Vísir - 17.05.1978, Page 10
10
Miðvikudagur 17. mai 1978 vism
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h/f ’
Rramkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Páisson ábm.
• ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfullfhii: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund-
ur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind
Ásgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elías Snæland Jóns'son, Guðjón Arngrimsson,
Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns-
son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L.
Pálsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: Jón
Óskar Hafsteinsson, Magnús Ólafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifíngarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8.
simar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611
Jlitstjórn: Siðumúla 14 sími 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2000 á
mánuöi innanlands.
Verð i lausasölu
kr. 100 eintakið.
Prentun
Blaöaprent h/f.
Hálfkveðnar vísur
Stjórnmálaflokkarnir hafa nú allir, að Sjálfstæðis-
flokknum undanteknum, gefið út efnahagsmálastefnu-
skrár. Plögg þessi teljast varla skemmtilestur, en eru
um margt fróðleg. Þau eru ólík að framsetningu, en í
þeim má finna með mismunandi áherslum ýmsar sömu
hugmyndirnar að f rambúðarlausn þess ef nahagsvanda,
sem við höf um búið við.
Með sanni verður ekki sagt, að skortur sé á ráðum sem
eiga að vera allra meina bót. Flokkarnir telja í stefnu-
yfirlýsingum sínum nauðsynlegt að gera eitt og annað,
er lengi hefur veríð klifað á. I flestum tilvikum skortir
hins vegar, að skýrt sé út, hvernig eigi að gera óska-
listann að veruleika.
Eitt atriði gengur t.d. eins og rauður þráður í gegnum
allar yf irlýsingarnar, sem út eru komnar. Hér er um að
ræða Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins. Flokkarnir telja
það til höfuðverkefna að efla verðjöfnunarsjóði í því
skyni að draga úr sveiflum í efnahagslífinu. Þetta eru
góðra gjalda verð fyrirheit. En hvergi er að finna vís-
bendingu um, hvernig á að efna þau.
Vísir hóf að vekja á því athygli í fyrra haust, að Verð-
jöfnunarsjóður fiskiðnaðarins hefði að meira og minna
leyti verið notaður öfugt allan þennan áratug. Honum
hefur ekki verið beitt fyrst og fremst til þess að jafna
verðsveiflur á erlendum mörkuðum, heldur til þess að
auðvelda útflutningsfyrirtækjunum að standa undir
innlendum kosnaðarhækkunum.
Flestir eru á einu máli um, að verðsveif lurnar séu ein
af undirrótum verðbólgunnar. Þess vegna jýsa allir
flokkar yfir þvi, að þeir vilji efla verðjöfnunarsjóði.
Samt sem áður er það staðreynd, að í tíð tveggja ríkis-
stjórna hefur Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verið
notaður til seðlaprentunar og þannig hefur hann virkað
einsog ein af mörgum sjálfvirkum verðbólgukvörnum i
hagkerf inu.
Athyglisvert er, að í stef nuyf irlýsingum f lokkanna er
hvergi að f inna vísbendingar um að þeir vilji skrá gengi
krónunnar þannig að unnt sé að láta útf lutningsf yrirtæk-
in greiða í Verðjöfnunarsjóðinn, þegar verð er hátt
erlendis eða í hámarki eins og nú er. En Ijóst er, að við
núverandi aðstæður er ekki unnt að efla Verðjöfnunar-
sjóð fiskiðnaðarins.
Þetta er eitt dæmi af mörgum, sem sýnir, hversu
stefnuyfirlýsingar stjórnmálaflokka geta verið mark-
lausar. Það er ekki nóg að gefa út yf irlýsingar um nauð-
syn þess og mikilvægi að efla verðjöfnunarsjóði, ef
menn eru ekki reiðubúnir til þess að gera það sem til
þarf, svo að því markmiði verði náð.
Ekki verður dregið í efa, að stjórnmálaf lokkarnir séu
allir á móti núverandi jafnvægisleysis- og verðbólgu-
ástandi. En þeir eru misjafnlega reiðubúnir til þess að
breyta forsendunum. Þeir vilja sannarlega lækna verð-
bólguna með verðjöf nunarsjóðum, en án þess að breyta
(Deim forsendum, sem gert hafa ókleift að nota þetta
hagstjórnartæki í því skyni.
Þannig er þetta á fleiri sviðum. Allir flokkarnir lýsa
yfir mikilvægi aðhalds í ríkisfjármálum. Engin þeirra
hef ur þó f ram til þessa sýnt þann áhuga á niðurskurði að
nægthefðitil betriafkomu ríkissjóðs. I stefnuyfirlýsing-
unum er heldur ekki að f inna vísbendingar um að draga
eigi úr kröfum um opinberar framkvæmdir og opinbera
þjónustu svo að þessu marki verði náð.
Vitaskuld á þetta ekki við um öll þau atriði, sem
stefnuyfirlýsingarnar taka til. Afstaða flokkanna í
vaxtamálum er t.a.m. nokkuð skýr. En samt sem áður
eru þessar stef nuyf irlýsingar ekki annað en hálf kveðnar
vísur.
Kosningosjá Vísis
Dalvík fékk kaupstaðar-
réttindi árið 1974. Þar eru nú
fjórir listar í framboði fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar:
A-listi Alþýðuflokksins, B-listi
Framsóknarf lokksins, D-listi
Sjálfstæðisflokksins og G-listi
Alþýðubandalagsins.
Talsverðar breytingar hafa
orðið frá siðustu sveitar-
stjórnarkosningum. Þá buðu
óháðir kjósendur fram A-listann
en Alþýðuflokkurinn bauð ekki
fram lista og Framsóknarflokk-
urinnog Samtök frjáislyndra og
vinstri manna buðu fram sam-
eiginlegan iista, I-listann.
Iriistamenn fengu hreinan
meirihluta og hafa haft veg og
vanda af stjórn bæjarins síðasta
kjörtimabil. Eins og fram
kemur i viðtölum við efstu m enn
framboðslistanna var ráðist i
miklar byggingaframkvæmdir
á vegum bæjarins
Úrslitin 1974
1 bæjarstjórn Dalvikur eiga
sæti 7 fulltrúar. Grslit siðustu
kosninga urðu sem hér segir:
A-listinn, Óháðir kjósendur,
fékk 72 atkvæði og einn mann
kjörinn, Hailgrim Antonsson
húsasmiðameistara.
D-listinn, Sjálfstæðisflokkur,
fékk 124 atkvæði og einn mann
kjörinn, Aðalstein Loftsson
útgerðarmann.
G-iistinn, Alþýðubanda lag
fékk 63 atkvæði og einn mann
kjörinn, Rafn Arnbjörnsson bú-
fræðing.
I-listinn, Framsóknarflokkur
og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna, fékk 312 atkvæði
og fjóra menn kjörna, Jóhann
Antonsson viðskiptafræðing,
Hilmar Danielsson forstjóra,
Braga Jónsson húsasmiða-
meistara og Helga Jónsson raf-
virkjameistara.
A Dalvik búa nú um 1230
manns og verða um það bil 734 á
kjörskrá. —KS
„Hafnarmálin
efst á blaði"
— segir Helgi Jónsson
„Undirstaða búsetu á Dalvik
er að byggja upp höfnina þannig
að það skapist grundvöllur fyrir
aukinni útgerð. Það þarf að
lengja hafnargarðinn og koma
upp betri viðleguaðstöðu fyrir
Helgi Jónsson
A-LISTI
1. Ingólfur Jónsson bygginga-
meistari.
2. Hjördis Jónsdóttir húsmóð-
ir.
3. Hrönn Kristjánsdóttir hús-
móðir.
4. Ragnar Jónsson póstmaður.
5. Brynjar Friðleifsson bygg-
ingameistari.
6. Hildur Jóhannsdóttir verka-
kona.
7. Arngrimur Jónsson iðn-
verkamaður.
B-LISTI
1. Helgi Jónsson
rafvirkjameistari
2. Kristján ólafsson
útibússtjóri
3. Kristinn Guðiaugsson
sláturhússtjóri
4. Kristin Gestsdóttir
skrifstofumaður
3. Hilmar Danfelsson
framkvæmdastjóri
6. Guðriður ólafsdóttir
húsmóðir
7. Kristinn Jónsson
bifvélavirki
D-LISTI
1. Trausti Þorsteinsson skóla-
stjóri.
2. Júlfus Snorrason gjaldkeri.
3. Július Kristjánsson neta-
gerðarmaður.
4. Helgi Þorsteinsson skóla-
stjóri.
5. Lína Gunnarsdóttir hjúkr-
unarkona.
6. Guðbjörg Antonsdóttir hús-
móðir.
7. óskar Jónsson fram-
kvæmdastjöri.
Gengið á reka
Frjálshyggjuhugsuöi sýnd-
ur verðskuldaður sómi
Friedrich A. von Hayek, sem
varð 79 ára fyrir nokkrum dögum
(8. mai sl.), er liklega rökvisasti
frjálslyndi hugsuður þessarar
aldar. Læröur er hann að minnsta
kosti, tók doktorspróf i lögfræði
og annað i hagfræði, hefur verið
prófessor i hagfræði og siðfræði i
fjórum löndum, heimalandi
sinu Austurriki, Bretlandi,
Bandarikjunum og Þýzkalandi,
gefið út fimm bækur um hag-
fræði, niu um stjórnmál, lög og
hugmyndasögu og eina um sál-
fræði, og fengið Nóbelsverðlaun i
hagfræði 1974.
Mont Pélérin-samtökin
Nokkrir samherjar hans i hópi
frjálslyndra fræðimanna — en
þeir hafa með sér lausleg samtök
til skoðanaskipta, kölluð „Mont
Pélerin-samtökin” (eftir fyrsta
fundarstaðnum i Svisslandi), og
var Hayek frumkvöðull þeirra og
formaður 1947 — 1960 —- efndu til
málþings um verk Hayeks þegar
hann fékk Nóbelsverðlaunin og
voru fyrirlestrarnir á þvi gefnir
út i bók Um Hayek („Essays on
Hayek”) á siðasta ári.
Ekki ómerkari menn
Dr. Milton Friedman, prófessor
i hagfræði við Chicago-háskóla og
Nóbelsverðlaunahafi i hagfræði
1976, sem islenzkir róttæklingar
hafa reynt að gera að Grýlu
gömlu (þvi að rökum hans geta
þeir ekki svarað), reit formála
bókarinnar, en dr.
Fritz Machlup, prófessor i hag-
fræði við New York-háskóla, var
ritstjóri hennar. Þetta fyrir-
lestrasafn er fróðlegt fyrir
áhugamenn um stjórnmál.
"Dr. George C. Roche, sagnfræð-
ingur og rektor Hillsdale College i
Michigan, flutti fyrirlestur um
gildi kenninga Hayeks fyrir nú-
timamenn, ritstjórinn Machlup
um hagfræðikenningu Hayeks,
einkum i bókinni Hreinu fjár-
magnskenningunni („The Pure
Theory of Capital” 1941), Arthur
Shenfield, forstöðumaður Alþjóð-
legu hagrannsóknastofnunarinn-
ar („International Institute for
Economic Research”) um kenn-
ingu Hayeks i aðferðafræði vis-
indanna, einkum i bókinni Gagn-
byltingunni i visindum („The
Counter-Revolution of Science”
1952), Ronald Max Hartwell,
kennari i hagsögu við Oxford-
háskóla, um kenningu Haýeks i
sagnfræði, einkum i bókinni
Markaðskerfinu og sagnfræðing-
ólafur Björnsson — Gelr Hallgrímsson. Þeir eru
báðir fylgismenn Hayeks.
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
skrifar um
erlendar
bœkur
Fritz Machlup (ed.):
Essays on Hayek,
Routledge and Kegan Paul
1977, 182 bls., 4.190 kr. (i
flugpósti).