Vísir - 04.01.1978, Side 24

Vísir - 04.01.1978, Side 24
VÍSIR Smáauglýsing í Visi er engin^#g| óauglýsing *' '" Opið virka daga til kl. 22.00 I O OO I _/? ,_ Laugardaga kl. 10-12 . n .t-n ~/?\ Sunnudaga kl. 18-22 simi Vinnulán Vegagerðarinnar voru samþykkt á Alþingi! „Hér er ekki um uppfinningu Vegageröarinnar að ræöa heldur ákvöröun Alþingis”, sagöi Snæbjörn Jónasson vega- málastjóri er Visir spuröi hann um svonefnd vinnulán viö vega- gerö. Visir skýrði frá þvi á dögun- um að deila reis út af slikum vinnulánum vestur á Fjörðum og nokkru siðar sendi miöstjórn Alþýðusambands Islands frá sér harðorð mótmæli gegn þess- um starfsháttum Vegagerðar- innar. „1 vegaáætlun fyrir árið 1977 var heimild til að taka vinnulán eða önnur bráðabirgðalán að upphæö 400 milljónir króna”, sagði Snæbjörn. „Reiknað er með sömu upphæð árið 1978. Eingöngu er gert ráð fyrir lán- tökum að þessu tagi i sambandi við allmargar framkvæmdir við stofnbrautir og er þá veitt til sömu framkvæmda fé á vega- áætlun.” Ekki vinsæl leið „Þannig var staðið að þessari lántöku i flestum tilvikum að vinnuvélaeigendum og bifreiða- eigendum var tilkynnt, að sam- kvæmt vegaáætlun mætti vinna fyrir vissa upphæð umfrám fjárveitingu ef þeir lánuðu vinn- una fram á næsta ár. Ef ekki reyndist áhugi fyrir þessum lánum þá næði það ekki lengra og þá væri vinnu hætt þegar fjárveitingin væri búin. Margir þingmenn voru sjálf- um sér samkvæmir og unnu að útvegun þessara lána með vegagerðarmönnum og þá með þaö i huga að flýta verkum sem unnið var að. Hins vegar var þessi fjár- öflunaraðferð yfirleitt ekki vin- sæl, þótt henni hafi viða verið tekið sæmilega. Eg vil lika geta þess að lán svipuð þessum hafa tiðkast um áratugi til að flýta verkum en aðeins verið tekin þegar heima- menn sjálfir hafa óskað eftir að mega lána”, sagði Snæbjörn. Aðspurður sagðist Snæbjörn ekki enn hafa tölur um hversu mikið af -heimildinni sem var 400 milljónir, hefði verið notað i fyrra. Arið 1976 hefði heimildin hins vegar verið 250 milljónir og þá hefði verið lánað fyrir um 150 milljónir króna. —ESJ Viðbótarsamningur gerður um útgáfu Alþýðublaðsins fram sumar Auglýsingamál útvarpsins kom- ið langleiðina „Ég vonast til að við séum komnir langleiðina með aö rannsaka auglýsingareikn- inga útvarpsins og býst við aö skýrslu verði skilað á næst- unni”, sagði Halldór V. Sig- urðsson, ríkisendurskoðandi, viö Visi I morgun. Rikisendurskoöandinn hefur undanfarnar vikur unniö aö rannsókn á meintum fjár- drætti auglýsingastjóra Rfkis- útvarpsins, sem hefur látiö af starfi. Halldór vildi ekki gefa aörar upplýsingar um máliö. Hann neitaði aö nefna nokkra upp- hæð i sambandi við þaö og sagði aö tölur sem nefndar hefðu veriö i fjölmiölum, væru ekki frá sér komnar. „Viö munum skila okkar skýrslu til fjármálaráðuneyt- isins og það tekur síðan ákvöröun um framhald máls- ins,” sagði Halldór. —ÓT. Staðgreiðsla skatta 1979: Alþingi hefur mónaðarfrest Það cr nú aöeins mánuður til stefnu til að afgreiða frá Al- þingi lög um staðgreiðslukerfi skatta árið 1979 ef miðaö er við þann undirbúningstima sem SigurbjörnÞorbjörnsson rfkis- skattstjóri segir nauðsynlegan til að koma þessu kerfi á. „Ég sagði á sinum tima að þetta væri framkvæmanlegt ef ákvörðun Alþingis lægi fyrir fyrstu vikuna i febrúar,” sagði Sigurbjörn við Visi. „Ég get gjarnan itrekað það ef þú vilt. Þetta er geysilega flókið mál og mikil vinna og hefur miklar skipulags- breytingar i för með sér- Tiu mánuöir eru þvi lágmarks- frestur.” Ekki náðist i fjármálaráö- herra i morgun til að fá upp- lýsingar um hvort Alþingi yrði tilbúið til að afgreiða málið fyrstu vikuna i febrúar. Visir fékk þær upplýsingar hjá ráðuneytinu aö þar væri unnið að undirbúningi en menn vildu ekkert segja um hvort löggjöf yrði tilbúin i tæka tið. —ÓT Allir komu þeir aftur! Kirkjukór Akraness kominn heim eftir velheppnaða söngför til ísraels og ítaliu Kirkjukór Akraness kom til landsins i gærkvöldi eftir vel heppnaða söngför til ísraels þar sem kórinn og aðrir þátttak- endur i ferðinni dvaldist um jól- in. Heldur voru ferðalangarnir þreyttir við heimkomuna enda þetta búin að vera löng og ströng ferð. Var dvalið i ísrael um jólin en i Róm um áramótin og kom kórinn viða fram. A jóladag messaði og gifti prestur Akurnesinga séra Björn Jónsson i kirkju i gömlu Jerú- salem og var það fyrsta islenska messan sem þar er haldin. A aðfangadagskvöld söng kórinn á Betlehemstorginu við góðar undirtektir en bestu mót- tökurnar fékk kórinn er hann söng ásamt fleiri kórum i þjóð- leikhúsinu i Tel Aviv. Var hann klappaður upp hvað eftir annað og i lokin varð kynnirinn hálft i hvoru að reka Islendingana af sviðinu svo að hinir kórarnir kæmust að með sin prógrömm. Kórinn var jafnan kynntur sem Kirkjukór Akraness en einnig sem fiskimannakórinn frá tslandi og var það ekki siður en söngurinn til að vekja athygli á honum. —klp— Samið um greiðslu ó tapinu „Avinningur Reykjaprents af samningnum við Ctgáfufélag Alþýöublaösins er fyrst og fremst sá að meö sameiginleg- um rekstri viö annað blað nýt- um viö betur ýmsan fastan kostnaö sem ella kæmi á rekstur Visis eins svo sem vegna stjórn- unar, skrifstofuhalds og dreif- ingar”. Þetta sagði Hörður Einarsson, stjórnarformaöur Reykjaprents er Vlsir spurðist fyrir um hvern hag blaöið hefði af samningnum sem undir- ritaður var I gær um framhalds- rekstur Alþýöublaösins. Hörður bætti þvi við að nú skiptist áðurnefndur kostnaöur á tvö blöð, og heföi hinn sam- eiginlegi rekstur þannig I för meö sér nokkurn sparnað fyrir Reykjaprent. „Af okkar hálfu er þessi samningur því einvöröungu gerður með viðskiptaleg sjónar- mið I huga,” sagði Höröur Einarsson. _ör „Eingöngu viðskiptaleg sjónarmið — segir Hörður Einarsson, stjórnarformaður Reykjaprents Viðbótarsamningur var I gær undirritaður milli Útgáfufélags Alþýðublaðsins h.f. og Reykja- prents h.f. um rekstur Alþýðu- blaðsins fram til 31. júli i sumar. Er samningurinn viðbót við samstarfssamning þessara aðila frá þvi i árslok 1975. I samningnum kemur fram, að Útgáfufélag Alþýðublaðsins h.f. mun greiða Reykjaprenti h.f. „rekstrartap blaðsins sam- kvæmt samþykktri rekstrar- áætlun fyrir timabiliö 1.1. til 31.7. 1978.” Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, segir i viðtali við Alþýðublaðið i dag, að rekstrarhallanum verði mætt með fjáröflun meðal flokks- manna, eins og ávallt áður, en auk þess muni A-pressan, sam- tök blaða jafnaðarmanna á Norðurlöndum, sem séu i eigu jafnaðarmannaflokkanna og verkalýðssambandanna, veita Alþýöublaöinu nokkra aðstoð. „Hvernig hún verður er ekki vitað á þessari stundu,” segir Benedikt Gröndal. —ÓR Félagar I Kirkjukór Akraness og aðrir þátttakendur l hinni sögu>egu söngferð kórsins til tsraels og ttalíu, er hópurinn kom til Keflavfkur- flugvallar I gærkvöldi. Ljósmyndir HB Keflavlk.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.