Vísir - 29.03.1978, Page 10

Vísir - 29.03.1978, Page 10
10 Miðvikudagur 29. mars 1978 VÍSIR utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjdri: DaviA Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólatur Ragnarsson Ritstjórnartulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund- ur Petursson. Umsjón meö helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda And résdottir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jonína Mikaelsdóttir. Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson. Ljósrnyndir: Björgvin Palsson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jon Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson Auglysinga- og sölustjóri: Pall Stefánsson Askriftargjald er kr. 1700 á Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson mánuði innanlands. Auglysingarog skrifstofur: SiðumúlaS. Verð i lausasölu simar86611 og 82260 kr. 90 eintakið. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 sími 86611 Prentun Ritstjórn: Siðumúla 14 sími 86611 7 linur Blaðaprent h/f. Sundurlyndi i rikisstjórninni Afsögn þriggja stjórnarmanna Rafmagnsveitna rikisins er án nokkurs vafa með meiriháttar póiitísk- um viðburðum. Hún er uppreisn gegn dr. Gunnari Thoroddsen orkumálaráðherra og verulegt pólitískt áfall fyrir hann. Þær staðreyndir, sem liggja að baki þessari ákvörðun hljóta að hafa áhrif við stjórnar- myndun að kosningum loknum. í raun og veru er afsögn þremenninganna afhjúpun á f jármálaóreiðu, sem viðgengist hefur í orkubú- skapnum á undanförnum árum. En hún sýnir einnig þá jákvæðu hlið á stjórnkerf inu, að þar eru menn, sem geta risið uppgegn óábyrgri f jármálastjórn ráðherra. Ákvarðnir fyrrverandi stjórnar Rafmagnsveitna rikisins varðandi f járfestingar á þessu ári bera vott um ábyrga f jármálastjórn. Það mál, sem olli því að stjórnin varð að segja af sér, er dæmigert um þetta, þó að það sé aðeins einn angi af þeim ágreiningsefn- um, sem komið hafa upp milli stjórnarinnar og orku- ráðherra. Raf magnsveitur rikisins eiga í gífurlegum skulda- erf iðleikum og rekstrarhalli síðustu tveggja ára nem- ur tæplega 500 milljónum króna. Fyrirtækið hefur ekki haft fétil ráðstöf unar í því skyni að leysa út efni í svonefnda Austfjarðalinu. Við þessar aðstæður tók stjórnin þá ábyrgu ákvörðun að takast ekki á hendur frekari f járskuldbindingar meðan ekki fengist viðun- andi lausn á f jármálaógöngum fyrirtækisins. Ráðherra var á annarri skoðun og taidi það meira að segja til embættisskyldu sinnar að fyrirskipa for- stöðumanni Rafmagnsveitnanna að panta án tafar efni í svonefnda Vestf jarðalínu. Þessi fyrirskipun var gef in þó að sérstök nef nd, sem ráðherrann skipaði til þessaðgera tillögur um f jármálalega endurreisn fyr- irtækisins, hafi beinlínis lagt til að þessu verki yrði skotið á frest. Að öðrum kosti þarf rikisstjórnin að afla erlends lánsf jár til verksins. Það brýtur á hinn bóginn gegn yfirlýstri stefnu rikisstjórnarinnar um takmörkun er- lendra lána á þessu ári Hér hefur þvi minnisvarðapóli tíkin enn einu sinni verið tekin fram yf ir ábyrga f jár- málastjórn. Þetta mál sýnir einnig alvarlegt sundurlyndi innan rikisstjórnarinnar. Þegar forsætisráðherra og fjár- málaráðherra hafa boðað strangar aðhaldsaðgerðir varðandi erlendar lántökur taka einstakir ráðherrar ákvarðanir um umf angsmiklar f ramkvæmdir án þess að f jár haf i verið af lað til þeirra. Þaðer ekki að undra aðýmislegtgangi úrskeiðis, þegar ráðherrarnir vinna þannig hver gegn öðrum. Þóað f ramkvæmd eins og lagning Vestf jarðalínu sé á lánsf járáætlun á að sjálfsögðu ekki að taka ákvarð- anir um f járskuldbindingar af þeim sökum fyrr en Ijóst er hvernig afla á fjár til verksins. Annað er óábyrg f jár málast jórn. Fyrrverandi stjórn Raf magnsveitna ríkisins brást þvi í einu og öllu rétt við þeim aðstæðum, sem upp voru komnar. Orkuráð- herra kaus á hinn bóginn að halda áfram fjármála- óráðsiunni þvert á yfirlýsta fjármálastefnu ríkis- stjórnarinnar. Þannig snyr málið við og f yrir þá sök hef ur það póli- tiska þýðingu. En fróðlegt verður að sjá hverjir það verða, sem ráðherrann fær til þess að taka við stjórn Rafmagnsveitna ríkisins eftir þeirri forskrift, er hann hef ur nú gef ið. Nema orkuráðherra þyki hentast að breyta eftir lögmálinu, sem Steinn Steinarr lýsti með þessum orðum: ,,Og til þess að örlög vor sjálfra vér hefðum á hreinu var hálfvitum flokksins skipað að éta það fyrst." Hitaveitan i Hveragerði: „HSfum ekkert fengið greitt fyrir vatnið" — segir Karl Ragnars, deildarstjóri hjó Orkustofnun Yiðtal Visis við Sigurð Pálsson, páska „Hvergerðingar hafa til þessa ekkert greitt fyrir vatnið, sem þeir hafa fengið i hitaveituna, og er skuld þeirra viö Orku- stofnun þvi orðin 15-20 milljónir króna”, sagði Karl Ragnars, deildarstjóri hjá Orkustofnun, við Visi. Eins og fram kom i Visi fyrir páska hefur mikið kisilinnihald i vatninu stiflaö bæði rör og for- hitara i hit aveitukerfinu i Hveragerði og hefur hrepps- nefndin nú ákveðið að breyta yfir i gufuveitu. Ekki hefur enn verið gerð endanleg kostnaðar- áætlun, en talið er, að breyting- in muni kosta eitthvað á annað hundrað milljónir króna. Vatnið i hitaveituna er fengið úr borholum, og dælustöð, sem Orkustofnun á og rekur i Hvera- gerði, en samið var um, að hreppurinn keypti vatnið á kostnaðarverði. „Skuld Hveragerðishrepps var 14.9 milljónir króna um sið- ustu mánaðamót”, sagöi Karl, ,.en i þeirri tölu er ekki tekinn með kostnaður vegna raf- magnsnotkunar dælunnar. Ég hef þá tölu ekki við hendina, en myndi áætla, að hún næmi um fjórum milljónum króna.” 1 viðtali viö sveitarstjóra sveitarstjóra i Hveragerði, fyrir Hveragerðishrepps fyrir páska var sett fram það sjónarmið Hvergerðinga, að eðlilegt væri, að Orkustofnun greiddi hluta af kostnaðinum, þar sem um til- raunastarfsemi væri að ræða. „Það er ljóst, að Orkustofnun hefur enga peninga tii aö greiða þennan skuldahala, sem ég nefndi áðan, en það er sú fjár- hæð, sem Hvergerðingar vilja að Orkustofnun borgi. Hins veg- ar hefur Orkustofnun þurft að standa undir þessum rekstri, þar sem engar greiðslur hafa borist. A hinn bóginn er lióst. að þetta þarf að borga og i viðræð- um við forráðamenn Hvera- gerðishrepps bentum viö þeim á aðsækja um styrk úr Orkusjóði, sem þá yrði styrkur vegna þeirra tilrauna. sem þarna var um að ræða. Það hafa þeir ekki látið svo litið að gera,” sagði Karl. Ekki til frambúðar Karl sagði, að vandinn vegna kisilútfellinga i vatninu hefði komiö i ijós fljótlega eftir að hitaveitan tók til starfa. ,,Þá strax var hafist handa um að reyna að lagfæra þetta, og gerðar vissar aðgerðir i þvi skyni. Þar var um að ræða eins konar minni útgáfu af Svart- engisaðferðinni. Þetta gafst til- tölulega vel, en reynslan hefur þó sýnt. að það er ekki nægjan- lega gott til frambúðar. Við höfum svo staðið i striði við Hvergerðinga i mörg ár með aö taka virkilega á þessu máli á þann hátt, að viðunandi lausn fengist. Okkur hefur reynst mjög erfitt að fá þá tíl að fjalla yfirleitt um málið. Orkustofnun hefur þvi að þessu leyti verið alveg mát i þessu máli. Hún hefur hvorki fengið greiðslur frá hreppnum né nokkrar viðræður um það, hvernig ætti aö bera sig að við að leysa málið”. Fréttu af ákvörðuninni um gufuveituna i Visi Karl sagði, að i vetur hefðu fulltrúar Orkustofnunar og hreppsins ræðst litillega við, aðallega þó i haust. „Þá fór Orkustofnun þess á leit við hreppinn, að hann yfir- tæki þann rekstur, sem Orku- stofnun hefur verið með. Það var m.a. gert vegna þess, að engar greiöslur höfðu fengist, en eins vegna hins, að það yrði kannski til þess að betra lag kæmist á þetta ef þeir væru að öllu leyti með reksturinn. Þetta fvrirkomulag leist bæði Orkustofnun og livergerðingum vel á, en hins vegar hefur málið það ég best veit dagað uppi. Siðan kom þessifrétt i Visium að þeir hefðu ákveðið aö breyta yfir i gufuveitu, og það vissum við ekkert um fyrr en viö sáum fréttina”. Betra vatn fæst ekki Karl sagði, að það væri full- reynt, að ekki væri hægt að fá i Hveragerði heitt vatn sem væri minna kisilmengað. „Sú gerð jarðhita, sem þarna er, er þess eðlis, að vinnslan verður mun erfiðari en þegar um er að ræða jaröhitasvæði, eins og t.d. Reykjavik notar,” sagði hann. „Þessi gerð jarð- hitasvæðis krefst vinnslu _af svipuðutagi og td. i Svartsengi. Það þýðir miklu meiri mann- virki og þá um leið dýrara vatn. sem af tur krefst stærri markað- ar. Þá hefur það áreiðanlega spillt fyrir varmavinnslunni i Hveragerði, að allur þorri al- mennings telur, að þar sem Hveragerði sitji nánast á hita- pottinum eigi hitinn þar ekki að kosta neitt. Sannleikurinn er hins vegar sá, að hitinn á svona stað, jafnvel þótt menn sitji á pottinum sjálfum, er dýrari i vinnslu vegna þess, að hitinn er of mikill tii þess aö hægt sé að dæla vatninu upp og nota það beint.” — ESJ OSKAR EFTIR RANN- SÓKN RÍKISSAKSÓKNARA „Við munuin kæra þetta fyrir rikissaksóknara og fara fi-ani á að hann rannsaki ineint hrot verðlagsnefndar á verðlagslög- unum”, sagði Arni Arnason hagfræðingur Verslunarráös i samtali við Visi. Verslunarráð hafði áður kært verðlagsnefnd fyrir Verðlagsdómi en þeirri kæru var visaö frá. llið meinta brot vcrðlagsnefndar er lækkun á verslunarálagningu. Arni sagði að kæran hefði ekki verið tekin fyrir i Verölagsdómi á þeim forsendum að hann fjall- aði aðeins um opinber mál. „Hins vegar”, sagði Árni, „er skýrt tekiö fram i lögum um verðlagsmái frá 1960 að risi mál út af ákvæðum þeirra eigi aö reka þau fyrir sérstökum dóm- stólum i hverjum kaupstaö er nefnist Verðlagsdómur”. Sagði Arni að kæran væri byggð á 3. grein þessara laga þar sem tekið er fram að versl- unarálagningu eigi að miða við vel skipulagöan og hagkvæman rekstur. Einnig byggist kæran á þvf hvernig ákvörðun verðlags- nefndarhafi verið tilkynnt. Arni bentí á að i hvert sinn sem svo- kallaðri 30% reglu hefði verið beitt af verðlagsnefnd við ákvörðun verslunarálagningar eftir gengisfellingar hefði Verslunarráö mótmælt þvi harðlega. Þessi ákvörðun verð- lagsnefndar nú væri eingöngu af pólitiskum toga spunninn og ekki byggð á neinum rannsókn- um á stöðu verslunarinnar i dag eins og gert er ráð fyrir sam- kvæmt 3. grein laganna og vilji þeir lá.ta revna á það fyrir dóm- stólum hvort sú ákvörðun sé lögleg. -KS.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.