Vísir - 17.11.1977, Blaðsíða 13
12
Fimmtudagur 17. nóvember 1977
VÍSIR
YW 1300 71 verð kr. 400 þús
Saab 96, órg. 73 verö kr. 1300 þús. Skipti
Skodq 110 L 74 verð kr. 450 þús.
VW Microbus 71 verð kr. 950 þús.
Fiat 125F 74 verð kr. 850 þús. Skipti
Chrysler station '68, 9 manna 8 cyl
með öllu. verð kr. 950 þús. Skipti.
Cherolet Kingswood Estate 72
stórglæsilegur með öllu. Verð kr. 1850 þús.
Dodge Challanger 70,8 cyi 383 magnum,
með öllu. Verð kr. 1400 þús.
II
1
I
y
H Bílasalan Bílagarður
Borgartúni 21. Sími 29480.
■'Hótel Borgarnes-
Óskum eftir öllum bílum á skrá. Mikil eftir-
spurn eftir japönskum bílum og nýlegum
jeppum.
Opið frá 9-7 alla virka daga og 9-4 laugardaga.
Ráðstefnuhótel
Gisti- og matsölustaður
Sendum út heitan og
kaldan mat.
Ennfremur þorramat.
30% fjölskylduafsláttur
af herbergjum frá
1/12 77 - 1/5 78.
Ödýrt og gott hótel i
sögulegu héraði.
Pantanir teknar
i sima 93-7119-721£
c @%ótel (Sovgeimed
England sigraði
Ítalíu á Wembley
— Englendingar sigruðu aðeins 2:0 og vonin um að komast
til Argentínu er nú fjarlœgur draumur
italir töpuðu með tveim mörk-
um gegn engu fyrir Englandi i
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu á
Wembley leikvanginum i Lund-
únum I gærkvöldi, en samt sem
áður eru ítalir nærri öryggir um
sigur i riðlinum og sæti I úrslita-
keppninni i Argentinu á næsta ári.
Enska liðið hefur lokið leikjum
sinum i riðlinum og hefur það 10
stig og markatölunna 15:4.
.Italska liðið hefur 8 stig og sömu
markatölu og England, en á einn
leik eftir, gegn Luxemborg i Róm
— og nægir þvi að sigra i þeim
leik með eins marks mun til að
komast áfram á betra marka-
hlutfalii. Litlar sem engar líkur
eru á að Luxemborgarar geri
stóra hluti i þeim leik, þvi að þeir
hafa tapað öllum leikjum sinum
til þessa i riðlinum.
Með þrjá nýliða hóf enska liðið
mikla sókn þegar i byrjun leiksins
i gærkvöldi og eftir aðeins 11 min-
útur lá boltinn i italska markinu,
Þá sendi Trevor Brooking frá-
bæra sendingu fyrir markið þar
sem Kevin Keegan skaust fram
sem ör og skallaði glæsilega
framhjá Dino Zoff markverði.
V-ÞJOÐVERJAR UNNU
SVISS AUÐVELDLEGA
Heimsmeistarar V-Þjóðverja I
knattspyrnu áttu ekki I miklum
vandræðum með að bera sigur úr
býtum er liðið lék vináttulands-
leik gegn Sviss i Stuttgart i gær-
kvöldi. (Jrslitin urðu 4:1 fyrir
V-Þjóðverja, og sýna þær tölur að
heimsmeistararnir eru sterkir og
verða erfiðir í Argentinu á
næsta ári er þeir verja titil sinn.
Þjóðverjarnir áttu mun meira i
leiknum i gærkvöldi eins og
markatalan gefur til kynna, og á
löngum köflum var um stans-
lausa sókn af hálfu þeirra að
ræða.
En þó fengu þeir hjálp sviss-
neska varnarmannsins Andre
Mayer við að skora fyrsta mark
leiksins, en Mayer skallaði I sitt
eigið mark eftir aukaspyrnu
Þjóðverjanna á 11. minútu.
En strax þremur minútum sið-
ar skoraði Heinz Flohe 2. markið
og Klaus Fischer bætti þvi þriðja
við á 24. minútu.
En þá var komið að Mayer að
bæta fyrir sjálfsmark sitt, og
hann minnkaði muninn i 3:1 með
þrumuskoti úr vitateignum sem
skaust á milli margra leikmanna
og i bláhornið.
Lokaorðið i þessari viðureign
átti svo Klaus Fischer á 59. min-
útu er hann skoraði gullfallegt
mark með „hjólhestaspyrnu”
eftir hornspyrnu frá Flohe.
Það vakti mikla athygli að hið
fræga lið Bayern Munchen átti
engan mann i v-þýska liðinu að
þessu sinni, og mun það vera i
fyrsta skipti i 10 ár sem svo er. Og
það er raunar ekki svo langt siðan
v-þýska landsliðið var byggt
upp i kringum Bayern Munchen,
og leikmenn þess voru þá i meiri-
hluta i landsliðinu.
gk—•
Sigur hjá a-þýskum
A-Þjóðverjar sigruðu Tyrki
með tveimur mörkum gegn einu
i leik liðanna i forkeppni HM I
knattspyrnu sem fram fór I
Tyrklandi i gærkvöldi, en leikur
þessi var siðasti leikurinn i for-
keppninni I riðli Tyrkja, A-Þjóð-
verja, Austurrikismanna og
Möltubúa.
Úrslit þessa leiks skiptu raun-
ar engu máli þvi að Austurriki
hafði þegar tryggt sér réttinn til
að leika i Argentinu að ári með
þvi að sigra i riðlinum.
A-Þjóðverjarnir tóku forust-
una i leiknum i gær á 28. minútu
er Hartmut Schade skoraði
skallamarkeftir hornspyrnu, og
þannig var staðan i hálfleik.
1 siðari hálfleiknum jók Mart-
in Hoffmann muninn i 2:0 með
góðumarki, en 9 minútum fyrir
leikslok minnkaði Volkan mun-
inn i 2:1 og þar við sat.
Allan fyrri hálfleikinn var nær
látlaus sókn að italska markinu
og gerðu kantmennirnir Steve
Coppell og Peter Barnes mikinn
usla i vörn Italanna. En þrátt
fyrir nærri látlausa sókn tókst
enska liðinu ekki að skora fleiri
mörk i fyrri hálfleik.
1 siðari hálfleiknum jafnaðist
leikurinn nokkuð og þá fengu Ital-
irnir nokkur marktækifæri sem
þeim tókst ekki að nýta sér.
Undir lokin fór. enska liðið að
sækja meira, Dave Watson átti
hörkuskot á italska markið sem
Zoff tókst naumlega að slá yfir,
,áður en Trevor Brooking skoraði
siðara mark Englendinga þegar
10 minútur voru til leiksloka.
Upphafsmaðurinn að markinu
var Kevin Keegan sem átti
hreint frábæran leik og naut
knattmeðferð hans sin til fulln-
ustu. Hann kom itölsku vörninni i
opna skjöldu með nákvæmri
sendingu á Brooking sem var i
dauðafæri — og hann skoraði ör-
ugglega af stuttu færi. Augnabliki
eftir að Keegan hafði losað sig við
boltann var brotið gróflega á hon-
um og hann varð að yfirgefa völl-
inn nokkrum minútum siðar.
Stöðu hans tók Trevor Francis
og Stuart Person kom inná i siðari
hálfleiknum fyrir Boþ Latcford
sem átti heldur slakan dag i sin-
um fyrsta landsleik.
Staðan i riðlinum er nú þessi:
England 6 5 0 1 15:4 10
Italia 5 4 0 1 15:4 8
Finnland 6 2 0 4 11:16 4
Luxemborg 5 0 0 5 2:19 0
Siðasti leikurinn i riðlinum
verður 3. desember i Róm og þá
leika ítalia og Luxemborg.
—BB
Portúgalir og
Tékkar unnu
Tékkar unnu Walesmenn i for-
keppni HM i knattspyrnu I Prag i
gærkvöldi með einu marki gegn
engu, og var markið skorað á 11.
minútu af Nehoda. — (Jrslit þessa
leiks skiptu engu máli. Skotar
höfðu þegar sigrað I riðlinum.
Þá léku Portúgalir og Kýpurbú-
ar I Portúgal, og sigraði Portúgal
4:0. Sá sigur hafði einnig Iltið að
segja. Pólverjar höfðu þegar
sigrað i riðlinum.
—gk
Lucas CAV
Ljósastillum
aUa bíla
HLUSSK í
SKIPHOLTI 35 Verthn
REYKJAVlK sL'.Moio’
Rafmagnsviðgerðir
fyrir Lucas og CAV
BLOSSI £
SKIPHOLTI 35 v',llu" » la-so
reykjavik zt‘ £9
Stórsigur Svía gegn
slöku liði íslands!
— Svíar unnu 28:17 í landsleik þjóðanna í handknattleik
í Halmstad í gœrkvöldi
„Þetta var gott hjá okkur i 20
minútur,” sagði Birgir Björns-
son, formaður Landsliðsnefndar
HSÍ, er við ræddum við hann i
gærkvöldi, þá hafði islenska
landsliðið tapað fyrir þvi sænska i
landsleik i handknattleik 17:28, en
leikurinn fór fram i Halmstad.
Aðsögn Birgis lék islenska liðið
vel fyrstu 20 minútur leiksins, og
hélt þá I við það sænska. Sjá mátti
á töflunni tölur eins og 7:7 og 10:8,
en þá var allt búið hjá islensku
piltunum og Sviar skoruðu 7 sið-
ustu mörk hálfleiksins og leiddu
þvi i leikhléi 17:8.
islenska liðið náði sér nokkuð á
strik I siðari hálfleiknum, en liðið
Frakkarnir komust
í úrslitakeppnina
— Unnu Búlgaríu 3:1 og leika
Það var mikil gleði rikjandi I
Frakkalndi i gærkvöldi, eftir að
franska landsliðið i knattspyrnu
hafði sigrað lið Búlgariu með
þremur mörkum gegn einu i leik
liðanna i forkeppni HM, og þessi
sigur nægði Frakklandi til að
tryggja sér sæti i úrslitakeppn-
inni í Argentínu á næsta ári. Þetta
er I fyrsta skipti siðan 1966 að
Frakkar eiga lið i úrslitakeppni
HM i knattspyrnu.
Búlgörum nægði jafntefli i
leiknum i gær til þess að tryggja
sér farseðlana til Argentinu og
það var greinilegt að þeir voru
komnir til Parisar til þess að taka
annað stigið og komast þannig i
úrslitakeppnina. Þeir reyndu
mikið að tefja leikinn, og fór það
mjög I taugar fjölmargra áhorf-
enda.
En þeim tókst ekki það sem
þeir ætluðu sér. Frakkarnir börð-
ust frá fyrstu minútu sem einn
maður, staðráðnir i þvi að sigra,
þeir höfðu allt að vinna og gerðu
sér fullkomlega grein fyrir þvi.
Frakkarnir hófu þvi strax stór-
sókn, en þeir fóru illa með upp-
lögð tækifæri fyrstu 30 mínútur
leiksins. En sókn þeirra var það
þung að hún hlaut að enda með
marki, og það mark kom á 39.
í Argentínu á nœsta ári
minútu er Dominigue Rocheteau
skoraði af tveggja metra færi.
Og nú gerðu Búlgararnir sér
grein fyrir þvi að þeir þyrftu að
skora til að komast til Argentinu,
en það voru þó Frakkar sem
bættu öðru marki við. Það kom á
73. minútu leiksins og það var
fyrirliði þeirra Nhristo, sem skor-
aði glæsilegt mark. Hann lék á
tvo varnarmenn og skoraði siðan
með þrumuskoti af 25 metra færi.
Búlgararnir lögðu nú allt I söl-
urnar til að skora og drifnir
áfram af stórleik fyrirliðans Bon-
ev tókst þeim að minnka muninn i
1:2 er varamaðurinn Pzvetkov
skoraði skallamark af stuttu færi.
En þetta var raunar eina hættu-
lega tækifæri Búlgara, og á loka-
minútunni innsiglaði Dalger sem
hafði komið inn sem varamaður
3. mark Frakklands, og sigurinn
var i höfn og Argentinuferðin
tryggð.
En lokastaðan i riðlinum varð
þessi:
Frakkland 4 2 1 1 7:4 5
Búlgaria 4 1 2 1 5:6 4
írland 4 1 1 2 2:4 3
Frakkar leika þvi i úrslitum
heimsmeistarakeppninnar *
Argentinu á næsta ári. £**■•
náði þó aldrei að vinna upp neitt
af forskoti Svianna.
Astæðan fyrir þessum slaka
leik okkar manna var að sögn
Birgis fyrst og fremst sú að menn
voru spenntir og þreyttir, og það
kom fram i fjölmörgum sending-
um sem voru ónákvæmar og Svi-
arnir náðu þá boltanum. Eins
„héldu menn ekki haus” og voru
skjótandi i tima og ótíma.
Mörk Islands skoruðu þeir
ólafur Einarsson 5, Jón Karlsson
4(4), Þorbjörn Guðmundsson 3,
Þorbergur Aðalsteinsson 2, Arni
Indriðason, Þorbjörn Jensson og
Jón Pétur Jónsson eitt hver.
Liðin leika að nýju i kvöld.
gk-.
Tekst Fram
aðstöðvaÍR?
Tveir leikir verða á dagskrá i
Reykjavikurmótinu I handknatt-
leik i kvöld, og hefjast þeir i
Laugardalshöllinni kl. 20. Fyrri
leikurinn er á milli Vals og Leikn-
is, en kl. 21.15 leika svo ÍR og
Fram. Verður fróðlegt að fylgjast
með hvort ÍR-ingar halda áfram
sigurgöngu sinni I mótinu, eða
hvort Framarar sem hafa átt
misjafna leiki i mótinu til þessa
verða til þess að stöðva þá.
Körfuboíti
í kvöld
Einn leikur verður I 1. deild
islandsmótsins i körfuknattleik i
kvöld, og fer hann fram i íþrótta-
húsi Kennaraháskólans, á heima-
velli ÍS og hefst kl. 20.
Mótherjar ÍS i kvöld verða
Armenningar, og er liklegt að ÍS
mæti til ieiksins án Dirk Dunbar
og Kolbeins Kristinssonar,
tveggja aðalbakvarða liðsins. En
hvort það nægir Armanni til sig-
urs skal ósagt látið.
Ólafur Einarsson var markhæstur Islensku leikmannanna I leiknum gegn Svium i gærkvöldi, skoraði 5 mörk
Góður sigur hjá
N-írum í Belfast
— Unnu Belgíu 3:0 í leik liðanna
í forkeppni HM
N-írland sigraði Belgiu með
þremur mörkum gegn engu i leik
liðanna i Belfast I gærkvöldi, en
leikurinn var liður I forkeppni HM
I knattspyrnu, siðasti leikurinn i
riðlakeppninni. Þessi leikur skipti
raunar engu máli varðandi það
hvaða lið kemst I úrslitakeppn-
ina. Hollendingar hafa þegar
tryggt sér farseðilinn til Argen-
tinu, fengu 5 stigum meira en
næsta lið, en íslendingar ráku
lestina I riðlinum með 2 stig.
Belgarnir komu mjög á óvart i
N-lrlandi i gærkvöldi með slakri
frammistöðu sinni, og þeir áttu
raunar aldrei mjög hættuleg
marktækifæri i leiknum þrátt fyr-
ir nokkur upphlaup.
Fyrsta mark leiksins kom á 42.
minútu, og var það Armstrong
sem skoraði. i siðari hálfleik
héldu Irarnir uppi mikilli sókn og
á 58. minútu skoraði Chris
McGrath eftir að Pfaff mark-
vörður Belganna hafði misst bolt-
ann frá sér. Siðasta mark leiksins
kom svoá 70. minútu og var Arm-
strong þar að verki.
En lokastaðan I riðlinum varð
þessi:
Holland 6 5 10 11:3 11
Belgía 6 3 0 3 7:6 6
N-lrland 6 2 1 3 7:6 5
island 6 1 0 5 2:12 2
Holland leikur þvi i úrslita-
keppninni I Argentínu á næsta ári.
gk-.
Síðar barnaúlpur
Verð frá kr. 4.950
Síðar dömu-
og herraúlpur
Verð kr. 7.400
Mittisúlpur
Verð frá kr. 7.210
PÓSTSENDUM
Laugavegi116
Símar 1-43-90 2-66-90