Vísir - 14.10.1977, Blaðsíða 10

Vísir - 14.10.1977, Blaðsíða 10
10 VÍSIR útgefandi: Reykjaprent hf. j Framkvæmdastjóri: Davið Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Ánders Hansen, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Oskar Hafsteinsson, Kjartan L. Pálsson, Magnús Olafsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Askriftargjald kr. 1500 á mánuði Auglýsingar: Siðumúla 8. Simar 82260, 86611. innanlands. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Verð i lausasölu kr. 80 eintakið Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611 7 linur Prentun: Biaðaprent hf. SPURNING UM MANNRÉTTINDI Umræðurnar i þinginu hafa farið skemmtilega af stað og með þó nokkrum þrótti. Athyglisvert er, að kjör- dæmaskipanin og kosningahættirnir hafa komist í brennipunkt þegar á fyrstu dögum þingsins, bæði með fróðlegum og málefnalegum umræðum utan dagskrár og ákveðnum tillöguflutningi nokkurra þingmanna. Forsætisráðherra hefur boðað að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir viðræðum milli stjórnmálaf lokkanna í því skyni að athuga, hvort samstaða geti orðið um breyting- ar á kosningalögum á þessu þingi. Þó að lagabreytingar varðandi kosningahætti séu ekki fullnægjandi án stjórn- arskrárbreytingar gætu þær eigi aðsíður haft mikla þýð- ingu varðandi jöfnun kosningaréttar. Þetta blað tekur mjög eindregið undir það sjónarmið, sem fram kom í ræðu Magnúsar Kjartanssonar á Alþingi sl. miðvikudag, að öll atkvæði, hvar sem þau væru greidd á landinu, ættu að vega jafn þungt. Hann benti réttilega á, að kosningarétturinn væri þáttur í almennum mann- réttindum, sem öllum ætti að koma að sama gagni. Vanda strjálbýlisinssagði Magnús Kjartansson réttilega að leysa ætti með öðrum hætti en að skerða mannréttindi fólksins i þéttbýlinu. Þetta er kjarni málsins. Og þegar á það er litið, að at- kvæði Vestf irðinga eru a.m.k. f jórfalt gildari en atkvæði Reyknesinga, má öllum vera Ijóst, að um er að ræða óþolandi ójöfnuð. Stjórnarskrárnefnd mun fyrirsjáan- lega ekki skila áliti í tæka tíð þannig að þingið geti af- greitt þetta mál á þeim grundvelli. Því er það rétt ábend- ing hjá Gylfa Þ. Gíslasyni, að sérstök nefnd þingflokk- anna þarf að fjalla um þetta afmarkaða svið. Ingólfur Jónsson benti i athyglisverðri ræðu í þinginu á ýmsar leiðir, sem færar eru með breytingum á kosn- ingalögum, án þess að hreyfa þyrfti við ákvæðum stjórn- arskrárinnar um kjördæmaskipan að svo stöddu. I fyrsta lagi kemur þar til álita að úthluta uppbótarþing- sætum aðeins eftir atkvæðamagni en ekki hlutfalli eins og nú er og heimila, að fleiri en eitt uppbótarsæti komið i hlut sama flokks í hverju kjördæmi. Þingmaðurinn sagði, að Hagstofan hefði reiknað út, að þessi breyting myndi flytja uppbótarþingmenn til Reykjavíkur og Reykjaness. Með þessu móti mætti því leiðrétta misvægi milli atkvæða í einstökum kjördæmum úr einum á móti f jórum í einn á móti tveimur. Þannig má augljóslega stíga veigamikið skref í átt til jafnari kosn- ingaréttar, þó að fullur jöfnuður næðist ekki fyrr en síð- ar með kjördæmabreytingu. Þá vakti Ingólfur Jónsson athygli á, að unnt væri að koma á persónukosningum með lagabreytingum einum saman. Einfaldasta leiðin væri sú að raða nöfnum fram- bjóðenda í staf rófsröð á kjörseðilinn en ekki númeraröð og láta kjósendum eftir að númera. Um þetta atriði eru þegar komnar fram tillögur bæði frá þingmönnum Alþýðubandalagsins og Jóni Skaftasyni. Hugsanlegt væri að fastákveða slíka reglu og eins mætti leggja það í sjálfsvald flokkanna hvern hátt þeir vilja hafa á. Loks vakti Ingólfur Jónsson athygli á þeim möguleika að skipta núverandi kjördæmum upp í sérstök kjörsvæði i því skyni að halda kostum einmenningskjördæma, þó að hlutfallskosning réði f jölda þingmanna. Allt eru þetta hugmyndir, sem vert er að brjóta til mergjar. Mestu máli skiptir, að á þessu þingi verði teknar ákvarðanir, er miða að jöfnun kosningaréttar. Það er spurning um mannréttindi og henni má ekki skjóta á frest, þó að ekki vinnist tími fyrir kosningar til allsherj- ar breytingar á kjördæmaskipan. Þær umræður, sem átt hafa sér stað nú í þingbyrjun lofa góðu og mega fyrir enga muni detta niður. Föstudagur 14. október 1977 iVISIR Kristinn Marteinsson — samband vibskiptaráöuneytisins viö umheiminn. Visismyndir JEG Maöur skyidi ætla aö verkfali BSRB kæmi sérlega illa niöur á stjórnarráöi landsins og ráöu- neytum. Þar hljóta eintómir rikisstarfsmenn aö vinna. Staö- reyndin er hinsvegar hiö gagn- stæöa. Starfsfólk ráöuneytanna ernefnilega iang flest f Bandalagi Háskólamanna, og þvi ekki i neinu verkfalli. Vfsismenn brugöu sér i nokkur ráöuneyti f gær, og virtu fyrir sér áhrif verkfallanna. Viö fyrstu sýn virtust þau mikil. Þaö fólks sem yf irleitt blasir viö þegar gengiö er innf opinberar stofnanir, sima- veröir, vélritunarfóik, og fólk sem vinnur viö afgreiöslu var allt á brott. Eftir var bara fólk sem er inná skrifstofunum. Viö nánari athugun kom svo i ljós aö verkfalliö hefur ekki nein afgerandi áhrif á starfsemi ráöu- neytanna. Ekki til aö byrja meö aö minnsta kosti. Tveir af átta I fjármálaráöuneytinu, sem staösett er i Arnarhvoli hittum við Gisla Blöndal, starfsmann Sendillinn okk- or samband við umheiminn Þá er talið fyrirsjáan- legt að benzínlítrinn hækki i 112 krónur áður en þessu ári lýkur. Sam- kvæmt vegaáætlun á síðastliðnu vori voru áætlaðar til vega árið 1978 einir sjö milljarðar króna. í fjárlögum fyrir árið hefur þessi upphæð verið hækkuð í 9.6 millj- arða, og er það allnokkuð framyfir fyrri áætlun jafnvel þótt verðhækkan- ir á tímabilinu séu teknar með í reikninginn. Féð fer í malarburð en ekki varanlega vegagerð í fljótu bragöi litur lit fyrir aö rikisstjórnin hafi i hyggju aö veita hinu mikla fé til vegamála i vaxandi mæli til geröar varan- legra vega. Hins vegar telja þeir sem til þekkja, aö um þessa niu milljarða fari eins og vegafé á undanförnum árum. Þvi veröi eytt i malarburð viösvegar um land, en til hliösjónar útdeiling- unni veröi höföi uppi pólitfsk sjónarmiö, sem endi meö tiu kiiómetrum þar og fimm kiló- metrum hér af malarvegi, sem gerir mestmegnis aö rjúka upp i nasirnar á vegfarendum. Jafn- framt mun veröa haft til hlið- sjónar sú bifreiöaeign i hverju plássi, sem hentar til vega- geröar. Litlar framfarir með fimmtíu vegamála- stjórum Verði þannig staöiö aö þess- um málum horfa bifreiðaeig- endur fram á óbreytt ástand á vegum landsins. Þaö er alltaf veriö aö hækka benzinveröið svo hægt sé aö halda áfram vega- gerð i landinu, en vegfarendur sjá þess litinn staö vegna þess að framkvæmdum er dreift um allt i samræmi viö óskir og sjónarmiö þeirra fimmtiu vega- málastjóra, sem sitja á Alþingi. 1 rauninni erum viö komin alltof langtaftur i tuttugustu öldina til aö sætta okkur viö sömu aöfarir viö vegagerö og tiökaöist á fyrstu tugum aldarinnar, aö þvi einu breyttu aö nú eru stórvirk- ar vinnuvélar notaðar viö að ausa mölinni i staö skóflunnar áöur. Færeyingar búnir að malbika Ég býst við aö Færeyingar hafi oröiö seinni til aö leggja bil- færa vegi en viö. Samt er nú komið nokkurt vegakerfi i Fær- eyjum, kannski einir fimm hundruð kilómetrar. Engum getum skal leitt aö fjárhag Fær- eyinga, bilaeign þeirra og bila- notkun. Aftur á móti er þaö staðreynd, aö þeir eru um þess- ar mundir aö ljúka malbikun á öllu vegakerfi sinu og þaö án mikillar umræöu um þaö hvort leggja heföi átt varanlega vegi um útnesin áöur en malbikaö var milli þéttbýlisstaöa. En þá er þess aö geta aö Færeyingar koma ýmsu I framkvæmd, sem okkur viröist ómögulegt aö sinna. Þingmenn heimta spotta og spotta Allt frá þvi aö vegagerö hófst I landinu hafa þingm. haft það fyrir venju aö heimta spotta og spotta, ýmist lagðan eöa lag- færöan I sinu kjördæmi. Þetta var eftir atvikum skynsamlegt þegar litlir vegir voru fyrir I landinu. Þó held ég aö mér sé óhætt aö fullyrða, aö bílvegur milli Akureyrar og Reykjavikur hafi strax veriö ofarlega á dag- skrá að slepptum vegi um Suöurland. Engum þótti heimskulegt aö leggja áherzlu á, aö gera bilfært milli Akureyrar og Reykjavik- ur, og áætlunarferðir milli þess- ara staöa voru meö þeim fyrstu sem upp voru teknar. Brúar- gerð á þessum timum var mikið nauösynjamál, vegna þess aö brúarlaust vatnsfall gat bók- staflega varðaö lif manna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.