Vísir - 01.06.1978, Side 2

Vísir - 01.06.1978, Side 2
2 Fimmtudagur 1. júni 1978 VISIR I I ( í Reykjavík D! 1 Hverjir heldur þú að verði heimsmeistarar i knattspyrnu i ár? Jón Gestur Viggösson, kerfis- fræðingur: Ég hef nú litið hugsaö um það. Ætli ég segi ekki Vestur-Þj óðv erjar. Sigurður Jónsson, tannlæknir: Það veit ég ekki. Vestur-Þjóð- verjar eru liklegir til þess að halda titlinum. hef ekki fylgst svo mikið með þessu að ég geti svarað þessari spurningu. Sigurður Helgason, kennari: Það er erfitt að segja til um það. Það verða sennilega annaðhvort Brasiliumenn eða Vestur-Þjóð- verjar. Páll Steinþór Bjarnason: Ég hef nú ekki verið að velta þvi' fyrir mér. Næstu heimsmeistarar koma sennilega frá Suður-Ameriku og liklega verða það Brasjliumenn //Þetta er besta bókin sem gefin hefur verið út um mig og myndirnar minar. Hönnun bókarinnar er góð/ texti Braga og Matthiasar er léttur og skemmtilegur/ pappírinn góður og prentunin ágæt" sagði listamaðurinn Erró á fundi með fréttamönnum í gær. Það er Iceland Review sem GJALLARHORN ÍBOÐI Þorkell Valdimarsson er ný- verið orðinn stóreigandi i fast- eignum. Flestar þeirra eru i svonefndu Grjótaþorpi og kosta offjár árlega i fasteignagjöld- um, en tekjur af misgóðum hús- kumböldum, eins og Fjalakett- inum, eru nánast engar til að mæta útgjöldum. A einum stað á þessu eignasvæði hagar svo til, að nokkrar tekjur mátti hafa af bilastæði, til að mæta opin- berum gjöldum, ef eitt kofa- hrófið yrði rifið og siðan sléttað yfir. Eftir stóran kosningasigur kommúnista i borgarstjórn tók Þorkell Valdimarsson sig til og fékk sér jarðýtu til að búa til bílastæði. Þegar búið var að rifa hálfan kofann þyrptust að konur og karlar og siöan varð þetta alveg eins og i útlöndum, að einn maðurinn settist með kornabarn fyrir framan jarð- ýtutönnina og sagði á frönsku: Keyriö þið nú. Þorkell Valdimarsson er sjálfsagt alinn upp við það, ein's og aðrir landsmenn, að eigna- rétturinn sé sá réttur, sem seint gangi að taka af mönnum. Samt komst hann að raun um það i fyrradag, að i Grjótaþorpi, og liklegast viðast hvar annars staðar i borginni um þessar mundir, er hann næsta litils viröi. Meðan Þorkeli Valdimarsson var að melta þessi nýju sannindi með sér, vék sér að honum blaöamaður frá blaði allra landsmanna. Og Þor- kell svaraði: ,,Ég segi ekkert við Morgunblaðiö — ég er ekki til viðtals fyrir Morgunblaðið”. Frú Tryggingastofnun rfkis- ins kom ekki á vettvang I þessu máli heldur Adda Bára Sigfús- dóttir. En henni fannst að þarna yrði einhver að vera, sem kall- ast gæti forsvarsmaöur núver- andi borgarstjórnar. Að vfsu liggur ekkert á ljósu um það, hver sé núverandi borgarstjórn, en þarna voru eflaust miklir stuðningsmenn frú öddu og frú Tryggingastofnunar ríkisins á ferö, og þess vegna hefur þótt rétt eftir atvikum að gæta hjarðarinnar gegn kapitalistan- um Þorkatli Valdimarssyni, sem neitar að tala við blað allra landsmanna. Aö visu viðurkenndu þeir viti- bornari á staönum, að ekkert gæti bannað eiganda að fram- kvæma það sem hann vill á eigin lóð. Samt kom fram, og var áréttað margsinnis, að eig- andinn hefði engu að siöur eng- an rétt til að gera það sem hann ætlaði sér með lóðina. Hin nýja stefna „núverandi borgar- stjórnar” viröist þvi vera, aö eigandinn eigi allan rétt sam- kvæmt lögum, en engan rétt I framkvæmdinni. Það heitir engan siðferðilegan rétt á máli fólksins, og verður sjálfsagt hægt að færa það ákvæöi yfir alla byggð borgarinnar á skömmum tima. Eftir nokkurt orðaskak bauðst þrælvön andófskona til að lána fólkinu gjallarhorn, ef það mætti verða til þess að kveðja saman fleira fólk til andmæla undir kjörorðinu: Hér er maður aö misþyrma lóð sinni. Umræð- ur um það, hvort taka bæri boð- inu um gjallarhorniö stóöu enn þegar siðast fréttist. En það er fleira sem herjar á Grjótaþorpið þessa dagana. Jó- hanna hringdi i blað og lét hafa eftir sér að ekki væri svefnsamt i hverfinu, vegna þess að „vfg- djarfir ökuþórar þenja farar- tæki sín við undirleik hávaða- samra þeytilúðra, lfkt og þús- und djöflar væru á hælum þeirra”. Og ennfremur segir Jó- hanna: „Stundar margur það (næturfólkið), allt eftir efnum og ástæðum, að gera þarfir sfn- ar illþefjandi við húsveggi i Grjótaþorpi”. Sem sagt: Þorkell vildi fækka veggjum á eignarlóö sinni, en það er bannað af siðferöilegum ástæðum. Og þótt nýr borgar- stjórnarmeirihluti sé þegar tek- inn til starfa f Grjótaþorpi, virð- ist litið ráðast um ástand og horfur i hverfinu. Lagt er til að tekið veröi boðinu um gjallar- hornið. Enda verður eignarétt- inum og borgarmálum eflaust best stjórnað með gjallarhorn- um næsta kastið. Svarthöfði. P.S. Meö kveðju til Magnúsar Kjartanssonar og þökk fyrir limru: Þótt banamein læknist og batni og bræðrum tveim þrautirnar sjatni sprakk annað með hvin i Covent Garden en hinn sprakk á Laugarvatni. Sami.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.