Vísir - 28.03.1978, Blaðsíða 28
Arnarflugsvélin sem bilaOi i London á laugardag. Þaft
var framhjólaútbúnafturinn sem lét undan eftir lend-
ingu. Vélin er i litum Air Malta. Visismynd: Baldur
Sveinsson
Um 300 Arnarflugs-
farþegar heim í dag
Hátt i 300 Arnarflugsfarþegar, sem töfftust erlendis
vegna bilunar i Boeing-þotu féiagsins vift lendingu á
Heathrow-flugvelli I London á laugardaginn, koma til
landsins i dag.
Stefán Halldórsson hjá
Arnarflugi tjáði VIsi i
morgun, að töfin hefði
snert um 420 farþega er-
lendis og tvo erlenda hópa
hérlendis.
,,Það voru 140 manns i
ísrael, en þeir voru fluttir
með leiguflugvél til
Luxemborgar og koma
heim siðdegis i dag með
Flugfélagsvél. Um 130
manna hópur var i London,
og kemur hann siðdegis I
dag með Air Lingus-vél.
Um 150 manna hópur var i
Dublin, og komu flestir
þeirra með Air Lingus vél i
gærkvöldi, en hinir koma
meö sömu vél I dag.
Sérfræðingar frá Boeing-
verksmiðjunum skoða nú
Arnarflugsvélina i London;
er ekki enn ljóst hversu
lengi hún verður úr notkun.
-ESJ.
TVÍÉlR PIL T-1
AR FÓRtfSTj
I SNJÓnÖMj
— œtluðu að ganga ffrá Neskaupstað yffir í Mióaffjörð
Tveir piltar fórust i snjóflóði þegar
þeir hugðust ganga frá Neskaupstað
yfir Gunnólfsskarð á páskadag.
Piltarnir hétu Sævar Ásgeirsson, 18 ára
Þeir Sævar og Hólm-
steinn höfðu ætlað sér að
fara gangandi frá Nes-
kaupstað yfir að Reykj-
um i Mjóafirði yfir
Gunnólfsskarð. Lögðu
þeir af stað um klukkan
tvö á páskadag vel búnir.
Sæmilegt verður var þá
en eftir þvi sem leið á
daginn versnaði veðrið og
gerði skafrenning og élja-
gang.
Þegar piltarnir höfðu
ekki komið aö Reykjum
um kvöldið á milli klukk-
an sjö og átta var farið að
óttast um þá. Fljótlega
gamall, og Hólmstemn Þórarinsson, 17
ára gamall. Þeir voru báðir búsettir á
Neskaupstað.
var gerður út flokkur til
leitar en þá var orðiö
dimmt og éljagangur.
Fjöldi manna bættist i
leitina og um nóttina varð
séð að snjóflóð hafði orðið
I skarðinu. Var leitinni
haldið áfram en um
klukkan tiu i gærmorgun
fundust lik Sævars og
Hólmsteins og höfðu þeir
þá órðið fyrir snjóflóðinu.
Talið er að þeir hafi verið
búnir að ganga I um það
bil tvo klukkutima þegar
þetta hörmulega slys
varð.
—EA
Kvartmiluklúbburinn gekkst fyrir bilasýningu núna um páskahelgina í
Laugardalshöllinni. Fjöldi fólks skoðaði tryllitækin á sýningunni, og eins og sést á
þessari mynd Björgvins Pálssonar, voru margir þungt hugsi.
: ~
Er hœgt að fara e kring-
um þerskveiðibannið?
________________________j
— Fjórir bátar kaarðir í Vestmannaeyium
Fjórir bátar frá Vestmannaeyjum hafa
verið kærðir fyrir meint brot á reglum
um þorskveiðibann er gilti um páskana.
Landhelgisgæslan fór
um borð i þessa báta á
laugardagskvöld og var
þorskur um 25-50% af
heildarafla en leyfilegt
hámark er 15%. Að sögn
Júliusar Georgssonar,
fulltrúa bæjarfógeta i
Vestmannaeyjum, komu
bátarnir að landi á
laugardagskvöld vegna
þess að páskadagur er
fridagur, en hins vegar
ætluðu þeir ekki að landa,
þvi að þeir töldu veiðiferö
ekki lokið. Taldi Július að
þeir myndu ljúka rann-
sókn þessa máls i þessari
viku og senda það siðan
til rikissaksóknara.
Að sögn Þrastar Sig-
tryggssonar hjá Land-
helgisgæslunni hafa ekki
fleiri bátar verið kærðir
fyrir brot á þorskveiði-
banninu. Taldi Þröstur að
þessar reglur vera mjög
götóttar. Bátar sem hefðu
veitt yfir hámark þorsks
af heildarafla meðan á
banninu stóð gætu ein-
faldlega beðið með að
landa þar til þvi væri lok-
ið, en það rennur út i dag.
-KS
Ung kona
kœrir
naubgun
Ung kona hefur kært
mann fyrirnauðgun um
aðfaranótt föstudagsins
langa. Maðurinn er nú i
varðhaldi. Hann hefur
ekki viðurkennt
nauðgun, samkvæmt
upplýsingum sem Visir
fékk hjá rannsóknarlög-
reglunni i morgun.
Maðurinn mun hafa
boðiö konunni far i bil
sinum þar sem hann
hitti hana á Hringbraut
og þáði hún það. Hann
mun hafa ekið út á Sel-
tjarnarnes þar sem hún
segir hann hafa komið
vilja sinum fram. Kon-
an náði númerinu á bil
mannsins og náði lög-
reglan honum fljótlega.
—EA
Innbrof
um helgina
Brotist var inn I
Áfengis- og tóbaks-
verslun rikisins vift
Snorrabraut aftfaranótt
föstudagsins langa.
Tveir ungir menn
reyndust vera þar aft
verki og voru þeir hand-
teknir.
Þá var um helgina
brotist inn i herradeild
P.Ó. og þaðan stolið
átta þúsund krónum.
Innbrotið er upplýst.
Ferðaávisunum var st-
olið af sænskum ferða-
manni á Hótel Loft-
leiðum. Úr húsi i Eski-
hlið var stolið 150 þús-
und krónum. Brotist var
inn i hús i Hafnarfirði,
sundlaugina i Kópavogi
og Þinghólsskóla.
Piltur sem reyndist
vera með óvenju mikið
af sigarettum milli
handanna var gripinn
og reyndist hafa á sam-
viskunni innbrot i
sjoppu við Siðumúla.
Annar var gripinn með
talsvert af peningum og
hafði sá brotist inn á tvo
staði fyrr i vetur.
Þá var einn maður
tekinn fyrir tékkafals
uppá rúmar 250 þúsund
krónur. Innbrot voru
einnig framin i Nýgrill i
Breiðholti og verslun
við Bústaðaveg. —EA
Kena fféll f
höffnina
Kona féll i höfnina að-
faranótt páskadags.
Konunni. sem er um
þritugt.var fljótlega
bjargað og var hún flutt
á slysadeild. Henni mun
ekki hafa orðið meint af
volkinu. —EA
Tveimur
sieppt úr
gœsiu
Tveir menn eru enn I
gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknarinnar á
fikniefnamálinu sem
rannsakað hefur verið
að undanförnu. A skir-
dag var tveimur sem
verið hafa i gæsluvarð-
haldi sleppt. Þeir voru
fyrir nokkru úr-
skurðaðir i varðhaldið
vegna annars máis.
—EA
Rúðubret
Þó að páskarnir hafi
verið rólegir i Reykja-
vik og viðar að þessu
sinni, var þó i ýmsu að
snúast hjá lögreglunni.
Til dæmis var nokkuð
um rúðubrot i borginni.
Meðal annars voru
brotnar rúður i Al-
þingishúsinu og i
bandariska sendi-
ráðinu. Þeir sem þar
voru að verki munu
hafa náðst. —EA
DREGIÐ 1« APRÍL n.k. um hinn gSœsiiega
FORD FAIRMONT argeró '78, aó verðmæti 4,1 millj. kr.
t.