Vísir - 13.10.1977, Side 9
9
vism Fimmtudagur
13. oktdber 1977.
Fyrirhuguð skipasmíðastöð Stjörnustáls í Elliðaárvogi:
uivu i yjuiu'
eyri á ári
aðeins með
o
viðgerðum
Kristmundur Sörlason
framkvæmdastjóri
Stjörnustáls.
Fimm fyrirtæki í blikk-
og málmiðnaði hafa tekið
upp nána samvinnu á
ýmsum sviðum, og
myndað fyrirtækið
Stjörnustál. Þau fyrir-
tæki sem að stofnun
Stjörnustáls stóðu, eru
Stálver HF, Þrymur HF,
Vogur HF, Blokk og Stál
HF og Málmtækni SF.
Ekki er um að ræða sam-
runa þessara fyrirtækja,
heldur munu þau hafa
samvinnu sín á milli með
einstök verkefni, og
vinna sameiginlega að
stórum verkefnum.
Geta keppt við erienda
aðila
Astæöa þess aö þessi fyrirtæki
fóru út i þetta samstarf er sú, aö
forráöamenn þeirra hvers um
sig töldu þau of lltil til aö taka aö
sér stór verkefni svo sem virkj
anir, og þvi hlytu slik verk
Hugmyndir Stjörnustálsmanna að skipasmíðastöð við Elliðaárvog.
jafnan að lenda i höndum er-
lendra verktakafyrirtækja. Nú
þegar hefur Stjörnustál tekið aö
sér eitt verkefni viö Kröflu-
virkjun, og ætlunin er að reyna
aö fylgja þvi eftir eftir þvi sem
unnt reynist.
Eitt þeirra verkefna sem eru
á döfinni hjá Stjörnustáli, er
bygging skipasmiöastöðvar viö
Elliðaárvog i Reykjavik, og aö
sögn framkvæmdast jóra
Stjörnustáls, Kristmunds Sörla-
sonar, yrði það væntanlega gert
i samvinnu viö Eimskip, S.l.S.
og Reykjavikurborg.
Seinagangur borgaryfir-
valda
Kristmundur segir, að árlega
farinálægt sex milljöröum út úr
landinu til viðgeröa á islenskum
skipum erlendis, en ef af bygg-
ingu skipasmiðastöövarinnar i
Elliðaárvogi yrði, væri unnt aö
annast allar þær viögerðir hér
innanlands. Væri að þvi augljós
gjaldeyrissparnaður, sagði
Kristmundur á fundi meö blaöa-
mönnum fyrir skömmu. Ef af
byggingu skipasmiðastöövar-
innar yröi er ætlúnin að þar fari
saman nýsmiði skipa og alhliöa
viðgeröaþjónusta.
Að sögn Kristmunds er mál
þetta á viðræðustigi, en hann
gagnrýndi harðlega seinagang
og litinn áhuga borgaryfirvalda
i málinu. Sagði Kristmundur að
borgaryfirvöld vildu fyrst
kanna hvað unnt væri að gera
fyrir gamla slippinn vestur i bæ
áður en ákvöröun yrði tekin um
Elliðavoginn, og kanna þyrfti
allar aðstæður gaumgæfilega
þar að sögn borgarverkfræð-
ings.
Sagði Kristmundur þaö vera
furðulegt að „borgaryfirvöld
vildu frekar vera i aumingja-
skap vestur i gamla slipp en
fara með skipasmiðar: inn i
Elliðavog” eins og hann komst
að orði.
Hafa misst af stórfram-
kvæmdum
Taldi Kristmundur það meöal
annars vera komið undir þeim
viðtökum sem Stjörnustál fengi,
hvort unnt væri að lifa i þessu
landi eða ekki. Stofnun fyrir-
tækisins hefði á sinum tima
verið neyðarúrræði, þeir hefðu
verið of litlir hver i sinu lagi.
Þeir hefðu verið búnir að sjá á
bak framkvæmdum við
Grundartanga og Sigöldu, og
vildu nú reyna að koma i veg
fyrir að erlendir aðilar tækju öll
slik verkefni frá Islendingum i
framtiðinni.
Samvinna fyrrgreindra fyrir-
tækja i Stjörnustáli hóst árið
1976, og framkvæmdastjóri
Stjörnustáls er sem fyrr segir
Kristmundur Sörlason. —AH
Beðið eftir skýrslu
borgarverkfrœðings
og hafnarstjóra
segir borgarstjóri
„Borgarverkfræðingur og
hafnarstjóri hafa að undanförnu
átt viðræður við þessa aðila, og
munu gefa skýrslu til borgar-
ráðs um þær viðræður”, sagöi
Birgir tsl. Gunnarsson, borgar-
stjóri er Visir bar undir hann
ummæli forsvarsmanna
Stjörnustáls.
Kvaðst borgarstjóri eiga von
á þvi aö unnt yrði að skila um-
ræddri skýrslu fljótlega, og þá
ætti málið að fara að skýrast.
Að öðru ieyti væri litið um
ináliö að segja á þessu stigi.
— AH
Birgir tsleifur Gunnarsson
borgarstjóri
fram i miðnefnd SHA fyrirspurn
um það, hvort miðnefndin ætlaöi
ekki aö beita sér fyrir aðgerðum
umræddan dag. Var máliö rætt á
næstu fundum og aö lokum tekin
ákvöröun um að láta til skarar
skriöa. Var það mál miðnefndar-
manna að timabært væri fyrir hin
nýstofnuðu samtök herstöðvaand-
stæðinga að fordæma innrás Sovét-
rikjanna i Tékkóslóvakiu og þann
yfirgang sem þau hafa sýnt Tékk-
um og Sldvökum upp frá þvi. Eöa
eins og segir i fréttatilkynningu
miðnefndar SHA af þessu tilefni:
„Tékkóslóvakia er enn hernumið
land og öll andstaða við innrásarlið
Sovétrikjanna og fulltrúa þeirra I
valdastöðum i Tékkóslóvakíu er
miskunarlaust brotin á bak aftur”.
Oánægja og ásakanir vegna þess að
Sovétrikin hafi hvergi verið nefnd i
grundvelli SHA eru þvi óréttmæt-
ar. Hins vegar gat miðnefnd SHA
ekki horft framhjá þeirri ábyrgð
sem aðildarriki Varsjárbandalags-
ins og bandalagið sjálft bera á inn-
rásinni i Tékkóslövakiu. Bæði kom
þar til bein þátttaka þeirra flestra i
innrásinni og svo að þau hafa ekki
(að undanskilinni Rúmenlu) gert
hernám Tékkóslóvakiu að
ágreiningsefni innan Varsjár-
bandalagsins, enda þótt full ástæða
væri til. Kjörorð aðgerðanna voru
þviákveðinisamræmiviðþetta, en
þau hljóðuöu svo: „Burt með heri
Varsjárbandalagsins úr Tékkósló-
.. y........... n
Ásmundur Asmunds-
son verkf ræðingur
segir, að óánægja og
ásakanir vegna þess
að Sovétríkin hafi ekki
verið nefnd á nafn i
Tékkóslóvakíumót-
mælum miðnefndar
herstöðvaandstæðinga
séu óréttmætar, það
hefði þrengt mótmæla-
grundvöllinn.
vakiu. Styðjum frelsisbaráttu
Tékka og Slóvaka. Burt með
hernaöarbandalögin, ísland úr
Natö,herinn burt.” Ennfremur var
ákveðið að hafa aðgerðimar ein-
faldar isniöum og leggja áherslu á
sérstöðu Sovétrikjanna. Mótmælin
skyldu fara fram við sendiráð
Sovétrikjanna á Islandi og sendi-
herra þeirra afhent sérstök yfirlýs-
ing frá SHA.
21. ágústnefndin
Réttum mánuði fyrir áformaðar
aðgeröir berst miönefnd SHA bréf
frá nýstofnaðri 21. ágústnefnd.
Kvaðst hún vita um áform mið-
nefndaren fór engu að siður fram á
stuðning við fyrirhugaðar aðgerðir
á vegum 21. ágústnefndarinnar á
eftirfarandi grundvelli :„Heri
Sovétrikjanna burt úr Tékkósló-
vakíu. Samstaða með baráttu al-
þýöunnar i Tékkóslóvakiu. Barátta
gegn allri heimsvaldastefnu. Gegn
báðum risaveldunum — Banda-
rikjunum og Sovétrikjunum. Mið-
nefnd SHA gat hins vegar' ekki
samþykkt þennan grundvöll þar
sem hann væri of þröngur, ófull-
nægjandi og gengi ekki nógu langt,
auk þess sem hann samræmdist
ekki stefnuskrá SHA. Miðnefndin
taldi það ekki i sinum verkahring
að skera úr um það hvort
drottnunarstefna Sovétrikjanna i
Tékkóslóvakiu geti fiokkast undir
heimsvaldastefnu, enda myndi
slikt einungis þrengja grundvöll-
inn. Miðnefndin taldi auk þess
nauösynlegt að kalla Varsjár-
bandalagið til ábyrgðar, annað
væri ófullnægjandi.
Miðnefndin hafði einnig haft af
þvi fregnir að mikil óánægja hefði
verið innan 21. ágústnefndarinnar
með starfsaðferðir, og að umtals-
verður hluti þess fólks sem kom á
stofnfund nefndarinnar hafi gengið
af fundi. Það kom og fram i þeim
viðræðum, sem fulltrúar mið-
nefndar áttu við 21. ágústnefndina
að krafan um samstarf viö SHA,
naut ekki almenns stuðnings innan
21. ágústnefndarinnar. Þegar ljóst
var aö SHA ætluðu að standa fyrir
aðgerðum umræddan dag kom
þegar fram vilji innan 21.
ágústnefndarinnar aö styðja þær
aðgerðir og varð það ofan á. Meðal
þeirra sem samþykktu að styðja
SHA varAri Trausti Guðmundsson
forfmaður Eik-ml, sem af ein-
hverjum óskiljanlegum ástæðum
hefur staðið manna fremst i þvi
að gagnrýna þessi málalok og er
mér einna helst að ætla að einhver
annarleg sjónarmið ráöi hér
ferðinni. Rangtúlkanir hans og
Kristins Einarssonar, sem skrifar i
nafni 21. ágústnefndarinnar vekja
furðu en eru mikið fagnaðarefni
herstöðvasinnum i landinu.
Ruglingur Kristins um málsatvik
og hæfileikar hans til þess að leyna
þvi sem kemur honum illa er meö
eindæmum. Til að mynda forðast
hann þab eins og heitann eldinn að
minnast á stuðningsyfirlýsingu 21.
ágústnefndarinnar við aögeröir
SHA. Hann segir að Sovétrikin hafi
hvergi veriö nefnd á nafn i grund-
velliSHA. Hann skrifarbréf I nafni
21. ágústnefndariimar án þess aö
bera það undir hana sem I þvf felst.
Að lokum
Það er nauðsynlegt baráttunni
gegn herstöðvunum og Nató aö
herstöðvaandstæðingar sem ekki
eru sammála stefnu samtakanna,
látikoma fram ágreining og kanni
réttmæti skoöanna sinna. Þar sem
nú hefur verið ákveöið aö halda
landsráðstefnu SHA dagana 15. og
16. október i félagsheimilinu Festi I
Grindavik, þá ætti þar að gefast
tækifæri til þess að jafna ágreining
með þvi aö álykta um stefnu sam-
takanna og leggja fram breytingar
við lög þeirra og stefnuskrá.
Nú hafa aðgerðir miönefndar
SHA oröið tilefni til ágreinings um
hugmyndafræðilegan grundvöll og
vil ég þvi láta I ljósi þá skoðun mina
aðallar tilraunirtil þessað þrengja
grundvöil SHA eru andstæðar þvi
meginsjónarmiði sem uppi var við
stofnun samtakanna um að öflug
samfylkingarsamtök gegn hernum
og Nató, væri það sem stefna bæri
að. Þó að sá grundvöliur sem við nú
búum viö sé eðlilega ekki það sem
hver og einn gæti helst hugsaö sér,
þá er það reynsla okkar sem störf-
um i SHA, aö hann sé nothæfur og
hlýtur þaö að teljast mikils viröi.