Vísir - 13.10.1977, Síða 5

Vísir - 13.10.1977, Síða 5
AnnaOhvort heimsfilfuf.laugar eöa þessar litlu „Cruise” flaugar, koma I framtíöarvopnabúr Breta. Bretar verða að ákveða um framhald kjarnorku- varna sinna innan 2 ára Bretland verður að ákveða innan tveggja ára á hverju kjarn- orkuvarnir landsins eiga að byggja i fram- tiðinni, segir i nýlega framlagðri skýrslu Konunglegu Alþjóða- málstofnunarinnar, þar i landi. Stofnunin segir að það taki þrettán ár að hanna nýtt vopnakerfi i stað- inn fyrir Polaris kaf- bátana f jóra sem Bret- land á og þvi verði að taka ákvörðun fyrir ár- ið 1980. Ian Smart, framkvæmda- stjóri stofnunarinnar, segir að hóflegt sé að ætla að Polaris kafbátarnir verði úreltir sem varnarkerfi árið 1993. Þá þurfti nýtt vopnakerfi að vera tilbúið til að taka við af þeim. Smart telur að Bretland eigi um tvo kosti að velja. Annars- vegar að smiða að mínnstakosti fimm nýja kafbáta, vopnaða sextán heimsálfuflaugum hver, eða þá sautján kafbáta sem hver sé vopnaður tuttugu og fjórum hinna nýju „Cruise” flauga. 1 skýrslunni er komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði neinn stórfelldur sparnaður af þvi að kaupa nýju flaugarnar af Bandarikjunum, né heldur sé það vist að Bandarikjastjórn fallist á slika verslun. Otilokað- ur er sá möguleiki að hafa sam- vinnu við Frakka, við hönnun nýrra vopnakerfa. Þá er ekki margt annað eftir en að Bretland sjái sjálft um hönnun og framleiðslu. Frá tæknilegu sjónarmiði er ekkert þvi til fyrirstöðu, en hitt er ann- að mál hvort efnahagur lands- ins gæti staðið undir þvi. „Trident” í Bandarikjunum Polaris flaugar þær sem Bret- ar eiga nú eru framleiddar i Bandarikjunum, en kjarn- oddarnir hinsvegar i Bretlandi. Bandarikin ætla að taka sinar siðustu Polaris flaugar úr um- ferð á árunum 1984-85 og ólik- legt er að framleiðslu þeirra verði haldið áfram eftir það. I skýrslunni er talið að heims- álfuflaugarnar hafi enn yfir- burði yfir „Cruise” flaugarnar, en á þvi getur auðvitað orðið breyting á næstu áratugum, þegar þær siðarnefndu eru orðnar fullkomnari og meiri reynsla fengin með þær. Bandarikin eru þegar búin að taka flestar sinar Polaris eld- flaugar úr umferð. Kjarnorku- kafbátar þeirra eru nú vopnaðir Poseidon flaugunum sem eru bæði langdrægari og eru búnar fleiri kjarnaoddum. Bandarikin eru löngu byrjuð að hugsa fyrir endurnýjun á Poseidon flotanum og nú er ver- ið að hanna alveg nýja tegund kafbáts „Trident”, sem verður með enn ógnarlegri flaugar og stærri, hraðskreiðari og hljóö- látari en nokkur kafbátur sem nú er til. Fjöldi i stað stærðar Bretar verða hinsvegar að fara aðrar leiðir, þvi þeir munu seint hafa efni á að koma sér upp Trident flota. Cruise-flaugarnar yrðu ódýr- asta lausnin fyrir Breta og það er enginn vafi á að á næstu ár- um verða þær enn skæðari vopn en þær eru i dag. Enn sem kom- ið er hafa þeir litlar sem engar tilraunir gert með þessi nýju vopn en það tæki þá ekki ýkja mörg ár að komast vel á veg. Cruiseflaugarnarhafa einnig þann kost að þeim er hægt að skjóta frá kafbátum f kafi, frá flugvélum og frá skotpöllum i landi. Þær eru margfalt ódýrari en stóru heimsálfuflaugarnar og Bretar gætu þvi komið sér upp þreföldu varnarkerfi. Að visu eru kjarnaoddarnir sem þær geta flutt margfalt minni en stóru flauganna, en meiri fjöldi þeirra og ótrúleg nákvæmni vegur þar nokkuð á móti. Stóru flaugarnar verða ef- laust talin meira „sannfær- andi” varnarvopn næstu ára- tugina. En það sem Bretar þurfa helst að taka tillit til við vopnagerð, er efnahagur lands- ins og geta þess til að fjármagna nýsmiði vopna. Og þar hafa Cruise flugarnar yfirburði. Fékk dóttirína til að hœtta eftir níu daga hungurverkfall Eiginkona Rúss- neska flóttamannsins Valentins Agapov sem nú er i Sviþjóð hefur fengið þrettán ára gamla dóttir þeirra hjóna til að hætta i hungurverkfalli sem hefur staðið i niu daga. Sjálf ætlar eiginkonan að halda hungurverkfallinu áfram og einnig móðir Agapovs. Fjöl- skyldan er að mótmæla þvi að sovésk yfirvöld hafa synjað þeim um leyfi til að flytjast úr landi og til heimilisföðurins. Agapov sem er sjómaður, notaði tækifærið þegar skip hans lá i höfn i Sviþjóð, árið 1974 að biðjast hælis þar sem póli- tiskur flóttamaður. Æ siðan hefur fjölskylda hans verið að reyna að fá að fara úr landi en árangurslaust. Siðan hungurverkfallið hófst fyrir niu dögum hafa konurnar þrjár ekkert látið innfyrir sinar varir nema vatn. Astæðan til þess að dóttirin er nú hætt er sú að embættismönn lögðu mjög hart að móðurinni að fá hana til að hætta og fara aftur i skólann. óttaðist frú Agapov að ef hún hlýddi ekki, yrði dóttirin tekin frá henni. Hún hefur leitað hjálpar bæði hjá Kurt Valdheim, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna og hjá fulltrúum á „Detente” ráðstefnunni i Bel- grad, en án árangurs enn sem komið er. BIFVÉLAVIRKI ÓSKAST Upplýsingar gefnar á staðnum. Bifreiðastilling Smiðjuvegi 38 Kópavogi Eyfirðingar og Þingeyingar sameiginlegt SKEMMTIKVÖLD verður á Hótel Sögu (Súlnasal) föstudaginn 14. okt. og hefst það kl. 21. Þar verða skemmtiat- riði og dans. Aðgöngumiðar verða seldir i anddyri Hót- el Sögu frá kl. 19 sama dag og þá jafn- framt teknar borðapantanir. Stjórnir félaganna Styrktarsjóður Isleifs Jakobssonar Auglýst er hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja iðnaðar- menn til að fullnema sig erlendis i iðn sinni. Umsóknir, ásamt sveinsbréfi i löggiltri iðngrein og upplýsingum um fyrirhugað framhaldsnám, sendist til Iðnaðarmanna- félagsins i Reykjavik, Hallveigarstig 1, fyrir 28. október n.k. Sjóðstjórnin SÖLUBÖRN! Notið fríið til þess að selja VÍSI. Þið getið unnið ykkur inn vasapeninga og auk þess hafið þið möguleika á vinningi í söluhappdrœtti VÍSIS, úttekt úr TÓMSTUNDAHÚSINU fyrir kr. 150.000á mánuði AFGREIÐSLA Stakkholti 2-4 Simi 86611 VÍSIR

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.