Vísir - 06.03.1978, Qupperneq 14

Vísir - 06.03.1978, Qupperneq 14
14 SPEGbABÚÐIN Laugavegi 1 5 sími: 1 9635 PASSAMYIVDIR teknar i litum tilbúnar strax I barna & f fölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 Urval af bílaáklæðum (coverum) Sendum í póstkröfu. Altikabúðin Hverfisgötu 72. S. 22677. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Sími 15105 MUNIÐ Frimerkjasöfnun félagsins Innlend & erl. skrifst. Hafnar- str. 5. Pósthólf 1308 eða simi 13468. Mánudagur 6. mars 1978 VÍSIR Félagsmenn í Sókn á Kópavogshœli: „ASÍ-forustan svíkur lýðrœðis- hefðirverkalýðshreyfingarinnar" Fundur félagsmanna i Starfs- mannafélaginu Sókn á Kópavogs- hæii, haldinn sl. þriðjudag, mót- mælti harðlega nýsamþykktum iögum um efnahagsráðstafanir. Jafnframt gagnrýndi fundurinn miðstjórn ASt fyrir ólýðræðisleg- ar starfsaðferðir. Fundarmenn telja að lögin um efnahagsráðstafanir stefni þvert á samningsrétt og sjálfstæði verkalýðsfélaganna og hafi alvarlega kjaraskerðingu i för með sér fyrir launafólk i landinu. Telja félagsmenn i Sókn á Kópavogshæli að verkafólk hafi ekkert tækifæri fengið til að ræða baráttuaðferðir. Samstaða sú sem ASl forustan hafi byggt upp sé samstaða fárra forustumanna. Aðgerðir eigi að ákveða á félags- fundum og vinnustöðum. Starfs- aðferðir forystu verkalýðs- hreyfingarinnar séu þvi svik við lýðræðis- og baráttuhefðir verka- lýðsins. Þvi leggur fundurinn til að Sókn hafni starfsaðferðum ASt-foryst- unnar og hefji á ný baráttuna fyr- ir lágmarkslaunum og fullum vísitölubótum. — KS sjómaður i Vestmannaeyjum og likar alveg bærilega, takk. ,,Ég tel mig nú ekki vera búinn að kveðja poppheiminn fyrir fullt og allt”, sagði Herbert. „En það er ágætt að losna úr þessu, að minnsta kosti um stundarsakir. Annars likaði mér mjög vel að vinna að þessari hljómplötu og hef jafnvel hug á aðfara út I aðra. Hver veit nema hún yrði með sjó- mannalögum”, sagði Herbert, kankvis. Hljómsveitin Eik sér um undir- leik á plötunni ,,A ströndinni”, sem sennilega er best að flokka sem islenskt rokk. Lögin eru flest eftir Herbert, og textar eftir Hilmar Orn Hilmarsson. Einnig á islensk-bandariskur náungi, Mike Pollock, tvö eða þrjú lög á plöt- unni. —GA Baldur í Skjold Leikfélagið Baidur á Bildudal frumsýnir i næstu viku Skjald- hamra eftir Jónas Arnason. Leik- stjóri er Kristín Anna Þórarins- dóttir. Þetta er tiunda verkefni leik- félagsins, en það er nú tólf ára gamalt. Fyrirhugað er að sýna Skjaldhamra á Vestfjörðum, og jafnvei viðar. — HS, Bíldudal/— ÓT. Herbert á Ströndinni Herbert Guðmundsson, sem flestir poppunnendur kannast mætavel við, hefur sent frá sér sóióplötuna ,,A ströndinni”. Hún mun hafa komið i verslanir i fyrradag. Platan var tekin upp i Hljóðrita I Hafnarfirði á siðasta ári. „Það varð að samkomulagi með Fálkanum, sem gefur plöt- una út, og þeim, sem að henni stóðu, að biöa með útgáfu hennar þar til plötuflóðið um jólin væri farið að sjatna”, sagði Herbert i samtali við Visi. Herbert sagði að beðið hefði verið með plötuna svo að hún drukknaði ekki i flóðinu. „Við teljum okkur hafa það mikið að segja á þessari plötu, að ákveðið var að biða með útgáfuna”. Sem kunnugt er hefur Herbert litið komið nálægt poppbransan- um að undanförnu. Hann er nú Herbert kynnir plötu sina á óðali. Vfsismynd JA. Prófkjör Sjálfstœðismanna í Reykjavík: KOSIÐ I DAG í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl. 15:30 - 20:30 • Atkvœðisréttur Atkvæðisrétt I prófkjörinu hafa allir stuðningsmenn D-listans i borgarstjórnarkosningunum, sem náð hafa 20 ára aldri 28. mai 1978 og lögheimili áttu i Reykjavik 1. des. 1977, einnig allir með- limir Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik, sem lögheimili áttu i Reykjavik 1. des. 1977. • Útfylling atkvœðaseðilsins Á atkvæðaseðil er nöfnum frambjóðenda raðað eftir stafrófsröð. Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur og flest 12. Skal það gert með þvi að setja kross fyrir framan nöfn frambjóðenda, sem viðkom- andi óskar eftir að skipi endanlegan framboðslista. • Flokksbundnir og ófiokksbundnir Rétt er að vekja athygli á þvi að þátttaka í prófkjörinu er opin óflokksbundnum stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins ekki siður en hinum flokksbundnu. • Upplýsingar Á meðan kosning stendur yfir er starfrækt sérstök upplýsinga- miðstöð og eru þar veittar allar nauðsynlegar upplýsingar. sem varða prófkjörið. Simi upplýsingamiðstöðvarinnar er 82900. YFIRKJÖRSTJÓRN

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.