Vísir - 17.11.1977, Qupperneq 24
r
VÍSIR
^ SANYO 20" litsjónvarpstœki frá sími 86611
r . Opiö virka daga til kl. 22.C
GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinningurinn í Sunnudaga kl. 18-22
smáauglýsingahappdrœtti Visis. DREGIÐ 21 NÓV.
LANDRIS HELDUR ÁFRAM í MÝVATNSSVEIT:
Boðar það gotf eða illt?
,,Menn eru ekki á einu
máli um það hvort það
boði gott eða illt að land-
risið f ari upp f yrir þá hæð
sem landið var i fyrir
gosið í desember 1975",
sagði Axel Björnsson
jarðeðlisf ræðingur í sam-
tali við Visi.
Enn er allt rólegt á Kröflu-
svæðinu. bar eru nú mjög fáir
skjálftar og smáir og landris
heldur áfram meö svipuðum
hraða og verið hefur. Landhæö-
in er nú orðin lik þvi og var fyrir
gosið 1975.
„Eftir því sem landið belgist
meira út uppfyrir sina jafnvæg-
ishæð, þvi meiri hætta er á
stærra gosi”, sagði Axel. „Hins
vegar er engin leið að sjá fyrir
hvað verður. Einn möguleikinn
er sá að umbrotin stöðvist, þar
sem þrýstingurinn á aðstreym-
isrás kvikunnar ofan frá eykst
eftir þvi sem land ris hærra.
bað er ekki gott að segja hvort
að þvi er komið núna, en um-
brotin virðast haga sér öðruvisi
núna en áður”.
Gott veður var i morgun i Mý-
vatnssveit,. en undanfarna daga
hefur verið þar skafrenningur
og hrið.
—SJ
Stukku út
úr bílnum
ú ferð
eftir mik-
inn elt-
Tilmœli dreifingardeildar
Vísis til áskrifenda
Hafið samband
ef þið fáið
ekki blaðið
Nokkur brögð hafa veriö aö þvi,
aö fólk, sem gerst hefur áskrif-
endur aö Visi um leiö og þaö hefur
sent gctraunaseðiiinn i áskrif-
endagetrauninni til blaösins hafi
verið oröiö óþolinmótt og kvartaö
yfir hve seint það hefur fariö að fá
blaðiö.
1 mörgum tilvikum hefur skýr-
ingin verið sú, að seölarnir hafa
verið lengur i pósti en fólk hefur
gert ráð fyrir, og nokkur dæmi
eru um að seðlarnir hafi enn ekki
borist Visi úr póstinum, þegar
þessir nýju áskrifendur hafa haft
samband við blaðið.
Einnig hafa komið i ljós aðrar
ástæður fyrir þvi, aö nýir áskrif-
endur hafa ekki komist jafn fljótt
inn i áskriftarkerfi blaðsins og á-
ætlað hafði verið. Visir biður vel-
virðingar á þessum töfum, en
hvetur jafnframt þá, sem gerst
hafa áskrifendur undanfariö,
annaö hvort simleiðis eöa i pósti
til að hafa samband viö biaöiö
þegar tveir til þrir dagar eru liðn-
ir frá þvi að þeir gerðust áskrif-
endur, — ef þeir hafa enn ekki
fengið blaðið, þannig að hægt sé
að gera viðeigandi ráöstafanir.
Gifurleg fjölgun áskrifenda olli
um tima nokkrum skipulags-
vandræöum varðandi dreifing-
una, en nú eiga þau vandamál að
vera úrsögunni. En umfram allt,
gamlir og nýir áskrifenduc hafið
samband ef þið fáið ekki blaðið.
Við sendum það strax heim til
ingarleik
Lögreglumenn i Hafnar-
firði lentu í miklum elting-
arleik við þrjá unga menn
á fólksbíl í gærkvöldi. Eig-
andi bílsins vissi ekki betur
en bíllinn væri á verkstæði
i Reykjavík á þessum
tíma.
Lögreglumennirnir urðu
varir við Ijósablikk á
Elliðavatnsvegi seint í
gærkvöldi og ætluðu að at-
huga hverju það sætti.
Mættu þeir þá Cortinu og
sýndist þeim nokkuð ungur
maður við stýrið. Eltu þeir
bílinn, en ökumaður gaf þá
í, og um tíma var ekið á yf-
ir hundrað km hraða.
Eltu lögreglumennirnir
bílinn út á Hafnarf jarðar-
veg en siðan var snarbeygt
inn Fíf uhvammsveg í
Kópavogi. Þar var hægt á
ferðinni, en þó Cortinan
væri enn á ferð stukku út
úr henni þrír menn, skildu
allar hurðir eftir opnar og
ók bíllinn áfram mann-
laus. Lögreglan náði að
stökkva inn í bílinn og
stöðva hann áður en hann
rann út af háum kanti.
Mennirnir þrír sluppu hins
vegar út í myrkrið. Mál
þetta er i rannsókn. —EA
Sjö sóttu um
hjjá útvarpínu
Sjö umsóknir bárust um stööu
fjármálastjór Ríkisútvarpsins.
Eftirtaldir sóttu um stööuna:
Einar Sverrisson, stjórnarráðs-
fulltrúi, Elias Gislason, við-
skiptafræðingur, Guðmundur
Björnsson, deildarstjóri, Gunn-
laugur M. Sigmundsson, stjórn-
arráðsfulltrúi, Hörður Vilhjálms-
son, viðskiptafræðingur, Kjartan
Trausti Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri og Ragnar Ólafsson,
deildarstjóri. — ÓT
Skíðamenn selja gamla dótið sitt!
„Markaðir af þessari tegund
eru alveg óþekktir hér á landi —
en aftur á móti eru þeir vel
þekktir erlendis og þá sérstak-
lega i Bandarikjunum”.
Þetta sagði Helgi Axelsson
varaformaður skiöadeildar 1R
er við spurðum hann um sér-
stakan vetrarvörumarkað sem
deildin verður með um helgina.
„Það er vitað mál aö það er
viða i geymslum og upp á háa-
lofti notaðar og jafnvel ónotaöar
vetrariþróttavörursem fólk veit
ekki hvað þaö á aö gera viö”
sagði Helgi.
„Með þessum markaði leys-
um við þann vanda þvi þar
veröur hægt að koma notuðum
vetrariþróttavörum i sann-
gjarnt verð. Með orðinu vetrar-
vörur er átt við ýmsar iþrdtta-
vörur og má þar nefna skiði, all-
an skiðabúnað skiðafatnað,
hlifðarfatnað, skauta, snjósleða
og margt margt annaö.
Fyrir kaupendur opnast
þarna nýjir möguleikar. Þeim
gefst kostur á að kaupa notaða
hiuti á góðu verði.
Fyrir unglinga er þarna hægt
aö fá sér stærri skiði eða skó —
og um leið er hægt aö selja það
sem þeir eru hættir að nota. Og
fyrir þá sem hafa veigrað sér
við aö iðka vetrariþróttir vegna
stofnkostnaðar gefst þarna gull-
iö tækifæri tilað fá ódýra hluti”.
Helgi sagöi að þeir sem hefðu
vetrarvörur sem þeir vildu
losna við gætu komið með þær i
Armúla 21 (simi 82340) i kvöld
og annaö kvöld á milli kl. 20,00
og 23.00 og eftir kl. 10.00 á
laugardagsmorguninn.
Þar yrði tekið við þeim gegn
vægu gjaldi og þeim komið fyrir
þar til sjálfur markaðurinn hæf-
ist en hann verður á laugardag
ogsunnudag á sama stað á milli
kl. 14.00 og 19.00. -klp-
• -
.. ■ ..
Börnin stækka, en skiöin ekki, og þá er gott aö geta skipt.
Rauði krossinn
gefur sjúkrabíl
Ragnheiöur Guðmundsdóttir
iæknir. formaöur Reykjavikur-
deildar Rauða kross lstands af-
henti Gunnari Sigurðssyni
varaslökkviliðsstjóra nýja
sjúkraflutningabifreið I gær.
Sjúkrabifreiðin kostar um
þrjár og hálfa milljón fullbúin.
Hún var innréttuð hér á landi en
söluskattur og aðflutningsgjöld
voru felld niður. Það er ekki
nema eitt ár frá þvi Reykjavik-
urdeildin gaf bifreið til sjúkra-
flutninga og næsta verkefni er
að fá nýjan hjartabil. Fyrsti
billinn sem deildin safnaði fé
fyrir var gefinn árið 1926. Rauöi
krossinn sér um rekstur bilanna
og helsta tekjulindin er Rauða
kross kassarnir. en þeir standa
að mestu undir kaupum og
rekstri bilanna.
Ragnheiður Guðmundsdóttir afhendir hér Gunnari Sigurössyni
varaslökkviliösstjóra lyklana aö nýja sjúkrabilnum.