Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 12

Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 12
Vaido Stenzel er hafður í sérslcíkri gœslu á HM! — Miklar öryggisráðstafanir á HM í Danmörku af ótta við að ýmis skœruliðasamtök reyna að vinna þar einhver hermdarverk Þaö er orðið mikið fyrirtæki að sjá um og standa fyrir alþjóða keppni i iþróttum. Kostnaðurinn og umstangið er gifurlegt, en það sem hefur hleypt kostnaöarverð- inu upp úr öilu valdi nú siðari ár eru útgjöldin við að gæta kepp- enda og fararstjóra. Útii hinum stóra heimi er orðinn ógjörningur að halda mót með þátttöku keppenda frá ýmsum löndum, án þess að til þurfi að kalla hóp lögreglumanna og öryggisvarða til aö gæta þeirra. Óttinn við skæruliðasamtök- eða þá aöila sem vilja láta á sér bera — er orðinn svo mikill að ekkert er til sparað til að verja keppendur, áhorfendur og starfs- menn mótsins. Gott dæmi um þetta er heims- meistarakeppnin i handknattleik karla, sem nústendur yfir i Dan- mörku. Forráðamenn keppninnar hafa látið hafa eftir sér við frétta- menn, að einn stærsti útgjaldalið- urinn við mótið sé i sambandi við öryggisgæslu á hótelunum, þar sem liðin búa, og i iþróttahús- unum sem leikið er i. Það eru öll liðin í HM-keppn- inni, sem hafa verið undir sér- stakri gæslu. En á henni hefur litið borið. Menn ganga ekki um vopnaðir, eða með hendur i vös- um, þar sem haldiö er þéttings- A þessari mynd fagna Danir sigri eftir Norðurlandamótið sem fram fór hér á iandi i haust. Þá unnu þeir Svia i úrslitaleik með einu marki eftir framlengdan leik. Fagna Danir svona eftir leikinn gegn Svfum i kvöld? Visismynd Einar fast um byssuna eða annað vopn. Allt er gert til að sem minnst fari fyrir öryggisvörðunum. Aðeins þeir sem best til þekkja, eða eru sérlega glöggir, geta komið auga á þá. Þau lið sem sérstakar gætureru hafðar á i HM-keppninni að þessu sinni, er lið Júgóslaviu og Vestur-Þýskalands. Þeirra er gætt vegna Króata, sem mikið er af á Norðurlöndunum, og Vestur-Þjóðverjanna er gætt vegna Bader-Meinhof samtak- anna og fylgifiska þeirra. Sá maður sem er best gætt af öllum á HM, er þjálfari Vestur-Þýskalands, hinn jógó- slavneski Vlado Stenzel. Hann er þegar orðinn að hálfgerðu goði i augum margra Þjóðverja, og vin- sældir hans eru ótrúlegar. Það nægir til að gera hann að eftirsóknarverðu skotmarki skæruliðasamtaka, og þvi er hans sérlega vel gætt. öryggisverðirn- ir raða sér ekki umhverfis hann eða fylgja honum eftir hvert fót- mál. Þeir missa hann aftur á móti aldrei úr sjónmáli, og eru við öllu búnir ef einhver gerir sig liklegan til að angra hann. Það gengur i það minnsta eng- inn að honum þessa dagana, klappar á herðar hans og segir „Halló Vlado”. Það verður þá að vera einhver sem öryggisverðirn- ir gjörþekkja og jafnvel sá er ekki öruggur.... -KLP- Verða Danir í úrslitum? HM-keppninni i handknattleik karla verður haldið áfram i dag I Danmörku. Þar verða margir stórleikir á dagskrá, en augu Norðurlandabúa munu eflaust beinast að leik frændþjóðanna, Danmerkur og Sviþjóðar. Það er mikilvægur leikur — sérstaklega fyrir Dani. Ef þeir sigra i þeim leik, en Sovétmenn gera jafntefli eða tapa fyrir Pól- verjum — eru Danir komnir i úr- slit i keppninni. í hinum riðlinum er allt galop- ið, en Austur- og Vestur-Þýska- land standa þar betur að vigi en Rúmenar og Júgóslavar. Siðast þegar Danir fögnuðu sigri yfir Svium i handknattleik karla, var það naumur sigur. Sá leikur fór fram hér i Laugardals- höllinni og þeir sigruðu þá með eins marks mun eftir framlengd- an leik. Fyrir þann sigur hlutu þeir Norðurlandameistaratitilinn, en i dag er það heimsmeistaratitillinn sem er i boði.... -klp- Hún á eftir að hlaupa þœr allar af sér — segja Ármenningar um unga frjálsíþróttakonu í þeirra röðum A meistaramóti Reykjavikur i frjálsum iþróttum innanhúss á dögunum tóku margir eftir ungri stúlku úr Armanni, sem veitti hinum eldri og stærri harða keppni. Er viö fórum að forvitnast um þessa spretthörðu dömu fengum við að vita að hún heitir Jóna BjörkGrétarsdóttir og er rétt ný- lega orðin 12 ára gömul. Systir Jónu, Margrét Grétarsdóttur, er einnig mikið efni, enhún hefur lit- ið getað æft að undanförnu. Jóna Björk byrjaði að æfa frjálsar iþróttir er hún var 9 ára gömul. Hún hefur náð ótrúlegum framförum, sem sést best á þvi, aðhúnhleypur núna 12 ára gömul 50 metrana á 7.0 sekúndum, en þegarhúnvar 11 ára hljóp hún 60 metrana utan húss á 8.3 sek og 100 metrana á 13.8 sek. Jóna Björk keppti á Andresar andarleikunum i sumar og varð fjórða i langstökki. Hún hefur aldur til að taka þátt i leikunum aftur i sumar, og á þá að geta náð langt. Hún sýndi það um síðustu helgi á meistaramóti þeirra yngstu er hún stökk 2.40 m I lang- stökki án atrennu. Þvi ná ekki sumar af okkar eldri og þekktari frjálsiþrótta- konum, en þessi 12 árastúlka fór létt meðþað. Þvi er þaðspá okkar að viö eigum að heyra hennar oft getið á iþróttasviðinu i náinni framtið. —klp— Jóna Björk Grétarsdóttir ásamt þjálfara sinum, Stefáni Jóhannssyni, á æfingu i Baldurshaga. Ljósmynd EK. fljótust á" — sagði Annemarie Moser fyrir brunkeppnina í heimsmeistarakeppninni — og hún sigraði siðan örugglega ,,Ég nota þau skiði sem ég er fljótust á,” svaraði austurriska skiðakonan Anne- marie Moser spurningu austurriks blaða- manns er hann spurði hana að þvi á æf-, ingu i fyrradag hvaða skiði hún ætlaði að nota i brunkeppni heimsmeistarakeppn- innar á skiðum sem fram fór i V-Þýska- landi i gær. Og Annemarie Moser stóð við orð sin og bar öruggan sigur úr býtum i brunkeppn- inni í gær. Hún var örugglega á bestu skfflunum si'num, og hún vann sinn þriðja heimsmeistaratitil. Hún átti þó I nokkrum erfiðleikum i miðri brautinni i gær, en tókst að bjarga sér. ,,Ég hélt að öllu væri tokið og ég myndi missa af fyrsta sætinu,” sagði Moser, sem fékk timann 1.48.31 min „Éghélt ekki að ég myndi verða i hópi þeirra fremstu, hvað þá að ég myndi vinna silfurverðlaun”, sagði Irene Epple frá V-Þýskalendi sem varði 2. sæti, mjög óvænt. 1 næstu sætum komu svo þær Doris de Agostini frá Sviss, Cindy Nelson frá Bandarikjunum og Evi Mittermaier frá V-Þýskalandi. Keppni er nú lokið i tveimur greinum á heimsmeistaramótinu I Garmisch Partenkirchen i V-Þýskalandi, og hafa Austurrikismenn tekið bæði gulíverðlaun- in. Það var Austurrfkismaður Sepp Walcher sem vann brun karla á sunnu- daginn. Þess má geta að lokum að meðalhraði Annemarie Moser f keppninni I gær var 93 km á klukkustund. Það er þvi betra að það beri ekki mikið útaf þegar keyrt er niður brautina á slíkri ferð. gk—. Annemarie Moser frá Austurriki hefur oft sýnt það að hún er fremsta skiðakona heims- ins. Henni hefur gengið vel I heimsbikarkeppninni i vetur, og i gær sigraði hún f heims- meistarakeppninni i bruni i V-Þýskalandi. „Nota skíðin sem ég er WEST BROMWKH SIÓ UNITED ÚT — og komst þar í 5. umferð ensku bikarkeppninnar Bikarmeistarar Manchester ' United munu ekki leika tO úrslita I þriðja skiptið I röð á Wembley, þegar úrslitaleikur bikarkeppn- innar fer þar fram. Þeir voru slegnir út úr bikar- keppninni i gærkvöldi af West Bromwich eftir framlengdan leik sem lauk með 3:2 fyrir West Bromwich. Það var troðfullur leikvangur- inn i gærkvöldi þegar liðin mætt- ust, og tvivegis var Manchester United undir I leiknum. Tony Brown skoraði fyrir West Brom- wich, en Stuart Pearson jafnaði. Þá kom Cyrille Regis West Brom- wich yfir á nýjan leik og allt virt- ist stefna á öruggan sigur West Bromwich En á siðustu minútu leiksins jafnaði Gordon Hill með þrumu- skoti af 25 metra færi, sérlega fallegt mark og þvi varð að fram- ......— —O lengja leikinn I 2x15 mínútur. Og strax á fyrstu minútu fram- lengingarinnar kom markið sem gaf West Bromwich sigur, en sló United út úr keppninni. Og aftur- var það Cyrille Regis sem skor- aði. 1 næstu umferð á West Brom- wich að leika gegn Derby á úti- velli, en Derby sigraði Birming- ham í gærkvöldi með tveimur mörkum gegn einu. ÞAU SÓPA AÐSÉR GULLINU Það fór eins og við varþú- ist i fyrstu grcin Evrópu- meistarainótsins i listhlaupi á skautum, sem haldið er þessa dagana i Strasborg i Frakklandi. Sovéska parið Irina Rodnina og eiginmaður hcnnar Alexander Zaitsev hlutu gullverðlaunin í para- keppninni, sem lauk i gær- kvöldi. Þetta var i 10. sinn i röð sem Rodnina hlýtur Evrópu- meistaratitilinn — og I 6.sinn meö eiginmanni sinum Alex- ander Zaitsev. Þar fyrir utan hefur hún 9 sinnum orðið heimsmeistari og tvisvar ólympiumeistari. OFyrir rúmlega 10 árum settu AEG TELEFUNKEN verk- smiðjurnar á markaöirin fyrstu PAL litsjónvarpstækin, en þá hófust litsendingar eftir því kerfi í Vestur Þýskalandi. Síðan hafa yfir 40 lönd, með yfir 700 milljón íbúa tekið TELE- FUNKEN PAL KERFIÐ í notkun. fslensk yfirvöld tóku einnig þá skynsamlegu ákvörðun, að velja PAL KERFIÐ FRÁTELE- FUNKEN, fyrir íslendinga. Allir framleiðendur PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA, fram- leiöa tæki sín undir einkaleyfi TELEFUNKEN, og greiða þeim einkaleyfisgjöld. TELEFUNKEN er eina fyrirtækið sem framleiöir litsjón- varpstæki sín með 100% einingarkerfi, sem einfaldarog flýtir viðgerðum. TELEFUNKEN notar 20% framleiðslutíma hvers litsjón- varpstækis í reynslu hinna einstöku hluta tækisins, auk þess er hvert tæki reynt í 24 tíma áður en það yfirgefur verksmiðjurnar. Síðan er tækiö yfirfarið og stillt af seljanda í viðkomandi landi áður en kaupandinn fær það. Þetta tryggir yður óbreytt myndgæöi í fjölda ára. Lítil orkunotkun (aðeins 140 wött) gefur lítið hitaút- streymi og eykur endingu tækisins. TELEFUNKEN litsjónvarpstæki eru með 110° „Inline" myndlampa, sem sýnir jafna og góða mynd á skerminum, út í öll horn, auk þess sem tækin eru þynnri, en áður hefur verið hægt að framleiða þau. Fjarstýring er að sjálfsögðu fáanleg. Þrátt fyriryfirburöiTELEFUNKEN PAL LITSJÓNVARPS- TÆKJA ERU ÞAU SAMKEPPNISFÆR í VERÐI. Yfir 200 milljón króna er varið til rannsókna og hönnunar á rannsóknarstofum AEG TELEFUNKEN á hverjum degi, sem tryggir áframhaldandi forustu brautryöjandanna - AEG TELEFUNKEN. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.