Vísir - 01.02.1978, Blaðsíða 1

Vísir - 01.02.1978, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 1. febrúar 1978 29. tbl. 68 árg. Sími Visis er 86611 Vísir birtir útreikninga Ferðamálaráðs varðandi heimsmeistaraeinvígið: IfACl ruAn IIDIMIJ Mll 1 DAIIM IVUj 1 NAtl UICINN NU 1 1 KAUN MINI í\ EN VIÐ EINVH }IÐ 72 — segir Heimir Hannesson, Formaður ferðamálaráðs íslands Víðtœk kynning á einvíginu hefur verið undirbúin á vegum Ferðamálaráðs erlendis „Ég held aö við tslendingar ættum i þessu tafli að leika var- káran sóknarleik”. Þetta segir Heimir Hannesson formaður ferðamálaráðs i viðtali sem birt er á 2. og 3. siðu i dag. Þar eru jafnframt birtir útreikningar á kostnaði við heimsmeistaraein- vigið nú samanborið við einvig- ið 1972. Til aö gefa raunhæfa mynd hefur Heimir stuðst við visitölu byggingarkostnaðar og vísitölu framfærslukostnaðar. tJt úr þeim dæmum koma mjög athygiisverðar tölur. Sé kostnaður við heims- meistaraeinvigið 1972 færður til verölags nú, samkvæmt visitölu byggingarkostnaðar, þá verður áætlaöur kostnaður við einvigið nú rúmum 18 milljón krónum minni en þá. Sé hinsvegar stuðst við visitölu framfærslukostnað- ar kemur i Ijós að einvigishald nú er rúmum 26 milljón krónum ódýrara. Ferðamálaráð hefur undirbú- ið viðtæka kynningu erlendis sem hleyptyrði af stokkunum ef einvigið yrði haldið hér. Þar er um að ræða almenna kynningu á landi og þjóð. „Þar yrði lögð áhersla á að hér býr sjálfstæð þjóð sem stundar og sinnir hinni göfugu iþrótt hugans, skák- inni!’ sagði Heimir Hannesson Utreikningarnir eru birtir á blaðsíðum tvö og þrjú, en frétt um afstöðu skák- sambandsins á baksíðu. Tugir stórmeistara tefla hér Síðasti hluti myndasögunnar um ABBA í dag Myndasagan er á blaðsíðu 20, en frétt um Abbaœðið á Islandi er á baksíðu Reykjavíkurskákmótið, sem hefst á laugardaginn, verður sterkasta skákmót sem hér hef ur verið haldið. ( þvi taka þátt 14 skák- menn, þar af 10 stórmeist- arar og einn heimsmeist- ari. Þátttakendur eru Hort, Larsen, Polugaevsky, Miles, Smejkal, Browne, Lombardy, Kuzmin, Friðrik Olafsson, Guðmundur Sigurjónsson, Jón L. Arnason, Geir Hallgrimsson, forsætis- ráðherra,sagði I sjónvarpsþætti i gærkveldi að tillögur Alþýðu- bandalagsins varðandi lausn efnahagsmálavanda þjóðarinn- ar væru holar eins og tóm tunna og Ólafur Jóhannesson við- Leif ögaard, Helgi Ólafsson og Margeir Pétursson. Fyrstu verðlaun eru 2.200 doll- arar, 1.500 dollarar i önnur verð- laun og eitt þúsund i þriðju. Fyrir unna skák greiðast 50 dollarar, 15 fyrir tapaða og 10 fyrir jafntefli. Þau nýmæli eru á þessu móti að timamörk verða 90 minútur á fyrstu 301eikina og næstu 20 leikir á 60 minútum. Biðskákir eru með mörkunum 20 leikir á klukku- stund. Teflt verður á Hótel Loftleiðum og verður nánar sagt frá" mótinu siðar. —SG skiptaráðherra taldi þær óraun- hæfar og erfitt að koma þeim i framkvæmd. En hverjar eru þessar tillög- ur? Frá þeim er greint á blað- siðu sjö i viðtali við Ólaf Ragnar Grimsson. Tillögur Alþýðubandalagsins í efnahagsmálum: Eru þœr holar eins og tóm tunna? Bein lína til borgar- stjóra á ritstjórn Vísis annað kvöld! Birgir isleifur Gunnarsson Borgarstjórinn í Reykjavík, Birg: ■ (sleif- ur Gunnarsson, mun verða á ritstjórn Vísis milli klukkan hálf átta og níu annað kvöld og svara þar fyrirspurnum les- enda Vísis. Þetta verður i annað sinn sem Visir veitir lesendum sinum þessa þjónustu. Slik bein lina var fyrir skömmu til Garðars Valdimarssonar, skattrann- sóknastjóra,á ritstjórn Visis,og var þá hringt stanslaust viðs vegar að af landinu og mikill áhugi fyrir þessari nýju þjón- ustu blaðsins. Nú er það sem sagt Birgir Is- leifur Gunnarsson, borgarstjóri, sem verður við simann hjá okk- ur hér á Visi annað kvöld, fimmtudagskvöld. Ef þér liggur eitthvað á hjarta varðandi borgarmálin almennt, þitt hverfi eða önnur atriði sem borgarstjóri gæti svarað skaltu hringja i sima Visis,86611, annað kvöld milli klukkan 19,30 og 21. Síminn er 86611 Hlý yfirhöfn er hverjum manni nauðsyn þessa dagana, þegar það rignir að morgni en að kvöldi er kominn norðangarri með frosti og fannfergi. Hún gerir sér grein fyrir þessu unga konan hérna á myndinni þar sem hún stikar eftir Austurstrætinu í dýrindis pelsi og hnéháum stígvélum. Jens Alex- andersson tók myndina síðdegis í gær. j i I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.