Vísir - 29.05.1978, Qupperneq 11

Vísir - 29.05.1978, Qupperneq 11
m vism Mánudagur 29. mai 1978 11 Benecfikt Gröndal, form. Alþýðuflokksins: ffSigur vegna breyttrar stefnu og starfshátta" „Sigurinn, er fyrstog fremst að þakka alhliða endurnýjun flokksins, breyttri stefnu og starfsháttum, svo og nýju fólki”, sagðiBenedikt Gröndal formaður Alþýðu- flokksins i samtali við Visi i nótt. Benedikt sagði að pólitiskar aðstæður hefðu verið hagstæðar stjórnarandstöðuflokkunum. Þegar hann var spurður hvort úrslitin væru stefnumarkandi fyrir alþingiskosningarnar i næsta mánuði sagði hann: Benedikt Gröndal. ,,Það er mjög löng reynsla fyrir þvi að Alþýðuflokkurinn hefur meira fylgi við alþingis- kosningar en þegar kosið er til sveitarstjórna. Sérstaklega á þetta við um Reykjavik og við munum leggja allt kapp á að þessu verði fylgt vel eftir við kosningarnar sem framundan Ólafur Jóhannesson ,rlfef ekki s kýringar á reiðum höndum" ,,Ég er ekki reiðu- búinn til að koma með neinar skýringar á þessum úrslitum”, sagði Ólafur Jóhannes- son, formaður Fram- sóknarflokksins, við Visi i nótt. Hann var spurður hvort prófkjör flokksins i Reykjavik og fjaðrafok kring um það ætti þátt i tapi flokksins þar. „Ekki vil ég nú gera þvi skóna, ég hef ekki skýringar á reiðum höndum, en þegar Reykjavik sleppir þá höldum við okkar svona nokkurn veginn” sagði ólafur Jóhannes- son. Aðspurður kvaðst ólafur ekki trúa þvi að þessi úrslit yrðu stefnumarkandi fyrir þingkosn- ingarnar. Eflaust gætti lands- Ólafur Jóhannesson. málasjónarmiða eitthvað i sam- bandi við sveitarstjórnarkosn- ingarnar. Þó yrði alltaf að leggja áherslu á að þetta væru sveitarstjórnarkosningar. Þar kæmu til greina ýmis stað- bundin hagsmunaleg sjónarmið sem gætu verið mismunandi á hverjum stað. Ólafur Jóhannesson sagði aö Framsóknarmenn létu þessi úr- slit ekki draga úr sér kjark og nú yrði baráttan her. —SG Guiiin )ddsen, varaformaður Sjálfstœðisflokksins: „Úrslitin mikil vonbrigði og alvarlegt áfall" „úrslitin í sveitar- stiórnakosningunum og þá alveg sérstaklega í Reykjavík eru mikil vonbrigði og alvarlegt áfall. Það er Ijóst að víðast hvar um landið hefur Sjálfstæðisflokkur- inn misst nokkurt fylgi frá þvi sem var 1974", sagði Gunnar Thorodd- sen, varaformaður Sjálfstæðisflokksins við Vísi, er úrslit lágu fyrir i Gunnar sagði að fylgi flokksins 1974 hefði verið óvenju mikið. Orsakirnar fyrir þessu tapi nú væru margvislegar en það væri ljóst, að landsmálin hefðu haft veruleg áhrif og þá Gunnar Thoroddsen. fyrst og fremst efnahagsmálin og verðbólgan. Vísir spurði hvort þetta þýddi að kjósendur væru ekki tilbúnir að taka þeim ráðstöfunum sem rikisstjórnin teldi nauðsynlegar til að hefta verðbólguna. „Ég held að það verði nú ekki ráðiðaf þessum úrslitum, þvi að það liggur fyrir að stjórnar- flokkarnir njóta fylgis meiri- ■ hluta þjóðarinnar. Það kemur fram i þessum kosningum og var vitað áður. Hitt er annað mál.að óánægja og gagnrýni út af efnahagsmálunum er viðtæk- ari og djúpstæðari en menn hafa kannski gert ráð fyrir”, sagði Gunnar Thoroddsen. —SG. Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþýðubanda vgs: ,, Kannski verða veruleg um skipti eftir þingkosningar" Ragnar Arnalds. ,,Ég er mjög ánægður með þær niðurstöður sem nú liggja fyrir. Engan óraði fyrir þvi að Alþýðubandalagið fengi yfir 50% meira atkvæðamagn hlut- fallslega en nokkru sinni áður i bæjar- stjórnakosningum”, sagði Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, er Visir ræddi við hann um klukkan 3.30 i nótt. Var það áður en úrslit lágu fyrir i Reykjavik. Ragnar var spurður, hvort fylgisaukning stjórnarand- stöðuflokkanna þýddi að ný vinstri stjórn yrði mynduð eftir alþingiskosningar: „Nei, ég segi það ekki. En ef þessi sigur er ávisun á enn frek- ari sigra þá mun kannski verða um veruleg umskipti að ræða eftir alþingiskosningarnar”, svaraði Ragnar. Um ástæðurnar fyrir vel- gengni Alþýðubandalagsins i bæjar- og sveitarstjórnarkosn- ingunum sagði Ragnar Arnalds að margt kæmi til. Þar mætti nefna að Alþýðubandalagið væri stærsti stjórnarandstöðuflokkur inn og fólk vildi efla það sem stærsta vinstri flokkinn sem einn væri fær um að veita Sjálf- stæðisflokknum samkeppni. Þar við bættist að rikisstjórn- in stæði illa að vigi varðandi kjaramál og það hefði haft áhrif á kosningarnar. Þá hefðu fram- bjóðendur Alþýðubandalagsins i Reykjavik og viðar staðið sig mjög vel. Sú heildartilhneiging stjórnarflokkanna til að tapa sýndi að kjósendur tækju lands- málin inn i þessar kosningar. —SG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.