Vísir - 29.05.1978, Side 4
4
Mánudagur 29. maí 1978
Meöal þeirra sem komu til þess aö neyta kosningaréttar sins á kjörstaö I Hafnarfiröi f gær voru nunn-
urnar i klaustrinu aö Jófriðarstööum. Visismynd: Björgvin Pálsson.
,/Meiri fylgis aukning en
• jk ■ • m • «9f# — sagði Þorvaldur
við biuggumst við
„Þessi úrslit eru okkur ennþá
hagstæðari en við bjuggumst
við. Það var reiknað meö fylgis-
aukningu, en þetta fer fram úr
björtustu vonum”, sagöi Þor-
vaidur Jónsson, sem skipaði 2.
sæti A-listans á Akureyri, er
Visir ræddi við hann um úrslit-
in.
Skýringuna á fylgisaukn-
ingunni taldi Þorvaldur meðal
annars þá, að öll endurskipu-
lagning á Alþýðuflokknum hefði
verið til góðs og kjósendur hefðu
augsýnilega kunnað að meta
hana. Er hann var spurður að
þvi, hvort hann teldi að fylgis-
tap Sjálfstæðisflokksins hefði
komið Alþýðuflokknum til góða,
kvaðst hann þeirrar skoðunar,
að það fylgi hefði dreifst á alla
flokka.
Það sem kæmi e.t.v. einna
mest á óvart, væri það fylgi sem
F-listi Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna hefði fengið. Það
væri örugglega meira en reikn-
að var með.
—BÁ
,ÞETTA
ERU MIKIL
VONBRIGÐI'
— sagði Árni Grétar Finnsson, Hafnarfirði
„Við höfðum allavega
gert okkur vonir um að
halda fylginu", sagði
Arni Grétar Finnsson um
úrslitin í Hafnarfirði.
Arni kvaðst þeirrar skoðunar
að Hafnfirðingar létu Sjálf-
stæðismenn gjalda rikisstjórn-
rinnar en hefðu ekki kosið um
bæjarmálin. Þetta virtist hins
vegar ekkert sérfyrirbrigöi i
Hafnarfirði, þar sem Sjálf-
stæðismenn hefðu tapað fylgi
viða. Kjósendur virtust hafa
blandað landsmálum og bæjar-
málum saman, en hann kvaðst
ekki lita á þetta sem vantraust á
störf Sjálfstæðismanna að bæj-
armálefnum Hafnarfjaröar.
—BA.
„Það er engin
uppgjöf í okkur"
— sagði Gisli Jónsson á Akureyri
„ Landsmá lapólitikin
yfirgnæfir bæjarmálin en
við höfum frekar litlar
skýringar á þessu og okkur
kemur þetta á óvart.
Þeir flokkar sem eru i stjórnar-
andstöðu virðast reyndar fá aukið
fylgi viðast hvar i þessum sveit-
arstjórnarkosningum þó það sé
sjálfsagt ekki einhlit skýring”,
sagði Gisli Jónsson bæjarfulltrúi
Sjálfstæðismanna á Akureyri, er
rætt var við hann, en flokkur hans
beið verulegt afhroð i þessum
kosningum.
Gisli sagðist þó vilja vekja at-
hygli á þvi að Sjálfstæðisflokkur-
inn væri eftir sem áður stærsti
flokkurinn á Akureyri. „Það er
engin uppgjöf i okkur og við mun-
um eftir sem áður vinna að fram-
gangi þeirra mála sem horfa
Akureyringum til heilla”. sagði
Gisli Jónsson. —BA.
„Landsmálin réðu
þessum úrslitum
en ekki bœjarmálin"
— sagði Ingvar Jóhannsson í Njarðvík
„Ég reikna fastlega með þvi
að við höfum tapað manni
vegna samninganna, þannig aö
það eru eingöngu landsmálin
sem hafa ráðið þessum úrslit-
um”, sagði Ingvar Jóhannsson
á iista Sjálfstæöismanna i
Njarðvik.
Ingvar sagði að Sjálfstæðis-
menn i Njarðvikum hefðu búist
við fylgisaukningu hjá Krötum,
en hins vegar ekki hjá Fram-
sóknarflokknum.
Hann sagðist vilja leggja
áherslu á það að kjósendur virt-
ust ekki hafa hugsað um bæjar-
málin i þessum kosningum
heldur fyrst og fremst lands-
málapólitikina.
—BA
Þetta er hljómplata sem vinnur sífellt á og þú
kemur til með að spila aftur og aftur.
Létt og skemmtileg, við allra hcefi.
Fæst hjá umboðsmönnum okkar um land allt.
FALKIN N
Suðurlandsbraut 8
Laugavegi 24.
Vesturveri.
I gegnum tíðina
Þá er hún komin aftur
nýja hljómplatan
með Mannakorn