Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 19

Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 19
 23 VISIR Mánudagur 6. mars 1978 M\\ Ð 19 000 — salurA— Eyja Dr. Moreau Burt Lancaster Michael York Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05 9 08 11 B' ------salur IB>---- My Fair Lady Sýnd kl. 3, 6.30 og 10. -salur' Gríssom bófarnir Sýnd kl. 3.10, 5.30 8 og 10.40. ■ salur Dagur í lífi Ivan Denisovichs. Sýndkl.3.20, 5.10, 7.10, 9.05 og 11.15. Simi 50184 Hefnd Karatemeistarans Sýnd kl. 5 og 9. Allra siðasta sinn ST 1-15-44 Svifdrekasveitin Æskispennandi ný bandarisk ævintýra- mynd um fifldjarfa björgun fanga, af svif- drekasveit. Aðalhlut- verk: James Coburn, Susannah Yorkog Ro- bert Culp. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 2F 2-21-40 Mánudagsmyndin Eglantine Ljómandi falleg frönsk litmynd. Leikstjóri: Jean- Claude Brialy Sýnd kl. 5, 7 og 9 Berlingske Tidende gaf þessari mynd 5 stjörnur og Ekstra Bladet 4 "S 1-89-36 Tonabíó ÍS* 3-11-82 Gauragangur í gaggó. Það var siðasta skóla- skylduárið .... siðasta tækifærið til að sleppa sér lausum. Leikstjóri: Joseph Ruben Aðalhlutverk: Robert Carradine, Jennifer Ashley. Sýnd kl. 5 7 og 9. flll^JARHIII íS* 1-13-84 Maðurinn á þak- inu (Mannen pa taket) Sérstaklega spenn- andi og mjög vel gerð ný sænsk kvikmynd i litum, byggð á hinni þekktu skáldsögu eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö en hún hefur verið að undanförnu miðdegissaga út- varpsins. Aðalhliútverk: Carl Gustaf Lindsted, Sven Wollter. Bönnuð innan 14 ára. Sýndkl. 5, 7.10 og 9.15. Crash Hörkuspennandi ný bandarisk kvikmynd. Aðalhlutverk: Jose Ferrer, Sue Lyon og John Carradine. Isl. texti. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 Bönnuð börnum innan 16 ára. hafnarbíD ÍS* 16-444 Custer Stórbrotin og spenn- andi bandarisk Pana- visionlitmynd, um ævi Georg Armstrong Custer, hershöfð- ingjans umdeilda. ROBERT SHAW MARY URE Islenskur texti Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 3 — 5.30 — 8.30 og 11 Odessaskjölin Islenskur texti. Æsispennandi ný amerisk-ensk stór- mynd. Aðalhlutverk: Jon Voigt, Maximilian Schell, Maria Schell. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Bönnuð innan 14 ára. LISTDANSSÝNING Frumsýning miðviku- dag kl. 20. 2. og siðasta sýning fimmtudag kl. 20. ÖDÍPUS KONUNGUR föstudag kl. 20. Gul aðgangskort frá 5. sýningu og aðgöngu- miðar dags. 2. mars gilda að þessari sýningu. Litla sviðið: ALFABETA gesta- leikur frá Leikfélagi Akureyrar þriðjudag kl. 20.30 miðvikudag kl. 20.30 FRÖKEN MARGRÉT fimmtudag kl. 20.30 Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200 GRÆNJAXLAR á Kjarvalsstöðum þriðjudag kl. 20.30 miövikudag kl. 20.30 fimmtudag kl. 20.30 Miðasala þar frá kl. 18.30 Umsjón: Arni Þórarinsson 3g Guðjón Arngrlmsson Austurbœj- arbíó: Sœnsk snilli Austurbæjarbió: Maðurinn á þakinu. (Manden pa Taket) Sænsk/ árgerð 1976. Leikstjórn og hand- rit Bo Widerberg. Myndin er gerð eftir sögu hjónanna Maj Sjöwall og Per Wal- höö. Aðalleikarar Carl Gustaf Lind- stedt# Sven Wollter/ Thomas Hellberg og Hakan Serner. Hér er afburðamynd á ferðinni. Spennandi lög- regluþriller og sam- félagslýsing i senn meö sérlega eftirminnilegum persónum og raunsæi sem stingur i augu. Bygging myndarinnar er óvenjuleg. Hún byrjar rólega, sýnt er inn I skuggsælt herbergi þar sem maður er að klæða sig i yfirhafnir. Hann fer siðan út. Næst sjáum við sjúkl- ing á sjúkrahúsi, sem greinilega er þjáður. Allt er mjög rólegt. Allt i einu er hann myrtur. Þá breytir myndin um tempó i nokkrar sekúndur, enda er morðið með þeim blóð- ugri sem maður sér I bió, framið með byssusting. Siðan kemur aftur þetta sallarólega — við fylgj- umst með rannsókn málsins, gægjumst inn á heimili lögreglumann- anna, kynnumst þeim og innbyrðissambandi þeirra. Smám saman skýrist málið, og þegar lögreglan er i þann mund að finna lausnina, er morðinginn kominn uppá þak i mið- borg Stokkhólms og skýt- ur á alla lögregluþjóna sem hann sér. Þá breytir myndin alveg um svip, hraði, hlaup, hróp og köll. og skytteri verða ein- kenni þegar reynt er að ná til morðingjans. Þannig er siðari hlutinn i rauninni gjörólikur þeim fyrri. En þá erum við lika búin búin að kynnast þeim sem skipta máli. — Martin Beck, lögreglu- manni á sextugsaldri, sem býr stirðri sambúð við konu sina, er veikur fyrir sætindum, og fer I „massage” til að hressa sig viðy Carl Gustaf Lind- stedt sýnir stórkostlegan lcik i þessu hlutverki, — Kollberg, yngri manni, ieiknum af Sven Wollter (Röskur I sjónvarpinu á sunnudagskvöldum) sem hefur heldur lítið yndi af starfinu. — Einari Rönn samstarfsmanni Martins, ógiftum, lúmskhæðnum, þreyttum karakter. — Og Gunnvald Larsson, töffaranum i hópnum, sem þolir vart að sjá Kollberg. Þessir fjórir sjá um rannsókn málsins, en auk þeirra eru i myndinni aukahlutverk sem eru eftirminnileg. Foreldrar morðingjans Eriksons, ekkja þess myrta og vin- ur hans úr lögreglunni. öllum þessum hlutverk- um eru gerð nánast ein- stök skil. Það er gaman aö velta fyrir sér muninum á þessari mynd Widerbergs (Elvira Madigan) og hvernig hún sennilega væri ef hún væri banda- risk. Það ætti fólk að gera. Hér er raunsæið mun meira. Það vantar ungu piuna, sem beinlinis hlyti að vera i bandariskri úrfærslu. Widerberg hcf- ur lika myndavélina á fleygiferð svotil allan timann og það setur fréttamyndasvip á at- burði. Ekki missa af henni þessari. — GA Ungt og leikur sér Gauragangur í gaggó — The Pom Pom Girls, Tónabíó. Bandarísk. Argerð? Aðalhlutverk: Ro- bert Carradine/ Jennifer Ashley/ Michael Mullins/ Lisa Reeves. Hand- rit og leikstjórn: Joseph Ruben. „Það var siðasta skóla- skylduárið... siðasta tækifærið til að sleppa sér lausum” segir i auglýs- ingu biósins á kvikmynd- inni Gauragangur I gaggó. Og einmitt þessu lýsir myndin: Hvernig gáskafull bandarísk ung- menni svalir gæjar og flottar piur, sleppa sér lausum siðasta skóla- skylduárið i allra handa uppátækjum og uppáferð- um í aðskil janlegum tryllitækjum. Myndin er alveg óvenjuleg ófrum- leg. Hún tekur mið af öll- um helstu unglingalifs- myndun sem gerðar hafa verið frá þvi American Graffiti hratt bylgjunni af stað fyrir nokkrum árum. Afturámóti hefur hún ekki uppi neina tilburði I átt til raunsæislegrar um- fjöllunar á árunum upp úr gelgjuskeiðinu. Þetta er fyrst og siðast gaman- Tónatbíó: Gauragangur ígaggó mynd. Sem slík er hún I lagi en ekki meir. Handrit er andlaust, en hinn fjör- legi ungi leikhópur gerir myndina heldur þægilega og þekkilega á aö horfa með leikgleði sinni. —AÞ Hriiturinn 21. mars—20. april Láttu vini þina hjálpa þér til að ná settu marki. Það er einhver breyting fyrirsjáanleg á fjármálum þinum eða viðskiptasam- böndum, liklega á betri veg. Nautið 21. april-21. mai Utanaðkomandi áhrif hjálpa þér til að ná lengra á framabraut þinni. Tv iburarnir 22. mai—21. júni Þú hefur meiri áhuga á fólki sem umgengst þig ekki daglega, heldur en þvi sem er i kringum þig. Fylgstu vel með daglegum fréttum. Auktu við þekkingu þina. Krabbinn 21. júni—23. júii Legðu áherslu á sparnað og reyndu að nota vel það sem þú hefur. Minnkaðu við þig óþarfa eyðslu. l.jonif) 24. jú 1 i— 23. ágúst Vertu samstarfsþýöur og sýndu áhuga þinn á umhverfinu. Hjálp- semi þin við ákveðinn vin þinn vekur athygli og ánægju. Meyjan 24. ágúst—23. sept. Alli sem þú byrjar á mun leika i höndum þér. Þú skalt umgang- ast fólk með bros á vör. Leitaðu ráðlegg- inga i sambandi við 1/rirhugaðar breyt- ingt r. Vogin 24. sept. —23. okl Þú færð tækifæri til að reyna á stjórnunar- hæfni þina. Aðrir hafa þörf fyrir þina sér- stöku hæfileika. Vertu hugmyndarikur. Drekinn 24. okt.—22. nóv Legðu áherslu á fjöl- skyldutengsl. Reyndu að ná meira jafnvægi i lif þitt. Mundu að smekkur manna er misjafn. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des. Fygldu eftir sigrum gærdagsins. Þetta er góðurdagur til að fara i verslanir. Treystu vináttubönd. Steingeitin 22. des.—20. jan. Þú finnur góða leið til að auka tekjur þinar. Þreifaðu þig áfram með ýmsum aðferð- um. 21.—19. febr. Reyndu að stefna að einhverju ákveðnu marki meö festu og öryggi. Þú veröur i fararbroddi i kvöld. Fiskarnir 20. febr.—20. mars Þú gætir lent i sam- bandi við manneskju, sem á við erfiðleika að striða. notfærðu þér þina velþekktu hjálp- semi en með raunsæi þó.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.