Vísir - 17.03.1978, Qupperneq 24
VÍSIB
Talsverftar skemmdir uröu á bllunum. Ljósm: Agúst
tsfjörö.
Tveir
á slysa
deild
eftir árekstur
Tveir voru fluttir á slysa-
deild eftir árekstur sem
varö I Vesturbergi i
Breiðholti rétt eftir klukk-
an hálf ellefu í gærkvöldi.
Jeppi og sendiferðabill
lentu þar saman og uröu
talsverðar skemmdir á bil-
unum. Er ökumaður sendi-
ferðabilsins grunaður um
ölvun við akstur. Þeir tveir
sem voru fluttir á siysa-
deild, ökumaður og farþegi
úr jeppanum, munu ekki
hafa slasast aivarlega.
—EA
GRJÓTJÖTUNSMÁLIÐ:
DOMARI VILL YFIR-
HEYRSLUR í NOREGI
Dómari i Grjótjötunsmálinu hefur
óskað eftir þvi við rikissaksóknara að
teknar verði dómsskýrslur af ákveðn-
Þegar skýrslurnar gerð, en sfðan verður
liggja fyrir fá verjendur rnálið tekið til dóms.
^^rest til að skila greinar- Við kaupin á Grjótjötni
um aðilum i Noregi. Er nú beðið eftir
þvi að þessar skýrslur berist til Iands-
ins.
frá Noregi var kaupverð
skipsins skráð hærra í
samningum en það raun-
verulega vaT. Rikissak-
sóknari gaf út ákæru á
hendur tveim mönnum
— SG
1
I
I
I
I
I
I
I
J
Setuverkffall i morgun
Hafnarverkamenn fóru I tveggja tíma setuverk-
fail i morgun til að mótmæia kjaraskeröingu sem
þeir telja sig hafa orðiö fyrir.
Visir fékk pær upp
lýsingar hjá Dagsbrún
að verkamennirnir
teldu sig vanta tvo tima
upp á það kaup sem um
var samið-en laun voru
borguð út I gær.
Til að mótmæla þessu
unnu þeir ekkert frá kl.
8-10, en voru allir mætt-
ir á vinnustað. Óvist er
um frekari aðgerðir af
þeirra hálfu.
—ÓT
Erfiðlega geng-
ur að ákveða
frádráttinn ;
Enn hefur ekki veriö tekin ákvöröun um hve mik-
ið verður dregið af launum rikisstarfsmanna sem
tóku þátt I verkfallinu 1. og 2. mars. Rikisstjórnin
mun hafa rætt þetta mál á fundi sinum i gær.en eng-
in ákvörðun tekin.
Guðmundur Karl
Jónsson deildarstjóri
launadeildar fjármála-
ráðuneytisins sagði i
morgun að hann hefði
vonast eftir ákvörðun á
hverjum degi i viku og
hann gæti þvi ekki sagt
hvenær málið leystist.
—SG
Bœjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi
Menn úr mörgum flokkum
foman á borgaralista
Menn úr öilum stjórnmálaflokkunum hafa komið sér
saman um framboðslista við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar I Kópavogi I vor og verður listinn kaliaður
„Borgaralistinn”. Efsta sætið skipar Sigurjón Ingi
Hilariusson, bæjarfulltrúi Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna i Kópavogi.
1 bæjarstjórn Kópavogs
eiga ellefu fulltrúar sæti,
en meirihluta mynda
fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, sem eru fjórir,
og Framsóknarflokksins,
sem eru tveir. í stjórnar-
andstöðu eru þrir
fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins, fulltrúi Alþýðu-
flokksins og fulltrúi
Samtakanna.
I ellefu efstu sætum
Borgaralistans eru eftir-
taldir menn:
1. Sigurjón ■ Ingi
Hilariusson, bæarfulltrúi,
2. Alexander Alexanders-
son, verkstjóri. 3.
Sigurður Einarsson,
tannsmiður, 4. Jón
Armann Héðinsson,
alþingismaður. 5.
Sigurður Helgason, lög-
fræðingur. 6. Birna
Agústsdóttir, tækn'i-
teiknari 7. Björn Einarss
son, framkvæmdastjóri. 8
Guðleifur Guðmundsson,
kennari. 9. Hrefna
Pétursdóttir, húsmóðir.
10. Hákon Hákonarson,
auglýsingastjóri. 11.
Hinrik Lárusson, sölu-
maður.
Eins og sjá má af þess-
ari upptalningu standa að
listanum þekktir einstak-
lingar úr ýmsum flokkum
— Sigurjón Hilariusson
úr SFV, Jón A. Héðins-
son, alþingismaður Al-
þýðuflokksins, Sigurður
Helgason, fyrrverandi
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins i Kópavogi og
Björn Einarsson, fyrr-
verandi bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins i
bænum.
Borgaralistinn mun
gefa út málgagn fyrir
páska þar sem gerð
verður grein fyrir listan-
um og baráttumálum
hans. —ESJ
Wí
m . ijmm M
Guöbjörg Vilhjálmsdóttir er fegrunarsérfræöingur
aö mennt. Hún varö fjóröa i keppninni Ungfrú
Evrópa.
Þú Reykja
víkurmoer
— Guðbjörg varð ffjórða
í „Ungfrú Evrópa'
iȒ
Guöbjörg Vilhjálmsdóttir 19 ára Reykjavlkur-
mær, varö fjórða I keppninni Ungfrú Evrópa sem
haldin var i Finnlandi I fyrrakvöid.
Guðbjörg varð
fimmta i keppninni
um titilinn Ungfrú Is-
land en þriðja i keppn-
inni Ungfrú Reykja-
vik. Fyrir nokkru tók
hún þátt i keppninni
Ungfrú Norðurlönd og
varð þar einnig i
fjórða sæti.
Átján ára stúlka frá
Austurriki, Eva
Duringer var kosin
Ungfrú Evrópa, en
þýska stúlkan Dag-
mar Winkler varð I
öðru sæti. Þátttak-
endur i keppninni i
Finnlandi voru fimm-
tán.
—KP
I
I
I
I
I
I
I
Aftaka í Arabfu — Lögregluvakt í Reykjavík
„Mannfjöldinn tekur mjög að ókyrrast og við gerum okkur
greinfyrirað manninn eigi að hálshöggva. Arabarnir fara að
hoppa upp til að sjá betur. Okkur var farið að líða illa og við
hoppuðum ekki”. Þetta segir Björn Stefánsson, starfsmaður
Flugleiða m.a. i viðtali við Sæmund Guðvinsson, blaðamann
sem birtist i Helgarblaði Visis á morgun. Björn og tveir aðrir
íslendingar urðu vitni að óhugnanlegri aftöku i Jeddha i
Saudi-Arabiu.
Helgrblaðið verður alls
44 bls. nú fyrir páska þvi
auk 28 siðna blaðs á
morgun mun 16 siðna lit-
prentað blað fylgja Visi á
miðvikudag. 1 fyrri hluta
Páska-Helgarblaðsins á
morgun verður fjölbreytt
lesefni auk fyrrnefnds
viðtals m.a. frásögn Eddu
Andrésdóttur, blaða-
manns og myndir Björg-
vins Pálssonar frá nætur-
vakt sem þau vörðu með
lögreglunni í Reykjavik,
þar sem fram kemur sitt-
hvað fróðlegt um lif og
starf i lögreglu höfuð-
borgarinnar.
Þá er viðtal Páls Páls-
sonar við Þorstein Egg-
ertsson, afkastamesta
textahöfund á íslandi
með meiru. Samtalið
nefnist: ,,Ég er sennilega
Islandsmeistari i bulli!”
Guðjón Arngrimsson,
blaðamaður fjallar um
endurreisn kvikmynda-
gerðar i Hollywood, Sig-
urveig Jónsdóttir blaða-
maður skrifar lokagrein
sina um safnara og ræðir
við Sigurð og Harald
Ágústssyni sem safna
annars vegar fundarboð-
um og hins vegar viðar-
tegundum og ýmislegt
annað lesefni verður i
blaðinu. Nánar verður
sagt frá efni siðari hluta
Páska-Helgarblaðs í Visi.
I
I
I
I
I
I
I
DREGIÐ 1. APRÍL n.k. um hinn glœsilega FORD FAIRMONT árgerö 78- aö verómæti 4.1 millj. kr. Ertu orðinn óskrifandi? 1 WgffilSími 8661I PgSTTll