Vísir - 17.05.1978, Blaðsíða 14
14
Gamlar stríðs-
kempur í heimsókn
Tvær gamlar
sprengjuflugvélar, sem
öðluðust frægð i siðari
heimsstyrjöldinni,
höfðu viðkomu á
Reykjavikurflugvelli
um hvitasunnuna. Það
var reyndar töluvert
gestkvæmt um hátiðina
og mikiö af allskonar
flugvélum.
Mesta athygli og hrifningu
vöktu þó Douglas B-26 Invader
og B-25 Mitchell, sem á sinum
tima voru meðal Mnna skæð-
ustu af meðalstórum sprengju-
flugvélum bandamanna i
heimsstyr jöldinni.
Mitchell vélin var þó sýnu
frægari og er það ekki sist fyrir
að það var B-25 flugsveit sem
gerði fyrstu loftárás Banda-
manna á Tokyo.
Það var dálitið óvenjulegur og
einkar djarflegur leiðangur.
Bandarikjamenn voru allstað-
ar á undanhaldi á Kyrrahafs-
vigstöðvunum og áttu enga flug-
vellisvo naarri Japan að þangað
kæmust sprengjuflugvélar til
árása.
Herstjórn Bandarikjanna
taldi nauðsynlegt að gera Japön-
um einhverja skráveifu þótt
ekki værinema til að hressa upp
á móralinn heimafyrir. Gallinn
var bara sá að Bandarikjamenn
voru ekki i neinni aðstöðu til
þess fyrstu mánuði styrjaldar-
innar og ár.
Á flugmóðurskipi
Þá var þaö að James H. Doo-
little, þá undirofursti, kom með
hugmyndina um að flytja B-25
sprengjuflugvélar með flug-
móðurskipi það nálægt strönd-
um Japans að þær hefðu flugþol
til að komast til Tokyo og svo
áfram til flugvallar í Kina, sem
þá hélt töluvert meira upp á
Bandarikjamenn en i dag.
Heldur þótti þetta fráleit hug-
mynd, enda voru B-25 vélarnar
ætlaðar til notkunar af flugvöll-
um á föstu landi og þurftu
drjúga flugbraut fullhlaðnar.
Doolittle fékk samt að gera
tilraun og hún sannfærði hann
um að þetta væri mögulegt.
Flugsveit hans var þvi ferjuð i
áttina til Japans, i april 1942 á
flugmóðursldpinu Hornet. Og
þaðan flugu þær til Tokyo og
komu Japönum gersamlega á
óvart.
Skaðinn sem sprengjurnar
ollu var ekki tiltakanlega mikill,
enda Tokyo stór borg og vélarn-
ar ekki margar. En áhrifin voru
stórkostleg fyrir Bandarikin og
óskaplegt áfall fyrir Japani.
Bandariska þjóðin fékk þarna
gríðarmikinn „áróðurssigur”
sem hún hafði mikla þörf fyrir
eftir ógöngur á Kyrrahafsvig-
stöðvunum. Og hvað Japani
snerti „misstu þeir andlit”, sem
er eitthvað það versta sem fyrir
þá heiðursmenn kemur.
B-25 sprengjuflugvélin sem
hér gisti, var með nafn Doo-
littles, handskrifað á annarri
hliðinni, en þó er vafasamt að
álykta að þetta sé hin fræga vél
hans úr árásinni á Tokyo.
Til gruggugra verka
B-26 vélarnar öðluðust ekki
sömu frægð, en voru þó ekki síð-
ur illvigar. Ekki sist gerðu þær
usla eftir að búið var að taka af
þeim glernefið, setja á þær
„venjulegt” nef og fylla það af
fallbyssum og vélbyssum, sem
notaðar voru til árása á skot-
mörk á jörðu niðri.
Þærhéldulika töluvert lengur
út i herþjónustu en Mitchell-
vélarnar. Meðal annars voru
þær notaðar i Vietnam og ekki
er óliklegt að einhverjar sér-
sveitir Bandarikjahers, sem
fást við gruggugri verkefni, not-
ist ennþá við þær.
— ÓT.
B-26 vélin við gamla flugturninn. Flugvélaþekkjurum skal bent á að mynda-
textarnir ruglast mjög líklega, en að það er hvorki blaðamanni né Ijósmynd-
ara að kenna ef B-25 er sögð B-26 og öf ugt.
Það sprakka á framhjóli B-25 vélarinnar rétt þegar hún var að fara í loftið og
hún fékk að hvila sig hjá Gæslunni, meðan gert var við. Vísismynd Baldur
Sveinsson.
_____ trmfaaf
Miðvikudagur 17. mai 1978 vism
NYKOMIÐ!
Buxur í öllum
stœrðum.
Kven- og
borna-
sumorfotnoður.
- Póstsendum um land allt
Strandgötu 34
Simi 52070
Tæ
54»:=
Eftirtaldar notaðar Mazda bifreiðar
eru til sölu í sýningarsal okkar
929 sjálfsk., 4 ra dyra árg. 78, ekinn 5 þús. km.
818 station árg. 77, ekinn 20 þús. km.
818 4ra dyra árg. 76, ekinn 13 þús km.
818 4ra dyra. 76, ekinn 30 þús. km.
• •
Ollum ofangreindum bifreidum
fylgir 3-6 mánaða Mazda ábyrgð
BÍLABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23 — SÍMI 81264
1 C 1 . A T i
h 1 / A / i
sýningarsalur
Fiat 132 GLS ’77
Verð kr. 2.650 þús.
Fiat 132 GLS ’76
Verö kr. 2.400 þús.
Fiat 132 GLS ’74
Verð kr. 1500 þús..
Fiat 131 Special
siálfsk. ’78
Verð kr. 3.000 þús.
Fiat 131 Special ’77
Verð kr. 2.400 þús.
Fiat 131 Special ’76
Verð kr. 2.000 þús.
Fiat 128 C ’78
Verð kr. 2.300 þús.
Fiat 128 CL ’77
Verð kr. 2.300 þús.
Fiat 128 Special ’76
Verð kr. 1.800 þús.
Fiat 127 C ’78
Verð kr. 1800 þús.
Fiat 127 ’75
Verð kr. 900 þús.
Fiat 127 ’74
Verð kr. 750 þús.
Fiat 125 P ’77
Verð kr. 1500 þús.
Fiat 125 P ’75
Verð kr. 1100 þús.
Audi 100 L ’76
Verð kr. 3.100 þús.
Wagoner Custom ’74
Verð kr. 3.000 þús.
Bronco ’68
úttekin bretti.breið dekk.
Verð kr. 1500 þús.
Volvo 142 ’70
Verð kr. 1250 þús.
Austin Mini ’74
Verð kr. 750 þús.
Hjólhj'si Sprite
Verö kr. 700 jms.
Opiö laugardaga kl. 1-5.
Allir bílar á staðnum
FIAT EIMKAUMBOC A ISLANDI
Davíd Sigurösson hf.
Siðumúla 35, símar 85855 -