Vísir - 17.05.1978, Side 6
6
Saab 96 Fiat 128
Mini Peugeot 204
Mercedez Benz 220
FÉIAOSSTARF EIDRI B0R6ARA
DAGSFERÐIR SUMARIÐ 1978
Eins og undanfarin sumur efnir Félags-
málastofnun Reykjavikurborgar nú til tólf
dagsferða fyrir eldri Reykvikinga.
Farnar verða eftirtaldar ferðir:
1. ferð: Fimmtudaginn 15. júni
Skoðaðar verða sýningar á listahátið:
Erro-sýningin, sýning Kristjáns Davlðssonar, finnska
sýningin og höggmyndasýningin. Siöan verður drukkið
kaffi i Hljómskálagarðinum ef veður leyfir. Verð kr.:
650.0«.
2. ferð: Fimmtudaginn 22. júni
Farið veröur um Þrengsli til Krisuvikur og Grindavlkur.
Verð kr.: 1.400.00.
3. ferð: Þriðjudaginn 27. júni.
Skoðuð verður Hitaveita Reykjavikur, Mosfellssveit,
Vinnuheimilið að Reykjalundi og Laxeldisstööin i Kolla-
firði.
Verö kr. 700.00.
4. ferð: Fimmtudaginn 29. júní.
Fariö verður til Þingvalla og að Laugarvatni.
Verð kr.: 1.400.00.
5. ferð: Þriðjudaginn 4. júli.
Farin verður skoöunarferö i kirkjur I Reykjavik. Dóm-
kirkja, Landakot, Ncskirkja, Frikirkja og Hallgrims-
kirkja. Tónleikar og söngur. Verð kr.: 650.00.
6. ferð: Fimmtudaginn 6. júli.
Farið verður upp i Skorradal um Dragháls og heim um
Stafholtstungur. Verð kr. 2.300.00
7. ferð: Þriðjudaginn 11. júli.
Farið verður í Heiðmörk, sædýrasafnið og kaffi drukkið I
Hellisgerði, Hafnarfirði, ef veður leyfir. Verö kr.: 700.00.
8. ferð: Fimmtudaginn 13. júli
Farið verður að Búrfelli og skoöaöur þjóðveldisbærinn.
Verð kr.: 2.300.00.
9. ferð: Þriðjudaginn 18. júli.
Farið vcrður i Hveragerði, skoðaður verður Garöyrkju-
skóli rikisins og dvalarheimilið As/Asbyrgi. Verö kr.
800.00.
10. ferð: Fimmtudaginn 20. júli.
Farið verður að Munaöarnesi I Borgarfirði. Skoðuð verða
orlofshús. Verð kr.: 2.300.00.
11. ferð: Þriðjudaginn 25. júli.
Farin verður skoðunarferð um Garöabæ um Alftanes,
komið við á Bessastööum og ekiö um Arnarnes. Verð kr.:
650.00.
12. ferð Fimmtudaginn 27. júli
Farin verður Reykjavikurferö. Skoðaö verður Alþingis-
húsið ekið um Arbæ og Breiðholt skoðaður fundarstaður
borgarstjórnar og þar veröa kaffiveitingar. Verð kr.:
650.00.
Nánari upplýsingar gefnar að Norðurbrún
1, alla virka daga klukkan 9:00-12:00. Simi
86960.
íkJl Lausar stöður
Við Flensborgarskólann i Hafnarfiröi fjölbrautaskóla, eru
lausar nokkrar kennarastööur, einkum i islensku, stærö-
fræöi, listgreinum, vélritun og iþróttum. Æskilegt er aö
umsækjendur geti kennt fleiri kennslugreinar en eina.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu
Hverfisgötu 6, Reykjavfk fyrir 10. júni n.k. Umsóknar-
eyöublöö fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
11. mai 1978.
Miðvikudagur 17. mai 1978 vism
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Norðmenn halda tryggð
við gamla tímann, gömul
hús og minjar.
Skíðaíþróttin og útilif er
vinsælasta tómstunda-
gaman Norðmanna.
Margir eiga sér annað
heimili upp til f jalla.
Norðmenn helga 17.
maí stjórnarskrá sinni,
og er hann aðalþjóðhá-
tíðardagur þeirra, enda
eru þeir afar stoltir af
stjórnarskránni.
Hún er frá þvi 1814 og tekur
mið af ýmsu fra Bandarikjun-
um og Frakklandi á byltinga-
rtimunum, þegar lýræöi þess-
ara tveggja landa var i fæðingu.
En sumt er einnig tekið aö láni
úr stjórnarfari Bretlands, eins
og speglast i konungstigninni og
árey nslulausu sambandi
þjóðhöfðingjans við rikisstjórn-
ina og kjósendur.
Á þessu 164 ára afmæli stjórn-
skrárinnar standa Norðmenn á
nýfengnum oliuauði sinum, sem
þeir hafa gert sér miklar vonir
um að mundi leiða til hagsæld-
ar. En siðasta árið hafa þeir
lækkað ögn risið á skýjaborgun-
um, sem þeir reistu sér fyrst i
Norðursjávaroliunni. Þeir gera
sér orðiö ljóst, að þar verður
ekki gripinn upp neinn skjót-
fenginn gróði, sem allir geti velt
sér upp úr. Og hans gætir heldur
ekki i útgjöldum þess opinbera.
Osló, sem telst meðal smærri
höfuðborga álfunnar með tæp-
lega hálfa milljón ibúa státar
ekki af glæstum torgum eða
háhýsisglerhöllum og risa-
ibúðablokkum, eins og lita má
til dæmis i höfuðborg nágrann-
anna Svia Stokkhólmi. Osló
heldur tryggð við fortiöina og
verndar gamla borgarhlutann
með þröngum öngstrætum sin-
um og bláum sporvögnum, sem
skriða milli grárra og fölnaöra
ibúðarhúsa, er standa eins og
minnisvarðar um erfiðari tima.
Það verður aö fara út fyrir
Osló, ef leita skal ummerkja
hins nýja rikisdæmis. A sólrik-
um helgardögum má sjá, eins
og ávallt, hvit þanin seglin á
Oslófiröi og hvitmálaða mótor-
báta á siglingu. Þeim hefur
fjölgað sem geta látið þann
munað eftir sér, og sjá má, að
bátarnir hafa stækkaö frá þvi
fyrir nokkrum árum.
Uppi til fjalla, við vötnin og i
skógarlundum eiga Norömenn
sitt annað heimili i ,,hytt”unum,
sumarbústöðum, skiðakofum,
sem fleiri hafa nú getað reist sér
til aö leita þar hælis frá daglegu
annriki og borgarys.
Um fjóröungur Norömanna
stundar siglingaiþróttina i tóm-
stundum. Tvær og hálf milljón
manna leggur stund á stangar-
veiði og skotiþróttina (árlega eru
felld um 1.300.000 dýr). Vinsæl-
ust er þó skiðaiþróttin, eins og
allur aragrúinn af skiöalyftum á
borgarmörkum ber meö sér.
Oliuauðurinn, eða lán fengin
út á væntanlegan oliugróða, hef-
ur þó mestmegnis runniö til
þess að bægja atvinnuleysi frá
dyrum og standa undir háu
kaupi, meðan viða annars stað-
ar i Evrópu er barist við að
JÞfoð-
ká-
tfðar-
dagur
Norð-
nalda kreppunni I skefjum.
Þótt Norðmenn hafi aldrei
beinlinis verið nískir viö sjálfa
sig hafa flestir þeirra orðið aö
gæta hófsemdar i eyðslu og sýna
ráödeild. En siðari árin hefur
mátt sjá nokkra breytingu á.
Smærri, sparneytnari bilar hafa
vikið fyrir Mercedes Benz og
stórum Volvo-um. Afborgunar-
skilmálar eru rýmri en áöur
voru, og seglbátaeigendum gert
auðveldara um vik að fá sér
stærri skútur. Á siöari drum
hafa Norðmenn verið tiðari
gestir i sólarlöndum en hér fyrr.
En eins og áður sagði, stóð
þetta i sambandi viö skýjaborg-
irnar, sem reistar voru við
fyrstu fréttir af oliufundinum i
Norðursjónum. Mesta gleðivim-
an hefur nú runnið af mönnum,
og rikisstjórnin hefur ákveöið
aö spyrna við fótum. Hún hefur
þegar gert ráðstafanir til þess
aö draga úr einkaneyslu.
Þessa gætir fyrst á feröa-
mannastöðum innanlands. Eins
og til dæmis i Björgyn sem flest-
ir Norðmenn leggja einhvern
tima leiö sina til og margir vitja
mörgum sinnum. Sumarið er
hafið i Noregi og má sjá þaö á
ferðamannastraumnum i
Björgyn þessa dagana.
Ferjurnar eru fullar af fólki og
öll hótel fullpöntuð. En þeir sem
hafa af ferðamannabransanum
tekjur sinar þykjast finna á
minni verslun ferðafólksins,
hvert vindurinn blæs.
,,Viö Norðmenn viljum bæta
okkar kjör meira og meira eins
og við höfum reyndar verið að
gera, en nú verðum við að herða
á taumunum”, sagði einn fata-
verslunareigandi niður viö höfn
i Björgyn i viðtali við frétta-
mann Reuters núna i vikunni.
Björgynbuar þurfa þó ekki að
örvænta. Þeir eru vel i sveit
settir, nærri oliuvinnslusvæðun-
um, og hafa af oliuvinnslunni
næga atvinnu og miklar tekjur.
Sumir verkamenn á oliuborpöll-
unum hafa tvöfaldar tekjur á
við starfsbræður sina i landi.
Vinnuaflið hefur streymt til
Björgynar og sú fólksfjölgun
hefur sagt til sin i húsnæöisekl-
unni. Ungt fólk, sem ætlar að
stofna heimili, verður að leita
töluvert út fyrir bæðinn að lóð til
að reisa sér hús. Fasteignaverð
hefur hækkað mjög, lóðaverð
sömuleiðis, og nú hafa vextir af
lánum verið hækkaðir, um leið
og stjórnin boðar hækkun á
sköttum.
Enn láta þó Björgynarbúar
eftir sér að fara i verslunar-
ferðir með ferjunum til New-
castle á Englandi, þar sem þeir
byrgja sig upp af ullarvörum,
eins og fatnaöi. Og enn láta þeir
eftir sér að ferðast til sólarlanda
Spánar, Afriku og Miðjarðar-
hafsins. En þar eins og annars
staöar hefur verðlag fariö
hækkandi og sumir Norðmenn
sem áður hafa farið árlega eða
annað hvert ár telja það orðiö of
dýran lúxus.
Siðustu tvö árin hefur
Noregur dregist inn i sviðsljós
heimsmálanna með útvikkun
efnahagslögsögu sinnar, sem
blandast hagsmunum stórvelda
eins og Sovétííkjanna. Langar
og erfiðar samningaviöræður
um fiskveiðiréttindi og nýtingu
auðlinda á hafsbotninum i
Barentshafi hafa staðið yfir
milli Norðmanna og Rússa.
Greiðara gekk að ná samning-
um viö Breta, Þjóöverja,
Belgiumenn og Frakka um fisk-
veiðiréttindi I Norðursjónum.
Norðursjávaroliuvinnslan
útheimti flókna samninga við
Breta, Þjóðverja, Dani og
Hollendinga. Þessi persónulega
reynsla Norömanna hefur þvi
veriðofarlega i hugum manna á
þessum árum, sem Hafréttar-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna
hefur staöið yfir.
Jafnframt þessum hags-
munamálum gegnir Noregur
þýðingarmiklu hlutverki i sam-
eiginlegum vörnum NATO og
þær áhyggjur sem Vesturlanda-
menn hafa af vaxandi flotaum-
svifum Sovétmanna á Norður-
Atlantshafinu snerta beinlinis
Noreg, sem er i nábýli við
Sovétrikin og með sina
efnahagslögsögu og landhelgi
liggjandi að lögsögu Sovétrikj-
anna.