Vísir - 29.05.1978, Síða 5

Vísir - 29.05.1978, Síða 5
5 VISIR Mánudagur 29. mal 1978 Myndin er tekin inni á hótelherbergi á Sögu þar seni stúlkurnar fengu smástund til að átta sig á úrslit- unum. „Ég gerði mér ekki neinar hug- myndir um keppnina og titilinn" — segir Halldóra Björk Jónsdóttir Ungfrú ísland 1978 Halldóra Björk Jónsdóttir gekk einn hring um Súlnasalinn aö lok- inni krýningu. //Ástæðan fyrir því að ég var reiðubúin til að keppa um titilinn Ungfrú Island var sú fyrst og fremst/ að ég hef áhuga á því að starfa erlendis og áleit að þetta væri möguleiki til að láta það rætast", sagði Halldóra Björk Jónsdóttir, 21 árs gömul Reykjavíkur- stúlka sem i gærkvöld hlaut titilinn Ungfrú is- land/ en krýningu hennar annaðist Janelle Commiss- iong sem kjörin var Ung- frú heimur 1977. Halldór Björk sem starfar i Bókaverslun Sigfúsar sagðist ekki hafa verið með neinar hug- myndir um það hvort hún færi með sigur af hólmi eða ekki. „Ég væri til með það að sýna verulegt keppnisskap þar sem ég keppti fyrir Islands hönd, en i þvi þægi- lega andrúmslofti sem rikti hjá keppendunum fór þvi viðs fjarri að maður hugsaði um það eitt að sigra.” Halldóra Björn var kjörin Ung- frú Reykjavik fyrir réttum mán- uði, en þær stúlkur sem lengu i þremur efstu sætunum öðluðust þátttökurétt i keppninni um titil- inn Ungfrú Island 1978. Auk Reykjavikurstúlknanna þriggja tóku þátt i fegurðarsamkeppninni stúlkur sem kjörnar höfðu verið Ungfrú Akranes , Silja Allans- dóttir, sem varð i þriðja sæti, Ungfrú Barðastrandasýsla, Anna Maria Sigurðardóttir, Ungfrú Norð-Austurland, Jórunn Sig- tryggsdóttir, Ungfrú Suðurnes, Rósa Ingvarsdóttir, Ungfrú Ar- nessýsla, Svava Kristinsdóttir sem varð i 5. sæti. Ungfrú tsa- fjarðarsýsla, Margrét Jónsdóttir. Fyrir Reykjavik kepptu auk Hall- dóru þær Asdis Loftsdóttir sem varð i öðru sæti og Sigrún Björk Sveinsdóttir sem varð i 4. sæti. Halldóra Björk mun taka þátt i rðarsamkeppni Norðurland- ^á þessu ári, en að tæpu ári er hún á keppninna Ungfrú feimur 1979. _ falkfóra Björk sem fengist hefur töluvert við sýningarstörf, sagði að aðaláhugamál sin væru ^ónlist og söngur, en hún lærði á im tima bæði á gitar og pianó, ist en ekki sist væru það isem heilluðu hana. —BA. Almennar tryggingar hafa flutt aðalskrifstofur sínar úr Pósthús- stræti9, ínýog rúmgóð húsakynni að Síðumúla 39, en afgreiðsla verður þó áfram á götuhæð í Pósthússtræti. í hinu nýja húsi mun %rirtækið hafa betri aðstöðu til allrar þjónustu við viðskiptavini sína. Að Síðumúla 39, á horni Síðumúla og Fellsmúla, eru næg bílsiataeði og greið aðkeyrsla, hvort heldur þú kemur akandi Síðumúlann sjálfan eða Grensásveg og Fells- múla. Míðbæjarafgrelðsla áfram opln aö Pósthússtræti 9 TRYGGINGAR Síöumúla 39 / Sími 82800 Pósthússtræti 9 / Sími 17700

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.