Vísir - 17.11.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 17.11.1977, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 17. nóvember 1977 Spáin gildir fyrir föstudaginn 18. nóvember: Hrúturinn 21. mars—20. april Þú skalt ekki reyna að gera allt sjálf (ur) i dag, samvinna gengur mun betur. Skipuleggðu vel tima þinn fyrri part dagsins. Nautið 21. april-21. mai Sköpunargáfa þin er mikil i dag og þú munt geta skapaö frábær listaverk. Þú verður öðrum til hjálpar á óvenjulegan hátt. Tviburarnir 22. mai—21. júni Sjálfsagi þinn er ekki til fyrir- myndar i dag, og þú munt lenda i einhverjum vandamálum þess vegna. Komdu ekki nálægt fjár- hættuspili. Krabbinn 21. júní— 23. júli Vertu þolinmóð (ur) gagnvart fjölskyldu þinni um morguninn. Þú þarft að beita aga til að hlut- irnir gangi vel fyrir sig. Fram- kvæmdu hugsanir þinar. Ljónið 24. jiili—23. ágúst Gerðu einhverjar breytingar á högum þinum i dag, og það mun koma að góðum notum i fram- tiöinni. Gerðu tilraunir til sátta. Meyjan 24. ágúst- -23. sept. Það mun allt ganga á afturfót- unum hjá þér fyrri partinn, Reyndu aö fara mjög gætilega. Gerðu það sem þér dettur i hug seinni partinn. Vogin 24. sept. —23. okt. Þú skalt vera á varðbergi um morguninn. Þú verður fyrir alls konar hindrunum og þarft að glfma við margskonar vanda- mál. Drekinn 24. okt.—22. nóv. Einhver gömul vandamál koma á ný fram i dagsljósiö. Þú skalt reyna aö finna framtiðarlausn á þeim þvi annars er hætt við að þau skjóti upp kollinum viö og við. Bogmaðurinn 23. nóv.—21. des. Þú færð óvænt tækifæri upp i hendurnar, sem felur i sér ein- hverja samvinnu við vin þinn. Eyddu ekki tima þinum I ver- aldlega hluti. Steingeitin 22. des.—20. jan. Þér gefst illa að stóla á við- skiptafélaga þina. Forðastu aö lenda i einhverju klandri, sem kann að kosta stöðu þfna. Vatnsberinn 21.—19. febr. Þú mætir einhverri mótspyrnu fyrri part dagsins, sérstaklega ef þú leggur fram einhverjar nýjar hugmyndir. Vertu háttvis við ættingja þina. Fiskarnir 20. febr.—20. mars Frestaðu að taka meiriháttar ákvarðanir i dag. Þú skalt ekki byggja á þeim upplýsingum sem þú færö. Þú færð tækifæri til að fara i smSferðalag um kvöldið. skógir.n, sagði Bill Hall Tarsan— undarlega sögu um timbur sem hvarf og innfædda sem voru drepnir þegar þeir voru að flytja þag „Það er sjálfsagt bara slys’ sagði Tarsan, en Bill efaðistum það „Jæja hvað sem öðru liður þá vona ég að mennirnir séu á samamáliogþú”sagiBill „Viðerúm komnir’

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.