Vísir - 06.03.1978, Page 8
Mánudagur 6. mars 1978 VISIR
fólk
» ® • • • T
o A
w R
9 A Z
9 A
!• 11 N
Sidney og Æomdsay
Greenbush eru sjö ára
tvíburasystur og sjón-
varpsstjörnur í Banda-
rikjunum. Þær sjá
reyndar um sama hlut-
verkið i þætti sem heitir
„Little House on the
Praire". Aðalstjarnan
og framleiðandi þátt-
anna er Michael Landon
sem lék einn af
bræðrunum í Bonanza á
sínum tima. Hann sá
systurnar fyrst f jögurra
ára gamlar í kvikmynd-
inni Sunshineog réð þær
strax til sin í þáttinn. En
hvernig finnst þeim að
leika sama hlutverkið?
„Það er fínt", segja
þær. „Verði aðrir veikir
verða þeir helst að vinna
þannig, en ef önnur hvor
okkar verður veik, þá
getur hin alltaf hlaupið i
skarðið."
í ýmsum hlutverkum
Hann hefur verið í
hlutverki ýmissa kappa
og má þar nefna Ben
Húr, Michelangelo og
Móses. En þarna á
myndinni er Charlton
Heston i hlutverki fjöl-
skylduf öðurins. Með
stjörnunni á myndinni
eru 16 éra dóttir hans,
Holly, móðir hans Lilla
og eiginkonan Lydia.
Þau eru þarna öll að
koma i hanastél í Los
Angeles á dögunum.
9 daga hjónaband
„Það var vitleysa frá
upphafi til enda", segir
leikkonan Brenda Vacc-
aro um hjónaband sitt
og lögfræðingsins Willi-
am Bishop. Niu dögum
eftir að þau gengu i það
heilaga, ákváðu þau að
skilja. Eiginmaðurinn
brást hinn versti við
ástarsenu hennar og
leikarans David Carra-
dine, þegar þau léku
saman, og hélt því fram
að eitthvað meira væri á
milli þeirra. Brenda
sagði karli sínum þá að
hann gæti farið ef hann
vildi, sem hann og gerði.
Leikkonan sem nú er 38
ára gömul, kvaðst hafa
lært það af reynslunni,
að hún gengi aldrei i
hjónaband framar.
Umsjón: Eddo Andrésdóttir
Tarsan og Ben Lin ton höfðu *'
vonast til að koinast yfir vegginn
»n hann féll niður og Tarsan
fékk í sig stóran stein.
Ben sem var ósærður
skreið að félaga slnum til
að hjálpa honum.