Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritstjornarfulltrui: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundur G. Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jónína Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guövinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 90 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Jöfn sakarskipting Ljóst er nú að stjórnvöld ætla að mæta aðsteðjandi vanda útflutningsatvinnuveganna með lækkun á gengi krónunnar, þó að enn haf i ekki verið teknar endanlegar ákvarðanir um þær ráðstafanir, sem gerðar verða. Þessi leið horfir fyrst í stað til aukinnar verðbólgu, en um framhaldið fer eftir því, hvernig á verður haldið. Ef gengislækkunarleiðin hefði ekki verið valin komu tveir aðrir kostir til greina. I fyrsta lagi að stórauka skattheimtu til þess að styrkja útf lutningsatvinnuvegina og i öðru lagi að lækka allt verðlag og kaupgjald í land- inu. Alþýðubandalagið hefur nú lagt fram tillögur gegn áformum ríkisstjórnarinnar, þar sem gert er ráð fyrir niðurfærslu verðlags með lækkun söluskatts. Að ýmsu leyti sýnist eðlilegt að ráðast gegn verðbólgu með niður- færslu. En flestum er þó Ijóst að sú leið er ófær, a.m.k. nú. Ef niðurfærsluleiðin ætti að koma að haldi þyrfti gíf- urlega lækkun bæði á kaupgjaldi og verðlagi. Bein lækk- un á kaupgjaldi er óframkvæmanleg við ríkjandi að- stæður, enda miða tillögur Alþýðubandalagsins aðeins að lækkun verðlags. Kjarni málsins er á hinn bóginn sá, að slik takmörkuð niðurfærsla breytir engu um þann vanda, sem við er að etja að þvi er útflutningsatvinnuvegina varðar. Þjóðhagsstofnun hefur áætlað að halli f iskvinslunnar nemi 12 milljörðum króna á þessu ári. Þá er reiknað með kostnaði eins og hann er nú í janúar. Inn í þá mynd er t.a.m. ekki tekin væntanleg vísitöluhækkun launa, sem ræðst af framvindu verðlags í landinu á næstu mánuð- um. Yf ir 50% af kostnaði f iskvinnslunnar eru kaup á hrá- ef ni og launakostnaður er 25 til 30%. Þannig kemur í Ijós aðekki verður hreyft af heildarkostnaði fiskvinnslufyr- irtækjanna nema lækka fiskverð og kaupgjald. Lækkun vöruverðs hefur því ákaflega lítil áhrif á afkomu á út- f lutningsatvinnuveganna. Sú takmarkaða niðurfærsluleið, sem Alþýðubandalag- ið hefur gert tillögur um og formaður Alþýðuflokksins lýst stuðningi við, kemur því ekki í veg fyrir yf irvofandi stöðvun útf lutningsframleiðslunnar. Að því leyti er það réttsem forsætisráðherra hefur sagt um þessar tillögur, að þær eru holar eins og tóm tunna. Ríkisstjórnin stendur hins vegar frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd að þurfa að gripa til aðgerða, sem hafa áhrif til hækkunar á verðlag í landinu. Um leið er fyrirsjáanlegt að fyrir kosningar verða tæplega gerðar ráðstaf anir til þess að koma á varanlegu jaf nvægi í þjóð- arbúskapnum. En eins og málum er komið hlýtur kosn- ingabaráttan að snúast um leiðir að því marki. Engum vafa er undirorpið að kjarasamningarnir síð- astliðið sumar hafa valdið því að gengi krónunnar hef ur fallið. Þó að nú sé verið að taka ákvörðun um gengislækkun hefur krónan verið of hátt skráð mánuð- um saman. Sú kaupmáttaraukning, sem varð á síðasta ári, hef ur þessi áhrif fyrir þá sök m.a. að ekki var nægj- anlega dregið úr f járfestingu. Til þess að koma í veg f yr- ir að þjóðarútgjöld færu f ram úr þjóðartekjum var nauð- synlegt að takmarka launahækkanir eða minnka fjár- festingu ali verulega. Hvorugt var gert og þar af leiðir að við stöndum enn einu sinni frammi fyrir gengisfell- ingu. Sökin skiptist nokkurn veginn jafnt milli stjórnvalda og forystumanna hagsmunasamtakanna. En með þeim aðgerðum, sem nú standa f yrir dyrum er verið að glíma við afleiðingar verðbólgunnar en ekki rætur hennar. Fyrir stjórnvöldum, núverandi ríkisstjórn eða annarri sem mynduð yrði eftir kosningar, blasir hins vegar það verkefni að höggva að rótum meinsemdarinnar með markvissri jafnvægisstjórn í efnahagsmálum. Fimmtudagur 2. febrúar 1978 VISIR íslenskt einangrunargler: Stóðst mjög vel gœða- prófun # i Noregi — rœtt við Sigurjónsson deildarverk- frœðing hjó Rannsóknar- stofnun byggingar- iðnaðarins „Niðurstöður skýrsl- unnar voru í stórum dráttum þær að gler frá 1973 og yngra hefur enst vel og litið bilað en hins vegar hefur gler frá 1969- 1972 bilað nokkuð mikið", sagði Jón Sigurjónsson deildarverkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins en hann stjórnaði umfangs- mikilli könnun á vegum stofnunarinnar á ástandi einangrunarglers og nú er komin út lokaskýrsla um þessa könnun. Sagði Jón að könnunin hafi náð til allra verksmiðja sem setja saman gler hér á landi. Þær verksmiðjur eru sex, ein á Akureyri, ein á Hellu og fjórar á höfuðborgarsvæðinu. Reynt var að skoöa minnst 50 rúður af árs- framleiöslu hverrar verksmiöju og náði könnunin fram til s.l. árs og allt aftur til ársins 1967, en það var misjafnt eftir aldri verksmiðja. Lætur nærri að skoöaðar hafi veriö um 2000 rúö- ur. Könnunin fór fram i Reykja- vik en einnig eitthvað á Akur- eyri og fyrir austan fjall. islensk framleiðsla stóðst gæðapróf í Noregi Við tókum einnig sýnishorn á nýrri framleiöslu á einangr- unargleri hjá öllum islensku verksmiðjunum og létum gæða- prófa þaö i Noregi samkvæmt samnorrænum staðli”, sagði Jón. „tJrtakið fór þannig fram að við létum einstaklinga panta glerið þannig að framleiöendur höfðu enga vitneskju um aö glerið færi i þessa könnun. ts- lensku verksmiðjurnar komu mjög vel út úr þessari prófun og glerið uppfyllti allar gæðakröf- ur samkvæmt þessum staðli. Jón Sigurjónsson deildarverkfræðingur Visimynd BP Við höfum vissa ástæðu til að vera bjartsýn. tslensk fram- leiðsla á samlimdu tvöföldu ein- angrunargleri er fyllilega sam- bærileg við erlenda framleiðslu. Það gler sem nú er á markaön- um er miklu betra en gerðist á árunum i kringum 1970 og nú eru komin fram ný og betri efni til að lima glerin saman.” Málmsamsetning hefur reynst best Jón sagöi að könnunin hefði aðallega verið miðuð við sam- limt gler framleitt hér á landi en einnig hefði verið kannað hvernig innflutt gler hefði reynst. Innflutta einangrunar- glerið væri málmsoðið saman á köntunum en ekki limt. Athugað var hvernig það heföi reynst i ibúðarhúsnæöi og kom fram að á þvi höföu verið litlar sem eng- ar bilanir frá 1967 til þessa tima. Sagöi Jón að málsmsamsetn- ingin hefði reynst betur en lim- ingin fyrir gler i ibúðum en vit- aö væri aö málmsamsetningin væri viökvæm fyrir titringi i stærri rúðum. „Þegar við töium um bilanir þá er átt við það að kantasam- setningin gefur sig og rakt loft kemst inn á milli glerjanna og myndar móðu. Þaö kom fram i rannsókninni að bilanir á gleri eru háöar þvi i hvaða átt gluggarnir snúa. Aðalkönnunin fór fram hér á Suðurlandi og þar leikur sunnanáttin tvöfalda glerið lang verst. Minnstar bilanir veröa á gleri er snýr móti norðaustri. Jafnframt kom fram i þessari könnun að isetningu rúöa er mjög ábótavant og sömuleiðis viðhaldi á gluggum. Oft eru gluggafölsin of grunn fyrir ein- angrunarglerið sérstaklega i mörgum eldrihúsanna. Yfirleitt þola rúðurnar vel rok og brotna ekki nema eitthvaö fjúki i þær.” Leiddi könnunin i ljós ein- hvern gæðamismun á fram- leiðslu islenskra verksmiðja? „Já, þaö kemur fram hvaða gler hafa reynst best undanfarin ár en slikar niöurstööur heyra sögunni til. Rannsóknir á fram- leiðslu siöasta ár, þar á meðal rannsóknin i Noregi, sýna að gæði framleiðslunnar eru mjög svipuö.” —ks MYND 6.2 STEFNUDREiriNG BILADRA RÖDA, DAGGARMARK > O'C A þessari skýringarmynd sést að 24,5% af biluðum rúðum snúa f suðurátt. Myndin er tekin úr skýrslu um ástandskönnun einangr- unaglers. rramleiðandis Ailir ftomieióeiidur sunnaiiiands tsetningarár: X963-I07S Skoðaóar rúður: 185.9 Bíiaðar rúður; 260 Stefnuróstn sýnir bilatfvar rúður, sem hundraðshluta allra nueldra rúða í sömu stefnu á suð- vesturhorni landsínss

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.