Vísir - 04.01.1978, Síða 5
5
Barneignir i Danmörku fóru
niöur úr öllu valdi á siöasta
ári. Voru skráöar 61.000
fæöingar á árinu, sem er jafn-
vel lægra en i kreppunni miklu
1933, þegar fæddust aöeins
63.000 börn i Danmörku.
Áriö 1970 fæddust 75.000
börn i Danmörku,. en siöan
hefur barneignum fækkaö ár
frá ári og voru ekki nema
65.000 áriö 1976.
Sérfræöingar ætla, aö aukn-
ar getnaöarvarnir valdi þess-
ari þróun, en i og meö einnig
mikiö atvinnuleysi og óöryggi
i efnahagsmálum, sem leiöir
af sér óvissa afkomu.
manninum
crffur
Sovésk yfirvöld hafa til-
kynnt/ að þau ætli innan
tíðar að láta lausan breska
námsmanninn Andrej
Klymchuk/ sem hefur ver-
ið í haldi hjá KGB, sovésku
öryggislögreglunni, frá því
i ágúst síðastliðnum.
KGB skil-
ar náms-
Bameignum
fœkkar í
Danmörku
Chirac sáramóðg-
aður við Carter
Borgarstjóri Parísar œtlar að hundsa
forsetaheimsóknina, þar sem gleymd-
ist að gera ráð fyrir innliti í ráðhúsið
Jacques Chirac borgar-
stjóri Parísar og leiðtogi
Gaullista hótaði í gær-
kvöldi að hann mundi
sniðganga þær móttökur
og veislur sem haldnar
verða til heiðurs forseta-
hjónum Bandaríkjanna í
Frakklandsheimsókn
þeirra í dag og á morgun.
— Nema komið yrði ó
einkafundi hans og Cart-
ers forseta.
Chirac borgarstjóri lét I ljós
furöu sina og vonbrigöi viö Art-
hur Hartman sendiherra USA i
Paris, aö ekki skyldi gert ráð
fyrir þvi i heimsókn Carters aö
hann legði leið sina I ráðhús
Parisar sem væri orðið viðtekin
hefð i opinberum heimsóknum
þjóöhöfðingja til Frakklands.
Hinn voldugi leiðtogi Gaull-
ista var ekki ýkja hrifinn af þvi
að Carter forseti virtist ætla að
sniðganga hann i heimsókninni.
1 yfirlýsingu sem Chirac gaf I
gærkvöldi kvaðst hann vonast
til að unnt væri að kippa þessari
yfirsjón i lag. Bætti hann þvi við
aö ella mundi borgarstjóri
Parisar ekki láta sjá sig þar
sem Carter forseti kæmi fram.
Talsmenn bandariska sendi-
ráðsins i Paris sögðust vonast til
að unnt yrði aö koma I kring
fundi þeirra Chiracs og Carters
þessa tvo daga sem hann dvelst
i Frakklandi.
Chirac.leiðtogi stærsta flokks-
ins I samsteypustjórn hægri- og
miöfloki'.anna undir forystu
Valery Giscard d’Estaing, for-
seta, á að heita i oröi kveðnu
aðalbandamaður D’Estaing. En
frá þvi aö hann sagði af sér for-
sætisráöherraembætti i ágúst
1976 i mótmælaskyni við stefnu
D’Estaings forseta hefur hann
tekiö upp æ sjálfstæðari stefnu.
Nýlega olli hann D’Estaing for-
seta rétt enn einum vonbrigðun-
um, þegar hann neitaði fyrir
hönd Gaullista að ganga til
kosningasamstarfs til að bjóða
kosningabandalagi vinstri
flokkanna byrginn.
Þótt Carter forseti hafi ekki
gert ráð fyrir sérstökum fundi
með Chirac ætlar hann hinsveg-
Jacques Chirac, leiötogi Gaull-
ista og borgarstjóri Parfsar,
segist ekki láta bjóöa sér, að
Carter brjóti hefðina.
ar að hitta 'að máli Francois
Mitterrand, leiðtoga sósialista.
Mitterrand er talinn liklegastur
til þess að verða forsætisráð-
herra þeirrar stjórnar sem tæki
við ef vinstri flokkarnir fara
með sigur i kosningunum I
mars. — A siðasta ári aflýsti
Mitterrand heimsókn til Banda-
rikjanna þegar ljóst varö að
Carter mundi ekki sjá sér fært
að veita honum viðtöku i Hvita
húsinu.
Carter forseti sem kemur til
Parisar frá Aswan-flugvelli eft-
ir viðræður við Sadat Egypta-
landsforseta, mun eiga fjögurra
klukkustunda fund með Frakk-
landsforseta. Munu kjarnorku-
málin vafalitið bera þar á
góma.
Unga manninum var gefið að
sök, að hafa látið draga sig inn 1
andsovéskt atferli, og horfði i
fyrstu til þess að hann yrði einnig
sakaður um njósnir.
Starfsmenn breska sendiráðs-
ins I Moskvu skýrðu frá þvi I gær,
að þeim hefði borist tilkynning
yfirvalda um, að Klymchuk
mundi verða um borð i sovéskri
Aeroflot-þotu, sem flýgur venju-
lega áætlunarferð til London, á
morgun.
Indira Gandhi hefur klofiö sig úr Kongressflokknum, sem rak hana
og stuðningsmenn hennar i gær og bannar þeim aö bjóöa fram i
nafni Kongressflokksins.
Indíra rekin úr
Kongressflokknum
Indira Gandhi, fyrrum
forsætisráðherra Indlands
var í gær rekin úr Kon-
gressflokknum, sem galt
mikið afhroð í síðustu
kosningum, eftir illa
þokkaðar aðgerðir stjórnar
Indíru.
Með Indiru voru reknir úr
flokknum allir þeir, sem sóttu
útifundinn i fyrradag og sam-
þykktu aö stofna sér flokksdeild
um Indíru. Með þeim fundi var
stigið til fulls skrefið til þess aö
kljúfa Kongressflokkinn.
Nokkrir flokkadrættir hafa ver-
ið innan Kongressflokksins siðan
hann lenti i stjórnarandstöðu eftir
kosningarósigurinn sem batt
énda á 30 ára samfellda stjórnar-
setu hans.
Brahamananda Reddi núver-
andi leiötogi Kongressflokksins
og flestir forvigismenn flokksins
töldu að flokknum kæmi best, að
Indíra Gandhi hefði sig sem
minnst i frammi, meðan kjós-
endur væru ekki búnir aö gleyma
óþokka sinum á stjórn hennar. En
i haust vann Indira að þvi öllum
árum að ná aftur forystu flokks-
ins. Þegar það heppnaðist ekki
sagði hún sig i desember úr fram-
kvæmdaráði flokksins.
Reddi hefur skrifað landskjör-
stjórn bréf þar sem hann lýsir þvi
yfir að Indira sé ekki fulltrúi
flokksins og geti ekki boðið sig
fram i nafni hans. Leggur hann
bann við þvi að hún noti flokks-
táknin, (sem eru kálfur og kýr)
sem eru nauösynlegt til þess að
ná til ólæsra kjósenda.
VÍSIR
Félagsprentsmiðjunnar hf
Spítalastíg 10 — Sími 11640