Vísir - 14.10.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR
östudagur 14. október 1977
aftiifl
SMAAUGLYSINGAHAPPDRÆTTI VISIS!
15. okt. verða dregin út ^ KENWOOD hljómflutningstœki
~ fró FÁLKANUM
(^xí^ Athugið! Eingöngu verður dregið úr númerum greiddra auglýsinga.
simi
86611
OpiO virka daga tii ki. 22.00 |
Laugardaga ki. 10-12.
Sunnudaga kl. 18-22
Kenna á ný
//Kennsla í öldungadeild
Menntaskólans í Hamra-
hlíð hefst strax í dag, og í
hinum skólunum á mánu-
daginn, eða eins fljótt og
hægt er", sagði Birgir
Thorlacius. ráðuneytis-
stjóri í menntamálaráðu-
neytinu, i samtali við Vísi í
morgun.
Sú ákvöröun hefur verið tekin i
menntamálaráðuneytinu að hefja
kennslu'áinýjan leik i Kennara-
háskólanum, menntaskólunum
og fjölbrautarskólunum.
„Það var stefna ráðuneytisins
þegar verkfallið hófst að leggja
niður kennslu i þessum skólum til
þess að foröast illindi. Nú er það
hinsvegar svo að fleiri hafa lykla
aö húsum þessara skóla en hús-
verðirnir og við teljum varla
stætt á þvi að loka og fella niöur
kennslu i þessum skólum, enda
eru allir kennarar þeirra i BHM,”
sagði Birgir. —GA
Vona að þettu
bindi enda
ó verkfallið"
segir Þórhallur Halldórsson
„Ég vona að þessi
samningur verði metinn
þannig af borgarstarfs-
mönnum, að endir geti
orðið bundinn á verkfall
þeirra," sagði Þórhallur
Halldórsson, formaður
Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar, í
samtali við Vísi í morgun.
Samninganefnd Starfs-
mannafélagsins og Launamála-
nefnd borgarinnar undirrituðu i
gær nýjan kjarasamning fyrir
borgarstarfsmenn. Samningur-
inn var siðan samþykktur i
stjórn og fulltrúaráði Starfs-
mannafélagsins meö 67 atkvæð-
um gegn 2. Jafnfram var sam
þykkt að allsherjaratkvæða-
greiðsla um samninginn færi
fram laugardaginn 15. október
kl. 14-21 og sunnudaginn 16.
október kl. 10-19.
Samningurinn verður kynntur
á kynningarfundum á vinnu-
stöðum i dag. Tveir fundanna
voru i morgun, en eftir hádegið
verða fundir i Hafnarhúsinu, kl.
13, Leikvellinum v/Tunguveg
kl. 14, Hótel Loftleiðum kl. 14,
Borgarsjúkrahúsinu kl. 16 og
Slökkvistöðinni kl. 17. Geta
félagsmenn komið á hvern þess-
ara funda sem þeir kjósa.
Stjórn og fulltrúaráð félagsins
telur samninginn þann hagstæð-
asta sem unnt sé að ná við nú-
verandi aðstæður — án langs
verkfalls. Hann er i nokkrum
atriðum frábrugðinn þeim
samningi sem félagsfundur
felldi.
t stað 3% hækkunar 1. des.
n.k. kemur 4% hækkun. Þá
hækka 5.-9. launaflokkur um
1500 kr. 1 des. n.k., en þessi
hækkun er nýtt atriði. Launa-
flokkshækkun sem miðast við
stöðuheiti i 3., 4. og 5. launa-
flokki kemur til ári fyrr en áður.
Og loks kemur ný persónuupp-
bót eftir 15 ára starf, og verður
75% af fullri uppbót og einnig er
ný 50% persónuuppbót eftir 12
ára starf. — SJ
nnn fíi i. I Löndun úr
DUIi 1 uKK 1 Snorra
■ Sturlusyni
i mrfnn hófst í
UIIUUII pagu| morgun
Undanþága hefur verið
veitf til að landa megi úr
einum togara Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur,
Snorra Sturlusyni, og
hófst löndun í morgun.
Undanþágan var veitt fyrir
afgreiöslumenn vörubila er aka
fiski frá skipshlið, og fyrir yfir-
verkstjóra i fiskiðjuveri. Vinna
var þvi komin i fullan gang við
fiskverkun hjá Bæjarútgerðinni
i morgun.
Næstu togarar BOR eiga að
koma inn til löndunar eftir
helgi, en enn ekki er vitað hvaða
undanþágubeiðnir vegna þeirra
munu fá.
Skuttogarinn Vigri kom inn til
löndunar i Reykjavik i gær, og
gekk i nokkru þrefi við að fá afla
togarans landað.
Fékkst ekki leyfi til að vigta
afla hans fyrr en farið var inn að
Kletti, en þar er vigt i eigu
einkaaðila. Var talsverður hluti
aflans vigtaður þar, en verkinu
varð þó ekki lokið, þar sem
vinna var stöðvuð áður en verk-
Löndun hófst úr skuttogaranum Snorra Sturiusyni í morgun, eftir aö
undanþága haföi veriö veitt. Næstu togarar BOR koma siöan inn til
löndunar eftir helgi. Ljósmynd: J.E.G.
inu lauk. Var þó lokið við að
landa úr togaranum, og sá hluti
aflans sem enn var i lestum
skipsins áætlaður.
Það voru verkfallsverðir frá
BSRB sem stöðvuöu vinnu við
vigtina á Kletti, þar sem þeir
töldu þar vera farið inn á sitt
verksvið. Afla togara er yfirleitt
aldrei landað þar, eða veginn,
heldur er það gert á vigtum
Bæjarútgerðarinnar. Sé hins
vegar farið annað til að vigta
aflann er þar gengið inn i störf
vigtarmanna BÚR.
—AH
SJÁLFYIRKA SÍMKERFIÐ Af > GEFA SIG:
Sambandslausl við landsbyggðina
Afleiðinga verkfalls
BSRB er nú farið að gæta
á simakerfi landsmanna.
Erfiðleikar við að ná
símasambandi milli
landshluta fara vaxandi
og í morgun var til dæmis
ógjörlegt að ná sambandi
frá Reykjavík út á land.
1 gær gátu Akureyringar ekki
náð sambandi við nein númer á
höfuðborgarsvæðinu sem
byrjuðu á lægri tölu en sex og
erfitt var að ná sambandi við
númer er byrjuðu á hærri tölu.
Truflanir voru einnig á innan-
bæjarkerfinu í Reykjavik, og
fólk fyrir austan fjall kvartaði
yfir einkennilegum hljóðum á
linunni og þar virtist slá saman
hinum ýmsu simalinum.
Ef svo fer fram sem horfir
getur þvi svo farið að sjálfvirka
simakerfið fari að mestu leyti
úr sambandi og þarf varla að
fjölyrða um þau óþægindi og
beinlinis hættur sem það getur
haft i för með sér. —-AH
Þrjátiu og tveir félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavikurborgar komu i gærkveldi i skrifstofu
félagsins til þess aö sækja þangaö umslög meö fréttabréfi og upplýsingum um nvgeröan samning, sem
þeir unnu svo aö fram á nótt aöbera út til þeirra 2000 starfsmanna borgarinnar sem eru f verkfalli.
Vfsismynd: JA.
GEIRFINNSMÁLIÐ:
Veigamikill vifnisburð-
ur dreginn til baka
Eina vitniö um för meintra
banainanna Geirfinns Einars-
sonar til Keflavikur hefur dreg-
iö fyrri framburð sinn tii baka.
Viö lokuð réttarhöld i sakadómi
i gær kvaöst Sigurður Óttar
Hreinsson ekki hafa ekið sendi-
ferðabil til Keflavikur umrætt
kvöld. Sú játning hafi veriö
fengin fram með hótunum og
fyrir áhrif frá þeim er yfir-
heyrðu hann.
Sigurður Óttar sagði lög-
fræöingi sinum frá þessum
ranga framburði á þriðjudaginn
og siðan hafa farið fram yfir-
heyrslur. Sækjandi i Geirfinns-
málinu, Bragi Steinarsson hefur
krafist þess að Sigurður verði
úrskurðaður I gæsluvarðhald og
verður ákvörðun tekin um það
nú fyrir hádegi.
Þegar Sigurður Óttar var
fyrst tekinn til yfirheyrslu á
siðasta ári vegna þessa máls
kvaðst hann hvergi nærri hafa
komið og aldrei ekið sendiferða-
bil suður i Dráttarbrautina i
Keflavik. Hann breytti siðan
framburði sinum og kvaðst hafa
farið ferðina. Hins vegar var
framburður hans þess efnis að
hapn hefði heyrt mannamál i
Dráttarbrautinni þegar hann
beið þar en Kristján Viðar kvað
Sigurð hafa sofið i bilnum þegar
hann kom að.
Sigurður Óttar var eina vitnið
um ferðina til Keflavikur, þar
sem hin f jögur af þeim sem eiga
að hafa farið ferðina eru öll
ákærð.
Sigurður Georgsson hdl. hefur
nú verið skipaður réttargæslu-
maður Sigurðar óttars, i stað
Róberts Árna Hreiðarssonar
sem gegnt hefur þvi starfi til
þessa. Hafa Róbert og sam-
starfsmaður hans Jón E.
Ragnarsson, lögfræðingur,
báðir verið yfirheyrðir vegna
þessa breytta framburöar
Sigurðar Óttars.
—SG