Vísir - 02.02.1978, Blaðsíða 8
8
19092 SÍMAR 19168
Bjóðum í dag:
BLAZER árg 1973
8 c svartur með öllu. Ekinn 55 þ milur.
SCOUT árgerð 1974
8c með öllu. Ekinn 36. þ. km.
Willys m/blæju árgerð 1974
brúnsanseraður ekinn 75 þ. km.
WILLYS með blæju árgerð 1974
rauður. Ekinn 50 þ. km.
BRONCO sport, árgerð 1974
orange 8 c beinsk. Power stýri og bremsur. Ekinn 43 þ.
km. Skipti
BRONCO sport/ árgerð 1974 1974 8 rauður með
öllu. Ekinn 60 þ. km. Skipti
RANGE ROVER árgerð 1972
grár, 8 c Ekinn 120 þ.km.
MERCEDES BENZ 230 árgerð 1970
svartur. Ekinn 5 þ.km. á vel. Skipti.
VOLKSWAGEN MIKROBUSS árgerð 1970
hvitur. Ekinn 100 þ.km. Góður bill. Verð 750-800 þ. skipti á
Skoda ’75 eða yngri.
r Opið alla daga til kl. 7,
Pl| Alf Jl| nema sunnudaga.
DILA V AL Opið í hádeginu.
Takið 1. apríl samt ekki alvarlega
Gerist óheyrendur hjá BÍLAGARÐI
Áheyrendasímar 29750 og 29480
Stóri Visirinn er á sifelldri hreyfingu
\í
Bilasalan Bílagarður Borgartúni 21
jr
BÍLAGARÐUR
á fullri ferð
nú sem fyrr
Oldsmobile 1971
Um glœsilegu
bilana þrjá verður
svo slegist
Slegist
1. febrúar,
1. april og
1. júní nk.
Subaru st. 1977
Galant 1600 d.l. 1974
2. febrúar 1978
VISIR
Verktal
falið ai
framkvt
flugvell
„Tilgangur fundarins
var að viðra ýmsar hug-
myndir um framkvæmdir
á Kef lavikurf lugvelli",
sagði", sagði Ármann örn
Páll Zophaniasson bæjarstjóri og Hákon Torfason frá menntamála-
ráðuneytinu undirskrifa samninginn en með þeim á myndinni eru
Hermann Einarsson, Reynir Guðsteinsson, Björn Bergsson og Jó-
hann Björnsson. Ljósm. S.J.
Fiskvinnslubraut
fyrirhuguð í haust
Samningur um samræmda
framhaldskennslu i Vestmanna-
eyjum hefur verið formlega stað-
festur milli Menntamálaráðu-
neytisins og Vestmannaeyja-
kaupstaðar.
011 framhaldsmenntun i Vest-
mannaeyjum hefur verið sam-
ræmd á yfirstandandi skólaári og
eru eftirtaldar námsbrautir
starfræktar: Almenn bóknáms-
braut, uppeldis- viðskipta- og
heilsugæslubraut, iðnnám, vél-
stjóranám og stýrimannanám.
Kennsla á fiskivinnslubraut er
fyrirhuguð i haust.
Lokagrein samnings þessa fel-
ur i sér ákvörðun um formlega
stofnun Framhaldsskóla i Vest-
mannaeyjum fyrir skólaár 1978-
1979.
Hákon Torfason, fulltrúi úr
verk- og tæknimenntunardeild
Meúntamálaráðuneytisins kom
með samninginn fyrir hönd
menntamálaráðherra, Vilhjálms
Hjálmarssonar, en Páll
Zóphóniasson, bæjarstjóri undir-
ritaði samninginn fyrir hönd
Vestmannaeyjakaupstaðar, að
viðstöddum forseta bæjarstjórn-
ar, Reyni Guðsteinssyni, Jóhanni
Björnssyni, form. skólanefndar,
Birni Bergssyni, form. undirbún-
ingsnefndar um stofnun fjöl-
brautarskóla i Vestmannaeyjum
og Hermanni Einarssyni, skóla-
fulltrúa i Vestmannaeyjum.
Banna loðnuveiðar
á ákveðnum svœðum
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur i samráði við Hafrannsókna-
stofnunina gefið út reglugerð
um loðnuveiðar árið 1978. Á
timabilinu 15. mars-15. mai eru
loðnuveiðar bannaðar fyrir
Norður- og Austurlandi frá 20
gráðum v. lgd. austur um að
Eystra-Horni, utan 25 sjórhilna
frá viðmiðunarlinu, en frá 15.
maí-15. júli' eru allar loðnuveið-
ar bannaðar.
Svæðislokun sú, sem gildir
timabilið 15. mars-15. mai er
sett vegna þess að seinni hlu.ta
vetrar og á vorin er mestöll önrt-
ur loðna er hrygningarloðna
mjög smá og auk þess mögur og
þvi lélegt hráefni miðað við það
er siðarverður. Svæðalokunin á
að koma i veg fyrir veiðar i ó-
kynþroska smáloðnu án þess að
hindra aðrar loðnuveiðar.
Veiðibannið frá 15. mai til 15.
júli er til þess að tryggja að
tveggja og þriggja ára loðna nái
verulegum hluta sumarvaxtar-
ins, sem er hraður og ennfrem-
ur sæmilegri fituprósentu.
................... <
Ferðaáœtlun 1978
Norðurlönd — vikulega — frá miðjum mai
Bretland — vikulega — allt árið
Búlgaria — 3 vikur —3/07, 22/07, 12/08, 2/09.
Júgóslavia — vikulega — frá miðjum mai
Grikkland — vikulega — frá miðjum mai
Portúgal — vikulega — frá miðjum mai
Kina — 2 og 3 vikur — 27/06, 1/06, 31/08, 16/10.
Sovétrikin — 1,2,3, vikur25/06, 16/07, 28/08, 15/10, 5/11
Siglingar — um Atilan 1 shaf — 24/02, 4/06, 24/06, 9/09.
Miðjarðarhaf o.fl.
Farmiðar i Smyril.
8
Ferðaskrifstofo
KJARTANS HELGASONAR
Skólavörðustig 13A, Simi 29211
Önnumst alla almenna þjónustu — útvegum
flugfarmiða, járnbrautar- og ferjumiða, Hó-
tel, íbúðir og sumarhús. Bílaleiga o.fl.
Ótrúlega lágt verð vegna hagkvæmra samn-
inga.
Reynið viðskiptin — hringið — skrif ið — allar
nánari upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
Opið 8—5 alla virka daga nema laugardaga, og
viðtöl utan þess eftir samkomulagi.
Þessi skilti eru meðal þess sem
Slysavarnarfélag íslands hefur
látið gera en þessa dagana éru
gluggasýningar i tilefni 50 ára af-
mælis félagsins. Sýningarnar eru
á tveim stöðum I Reykjavik. I
glugga Karnabæjar við Lækjar-
götu og i sýningarglugga Lands-
bankans við Laugaveg 77. Sýndur
er ýmiss búnaöur björgunar-
sveitarmanna ásamt fleiru. Og
þar er að finna alls kyns upplýs-
ingar um félagið sjálft. Ljósm:
BP
— EA
Opið tilboð
vegna Hraun-
eyjafoss
Tilboð i vélar, rafbúnað, lokur
og þrýstivatnspipur og stöðvar-
húskrana Hrauneyjarfossvirkj-
unar verða opnuð á morgun föstu-
dag að Hótel Sögu klukkan 15.
Tilboðin munu gilda i hálft ár
frá opnunardegi auk þess sem
Landsvirkjun er áskilinn réttur til
að festa kaup á þriðju vélasam-
stöðunni fyrir virkjunina innan
fjögurra ára frá þvi að tilboði er
tekið.
Annars voru Utboðin miðuð við
kaup á tveimur vélasamstæðum
til virkjunarinnar, og yrði hver
þeirra 70 megavött.