Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 7
Mánudagur 6. mars 1978
Úrhelli og
ofsarok í
Los Angeles
Hellirigningu, sem
gekk yfir Kaliforníu
um helgina með hvass-
viðri, slotaði i gær. Olli
hún miklum spjöllum
og dauða fimm manna
að minnsta kosti.
Vatnsgangurinn olli
miklum aurskriðum
sem fóru yfir vegi og
skemmdu ibúðarhús
viða, en mest i hliðum
Los Angeles-borgar og
nágrennis, þar sem
kvikmyndastjörnur
eiga heimili sin.
Dauðaslysin urðu öll á laugar-
daginn, þegar úrhellið var mest.
írrkoman mældist 74 sentimetr-
ar (miðað við 86sm árið 1889, en
það er mesta úrkoma sem
mælst hefur á þessum slóðum).
Einn grófst lifandi undir aur-
skriðu, þar sem hann lá i rúmi
sinu i Hollywood. Þjónustu-
stúlka lenti undir skriðu, þegar
hún var á leiðinni milli húsa.
Samtimis þessu gekk ’ann á
með ofsaroki og hús niðri við
sjávarsiðuna voru i hættu af
briminu. Stúdentar mynduðu
hjálparsveitir, sem gerðu
flóðfgarða úr sandpokum til
bjargar þeim húsum sem hætt-
ast þóttu komin.
Slikur var fyrirgangurinn, að
á einum staðnum bar aurskriða
bifreið i gegnum bilskúrsveggi
og niður á næstu götu. Þar lenti
billinn á slökkviliðsmanni og
fótbraut hann, þar sem hann
var að aðstoða fjölskyldu við að
yfirgefa heimili sitt.
Fjöldi gatna og vega lokaðist
af skriðuföllum i San Fernando-
dalnum. Þjóðvarðliðið varð að
nota þyrlur til þess að bjarga
ibúum i þorpinu Fillmore (100
km norðvestur af Los Angeles)á
brott, en þorpið þótti i bráðri
hættu vegna flóða i ánni Santa
Clara.
Fimm fórust í flóðum og skriðuföllum
Þýsku dagblöðin
stöðvast í prent-
araverkfallinu
Tæplega þriðjungur
dagblaða Vestur-Þýska-
lands kemur út i dag, þvi
að útgáfa einna 104
blaða hefur stöðvast i
harðnandi deildu útgef-
enda og prentara út af
nýrri tækni i prentiðn-
inni.
Prentarar vilja nýja samninga
við útgefendur til þess að tryggja
að tölvusetning og tölvuritstjórn
leiði ekki til fækkunar prentara.
Fyrir viku hófu þeir skæru-
verkföll i stöku prentsmiðjum til
þess að reka á eftir samningum.
Útgefendur snerust i mót með
vinnustöðvunum i hinum prent-
smiðjunum.
Eina stóra landsmálablaðið
sem kemur út i V-Þýskalandi i
dag, er Frankfurter Rundschau.
Blöðin koma ekki heldur út i
fyrramálið, en siðdegisblöð koma
sennilega út á morgun.
Bíll órsins
Porsche 928 var valinn bill
ársins 1978 af sérfræðingum,
sem skrifa i 51 bflablað i
Evrópu, og er það fyrsti sport-
billinn, sem nokkru sinni hefur
unnið til þeirrar viðurkenning-
ar.
Porsche er af dýrari gerðinni,
en feikilega vinsæll og eftirsótt-
ur, eins og sést á þvi, að verk-
smiðiurnar hafa ekki undan að
framleiða þvi að niu mánaða
langur biðtimi liður áður en
kaupandi fær hann afgreidc'
Tveir lögreglumenn
voru skotnir til bana og
þrir særðust alvarlega
þegar skothrið úr vél-
byssu var hafin á bifreið
þeirra i Baskabænum
Vitoria i gærkvöldi.
Voru þeir á eftirlitsferð i útjaðri
bæjarins, þegar önnur bifreið ók
þá uppi á mikilli ferð. Þegar bif-
reiðarnar voru samsiða, hófu
árásarmennirnir skothrið.
Enn hafa engin samtök orðið til
þess að lýsa þessu verki á hendur
sér, en mörgum þykir hand-
bragðið likt hryðjuverkasamtök-
um Baska, ETA, sem hafa svarið
þess dýran eið, að láta ekki ör-
yggisverði i friði, fyrr en þeir
hafa verið fjarlægðir úr Baska-
héraðinu.
Þessi árás fylgir i kjölfar ann-
arra, sem gerðar hafa verið i
Baskahéruðunum undanfarið. A
föstudagskvöld var vélbyssuárás
gerð á strætisvagn i Bilbao og
særðust þá þrir lögreglumenn,
sem voru á leið til vinnu. 1 Pamp-
lona særðust tveir lögreglumenn,
þegar bensinsprengjum var
varpað að þeim i uppþoti, sem
varð við mótmælagöngu vinstri-
manna.
Corter grípur
fram í verk-
fall kolakalla
Stjórn Jimmy Carters,
Bandarikjaforseta,
Tómir vagnarnir biöa við nám-
urnar.
hyggst grípa i dag inn i
verkfall kolanámu-
manna, sem lamað
hefur kolavinnslu i land-
inu síðustu þrjá mánuði.
Námamenn höfnuðu i gær, með
yfirgnæfandimeirihluta atkvæða,
sáttatillögu sem Carter forseti
beitti sér fyrir að borin var upp i
deilunni. Hefur blaðafulltrúi for-
setans boðað, að hann hyggist
gripa til 30 ára gamallar laga-
setningar til þess að knýja náma-
menn til starfa.
Efnahagslif landsins þykir hafa
beðið mikið tjón af námaverkfall-
inu þann tima sem það hefur
staðið.
Taft-Hartley-lögin svonefndu
gera ráð fyrir þvi i neyðartilvik-
um, þegar ekki semst i vinnudeilu
i mikilvægum iðngreinum, að
skylda megi verkfallsmenn til að
snúa aftur til starfa i 80 daga
meðan frekari sáttatilraumr fara
fram. Túlkun þessara laga þykir
þó ýmsum vafa undirorpin, og i
fyrri verkföllum hafa námamenn
tvivegis haft þetta lagaboð að
engu.
Mikil harka hefur verið i þess-
ari vinnudeilu og á fundum i fé-
lögum námamanna i gær, þar
sem sáttatillaga Carters forseta
var felld kom fram, að náma-
menn eru hvergi á þvi að gefa sig.
Tillagan hafði falið i sér tilboð um
37% launahækkanir til handa
námamönnum á næstu þrem ár-
um.
Verkfallsverðir stöðva umferð að námunum.