Vísir - 14.10.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 14.10.1977, Blaðsíða 1
SJÖ FARÞEGAR FÓRU UTAN MED 249 AIANNA ÞOTU Þota frá Flugleiðum fór um tiu- leytið i morgun áleiðis til Luxem- borgar með sjö farþega um borð, þar á meðal tslending sem þarf að gangast undir hjartauppskurð i London. Flugvélin tekur alls 249 farþega i sæti. Vélin kom i morgun frá Banda- rikjunum með 99 farþega, en hélt rúmri klukkustundu siðar til Luxemborgar. Með vélinni var Ingvar Ragnarsson, sem þarf að gangast undir áðurnefndan upp- skurð, Guðbjörg Árnadóttir, kona hans, og Guðrún Sigursteinsdótt- ir, hjúkrunarkona. Flugvél mun siðan flytja þau frá Luxemborg til London um leið og lent verður ytra. Auk þess voru með vélinni fjór- ir aörir farþegar, þrir Banda- rikjamenn og ein islensk kona, sem er búsett i Bandarikjunum. Þau þurftu öll að komast utan vegna veikinda, og var læknir á Keflavikurflugvelli fenginn til þess að skoða þau i flugstöðinni áður en þeim var hleypt inn i vél- ina. I Visi i gær var skýrt frá þvi, að beðið hefði veriö um undanþágu vegna Ingvars. Tengdasonur hans, Hörður Sigurjónsson, hótel- stjóri i Stykkishólmi, sagði i við- tali við Visi á Keflavikurflugvelli i morgun, að fyrst eftir að fréttin birtist i Visi hefði komist hreyfing á málin. —SG/ESJ. Enn enginn sáttafundur ,,Það hefur enginn sáttafundur verið boðaður, og við ekkert heyrt um að það standi fyrir dyrum”, sagði Kristján Thorlacius, for- maður BSRB, i viðtali i morgun. Sáttafundur var siðast haldinn á mánudaginn. ESJ. Á Xeflavíkurflugvelli í morgun Kona beið bana í bílslysi Banaslys varð á Reykja- nesbraut á móts við Hafnar- fjarðarkirkjugarð i gærdag. Attatiu og tveggja ára kona beið bana þegar hún varð þar fyrir bil. Konan var að fara yfir götuna þegar hún varð fyrir wagoneerbil sem kom akandi suður Reykja- nesbrautina. Talið er að konan hafi látist samstundis. Ekki er hægt að birta nafn hennar. —E A 99 komu frá Bandaríkjunum: Fengu að fara með farang- urinn í gegn Með Flugleiðaþotunni, sem kom frá Bandarikjunum i morgun, voru 99 farþegar, sem beðiö höfðu fars til tslands i nokkra daga ytra. Farþegarnir fengu eðlilega tollafgreiðslu og gátu þvi tekiö farangur sinn með Sér. Meðal þeirra, sem voru meö vélinni, var Hallgrimur Dal- berg, ráðuneytisstjóri. Farþegarnir létu vel af ferð- inni i viðtölum við blaðamenn Visis á Keflavikurflugvelli, i mogun.og höfðu ekki orðið fyrir alvarlegu tjóni vegna tafar- innar i Bandarikjunum. Hins vegar fannst þeim dálitið undarlegt að komast til landsins út á einn hjartasjúkling. SG/ESJ. Farþegarnir frá Bandarikjunum við komuna i morgun. Útifundur ó Lœkjartorgi ó laugardag ,,A útifundinum verður gerð grein fyrir sjónarmiðum Bandalags starfsmanna rik- is og bæja i kjaradeilunni”, sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, i morgun. Bandalagið hefur 'jobab til útifundar á Lækjartorgi kl. 13.30 á morgun, I; ugardag. ,,Það veröa for; stumenn BSRB og einstakra banda- lagsfélaga, sem munu gera grein fyrir stöðunni og af- stöðu samtakanna,” sagði Kristján. —ESJ. Innonlandsflugið í gœr: „Flogið eins og fyrir 30 órum" — sagði Sveinn Sœmundsson, blaðaf ulltrúi Flugleiða i morgun „Það var flogið í gær með gamla laginu, það er með þeim hætti, sem við- hafður var fyrir þremur áratugum eða svo", sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugleiða. í viðtali við Vísi í morgun um innanlandsflug félags- ins. „Það er eingöngu hægt aö fljúga sjónflug, og i gær var flogin ein ferð til ísafjarðar, Horna- fjarðar og Sauðárkróks, en tvær vélar fóru til Vestmannaeyja og Akureyrar. Flugvélinni til Egils- staða varð að snúa við. Fljúga varð upp á gamla móð- inn og fá upplýsingar um veður á sveitabæjum. Hvað Akureyrar- flugið snerti þá var bjart yfir heiðina til Sauðárkróks þegar vélarnar tvær fóru af stað, en þegar þær voru komnar norður var orðið skýjað svo að vélarnar urðu að fara gömlu leiöina út Skagafjörö, fyrir Siglunes og inn Eyjafjörð.” Sveinn sagði að mjög tvisýnt væri um flug i dag. —ESJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.