Vísir - 24.04.1978, Qupperneq 7

Vísir - 24.04.1978, Qupperneq 7
V m vism Mánudagur 24. aprfl 1978 ( Umsjon: Guðmundur Pétursson SKUTW A OKKUR ÁM VIDVÖRUHAR segir aðstoðarflugmaður kðrönsku farþega þotunnar um rússnesku herþoturnar Aðstoðarflugmaður s-kórönsku farþega- vélarinnar, sem brot- lenti i Sovétríkjunum, segir, að flugmenn á rússnesku herþotunum hafi ekki gefið neina viðvörun, áður en þeir létu kúlurnar kemba bensinleiðslur Boeing- vélarinnar og drápu tvo farþeganna. „Ég sá herþoturnar samsiða okkur,” sagði Cha Soon hinn 43 ára aðstoðarflugmaður Boeing 707-þotunnar. „Það var ekkert sem benti til þess, að skotið yrði á okkur. Eftir 5 miniítna flug dundi svo skothriðin skyndilega á okkur.” Hann sagði, að áhöfn vélar- innar hefði árangurslaust reynt að komast i talsamband við sovésku flugmennina, en helst liti út fyrir, að Rússarnir notuöu ekki sö’mu . bylgjulengdir og aðrar þjóðir. Flugmaöurinn skýröi frá þessu á blaðamannafundi, sem efnt var til i Anchorage i Alaska i gær. — Þar kom ekkert fram, sem varpað gat ljósi á,hvers- vegna kóreanska farþegaþotan hefði villst 1.600 km af leið sinni frá Paris til Seoul. Flugstjóri vélarinnar, Kim Chang-Kyu, og siglingafræð- ingurinn, Lee Kun-Shi, voru kyrrsettir i Svoétrikjunum til að aðstoða við rannsókn málsins. Farþegarnir, sem hrósuðu mjög flugstjóranum fyrir að nauölenda laskaöri flugvélinni á isilögðu vatni áfallalaust, höfðu eftir honum, að loftsiglingatæki vélarinnar hefðu blekkt hann og siglingafræðinginn. Forstjóri kóreanska flug- félagsins sagöi, aö Rússarnir hefðu fjarlægt „svarta kass- nn” flugritann sjálfvirka, sem skráir niður fjarskipti vélar- innar og samtöl i flugstjórnar- klefanum, úr vélinni, en án hans væru engin tök á þvi að slá neinu föstu um, hvað skeð heföi. — Hann kvaðst fyrir sitt levti vilja vita, hvi siglingafræðing- urinn hefði ekki notað sextant- inn til þess að sannprófa, hvort vélin væri á réttri stefnu, ef önn- ur siglingatæki heföu brugðist. — Forstjórinn, sem verður far- þegunum (I06talsins) samferöa heim til Kóreu og Japans frá Alaska, sagði aö siglingafræð- ingurinn hefði flogið þessa leið 70 sinnum. Sovétrikin hafa i opinberi yfirlýsingu sinni um atburðinn sagt, að flugvélin hafi virt að vettugi fyrirskipanir orrustuvélanna um að lenda á flugvelli, og lent á vatninu eftir að skotið var á hana. í Seoul gaf Park Chung-Hee, forseti, yfirlýsingu i gær, þar sem hann þakkaði Sovétstjórn- inni að hafa skilað farþegum vélarinnar tafarlaust, og skor- aði á hana að sleppa flugstjór- anum og siglingafrææðingnum hið bráðasta sömuleiðis. Moro f/fs eða fíðinn? italska þjóðin heffur beðið í ofvceni alla helgina, en ekkert hefur heyrst ffrú rœningjunum Rauða herdeildin hetur ekki sýnt sig lík- lega til þess að taka i framrétta hendi ítaliu- stjórnar um helgina, meðan menn hafa beð- ið milli vonar og ótta eftir fréttum af örlög- um Aldo Moros Enginn haföi minnstu hug- mynd um, hvort forsætisráð- herrann fyrrverandi væri lifs eða liðinn, þótt liðnir væru nær tveir sólarhringar frá þvi frest- ur ræningja hans rann út. — Þeir höfðu hótað að taka Moro af lifi, ef stjórnvöld ekki hæfu samninga um að skipta á honum og kommúniskum föngum. Fulltrúar kaþólsku kirkjunn- ar, sem fengnir höfðu verið til milligöngu, höfðu i morgun ekk- ert heyrt frá ræningjunum. Meðan flestir stjórnmála- flokkar Italfu hafa verið sam- huga um að mæla gegn samn- ingum og undanlátssemi við hryðjuverkamennina, skar sósialistaflokkurinn sig úr i gær, og skoraöi á stjórnina að semja við ræningjana. — „Það sem mestu varðar þessa stundina er að bjarga Aldo Moro”, sagöi Bettoni Craxi, leiðtogi sósial- ista, í yfirlýsingu, þar sem hann veittist harölega að stjórninni. Stjórnvöld hafa neitað aö semja við ræningjana en lagt til, að hugsanlega gæti kaþólska liknarstofnunin Caritas haft milligöngu i málinu. Um helgina kom Páll páfi tvi- vegis fram til að skora á ræningjana að þyrma llfi Aldos Moros, og Kurt Waldheim fram- kvæmdastjóra Sameinuöu þjóö- anna hefur tekið undir þaö ákall. — Renato Curcio, leiðtogi og stofnandi þessara hryðju- verkasamtaka, sem situr i fang- elsi i Torino, sagði i gærkvöldi, aðhann teldi, aö bænstafir þess- ara tveggja kynnu að leita til þessað aftöku Moros yröi frest- að^_ Ræningjarnir hafa ekki enn tikí.ekið, hverjum af þeim 300 viristrisinnújtiu öfgamönnum, sem sitja Mangelsum á ítaliu, þeir vilja, ýað stjórnin sleppi fyrir Moro. Nærtækast er að ætla, aö þeir vilji láta sleppa Curcio og fjórtán félögum hans úr Rauöu herdeildinni, sem sitja með honum á sakabekk i Torino. ttölsk blöð skýrðu frá þvi um helgina, aö Curcio kærði sig ekki um skiptin, og aö þeir félagar kysu heldur að halda baráttu sinrii áfram úr fangels- inu. Hafa kaup á njósnurum Samningaviðræður hafa staðið yfir um að fá þrjá menn leysta úr fangelsum i Bandarikj- unum, Austur-Þýska- landi og Mosambique — eftir þvi sem segir i sið- asta tölublaði timarits- ins „Newsweek”. Balðið telur, að þetta gæti orðið einskonar forleikur að áætlunum um að skipta á sovéska andófs- manninum, Anatoly Shcharansky fýrir Gunther og Christeí Gauillaume, austur-þýsku njósnarana sem komu Willy Brandt kanslara á kné fyrir fjór- um árum. Shcaransky, sem ákærður hefur verið fyrur njósnir I þágu CIA, verður dreginn fyrir rétt fyrir föðurlandssvik, eftir þvi sem fréttir herma, en það er dauðasök í Sovétrfkjunum. „Newsweek” heldur þvi fram, að þessi þreföldu skipti hafi byrjað núna um helgina, þegar israelskum borgara, Miron Markus, var sleppt úr fangelsi i Mosambique, þar sem hann hefur setið i 18 mánuði. Honum var varpað.i fangelsi, þegar flugvél hans feyktist af réttri stefnu á leið til S-Afriku, og inn i lofthelgi Mosambique. Blaðið segir að siöar i vikunni muni Bandarikin sleppa Robert Thompson, Bandarikjamanni, sem var dæmdur fyrir 13 árum sem sovéskur njósnari. Um leiö verði einnig sleppt i Austur- Þýskallandi Alan Van Norman, bandariskum stúdent, sem hand- tekinn var i fyrra fyrir að reyna að mygla austur-þýskri fjöl skyldu vestur fyrir járntjaldiö. „Newsweek” segir, að aðal- samningamennirnir i þessum njósnarakaupum séu austur- þýski lögfræðingurinn Wolfgang Vogel, sem hafði milligöngu i samningunum um fangskiptin á Gary Powers, flugmanni U-2 njósnarflugvélarinnar og sovéska njósnaranum Rudolf Abel, árið 1962, og svo Francis Meehan, hjá bandariska utanríkisráðuneyt- inu. — Blaðið segir i grein sinni, að Vogel muni fara til Washington núna i vikunni og kynna skilmála Sovétstjórnarinn- ar fyrir skiptum á Shcharansky, en i þessari ferð á Vogel að taka með sér Thompson. Talsmaður bandarisku utan- rikisþjónustunnar fékkst ekki til þess að segja fréttamanni Reuters neitt um þessi skrif „Newsweek”, annað en að siðar i vikunni mundi gefin út fréttatil- kynning um málið. Pierre Robert Jone Hellen SNYRTIVÖRURNAR VERÐA KYNNTAR AF SNYRTI- SÉRFRÆÐINGI FRA FYRIRTÆKJUNUM 1 SVIÞJÓÐ 1 EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM. Mánudag 24. 4. kl. 1-6 Þriðjudag 25. 4. kl. 1-6 Miðvikudag 26. 4. kl. 1-6 Fimmtudag 27. 4. kl. 1-6 Föstudag 28. 4. kl. 1-6 Ingólfsapótek Hafnarstræti 5 Regnhlifabúðin Laugavegi 11. Háaleitisapótek Háaleitisbraut 68 Hafnarborg Strandgötu 34 5 Snyrtivörudeildin S; Glæsibæ KOMIÐ í VERSLANIRNAR, KYNNIST NÝJ- UNGUM, FRÆÐIST U M FEGRUN HJÁ MARGARETHA ODE SEM KYNNIR SUM- ARSNYRTINGUNA 1978.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.