikjunum.
Orslitaátökin i striðinu við
Sómaliu standa nú yfir og enn
sem komið er virðast Sómalir
hafa betur. Orrustan á þó sjálf-
sagt eftir að standa i nokkra daga
i viðbót og það er eftir að sjá
hvort eþfópfska hernum tekst að
notfæra sér öll vopnin sem þeir fá
frá Rússum.
Það eina sem Eþiópfumenn
hafa framyfir eru yfirburðir i
lofti. Flestum öðrum herjum
mundi þykja það allnokkuð og
jafnvel duga til sigurs en flugher
Eþiópi'u hefur ekki tekist að not-
færa sér það sem skyldi.
Mengistu ofursti, stjórnandi
Eþiópiu fór á dögunum i heim
sókn til borgarinnar Harar, til að
reyna að hressa upp á baráttu-
andann hjá hermönnum sinum.
Harðir bardagar geisuðu þá i
grennd við virkisborgina.
Ofurstinn talaði einkum við
menn úr fastahernum þvi þá var
búið að senda alþýðuherinn til
vfgstöðvanna i staðinn.
Sérstakar áhyggjur hafa menn
af framgöngu þriðja herfylkisins
sem flúði skipulagslaust frá rat-
sjár- og skriðdrekamiðstöðinni
Jijiga sem þó hefði verið einkar
auðvelt að verja.
Þriðja herfylkiö gegnir lykil-
hlutverki i' bardögunum sem
háðir verða næstu daga. Það er að
segja það á að gegna lykilhlut-
verki en framgangan undanfarn-
ar vikur lofar ekki góðu.
Dóttir Allendes
svipti sig Iffí
Beatriz Allende, dóttir
fyrrum forseta Chile,
framdi sjálfsmorð á
heimili sínu á Kúbu í gær,
að sögn kúbanska utan-
ríkisráðuneytisins. Hún
hafði búið þar i landi
ásamt kúbönskum eigin-
manni sínum, síðan hún
flúði eftir byltinguna
1973.
Beatriz og faðir hennar,
Salvador Allende voru að sögn
ákaflega samrýmd og hún var
oft mjög þunglynd og döpur
eftir dauða hans, en forsétinn
var myrtur i byltingu hægri
manna innan hersins.
Hún sagði frá þvi eftir að hún
kom frá Chile að hún hefði bar-
ist við hlið föður sins i forseta-
höllinni fram á siðustu stundu.
Þá hefði hann skipað henni að
fara burt þvi hann óttaðist mjög
um lif hennar og barnsins sem
hún gekk með þá.
Lítil breyting ó
vopnasölu
Bandaríkjanna
OUUFELAGI SKIPAÐ AD
ENDURGREIDA 85
MILUONIR DOLLARA
GERÐU FJOGUR
AÐFLUG AÐ
GEIMSTÖÐINNI
Bandaríska orkumála-
ráðuneytið hefur fyrir-
skipað Getty olíufélaginu
að endurgreiða ríkisstjórn-
inni áttatíu og fimm millj-
ónir dollara vegna of hárr-
ar álagningar í sambandi
við erlend skipti á oliu-
tegundum.
Ráðuneytiö segir að oliufélagið
hafi skipt á ódýrri hráoliu sem
framleidd var heimafyrir, og
dýrri erlendri oliu sem fór i tanka
útibús þess i Japan. Félagið hafi
svo á ólöglegan hátt undirmetið
þá hráoliu sem það átti aðgang
að i Bandarikjunum.
Oliufélagið heldur þvi fram að
þetta hafi ekki verið vöruskipti
heldur kaup og sala i tveimur teg-
undum oliu. Það getur leitað til
rikisréttar með mál sitt.
Þetta er i fyrsta skipti sem oliu-
félagi er skipað að endurgreiða fé
vegna brota á verðlagsreglum
sem snerta oliu.
Þegar geimförunum i
Soyus-25 tókst ekki i
fyrstu tilraun að tengja
far sitt við Salyut geim-
stöðina, gerðu þeir þrjú
aðflug i viðbót, i örvænt-
ingarfulli tilraun til að
bjarga þessari mikil-
vægu áætlun.
Þegar það dugði ekki til var
þeim skipað að snúa þegar i stað
aftur til jarðar, sem varð til þess
að menn óttuðust alvarlega bilun
i geimfari þeirra. Þeir lentu þo,
sem betur fer, heilu og höldnu.
Ekki hefur verið 'gefin nein
skýring á þvi hvað fór úrskeiðis,
en þetta er ekki i fyrsta skipti sem
Soyusfari hefur mistekist teng-
ing.
Vonbrigðin eru þó sérstaklega
sár yfir að svona skyldi fara i
þetta skipti. Auk visindatilrauna
sem átti að gera var með þessari
ferð verið að halda uppá tuttugu
ára afmæli Spútniks, fyrsta
gervihnattarins, og sextíu ára
byltingarafmælið.
A sama tima og geimfararnir
voru á leiðinni frá lendingarstað
sinum til Kalingrad, sem er
stjórnstöð rússneskra geimferða,
var hátiðafundur i Moskvu þar’
sem Spútniks var minnst.
Ýmsir forystumenn héldu þar
ræður um geimferðasigra Sovét-
rikjanna og var klukkutima dag-
skrá útvarpað og sjónvarpað
beint. Ekkert var minnst á Soyus-
25.
Lítil breyting hefur orðið
á vopnasölu Bandaríkj-
anna til annarra landa
þrátt fyrir þá yfirlýsingu
Carters forseta að nýjar og
strangari reglur skuli nú
gilda um slíka verslun. Síð-
an Carter lýsti þessu yfir
fyrir fjórum mánuðum
hefur þingið fengið til-
kynningar um fjörutíu og
fimm „sölur" að verðmæti
4,1 milljarð dollara.
Þetta meðal annars kemur
fram i skýrslu sem samin var að
tilhlutan Huberts Humphrey, öld-
ungadeildarþingmanns. Hann
ætlar að taka stefnu forsetans i
vopnasölumálum til umræðu á
næsta ári.
I yfirlýsingu sinni sagði Carter
að vopnasala yrði „undantekn-
ingaratriði, i tilfellum þar sem
augljóst sé að hún þjónaði
öryggishagsmunum Bandarikj-
anna”.
„Þrátt fyrir þetta”, segir i
skýrslu Humphreys, „heldur
vopnasala áfram að vera megin-
þáttur i rekstri bandariskrar
utanrikisstefnu. I staðinn fyrir að
vera undantekning er vopnasala
nær fastur liður.
Loftbelgurinn endaði i sjónum
Nýjasta tilraunin
til að komast á loft-
belg yfir Norður-At-
lantshafið endaði i
sjónum, úti af Nova
Scotia i gær. Lend-
ingin tókst ágætlega
og mennirnir tveir
biðu þess i bátlaga
loftbelgskörfunni, að
kanadiska land-
helgisgæslan kæmi
að sækja þá.