Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 1

Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 1
TONNA BATUR STRAND- í ARNARFIRÐI í NÓTT 207 AÐI Áhöfn heil á húfi — beðið eftir flóði Hafrún BA 400 frá Bildudal strandaði i nótt við Austmannsdal sem er á miili Bakka og Fifustaðar i Arnarfirði. Tilkynning um strandið barst klukkan 3.45 i nótt i gegnum ísa- fjarðarradió. Skömmu eftir að tilkynningin barst var varðskip komið á staðinn og björgunarsveit Slysa- varnafélagsins á Bildu- dal hélt þegar af stað til björgunar. Klukkan rúmlega fimm i morgun bárust þær fregnir aö varðskipsmenn væru komnir um borð og var þá verið að undirbúa að koma vir á milli. A áttunda timanum var þvi lokið og var þá beðið eftir flóði upp úr hádegi með að taka i bátinn. Sex menn eru um borö i Haf- rúnu sem er 207 tonna bátur i eigufiskvinnslunnar á BQdudal. Báturinn hét áður Þorsteinn RE. Enginn leki var kominn að bátnum er siðast fréttist og mönnunum engin hætta búin. Norðanátt var á þessum slóðum. —EA Dregið í áskrifendagetrauninni í gœrkveldi: FYRSTI VISIS- BÍLLINN FÓR TIL RAUFAR- HAFNAR Samkvæmt áætlun var dregið úr réttum seðlum í áskrifendagetraun Vísis í gærkveldi, og er skemmst frá því aðsegja, að Derby- bíllinnn kom í hlut eins af áskrifendum Vísis á Rauf- arhöfn. Sá heppni heitir Grétar ólafur Jónsson og er sjómaður, kvæntur og þriggja barna faðir. Svo skemmtilega vill til að fjöl- skylduna vantaði einmitt bil og •ná þvi með sanni segja að billinn hafi lent á réttum stað. Það að þessi fyrsti bill i áskrif- endagetrauninni fer út á land, sýnir vel þá breytingu, sem hefur oröið á útbreiðslu Visis undanfarin misseri, það er að hann er ekki lengur Reykjavikur- blað, heldur blað landsins alls. Allir réttu svarseðlarnir frá áskrifendum Visis verða nú áfram i kassanum hjá okkur, þannig að þeir, sem þá seöla eiga, hafi áfram möguleika á aö eignast þá tvo bila sem enn eru eftir, Ford Fairmont og Simca. Siðan verða birtir nýir get- raunaseðlar i þessum mánuði, i mars, april og mai, og er rétt að hvetja áskrifendur til að muna eftir að senda þá til Visis, þegar þeir hafa fyllt þá út. „Það er bara svona" varð vinningshafanum á orði „Það er bara svona’,’ varð Raufarhafnarbúanum Grétari Ólafi Jónssyni aö orði, þegar Davið Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Reykjaprents, útgáfufélags Visis, tilkynnti honum i gærkvöldi, að hann hefði hreppt Derby-bilinn i áskrifendagetraun Visis. Grétar Ólafur kvaðst hafa ætlaö á sjóinn i dag, en taldi fulla ástæöu til þess að hann tæki sér fri, til þess að átta sig á þvi, að hann væri orðinn rúm- lega tveimur milljónum króna rikari. Blaðamaður Visis hringdi i þennan nýja bileiganda i morg- un og er viðtalið við hann birt á baksiðu. Þúsundir getraunaseðla höfðu borist i gærkveldi og um kvöldmat- arleytið dró svo Magðalena Gestsdóttir, starfsmaður VIsis, einn seðil úr kassanum, og kafaði djúpt samkvæmt fyrirmælum Jónasar Gústafssonar, fulltrúa Borgarfógeta, sem var viðstaddur dráttinn. Visismyndir: JA. BOÐIÐ SUÐUR Visir býður vinningshafanum ' og konu hans suður til Reykjavik- ur tilþessað taka við vinningnum og einnig hefur umboðsmanni Visis á Raufahöfn verið boðið til höfuðborgarinnar af þessu tilefni. Fyrirhugað er að þessir gestir Visis komi suður i dag. Gengisfelling eða gengissig? MYNDI HRATT SIG NÆGJA? — sjá baksíðufrétt Hœttulegt lyf fyrir sykursjúka á markað- inum hér — sjá frétt og viðtöl bls. 7 BORGARSTJÓRI SVARAR LESENDUM VÍSIS í KVÖLD Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstóri mun svara lesend- um Vísis isima blaðsins —86611 — milli kl. 19.30 og 21 I kvöld, fimmtudagskvöld. Þá geta þeir sem vilja hringt og fengið sam- band við borgarstjóra og borið fram spurningar um málefni borgarinnar. Frásagnir af spurningum les- enda og svörum bograrstjóra verða siöan birt i Visi á morgun og laugardag. Blaðið vill hvetja lesendur til að undirbúa spurn- ingar sinar og hafa þær stuttar og gagnorðir svo að sem flestir geti komist að. Fyrir stuttu sat Garðar Valdi- marsson skattrannsóknarstjóri fyrir svörum hjá lesendum VIsis og urðu þá margir frá að hverfa án þess að ná sambandi vegna þess fjölda sem hringdi. Nú höf- um við lengt fyrirspurnartim-. ann og lesendur geta hringt i sima 86611 milli klukkan 19.30 og 21 I kvöld. —SG \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.