Vísir - 06.03.1978, Side 5
vism Mánudagur 6. mars 1978
5
AUTO 78:
Glœsilegosta bílasýningin sem
haldin hefur verið hér
Bílasýningin AUTO 78 sem
haldin veröur i næsta mánuöi
markar timamót i sögu sýninga
hérlendis. Þetta verður fyrsta
alþjóðlega bilasýningin hér og
jafnframt verður þetta vigsla
nýrrar og glæsilegrar sýningar-
haiiar sem gjörbreytir aðstöðu
til vörusýninga.
A bilasýningunni veröa allir
bilar sýndir innanhúss, jafnt
smábilar sem stærstu vörubil-
ar, svo og hjólhýsi, tengivagnar
og verkstæðisbúnaður. Húsnæði
sýningarhallarinnar að Bilds-
höfða 20 er á tveim hæðum og
þar verða minni bilar til sýnis á
báðum hæðum. Þar er upplýs-
ingamiðstöð, veitingasalur og
um 50 básar þar sem þjónustu-
fyrirtæki kynna sina starfsemi.
Undirbúningsnefnd sýningar-
innar AUTO 78 er skipuð Erni
Guðmundssyni frá Bilgreina-
sambandinu, Sigfúsi Sigfússyni
frá P. Stefánsson, Ragnari
Ragnarssyni frá Jöfri og Þóri
Jenssyni frá Bilaborg.
A blaðamannafundi sem
nefndin hélt á dögunum kom
fram að sýningin hefur hlotið
viðurkenningu aljóðasamtaka
bilaframleiðenda, en höfuð-
stöðvar þess eru i Paris. Til þess
aö hljóta þessa viðurkenningu
þarf að uppfylla ýmis skilyrði,
þar á meðal að sýningin verði
opin öllum bilaframleiöendum,
hvort sem umboð er starfandi
hér eða ekki.
Þarna verða öll umboðin þátt-
takendur nema Hondu«umboðiö
sem afþakkaði að vera með.
Auk bila sem umboðin hafa til
sölu, verða þarna tegundir sem
ekki eru seldar hér, til dæmis
hraðaaksturs- og rallbilar.
Sýningin hefur verið i undir-
búningi frá þvi i september og
verður sérstaklega til hennar
vandað. Þarna verða 150 bílar
og gefst einstakt tækifæri til
samanburðar ýmissa tegunda á
einum stað.
Umboðin hafa ekki efni á að
liggja meö sýningarbila af
hverri gerð sem þau selja og
fram til þessa hafa hér einkum
verið sérsýningar á bilum. Þar
sem nú er fengiö fullnægjandi
sýningarhúsnæði má búast við
aö sýningsemþessi veröi haldin
á tveggja til þriggja ára fresti i
framtiðinni.
AUTO 78 verður opnuð 14.
april af Halldóri E. Sigurðssyni,
samgönguráðherra. Virka daga
verður sýningin opin frá klukk-
an 15-22 og frá klukkan 13-22 um
helgar og á sumardaginn fyrsta.
Næg bilastæði eru við sýningar-
höllina.
I tilefni bilasýningarinnar
veröur gefið út vegleg skrá sem
jafnframt verður uppsláttarrit
um allar gerðir bifreiða sem
fluttar eru til landsins og fróö-
legar upplýsingar um bila. Efnt
verður til bilahappdrættis og
hver aðgöngumiði er happ-
drættismiði. Margir erlendir
gestir hafa boðað komu sina, en
þar er sýningin kynnt sem
Reykjavik Motor Show. -sg
Undirbúningsnefnd sýningarinnar. Frá hægri Þórir Jensson, Ragn-
ar Ragnarsson, Sigfús Sigfússon og örn Guömundsson. (Visism.
BP)
SPEGbABÚÐIN
BAÐHERBERGISAHOLD
Tokmarkaðar birgðir
verzlun: sími: 19635
skrifstofan: Sími: 13333
xxxxxxxxxxx
Sveinn Egi/sson hf.
FORD HÚSINU SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
Ford Fiesta er hannaður með hagkvæmni og ódýran rekstur í huga.
Árangur þess kemur best í Ijós í lítilli bensíneyðslu og sérstaklega góðri
nýtingu á rými. Ford Fiesta: Heimilisbíllinn með framhjóladrifinu
KR. 2.190.000
60 BÍLAR Á SÉRSTÖKU KYNNINGARVERÐI: FIESTA 1100L CA M/RYÐVÖRN
Ford Fiesta er rúmgóður 4 manna bill
með 3 dyrum og sameinar því alla
kosti fólks- og stationbila
Prófkjör Sjálfstæðismanna
vegna borgarstjórnarkosninga
í Reykjavík 1978
Þórunn Gestsdóttir
HÚSMÓÐ/R
X ÞÓRUNN
ÞAÐ ER ÞÖRF FYRIR
ÞÓRUNNI!
Er til viðtals prófkjörsdagana í síma:
82220 - 82221 - 34045
Stuðningsmenn
xxxxxxxxxxx